Alþýðublaðið - 25.11.1948, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 25.11.1948, Blaðsíða 6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ Fanmtudagur 25. jióv.* 1948. Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. Ritstjóri: Stefán Pjetursson. Fréttastjóri: Benedikt Gröndal. Þingfréttir: Helgi Sæmundsson. Ritstjórnarsímar: 4901, 4902. Auglýsingar: Emilía MöIIer. Auglýsingasími: 4906. Afgreiðslusími: 4900. Aðsetur: Alþýðuhúsið. Alþýðuprentsmiðjan h.f. Sókndjarff og bjart- sýnt flokksþing Þörf fyrir nýja slökkvistöð. — Reksturshalli á Farsóttahúsinu. — Hæítulegar kjallaratröppur. — Fögur íslenzk kvikmynd. FLOKKSÞINGI AL- ÞÝÐUFLOKKSINS lauk í gær- Það hafði á skömmum tíma unnið mikið starf. enda sátu það áhugasamir og þraut reyndir forustumenn flokks- jns og verkalýðssamtakanna víðs vegar að af landinu- Um ræður á þinginu voru miklar og báru vitni um sóknarhug og sigurvissu flokksins. Meg instefna Alþýðuflokksins í öil um helztu málum samtíðar! og framtíðar var mörkuð í ýt arlegum álykturum af hálfu þingsins. Starf þingsins og af greiðsla á málum þess vitnaði um það á glöggan hátt, hversu traustur lýðræðis- flokkur Alþýðuflokkurinn er. Þar komu fram mörg sióuar mið marga aðila. En í öllum höfuðmálum ríkti á þinginu einhugur og samheldni- Al- þýðuflokkurinn stendur sem einn maður að baki ráðherr- um síuum í núverandi ríkis- stjórn, og hann er staðráðinn í að halda áfiram skeleggri sókn fyrir baráttumálum og hugsjónum jafnaðarstefnunn ar. | Það hefur ekki farið dult, að Alþýðuflokkurinn sé vax andi flokkur í landinu- Hann vann glæsilegan sigur í báð- um þeim kosningum, er fram fóru árið 1946- Síðan hefur styrkur ha.ns komið í Ijós á I margan hátt, en gleggst í bar áttunni um Alþýðusamband ið, þar sem kommúnistar voru ofurliði bornir fyrir for ustu og fulltingi Alþýðu- | flokksmanna. Ald?ei hefur málefnum Alþýðuflokksins verið meiri gaumur gefinn af þjóðinni en á yfirstandandi tímum, og þeim mönnum í, landinu fer æ fjölgandi, sem tengj.a vonir sínar um úr- lausnir vandamála samtíðar- innar við framtíðarsigur hans. ❖ Fulltrúarnir á hinu ný- lokna þingi Alþýðuflokksins voru grunnreifir og baráttu- glaðir. Hver af öðrum létu þeir í ljós þá fullvissu sína, að Alþýðuflokkurinn væri sterk lega vaxandi flokkur, að sókn hans myndi halda áfram og nýir sigrar vera á næsta leiti. Þessi bjartsýni Alþýðu- flokksins er eðlileg. Hann hef ur sigrazt á öllum erfiðleik- um, sem klofningurinn fyri.r tíu árum hafði í för með sér, istór aukið fylgi sitt á ný og tekið nú forustu í stjórn landsins. Fulltrúarnir, sem flokksþingið sóttu, hverfa nú hver heim til sín og taka höndum saman við þúsundir samherja um land allt í áfram haldandi sókn. Alþýðuflokk- urinn mun út á við halda linnulaust áfram baráttunni fyrir hinum góða málstað ÞAÐ VÆRI EKKI VANÞÖRF á því að reisa nýja slökkvistöð hér í Reykjavík, enda er ein- hver hreyfing með það, að því er blöð segja. Slökkvistöðin var reist 1912, en bá voru hér 14 þúsund íbúar. Nú eru hér um 54 þúsund, og bærinn hefur stækkað svo mikið, að ekki er hægt að gera samanburð. Tæk- in, .sem .slökkviliðið .hefur fengið, eru allt önnur og allt hefur breytzt, nema húsnæðið- Það er hið sama og áður var. BORGARI SKRIFAR: „Kunn ingi minn sagði mér, að á síð- ast liðnu ári hefði rekstrarhall- inn á Farsóttahúsinu orðið kr. 1.394.097,82. Ef þetta er rétt, getur þú þá upplýst mig um það, hverjar ástæðurnar eru fyrir þessum gífurlega rekstrar halla? Það væri sannarlega fróðlegt fyrir okkur borgarana að fá einhverja skýringu á þessu furðulega fyrirbrigði.“ — Nei, ég get ekki skýrt þetta, en ef til vill telur einhver sér málið svo skylt, að hann vilji skýra það. VEGFARANDI SKRIFAR: „Þeir, sem fara um Lækjargötu, þurfa að gæta þess að detta ekki niður kjallaratröppur, sem eru við húsið nr. 6. — Er stór- furðulegt, að slíkar tröppur skuli leyfðar án þess að hafa þar grindur, til þess að forða mönnum frá slysum, ef þeir detta þar niður. Verður að vænta þess; að slíkar grindur verði settar upp tafarlaust — en ekki að beðið verði eftir einhverju slysi á þessum stað.“ BJÖRN O. BJÖRNSSON skrifar á þessa leið: „Fyrir nokkru sá ég kvikmyndasýn- ingu, sem ég fæ ekki orða bundizt um. Það var Edvard Sigurgeirsson á Akureyri, sem sýndi þætti úr eigin framleiðslu á samkomu í sveit. Ég held, að ég hafi aldrei orðið hrifnari af kvikmynd. Fyrst voru sýndar ferðir þeirra Helga Valtýsson- ar á hreindýraslóðir — óum- ræðilega fögur öræfa- og dýra mynd. NÆST MÝVATNSFÖR. í henni var baðkafli úr ^tórugjá, sem var hrífandi jafnt vegna einstakrar núttúruumgerðar og fegurðar og gleði stúlknarma. Loks var mynd af Hekluhrauni, sem tók greinilega fram Heklu- hraunsmyndum, sem sýndar hafa verið hér í Reykjavík (með mikilli virðingu fyrir þeim engu að síður). í stuttu máli sagt var þetta, að mér þótti, langbezta kvikmynd íslenzk, sem ég hef séð: svo skýr og vel litkuð, að ekki varð á betra kos- ið, svo frumleg og skáldleg. og snjöll, að mér varð þegar ljóst, að þarna var hin efnilegasta út- flutningsvara, þegar búið væri að gera smávægilegar stytting- ar. EDVARD sagði mér, að sér gengi illa að fá 1000 kr. í er- lendum gjaldeyri til þess að geta búið til kopíur. Ég er sann- færður um, að það mætti leik- andi fá 100 kr. í erlendum gjald •yeri inn í landið fyrir hverja 1 krónu, sem honum væri veitt.“ 3500 laxar og um 5000 silungar veiddust í sumar AÐALFUNDUR Stanga- veiðifélags Reykjavíkur var haldinn í Tjarnarcafé s.l. sunnudag. Fundurinn var fjölsóttur. Fundurinn hófst kl. 2 e- h- og var Gunnar E. Benedikts son lögfræðingur, fundar- stjóri. Formaður félagsins, Pálmar ísólfsson, flutti skýrgilu stjórnarinnar um starfsemina á s. 1. ári. Gat hann þess m- a-, að á veiði- svæðum félagsins hefðu alls veiðzt í sumar um 3500 laxar og á fimmta þúsund silungar. Meðalþyngd laxanna var 7 pund. Formaður gat þess, að nauð synlegt væri fyrir félagið að eiga eigin klakstöð, svo hægt væri að hefja fiskirækt í stærri stíl, en áður. Stanga- veiðifélagið hefði bei-tt sér fyrir fiskirækt í Meða’lfel'Is- vatni í samráði við eigendur vatnsins, en sú fiskirækt væri hvergi nægileg. Stjórn Stangaveiðifélags- ins skipa þessir menn: Pálmi ísólfsson, formaður, Sigmund ur Jóhannesson, varaformað ur, Knútur Jónsson, ritari, Albert Erlingsson, gjaldkeri og Einar Þorgrímsson, fjár- málaritari. jafnaðarstefnunnar. Jafn- framt mun hann leggja mikla áherzlu á að styrkja samtök sín inn á við sem bezt. í því st arfj. þarf sérhver flokksmaður og fylgismaðux flokksins að leggja fram virk an þátt. * Á kjörtímabili hinnar ný- kosnu flokksstjórnar Al- þýðuflokksins munu miklir atburðir gerast í íslenzkum stjórnmálum. Tvennar kosn- ingar fara fram í landinu á þessu tímabili. Alþýðuflokk- urinn mun ganga til þeirra samhentari og sigurvissari en nokkru sinni áðux. Hann hugsar til þess með fögnuði að leggja mál sín ur.dir dóm kjósendanna í landinu og heita á fulltingi þeirxa til að koma hugsjónum sínum í framkvæmd í enn rniklu rík- ara mæli en orðið er. Alþýðublaðið viíll fyrir hönd Alþýðuflokksins þakka fulltrúunum á flokksþinginu störf þeirra við að móta stefnu flokksins og skipulag hans á næstu tveimur árum- Stefni fram sem horfir, verð ur enn bjartara yfir næsta flokksþingi Alþýðuflokks- ins- IS í Austurbæjarhíó á föstu,- dagskvöM fcl. 7.15. — Að- göngumiðar fást 'hjá Sig- fúsi Ejmiundsen, Lárusi Blönidal', Bókum og rit- föngum, Helgafðlli á Lauga vegi 100, og lofcs við inn- ganginn'. Gunnar Gunnarsson les upp úr skáldsögunni Jón Arason. Lárus Pálsson les upp úr kvæðasafninu Islands þúsund ár og úr nýrri kvæðabök eftir Sigfús Blöndal, Framsóknarmenn, Reykjavík Framsóknarvisfin verður í Samkomusal Mjólkurstöðvarinnar i (kvöld kl. 8. Sigurður Ólafsson syngur ein- söng. — Pantið aðgöngumiða í isíma 6066 eða 2323. Skemmtinefndin. Tottugu ára: Iðnaðarmannaféíag Hafnarfjarðár IÐNAÐARMANNAFÉLAG HAFNARFJARÐAR varð 20 ára 11. þessa mánaðar og minntist félagið afmælisins á laugardaginn var með hófi í Alþýðuhúsinu við Strand- götu. Bárust félaginu fjöl- margar kveðjur og margar veglegar gjaf'r, meðal annars frá Landssambandi iðnaðar- manna, Iðnaðarmannafélagi Reykjavíkur og Iðnskóla Hafnarfjarðar. Iðnaðarmannafélag Hafnar fjarðar var stofnað 11. nóv- ember 1928 að frumkvæði Emils Jónssonar, núverandi viðskiptamálaráðherra, og var hann formaður félagsins fyrstu 16 árjn. Tveim árum áðúr hafði Emil stofnað íðn- skóla Hafnarfjarðar og rak hann skólann sjálfur fyrstu tvö árin, en eftir stofnun Iðn- aðarmannafélagsins tók það við rekstri skólans og hefui rekið har.n síðan. Af öðrum störfum félagsins má nefna það, að stofnaður hefur verið styrktarsjóður innan þess, og er sjóðurinm nú nálega 50 þúsund krónur, en tilgangur hans er sá að styrkja unga efnilega iðnaðarmenn tii framhaldsnáms erlendis eða hérlendis svo og einnig eru veittir styrkjr úr sjóðhum til iðnaðarmanna, er verða fyr- ir slysum eða öðrum veikjnd- um. í félaginu eru nær allir iðn aðarmenn í Hafnarfiðri, og eru um 120 meðlimir í félag- inu, þar af 106 gjaldskyldir félagar, en auk þeirra eru tveir heiðursfélagar, þeir Emil Jónsson og Guðmundur Jónsson járnsmíðameistari og enn fremur nokkrir á aukaskrá, það eru aldraðir iðnaðai’menn, sem ekki eru lengur gjaldskyldir til félags- ins- Formaður Iðnaðarmannafé lags Hafnarfjarðar er nú Guð jón Magnússon skósmiða- meistari, en aðrir í stjórninni eru: Kristinn Magnússon, Þóroddur Hreinsson, Ásgeir Stefánsson, en hann hefur verið gj aldkeri félagsins frá stofnun þess, og Magnús Kjartansson. Ufflufningurinn 83,8 milljón kr. meiri nú en í fyrra UM MÁNAÐAMÖTIN okt- óber—nóvember var verzlun- arjöfnuðurinn orðinn óhag- stæður um 20,4 milljónir króna á þessu ári, .en til samanburðar má ;geta- þess, að á sama tíma í fyrra \*ar verzlunarjöfnuður- inn' óhagstæður an 156,9 millj ónir. Útflutningurinn nemur nú það sem af er þessu ár 339,3 milijónum fcróna, eni var á samia tíma í fyrra ekki nema 245,5 milljónir fcróna, eða 83,8 milljónum minni en útflutning urinn í ár. Aftur á móti Var innflutn- ingurinn í fyrra 402,4 milljón- ir, en nú lekki1 nema 359,7 millj ónir. I októbermánuði síðastldðn- um var verzlunarjöfnuðúrinn hagstæður um 7,7 mi'lljónir króna. Útflutningurinn í þeim mánuði nam 41,9 milljónum ki-óna, en innfluitningurinn 34,2 milljónum króna.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.