Alþýðublaðið - 12.10.1948, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 12.10.1948, Qupperneq 4
ALÞYÐUBLAÐIÐ Þriðjudagur 12- >okt. 1948, fitrcfuii: A^ýfiflokfcirSBB. Bitstjórl: Stefán Pjetursson. Fréttastjóri: Benedlkt GröncUU Þingfréttir: Helgi Sæmnndssoa. Bitstjónuucsínutr: 4901, 4902. Asglýsingar: Bmiíía Möller. Auglýsingasími: 4906. Afgreiðsiusimi: 4900. ASsetur: Alþýðuhúsi®. Alþý&nurentsmiSJan UL Delian í bæjarsíjórn urn DEILAN í bæjarstjórn um Krýsuvíkurveginn er sannarlega athyglisverð fyrir almenning höfuðstaðarins ýmissa orsaka vögna. For- saga málsins er sú, að lagt hefur verið til, að þrír aðil- ar. mjólkursamsalan, Hafnar fjarðarbær og Reykjavíkur- bær, leggi fram það fé, sem til þess þarf að ljúka lagn- ingu vegarins, en það mundi taka mjög skamman tíma. Aðilar þessir fengju síðan framlag sitt endurgreitt af fjárveitingu alþingis til veg- arins, en þess mun naumast að vænta, að ríkið ljúki fram kvæmd þessari fyrr en efíir 5—6 ár, ef fulltingi annarra aðila kemur ekki til. Mjólk- ursamsalan og Hafnarfjarðar bær vilja leggja. fé þetta fram fyrir sitt leytti, en nú eru aliar horfur á því, að Gunnar Thoroddsen borgar- stjóri reyni með ofríki að knýja það fram, að Reykja vikurbær skerist úr leik. Síðasti bæjarstjórnarfund ur skar úr um, hver er af- sitaða borgarstjórans til þessa máls. Hann er því andvígur, að Reykjavíkurbær leggi £ram sinn skerf til að ljúka verkinu og ber því við, að bæjarsjóður hafi ekki til reiðu fé það, sem til þess íþurfi. Þessu er haldið fram á sama bæjarstjórnarfundi og borgarstjóri fíytur langa og innfjálga ræðu um hina góðu afkomu Reykjavíkur- bæjar, en hún er að dómi hans og málgagns bæjar- stjórnarflialdsins, Morgun- blaðsins, einsdæmi um fjár- málahyggindi og f ram- k væmdast jórn! * Þessi afstaða borgarstjóra til Krýsuvíkurvegarins er í meíra lagi furðuleg. Bæjar- ráð hafði fjallað um þetta mál og samþykkt tillögu setts borgarstjóra, Tómasar Jónssonar borgarritara, um að hún mælti með bví við bæjarstjórn, að bráðabirgöa 2án þetta til Krýsuvíkurveg- arins yrði veitt. Bæjarráð samþykkti tillögu þessa sam hjljóðai, þair"' á meðal ftvaÍDC samheriar borgarstjóra, Guð mundur Ásbjörnsson, forseti bæjarstjórnar. og Auður Auð uns, annar varaforseti bæjar stjórnarinnar. Þegar málið kom svo fyrir bæjarstjórn- ai’fund. bað borgarstjóri um frest á afgreiðslu þess. Síðan er málinu ekki hreyft í bæj arstjórn á næsta fundi, en á síðasta fundi hennar ber það ó góma vegna írtrekaðra til- mæla um lánveitingu bæjar- ins í þessu skýni. Þá leggur borgarstjóri á rnóti málinu, en þegar krafizt er af- Þegar alþingi kemur saman. — Og kosningum fil Alþýðusambandsins lýkur. VELKOIVINIR TIL ÞINGS. — Þrátt fyrir allar skammir, sem alltaf dynja á alþingismönn um er almenningur ekki svo mjög óánægður með þá. Að vísu verður þeim ýmislegt á eins og öðrum mönnum, en þróunin hin síðari ár sýnir að hér hefur ver ið byggt upp, að hér hefur ver ið farið betur með gjaldeyris- tekjurnar en hjá fjölda mörg- um öðrum þjóðum og að hér hefur verið lagður grundvöllur að glæsilegri framtíð, ef nátt- úran verður jafn gjafmild og hún hefur ætíð verið og við nennum að nema úr skauti ■hennar ;gæðin sem hún vill gefa okkur. VIÐ HÖFUM EIGNAZT ný tæki á öllum sviðum, á sjónum, á jörðinni, ný heimili og ný tæki í þau, rafmagn og vegi og síma og svo ótalmargt annað. Framtak okkar hin síðari ár sýn ir ekki aðeins auð heldur og ráð deild. og þó að almenningur hafi hér haft forustuna, þá hef ur alþingi og lagt línurnar og eftir þeirn hefur verið farið. Það er rangt að láta smáatriði, jafnvel þó að þau kunni að virð ast stór i basli dagsins í dag, gleyja okkur svo sýn, að við sjáum ekki aðalatriðin. EN AÐALATRIÐIN eru fólg in í hinni miklu endursköpun, sem hér hefur farið fram. Aðal atriði fyrir okkur nú er að halda verðgildi peninganna, að stemma stigu fyrir aukinni dýr tíð, að styrkja alla möguleika til stöðugrar velborgaðrar vinnu fyrir alla — og að minnka drykkjuskapinn meðal þjóðar- innar. Þetta eru aðalatriðin hvað sem hver segir og þegar við vitum um hætturnar, ættum við að vera menn til að forðast þær. ÞAÐ ER LÍKA mikið gleði- efni, að nú er hægt að vænta þess, að verkalýðshreyfingin starfi með öðrum öflum þjóð- félagsins að vaxandi velmegun allra, að því að styrkja atvinnu skilyrðin, að auka og endur- báeta félagsmálalöggjöfina, að byggja upp ný heimili, vinna að því að gera þetta litla þjóð- félag okkar að fyrirmyndar- þjóðfélagi, þannig að enginn hafi möguleika til að kúga ann an eða arðræna, en allir hafi sama aðgang að sólargeislum og sköpun sinnar eigin framtíðar. MEÐ KOSNINGUNUM til allsherjarþings alþýðunnar hef ur hún sýnt, að hún vill ekki beita alþýðusamtökunum á þann hátt, sem verið hefur und anfarin ár, að þau séu notuð sem rýtingur, sem dreginn er úr erminni til lags hvenær sem óprúttnum spekúlöntum og mönnum með annarleg sjónar- mið býður svo við að horfa. A1 þýðusamtökin munu starfa á hreinum stéttarlegum grund- velli fyrst og fremst með hags muni stritandi alþýðu fyrir aug um, en án þess þó að missa nokkurn tíma sjónar á heill þjóðarinnar allrar. Og það verða allir að gera sér ljóst, að verka menn eru ekki einráðir um bar dagaaðferðir sínar. Atvinnurek endur ráða miklu um vopnaburð inn. ÞANNIG HEFUR ÞAÐ Æ- TÍÐ VERIÐ alls staðar — og þannig verður það hér. En framvegis verður það aðeins ís lenzk málefnaþróun sem ræður stefnu alþýðusamtakanna, ekk- ert annað. Starfsemi íslenzkra alþýðusamtaka mun ekki mið- ast við bollaleggingar erlendis um heimsbyltingu eða verða gerð að lið í hráskinnaleik stór velda. Hannes á hornimi. Námskeið í sænsku fyrir al- menning verður haldið í há- skólanum með sama hætti sem síðastliðinn vetur. Kennslan er ókeypis. Nemendur eru beðnir að koma til viðtals fimmtudag- inn 14. okt. kl. 6.15 í IV. kennslustofu háskólans. greiðslu þess, fer íhaldsmeiri- hlurtinn á klíkufund, og síðan biður einn bæjarfulltrúi hans enn um frest! Fljótt á litið virðist það naumast koma til mála, að bæjarsrtjórn viki frá því sam- komulagi, sem gert var um afgreiðslu þessa máls í bæj- arráði á sínum rtíma. Verði af- jgreiðsla þess á aðra lund, stafar það af því einu, að borg 'arstjóri beiti rtvo samherja 'sína því ofríkí að fá þá til að falla frá fyrri afstöðu sinni. Þess verður skammt að bíða að úr því verði skorið, hvort ■hinni einkennilegu fjöl- skyldudeilu bæjarstjórnar- .íhaldsins lyktar rneð sigri ^borgarstjóra eða hvort Guð- Imundur Ásbjörnsson og Auð- jur Auðuns standa við fyrri afstöðu sína og vísá ofríki borgarstjórans á bug- * Engum, sem hlýddi á mál- flutning borgarstjóra um Ki’ýsuvíkurveginn á síðasta bæjarstjórnarfundi, getur dulizt, að hann leggur á móti lánveitingunni af persónru- legrí andúð. Hann veit eins vel og allir aðrir. að Krýsu- víkurvegurinn verður full- gerður í náinni framtíð. Aðal- atriði málsins er það, að bær- inn á þess kost í félagi við aðra aðila að hraða fram- kvæmd verksins um nokkur ár. Það getur hann gert, án bess að eiga nokkuð á hærttu. En í staðinn kann að koma txygging fyrir því, að hægt yrði að halda uppi samgöng- um við sveirtirnar austan fjalls á snjóavetrum. þegar leið- irnar um Hellisheiði og Mos- fellsheiði væru ófærar með öllu og því ógerlegt að ann- ast mjólburflurtninga til höf- uðstaðarins, ef Krýsuvíkur- vegurinn væri ekki kominn til sögu. Borgarstjóra væri skylt að athuga þetta aðalatriði máls- ins vel áður en það óhappa- verk er unnið að stöðva lán- veitingu Reykjavílmrbæj ar til Krýsuvíkurvegarins. Orðsending frá Mjólkursamsölumti í dag hefst skömmtun á mjólk í Heykjavík og Hafnarfirði. Skammtaður verður Vz líter á mann. Verður afgreitt út á mjólkurskömmt- unarreit nr. 1 í dag og númerin þann- ig dag frá degi meðan skammtað verður, Fólk er minnt á að koma með af- klippta reitina í mjólkurbúðirnar. Sýning áverkum 'Guðmundar- (Muggs) í sýningarsal Ásmundar Sveinssonar, Freyju- götu 41 opin daglega klukkan 2—10 síðdegis. Mínar hjartans beztu þakkir færi ég börn- um mínum, tengdabörnum og öðrum vin- um fyrir Ijóð, gjafir, blóma- og skeyta- sendingar, er mér bárust sextugri 28. f. m. Guð blessi ykkur öll. ÞORGERÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR, Hafnarfirði. vantar nú þegar ungling til blaðburðar í Skjólin. Talið við afgreiðsluna. Alþýðublaðið. Sími reioi

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.