Alþýðublaðið - 04.11.1948, Page 6

Alþýðublaðið - 04.11.1948, Page 6
6 ALÞÝÐUBLAÐJÐ Fimmtudagur 4. nóv. 1948. i........................ Filipus Bessason hreppstjóri: AÐSENT BRÉF Heiðraði ritstjóri. í hendur mínar barst um dag inn „fyrir þinn atbeína“ nýtt Reykjavíkurblað, — Mánudags- blaðið. Þykir mér blað þetta hið merkilegasta í marga staði, og bið ég þig að senda mér það framvegis, ef slíkt er hægt, þér, .— og þó einkum mér að kostn- aðarlausu. Þarna er t. d. margan mikils- verðan fróðleik að finna, ssm landslýður á ekki völ á annars staðar mér vitanlega, og áreið- anlega á eftir að sjást árangur hans í aukinni menning þjóðar vorrar og framför á mörgum sviðum; þess skal og einnig get- ið, að sá fróðleikur er fluttur á gullaldarmáli íslendinga hinu nýja, og er eitt út af fyrir sig ávinningur mikill að fá það prentfast, og þá sennilega einnig síðar orðtekið í hina miklu, vís- indalegu íslenzku orðabók. Á ég með þessum orðum mínum við kvikmyndadálkinn; segi ég það mála sannast, að merkileg og þjóðménningarlíkleg þótti mér sú fregn, að kvikmyndadís nokkur skyldi vera ólétt orðin, og þótti mér sem nokkuð létti þegar í stað af mér öllum bú- skaparáhyggjum og kvíða, og mun svo íleirum hafa farið. Skil ég satt að segja alls ekki hvern- ig þjóð vor hefur lifað án slíks fróðleiks í meir en þúsund ár, — enda hefur það ekkert líf verið með köflum. Þá eru og hugleiðingar ýmsar og athuganir um menn og mál- efni með enn hressilegri og hreinskilnislegri blæ í blaði þessu, og hef ég verið að í- grunda hver orsökin muni vera. Þótti mér í fyrstu líklegast, sem þarna hefðu geðillir menn fengið að ganga til „persónu- legra skrifta" sér til andlegrar afléttingar og heilbrigðisauka og að ráði sálsjúkdómafræðinga, — og hefði þá blaðið tvíþættan tilgang. En seinna skaut upp í hugsun minni þeirri ágizkun. aó laugardagskvöldin, •— eða öllu heldur afleiðingar laugar- dagskvölda, kynnu að ráða þarna nokkru um geð manna og orðalag í þessu þeirra mánu- dagsspjalli, og getur það raunar samrýmzt prýðilega tilgátunni um persónulegar skriftir og af- léttingu, og bæri þá að skoða blaðið sem eins konar „afvikinn stað“ fyrir þá menn, sem verða að losast við eitthvað eða springa ella. Læt ég svo útrætt um bláðið í bili, en bið þig senda mér það — með nefndum forsendum. Úr sveit minni er ekkert að frétta að ég man, og kveð ég þig virðingarfyllst. Filipus Bessason hreppstjóri. Læknaskifti Þeir menn, er þess óska og réttinda njóta í Sjúkrasamlagi Hafnarfjarðar geta í yfir- standandi nóvembermánuði skipt um heim ilislækna frá næsta nýjári að telja. Ber mönnum að snúa sér í þessu efni til skrif- stofu samlagsins í Ráðhúsinu, Strandgötu 6. og sýna jafnframt samlagskírteini sín. Þess skal getið til leiðbeiningar, að um er að velja sömu lækna, sem starfað hafa hér í bænum undanfarið og auk þeirra Ólaf Ólafsson, fyrrverandi héraðslækni í Stykk ishólmi. sem sest að hér í bænum um næstu áramót, sem starfandi læknir. .. Sjúkrasamlag Hafnarfjarðar. Byggmgarsamvinnufél. Reykjavíkur þurfa félagsmenn nú að sækja um sjálfir, sakv. auglýsingu frá Fjárhagsráði. Þeir fé- lagsmenn, sem ætla að sækja um að fá í- búð byggða á vegum félagsins á næsta ári þurfa að senda félaginu fjárfestingarbeiðn- ir sínar í tvíriti til Byggingarsamvinnufél. Reykjavíkur Garðastr. 6 fyrir 18. þ. m. og sendir félagið síðan umsóknir fyrir tilskil- inn tíma til Fjárhagsráðs. Stjórnin. fann, að þarna við vegginn stóð kona, sem í eðli sínu var ekkert annað en sakleysið og hefði heldur viljað deyja en að nokkuð hefði saurgað kveneðli hennar- Það þurfti' ekki annað ,en að horfa á munn. hennar, línuna milli varanna, sem segir alit um skapgerð fólks, hugsaði hanrr — og kökkurinn í brjósti hans leystist upp. Matthildur, sem var mjög íilfinninganæm, hafðj fundið undirejns þegar elskhugi hennar losnaði við þessa kvöl. Blíðlegt bros færðist yfir andlit hennar og glampa brá fy.rir í augum hennar vegna þess að h-ún hafði sigr- ,að hið ósýnilega sundrungar- iafl án þess að berjast. Þau nálguðust hvort annað, og svo fullkomlega sarntaka fóru þau út í heiða nóttina. í tunglsljósinu virtist skógur- inn minnast liðins dags- Trjá topparnir vörpuðu skuggum, sem voru eins og brýr ýfir silfurgljáandi lækinn. Sjálfkrafa kom handlegg ur hans utan um háls henn- ar, og þau voru svo mátulega stór, að þegar þau gengu, þá var öxl hennar alveg undir handarkrika hans. Þau gengu hægt yfir rjóðrið undir þess- ari glitrandi stjömuhvelf- ingu samskrefa, eins og þau væru eirm maður. Hún fann andardrátt hans svalandi á vanga sér, og það brakaði í þurrum greinum undir fótum hennar. Inn á milli trjáima dró hann hana að sér- Hún skalf. í augum hennar, sem nú voru svo nærri honum, las hann að hún varð fyrst að sigrast á brennandi blygðunarsemi. Hann las aBt í augum henn- ar; hjarta hans þekkti það aUt. ,,Eigum við að snúa við og gá að tjaldinu okkar?“ spurði hann og brosti. Hún hneigði höfuðið- En sverhné hún í faðm hans og féll í það algleymi, sem var byrjun nýs lífs með honum. Tunglsljósið smaug á milli trjáhna og varpaði töfra- blæjuisinni yfir dökka mosa- breíðuna, sem þau lágu á. Þunni kjóllinn heimar var ' hnepptur ofan í mitti. Meðan hönd hans losaði hnapp eftir -hnapp, litu augu hans stöðugt á hana og spurðu. hvort hann mætti. Og enn hvíldu augu hans á henni, þegar hann smeygði hendinni hægt inn fyrir kjólinn og á heit brjóst henriar. Kjóllinn var kræktur saman í hálsinn með litlum krók, sem isást ekki- Hann gat ekki losað það. Hún færði hönd hans að vörum sér og gerði svo þrátt fyrir blygðun sína fyrir hann það, sem hann hafði ekki getáð. Hann horfði ákaft á. Hún var í dálitlum efa, en öðlaðist þó nógan kjark til þess að spenr.a frá sér beltið, fara úr kjólnum sínum og undirkjólnum. • Hún fann mosann 'undir sér. Hún hné aftur á bak og hvíti mána- geislinn skein af brjóstum hennax niður eftir henni- Hann sá það, sem tilheyrði honum. Fyrir augnaráði hans varð hún að lykja aftur aug- unum; hún var ekki í neinu nema sokkunum- Hönd hans færðist nær. Höfuð hennar seig niður á öxl hennar eins og höfuð deyjandi manns á dauðastundinni. í sex ár hafði Matthildux verið gift manni, sem ekki hafði getað talað til tilfinn,- jnga hennar á einfaldan hátt. Og þar sem henni var þannig varið, að ekki gat verið um neinn tviskinnung að ræða í fari hennar, hafði líka kven- eðli hennar verið ósnortið í örmum Silafs. Hún ititraði eins og hún hefði gengið í gegniöit sára þjáningu og horfði á elskhuga smn. vand- ræðaleg og spyrjandi. Weston vissi strax, hvað komið hafði fyrir. Hann tók konu sína blíðlega í faðm sér. Hnakki hans var rennvotur af tárum hennar. Hún hreyfði höfuð sitt svo iað það var .al- veg undir höku hans og hún var enn að hugsa um opin- berun hans og færði sig enn nær honum. Han,n fann varir hennar bærast við brjóst sgr- ,,Frá þér, elskan mín, frá þér, elsk an mín.“ Hún dró andann djúpt og stuttu síðar var hún í fasta svefni. Weston, sem áleit ævistarf sitt ekki miki'lvægara heldur en hamingju konu sinnar, var mjög ánægður yfir að hafa getað losað Matthildi úr þeim fjötrum, sem svo mörg við- kvæm konan er bundin. Af rólegum og reglulegum and- ardrætti hennar réði hann, að hún mundi vera sofandi og vonaði, að hann væri í draumi hlnnar. Matthildur, Rósa og Fjóla voru að kaupa límonaði fyrir fjársjóð blómaklúbbsins. En sykurkeðjah, sem Matthildur hafði um hálsinn, var úr skíru gulli. Þegar hún hvíldi þarna undir sama eplatrénu, sem hún og vinkonur hennar höfðu legið og dreymt um framtíðina, gat hún, gædd al- mætti draumsins, horft yfir hímingnæfandi fjöUin yfir í fjarlægan dal, þar sem rauð- ar draumsóleyjar skrýddu engir. í hverju blómi, eins og í kornbindi, sat ófætt barn, sem vasrgaðist blítt í vindin- um- Hið ófædda barn Rósu sagði, með svo djúpri hryggð að óskiljanlegt var hverjum jarðbúa: „Móðir mín vildi verða greifafrú og drekka te í Shanghai. En hún dó þegar hún var litil stúlka, hún elsku mamma mín, og ég er „Gangleri“, tímarit Guðspekifélags fsiaands, IL hefti 22. árgangs er nýkomið út. Efni þessa heftis er: 1. Af sjónarhóli. 2. Páll Einarsson áttræður. 5. Karma. 4. Menn og dýr. 5. Frá sjónarmiði Meistarans. 6. Villigötur nútímans. 7. Græni geislinn. 8. Endúrholdgunarkenningin sækir fram. 9. Mesta dýrsmerkið. 10. Siðir og siðleysi. Kaupið og lesið „Gangléra". Hann tekur til meðferðar mörg af mestu vanda tnál'um mannkynsins, en er hvorki trúaráróðursrit né heldur á valdi „vís- indalegrar“ efnishyggju. Hann er ofar hvoru tveggja, og er rit þeirra, sem unna frjálsri hugsun og lífsskilningi. Afgreiðslumaður er frú Anna Guð- mundsdóttir, Ásvallagötu 39 (sími 5569). Ritstjóri er Gretar Fells, Ingólfs- stræti 22, Reykj'avik.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.