Alþýðublaðið - 22.01.1949, Side 4
4
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Laugardagur 22. janúar 1949
Útgefandi: Alþýðuflokknriim.
Ritstjóri: Stefán Pjetursson.
FÍréttastjóri: Benedikt Gröndal.
Þingfréttir: Helgi Sæmundsson.
Ritstjórnarsímar: 4901, 4902.
' Auglýsingar: Emilía Möiler.
Auglýsingasími: 4906.
Afgreiðslusimi: 4900.
i Aðsetur: Alþýðubúsið.
Alþýðuprentsmiðjan h.f.
Útvarpið 00 áróður
kommúnista
ÖLLUM er enn í fersku
minni, hvernig rí'kisútvarpið
var misnotað fyrir rúmlega
tveimur árum, er verið var að
ræða Keflavíkursamninginn
og Bi-ynjóifur Bjarnason var
útvarpsmáiaráðherra. Hvaðan-
æ-va bárust þá ti2 útvarpsins
„samlþykkrtir14, sem kommún-
istar létu gera, sumpart á
fimdurn, en sumpart ekki
nema af tveimur eða þremur
mönnum í einhverri félags-
stjóm; og voru slíkar sam-
þykktir kaliaðar „mótmæli
þjÓðarinmar“ gegn Keflavík-
ursamningnum. Allar voru
þessar „samþykktir" birtar af
hiýðnum undirmönnum hins
kommúnistíska útvarpsmála-
ráðherra; enda barst að
minnsta kosti einu1 sinni
hreint og beint valdboð hans
um að misnota útvarpið, eins
og kommúnistar viklu', fyrir
þann áróður, þegar boðað var
í út\mrpinu tii ólöglegs aiis-
h erj ar verkfails gegn alþingi
og rfkisstjóm vegna Keflavík
ursamningsins.
'SIikum sælutímum hafa
kommúnistar hér á landi að
vonum ekki getað gleymt.
Þeim þykir það hart að geta
ekki misnotað útvai-pið nú á
sama hátt og þeir gerðu þá.
Og 'það er þetta, sem veldur
því æðiskasti, sem Þjóðviljinn
fékk í fyrradag út af því, að
núverandi útvarpsráð neitaði
að láta misnota útvarpið til
svipaðrar herferðar af hálfu
kommúndsta.
*
Það hefur heyrzt, að Is-
landi muni verða boðin þátt-
taka í fyrirhuguðu varnar-
bandaia,gi lýðræðisrikjanna
við Norður-Atlantshaf. Það
boð er þó iekki komið enn, og
enginn veit, 'hvaða skyldur og
hvaða öryggi það kynni að
hafa fyrir Island. En komm-
únistar þurfa ekki að bíða
upplýsinga né kynna sér
málavexti. Rússiand er á móti
öllum vamarsamtökum ]ýð-
ræðisþjóðanna; osr 'bví ibafa
þejr fyrir löngu hafið herferð,
með hjálp nokkurra „nyt-
samra sakleysingja“, gegn
þeirri hugsun, að. ísland reyni
að tryggja öryggi sitt með
samvinnu við hinar vestrænu
þjóðir.
I þessari herferð hins rúss-
neska útibús hér á landi er
en'gi’a bragða svifizt. En alveg
sérstaklega er lögð áherzla á
það að koma hinum kommún-
istíska og rússneska áróðri í
þessu máli inn í útvarpið, þar
sem hann nær til tugþúsunda
matma og kvenna í landinu.
Skipting rafmagnsins milli bæjarhluta mælist
vel fyrir. — Orðsending til rafveitunnar. — Á að
hækka hitaveitugjaldið? — Útsvör sjómanna og
útvegsmenn.
ÉG VERÐ að Iáta ánægju
mína í ljós með þá aðferð raf-
magnsveitunnar að skipta raf-
magninu milli bæjarhverfanna
þegar bilanir verða svo, að full
ur skammtur næst ekki. Þetta
hefur gefizt vel undanfarna
daga — og hefur ástandið verið
ólíkt betra en það var á hinu
illræmda „ísnálatímabili“ hérna
um árið. Þá var víða rafmagn,
sem ekkert rafmagn var.
AÐEINS VIL ÉG beina því til
rafveitunnar, hvort ekki er
hægt að vara fólk nokkuð áður
en rafmagnið er tekið af hverf
um þess. Ég veit ekki hvort
þetta er hægt af tæknilegum á-
stæðum, en ef það er hægt þá
væri það mikil bót. Ég á við
það að ,,blikkað“ sé með ljósin '
5 mínútum áður en rafmagnið
er tekið alveg af. Með því gæf 1
izt fólki t. d. tækifæri til að
kveiKja ljós við birtu. — Ef raf. |
magnið bilar oftar í vetur, vona
ég að þetta verði gert.
ÞAÐ ER VERIÐ að tala um
að hækka hitaveitugjaldið — og
láta það fylgja kolaverði. Þetta
er fráleitt. Á síðasta ári varð
reksturshagnaður hitaveitunn- j
ar 1.5 milljónir. Það sýnir að
hitaveitugjaldið er alveg nógu
hátt. Það nær ekk^nokkurri átt j
að láta eina kynslóð borga stofn,
kostnað hitaveitunnar. Það hef (
ur aldrei verið ætlunín.
KJÓSANDI SKRIFAR: „Ég
hef hitt sjómenn, sem hafa sagt
mér, að lögtaksmenn bæjarins
hafi komið heim til þeirra, til
að taka lögtaki hjá þeim fyrir
ógreiddum útsvörum. Sjómenn
þessir hafa haft í höndunum
kvittanir, þar sem útvegsmenn
hafa haldið eftir af kaupi þeirra
upp í skatta, en þeir fínu herr-
ar, útvegsmennirnir, hafa bara
látið undir höfuð leggjast, að
koma þessum greiðslum á rétt-
an stað, sennilega af því að
starfsgrundvöllurinn hefur
ekki verið nógu góður.
SEGÐU MÉR NÚ, Hannes
minn. Er þetta ósaknæmt? Ég
! meina, varðar þetta ekki við
lög? Ekki eiga útvegsmennirn,
ir eða atvinnurekendurnir
þessa peninga, og þó þeir séu
í fjárþröng skilst mér, að það
sé engin afsökun fyrir þá. Ég
býst við, að hvorki þú eða ég
gætum sloppið með, að taka
svona annarra manna peninga,
og ætla þá okkur til framfær-
is, enda þótt við bærum fram,
að við hefðum þurft á pening-
unum að halda, eða gætum ekki
greitt þá, værum búnir að
eyða þeim!
ANNARS FINNST MÖRG-
UM þetta framferði útvegs-
manna margra hverra, einkum
þeirra, sem hæst gala, vera
næsta kynlegt. Þeir fengu óá-
reittir að raka saman fé á stríðs
árunum, en strax þegar fór að
harðna í ári heimta þeir upp-
gjöf á skuldum og ábyrgð á öll
um rekstri af ríkinu. Ekkert eft
irlit er haft með því, hvað verð
ur af tekjunum hjá þeim, þeir
geta keypt lúxusvillur og allt
sem nöfnum tjáir að nefna lúx
usbíla á svörtum markaði fyrir
marga tugi þúsunda króna,
spóka sig í þeim hér um göt.
urnar, meðan þeir bíða eftir
Hvalfjarðarsíldinni. Allt í lagi!
Ríkið borgar!
EN HVER Á í RAUN OG
VERU mikið af þessum nýju
bátum og skipum? Er það ekki
bankarnir með bak ábyrgðum
ríkis og bæja, hinir svokölluðu
eigendur hafa í sumum tilfell-
um ekkert lagt til þeirra annað
en naínið tómt. Hinir svoköll-
uðu eigendur hafa því engu að
tapa, en allt að vinna, almenn.
ingur má borga hallann, en ef
um gróða er að ræða þá hirða
,,eigendurnir“ hann.
ÉG ER f RAUN OG VERU
á móti hreinum ríkisreksti, en
hann er þó betri en svona hálf.
gildings ríkisrekstur, hann er ó
þolandi. Ef hinir raunverulegu
eigendur bátanna, þar meina ég
þá, sem hafa lagt út féð fyrir
þeim eða bera ábyrgð á rekstri
þeirra, eiga að halda áfram að
greiða töpin, þó finnst mér
sjálfsagt, að þeir tækju bátana
og geri þá út með fullri spar.
pemi og hagsýni ekki með 1—2
framkvæmdastjóra á hvern bát
kopp eins og nú er, það sýnir
reynsla undanfarinna ára, að
ekki getur þrifizt, alltaf er tap
FLUGVALLARHÓTELBE).
Dansleikur
í kvöld kl. 9.
Ölvun stranglega bönnuf
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 8. Bílar frá Ferða-
skrifstofunni kl. 9—10 og.ll.
Bílar á staðnum eftir dansleikinn.
Flugvallarhótelið.
I
opnum
nýlízku Ijósmyndasiofu í AðalsfræH 2
(Ingólfs Apóteki uppi).
Sími 3890.
ERNA THEODÓRSDÓTTIR
EIRÍKUR HAGAN
Vegna fjölda áskorana endurtekur
Séra Pétur Magnússon
frá Vallanesi
erindi sitt um
í Austurbæjarbíó á morgun
klukkan IV2 e. h.
Aðgöngumiðar seldir í Bókabúð Lárusar Blöndal,
Eymundsson og við innganginn (suðvesturdyr).
Kaupum tuskur.
ÁSþýðuprenismiðjan h.f.
á útgerðinn hvað sem þessi bát-
ar fiska mikið“.
ÉG TRÚI ÞVÍ EKKI að mikil
brögð séu að því, að útvegsmenn
taki þannig traustataki fé sjó-
manna, þó að dæmi kunni a3
vera til um það. Enda bera at-
vinnurekendur ábyrgð á útsvör
um starfsfólks síns.
Hannes á horninu.
Þannig var Sigurbjörn Ein-
ansson dósent, sem 'kommún-
istar telja eitt af beztu hald-
reipum sínum í þessu máli,
látinn nota sér það, að útvarp-
ið sýndl stúdentum þann
sóma að útvarpa hátíð þeirra
fyrsta desember, til þess að
ráðast í langri ræðu fyrirfram
á þá hugsun, að til mála gæti
komið, að ísland reyndi að
tryggja öryggi sitt með sam-
vinnu við hinar vestrænui lýð-
ræðis- og nágrannaþjóðir.
Hér skal ;ekki -fai-ið neinum
frekari orðum imi’ þá ótrúlegu
vöntun á háttvísi, sem Sigur-
björn Einarsson dósent sýndi,
mörgum mjög á óvart, með
því að hefja deiiur í ríkisút-
varpinu um þetta mái við
þetta tækifæri. En staðreynd
er, að 'kommúnistar hafa síð-
an reynt með öilum ráðum að
troða hinum rússneska á-.
róðri gegn Norður-Atlantshafs
bandalagi lýðræðisþjóðanna
inn í ríkisútvarpið, á svipaðan
hátt og áróðri sínum gegn
Keflavíkursamni ngnum fyrir
rúmum tveimur árum. Hafa
þeir í þessu1 skyni sett sam-
þykktavél sína 1 gang, með
hjálp hins svokaliaða Þjóð-
vamafélags, sem er nýjasta
tegundin af styrktarfélö.gum
eða „fálmurum“ kommúnista-
flo'kksms, og heimta, í skjóli
þess, full afnot af ríkisútvarp-
inu fyrir áróður sinn.
*
Það er augljóst mál af opin-
mælgi Þjóðviljans í fyrradag,
að kommúnistar eiga vissa
stuðningsmenn í þessari her-
ferð við útvarpið. En útvarps-
ráðið er þeim bersýmlega ekki
eins leiðitamt og þeir óska.
Það hefur nú, að því er upp-
lýst er, tekið í taumana og
neitað því, að útvarpíð yerði
misnotað til þess að rugla
þjóðina fyrirfram u-m mál,
sem enginn veit enn, hvernig
vaxið er, eins og það var mis-
notað af hálfu fcommúnista
fyrir rúmum tveimur árum.
Það er yfirleitt ósiður, sem
ber að vara við, sterklega, að
vera með áróður og illdeilur í
útvai-pi um utanríkismál þjóð-
arinnar, og þess munui engin
dæmi, að slíkt og þvílíkt sé
látið viðgangast í útvarpi hjá
gagnmenntuðum nágranna-
þjóðum okkar. En það er ekki
ótrúlegt, að alþingi muni, á.
sínum tíma, ræða afstöðu ís-
lands til Atlantshafsbanda-
lagsins fyrir opnum dyrum og
með aðstoð útvarpsins, svo að
öU þjóðin megi heyra rök og
gagnrök. Þá igeta kommúnist-
ar og fylgdarsveinar þeirra
komið að sínum áróðri. En
það er ekkert hlutleysí af
hálfu útvai-ps'ins í þvi, að láta
þeian haldast uppi að nota. það
til birtingar einhliða áróðurs
sins', s'em, eins og þegar hefur
verið sagt, styðst þar að auki
ekki við neina virkilega vit-
neskju um það mál, sem unr
er að ræða.