Alþýðublaðið - 22.01.1949, Blaðsíða 8
Gerizt 'áskrifenduc
pS Alþýðublaðinu.
Alþýðublaðið irm á hvert
Iheimili. Hringið í sírua
1900 eða 4906.
'^*v.
Börn og unglingafe
Komið og seljið
ALÞÝÐUBLAÐEÐ ,
Allir vilja kaupa í|
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Laugardagur 22. janúar 1949
Sljórnarkjör 1 Dagsbrún fer
. fram um aðra helgi
»--------
Framboðslisti lýðræðissinna í félaginu
1 var lagður fram i gærdag*
i-. -----——♦---------
STJÓRNARKJÖR I DAGSBRÚN fer fram annan laug-
ardag og sunnudag að vlðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu, og
var framboðsfrestur útrunninn kiukkan 6 í gær. Hafa lýð-
ræðissinnar í Dagsbrún sameiginlegan lista í kjöri við kosn.
ingu stjórnar og annarra trúnaðarmanna félagsins, og var
hann lagður fram í gærdag.
Listi Jýðræðissinna við
stjórnarko.sninguna í Dags-
brún er þannig skipaður:
AÐALSTJÓRN:
Formaður: Ólafur Ólafsson,
Lokastíg 10.
Varaform.: Sveinn Sveins-
Son, Skúlagötu 74.
Gjaldkeri: Guðmundur Sig-
írvg'g'sson, Barmahlíð 50.
Ritari: Snæbjörn Eyjólfsson,
Laugavegi 51 B.
Fjármálaritari: Aðalsteinn
Vígmundsson, Laugavegi 162,
Meðstjómendur: Þórður
Gíslason, Meðalliolti 10, og
Agnar Guðmundsson, Bjarn.
arstíg 12.
VARASTJÓRN:
Hannes Pálsson, Meðalli. 9.
Jón G. Jónsson, Grettisg. 31.
Jóhannes Sigurðsson, Víði-
mel 66.
STJÓRN
VINNUDEILUSJÓÐS:
Formaður: Sigurður Guð-
mmdsson, Freyjugötu 10 A.
Meðstjórnendur: Páll Krist-
jájisson, Hverfisgötu 85, og
Hjörtur Lárusson, Hlíð við
Blesagróf.
Varamenn: Guðm. Steins.
son, Ránargötu 3 A, og Sveinn
Jónsson, tíofteigi 17.
ENDURSKOÐENDUR:
Þorsteinn Einarss., Bræðra-
borgarstíg 31, og Kjartan Ól-
afsson, Niarð. 47.
Varamaður: Guðmundur
Jargensen, Vitastíg 17.
Auk aðalstjórnar félagsins,
vai-astjórnar, stjórnar vinnu-
dieilusjpðs og .endurskoðenda
verður kosið 100 manna trún-
a'Sarráð og 20 menn til vara.
Skíðamót íslands háð
á Ssafirði um páska,
ÁkVeðið hefur verið, að Skíða
mót íslends 1949 fari fram á
ísafirði um páskana, 14.—18
apríl, og hefur Skíðaráði ísa-
fjarðar verið faiið að standa fyr
ir mótinu. Formaður Skíðaráðs
ísafjarðar er Guttormur Sigur-
björnsson.
Skíðaþingið, þ. e. ársþing
Skíðasambands íslands, mun
verða haldið á ísafirði í sam-
baadt ss5tið.
*----------------------------
Starísfélk í kvik-
myndahúsum
síofnar stéttarfélag
SÍÐAST LIÐIÐ miðvikudags
kvöld stofnaði starfsfólk í kvik
myndahúsunum í Reykjavík
með sér félag, er hlaut nafnið
,Starfsfólk í kvikmyndahúsum!.
í stjórn og aðrar trúnaðarstöð
ur voru kosin:
Kjartan Guðmundsson for-
maður, Daníel Bergmann ritari,
Halla Hallgrímsdóttir gjaldkeri,
Ólöf Jörgensen varaformaður
og Karen Lövdahl meðstjórn.
andi.
í varastjórn voru kosnar:
Margrét Árnadóttir og Hólm-
fríður Friðsteinsdóttir.
Endurskoðendur: Dóra Ing-
ólfsdóttir og Dagbjört Sigurðar
dóttir, og varaendurskoðandi:
Arnheiður Guðmundsdóttir.
í skemmtinefnd félagsins
voru kosin: Valgeir Einarsson
formaður, Greipur Sveinsson
Hólmfríður Friðriksdóttir, Guð
rún Jónsdóttir og Hulda ÓlafS-
dóttir.
- Félagið samþykkti að sækja
um upptöku í Alþýðusamband
íslands. Á stofnfundi voru 25
manns.
Önnur vélasam-
sfæða Laxárvirkj-
unarlnnar biluS
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins
AKUREYRI í gær.
ÖNNUR VÉLASAMSTÆÐA
Laxárstöðvarinnar bilaði í gær
og er samstæðan nú óstarfshæf.
Óvíst er hve langan tíma við-
gerðin tekur. Héðan verður að
senda menn austur með áhöld
og efni, og ófært er nú land-
leiðina, og engar samgöngur sjó
leiðis fyrr en rheð Esju. Fólk
befur verið hvatt til þess að
spara rafmagnið, einkum til
hitunar.
MC.NEIL, aðstoðarutanríkis-
málaráðherra Breta, lét svo um
mælt í gær, að fangelsun Mind.
szentys kardínála, æðsta manns
kaþólsku kirkjunnar, á Ung-
verjalandi, væri svívirða. Sagði
hann, að brezka stjórnin myndi
krefjast þess, að kardínálinn
yrði látinn laus.
Hér sést egypzki stúdentinn,
sem fyrir nokkru myrti forsæt
isráðherra lands síns, Hokrashi
Pasha. Hann var handtekinn
þegar eftir morðið.
Búið að selja happ-
dræftisskuldabréf
fyrir 8 millj. kr.
SELD munu nú vera skulda
bréf í B-flokki liappdrættisláns
ríkisjóðs fyrir rúmar 8 milljón
ir kr., en samtals hafa verið
send út til umboðsmanna láns.
ins skuldabréf fyrir hátt á 10.
milljón króna. Margir umboðs-
menn hafa selt öll þau bréf,
sem þeim voru send í fyrstu,
og sumir hafa fengið tvær til
þrjár viðbótarsending^r, en
miklir samgönguerfiðleikar hafa
valdið því, að torvelt hefur
reynzt að koma bréfasending-
um til ýmissa staða. -Þegar A-
flokks bréfin voru seld í haust,
var hins vegar hægt samdægurs
eða með fárra daga fyrirvara að
koma bréfasendingum til flestra
umboðsmanna. Hefur verið lögð
áherzla á það við umboðsmenn
lánsins utan Reykjavíkur að
reyna að hraða sem mest sölu
bréfanna, því að sölunni verður
hætt það snemma, að öruggt sé,
að útdráttur vinninga geti farið
fram 15. febrúar.
í A-flokki happdrættisláns-
ins verður dregið næst 15. apríl
en aftur verður dregið í B-flokki
15 júlí. í hvorum flokki lánsins
er í hvert sinn dregið um 461
vinning, að upphæð samtals 375
þúsund krónur. Þeir, sem eiga
bæði A. og B-flokks bréf, fá því
fjórum sinnum á ári að keppa
um marga og háa vinninga, en
fjárframlögin til bréfakaupa eru
aðeins í eitt skipti. Öll bréf í
A-flokki eru nú seld, og þar
sem nú eru seld í B-flokki bréf
fyrir á níundu milljón króna,
má gera ráð fyrir, að þau verði
öll seld fyrir 15. febrúar. Ætti
því fólk að athuga það, að því
gefst ekki kostur á að eignast
síðar bréf í þessum flokki láns-
ins, ef það ekki notar tækifær-
ið nú. Happdrætti þetta er sér-
staklega hagkvæmt fyrir þá,
sem ekki hafa efni á að leggja
fé sitt í áhséttu, því að kaup
Margir bílar íóru Krýsuvíkurveg í
gær, mjólkskömmtuð ríflegar í dag
Báðar heiðarnar ófaerar. Þrír mjólkur-
bílarfastir á Mosfellsheiði síðan á þriðju
daginn, en komust þaðan ífiær.
...—....
I DAG verður mjólkurskammturinn rýmri en undan-
farna tvo daga, og verður skammtaður % lítri á mann út á
skömmtunarre.t nr.45. Laust eftir hádegið í gær komu átta
mjólkurbílar að austan um Krýsuvíkurvegsnn, og síðar £
gærkveldi munu nokkrir bílar hafa komið þá sömu leið með
mjólk.
Alþingi minnisf Kára
Sigurjónssonar
ALÞINGI kom saman í gær
til funda á ný og minntist for-
seti sameinaðs þings við það
tækfæri Kára Sigurjónssonar
bónda á Hallbjarnarstöðum
á Tjörnesi í Suður-Þingeyjar-
sýslu, en hann lézt fyrir fáum
dögum á 74. aldursári.
Kári Sigurjónsson sat á einu
þingi, aukaþingi 1933, sem
Iandskjörinn þingmaður, og
átti sæti í milliþinganefnd í
launamálum 1934. Vottuðu
þingmenn1 minningu hans virð
ingu sína m'eð því að rísa úr
sætum. -
Allmargir þingmehn voru
enn ókomnir til bæjarins, þeg
ar fundir alþingis kófust aftur
í gær.
Lisfi til sijórnarkjörs
• í AlþýSuflokksfé-
laginulagðurfram
LISTI UPPSTILLINGAR-
NEFNDAR til stjórnarkjörs
í Alþýðuflokksfélagi Reykja-
víkur liggur frammi í skrif
stofu flokksins í Alþýðuhús
inu frá og með deginum í
dag til 29. janúar, og er fé-
lagsmönnum heimilt að
stinga upp á mönnum til við»-
bótar á listgnn fyrir þann
tíma.
Háskólafyrirlesiur
á sunnudag
DR. METZNER, hinn kunni
þýzki fiskiðnaðarsérfæðingur,
heldur annan háskólafyrirlestur
sinn þriðjudaginn 25. janúar
kl. 6,15 í I. bennslustofu háskól
ans. Efni fyrirlestursins er:
„Beurteilung von Fischen,
Fischwaren und Fischstoffen“.
Fyrirlesturinn verður fluttur
á þýzku og er öllum heimill að-
gángur.
bréfanna er í rauninni ekki ann
að en sparifjársöfnun.
f Undanfarna dSga.befur á-
standið verið mjög slæmt
vegna ófærðarinnar, og kom-
ust ekki einu sinni bílarnir
héðan af Kjalarnesinu og úr
Kjósinni til bæjarins í fyrra-
dag. Aftur á móti komu þeir
j með mjólk í gær, en bílarnir
I frá Borgarnesi sátu fastir í
Hvalfirði skammt fyrir austan
Þyril og 'höfðu verið þar um
sólarhring, en búizt var við
þeim í bæinn í nótt.
Mjög snjóþungt er í svsitJ
unum fyrir austan fjall, og
hefur igengið erfiðlega að ná
mjólkinni frá framleiðendum
til mjólkuxbús Flóamanna, og
náðist ekkert úr Rangárvalla-
sýslunni í gær. Aftur á móti
mun hafa náðst mjólk úr rnest-
ailri Arnessýslu. I gærmorgun
fór snjóýta út Ölfusið að
Hveragerði, og lögðu mjólkur-
bílarnir af istað Krýsuvíkur-
. leiðina, og var ekki það snjó-
létt, að ekki þurfti ýtu við
nema á kafla við Kleifarvatn,
og komu bíiarnir til bæjarins,
skömmu eftjr hádegið, en í
slóð mjólkurbílanna komu um
20 aðrir bilar, sem teppst
hö.fðu ífyrir austan fjall í byln-
um.
Báðar heiðarnar, ITeilisheiði
og Mosfellsheiði, ieru gersam-
lega ófærar, og hefur ekkj
verið 'gerð tilraun til að mokú
Helli'sheiðina. Hins vegar hef-.
ur nokkur n 1 u í L Mosfellsheið-
ar.innar verið m'okaður, með-
al annars 'vegna þess, að þan
sátu fastir þrír mjólku'rh'ílar^
sem voru á suðurleið á þriðju-
daginn, og hafa þeir setið fasti
ir á móts við afleggjarann að
Heiðarbæ, þar til í gær, aS
þeir voru ilosaðir. Enn fremuil
var snjóýta í igær að vinna að
þvá að mpka í Almannagiá, en
þar voru að minnsta kosti
fimm bílar fenntir í kaf.
' YTTI '
Sogslínan komsf í
lag í fyrrinóft ’
' VIÐGERÐINNI á Sogslinunni
lauk laust fyrir klukkan 5 í
fyrrinótt. Viðgerðarmennirnir,
sem fóru héðan úr bænum S
fyrradag, komust austur að bil
uninni undir miðnættið, og
gekk viðgerðin greiðlega, þar;
eð aðeins einn strengur hafði
slitnað. Hafði strengur þessl
lagst yfir hina strengina. j