Alþýðublaðið - 09.02.1949, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 09.02.1949, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 9. febr. 1949* ALÞYÐUBLAÐIÖ 7 Álhuga&emd. f 225. tölublað Tímans skrifar landbúnaðarráðherra Bjarni Ás geirsson endurminningar um Jón Björnsson bónda á Ölvalds. stöðum í Borgarhreppi. Vildi ég skjóta inn nokkrum orðum, 'pví að ég þykist dálítið kunnugur þessari írásögn. Árið 1889 flutti faðir minn, Jón Runólfsson frá. Hvanneyri, keypti af Snæbirni Ólafssyni, sem þá fór til Ameríku, fjórða | part af Ölvaldsstöðum, sem nefndur var Norðurbær, og átti ég þar heima samfleytt sextán ár, til 1905, oftast þénandi hjá foreldrum mínum, nema allra síðast, er ég tók við búskap af þeim. Telur Bjarni þar hafa oftast verið þríbýli, en öll þau sextán ár, er ég var á Ölvaldsstöðum, var þar fimmbýli, og hlýtur Bjarni Ásgeirsson að hafa verið mjög ókunnugur þessum stað, enda sá ég aldrei Bjarna Ás. geirssyni bregða fyrir þar í þau sextán ár, er ég var á Ölvalds. stöðum. Ég ætla að nefna búendur Ö1 valdsstaða, þegar ég kom þang- að: Norðurbæ Snæbjörn Ólafs- son, Efribæ Jón Sigurðsson, Vesturbæ Guðmundur Ingimars son, Suðurbæ Jónas Guðmunds. son, Suðurbæ 2 Jóhann Jóns. son. Þarna eru komnir fimm bændur; og eftir sextán ára dvöl míná þarna voru fimm bændur: Norðurbæ Vilhjálmur, Efribæ Bergþór, Vesturbæ Jón Bergsson, Suðurbæ Guðsteinn, Suðurbæ 2 Jón Guðmundsson. Mér dettur ekki í hug að bera á móti því, að Jón Björnsson hafi verið duglegur og fram- takssamur bóndi; en hitt get ég ekki fellt mig við, að öll hús hafi verið vita. ónothæf og sömu leiðis að túnið hafi allt verið í kargaþýfi. Fyrsta verk föður míns var að slétta og byggja upp hús á Ölvaldsstöðum og voru fimm hús í röð með stand.. þili niður úr í röð begar hann hætti störfum. En með járni voru þau ekki, En ólíklegt er að græn þök felli þau úr gildi og sízt hjá landbúnaöarráðherra. — 50 kinda fjárhús byggði faðir minn frá grunni, 12 hesta, tví. stætt hesthús, og stóran kálgarð þar í kring; þetta var kallað á bólinu. Vatnsveitu og varnar- skurð gerði hann að vestan. verðu við túnið, nátthaga fyrir stórgripi gerði hami á svo. nefndu Torfunesi. Kali var nefndur á hægri hönd, þegar riðið var heim traðirnar; hann sléttaði hann allan. Gunnutún var á vinstri hönd og það slétt- aði hann að mestu leyti. Sýru. hóll var austan bæjarins; þar gróf hann ágætan brunn. Suður. tún er kallað austur af fjósinu. Þar gerði hann beðaslétíur. Þá voru nú ekki önnur jarðvinnslu tæki en spaði, skófla og gaffall. Af framanskráðu sést vel hvað margar frístundir faðir minn hefur veitt sér. Enda hefðu honum ekki verið veitt verðlaun úr sjóði Kristjáns kon. imgs fyrir framúrskarandi dugn að við jarðabætur á Vatnshömr- um í Andakíl, hefði hann verið letingi og ónytjungur. Þingból, 15. október 1948. Vilhjálmur Jónsson. Skýrsla áfengisvarnanefndar. Fundizt hafa fyrir nokkru tveir smekkláslyklar á sér. kennilegri keðju. Þeir fundust á planinu norðan Uppsala við Aðalstræti. Eigandi vitji lykl. anna á ritstjórn Alþýðublaðs- EINS OG getið hefur verið, átti áfengisvarnarnefnd tal við blaðamenn s. .1. mánudag og skýrði þeim frá störfum nefnd arinnar frá því hún var stofn- uð. Fer hér á eftir skýrsla nefndarinnar; ,,Nefndin tók til starfa 28. apríl og sambykkti þá að halda að minnsta kosti einn regluleg an fund á mánuði. Alls hélt hún 8 fundi á árinu og fékk fundar sal bæiarráðs til fundahald- anna. Auk bess fól hún form. Þorsteini J. Sigurðssyni, Gísla Sigurbjörnssyni og Árna Óla að annast nefndarstörf milli funda. Það kom þegar í ljós, að frá farandi áfengisvarnarnefnd hafði ekkert starfað og varð nefnd þessi því að skipuleggja starfið frá grunni. Var þar við ýmsa erfiðleika að etja, en þó aðallega fjárskort því að nefnd inni var ekki fengið neitt starfs fé. Nefndinni var frá upphafi ljóst, að hún varð að leita sam vinnu við ýmsa aðila, grennsl ast eftir hug ráðandi manna á ýmsum sviðum, og viðhorfi þeirra til áfengismálanna, til þess að vita, hvar hún mætti j styrks vænta í starfi sínu og á 1 hvern hátt mundi hentugast að starfa. Hefur hún því átt fundi með ýmsum, eins og nú skal tal ið: 11. júní átti nefndin tal við lögreglustjórann í Reykjavík um samvinnu þá, sem gert er ráð fyrir milli nefndarinnar og lögreglunnar (sbr. reglugerð um áfengisvarnanefndir). 11. september boðaði nefnd in til fundar að Jaðri flesta for- menn félagasamtaka. íþróttafé félaga og skemmtifélaga í bæn um, þangað voru og boðnir prestar bæjarins, fræðslustjóri, íþró ttaf ulltrúi, lögreglust j ór i, sakadómari, þrír læknar og borgarstjóri. Sóttu þennan fund 50 menn og var þar margt rætt um ástand það, sem skap azt liefur í borginni út af áfeng isnautn, og hver ráð væru til að bæta úr bví. 24. september boðaði nefnd in í samráði við fræðslustjóra til umræðufundar í G. T. hús inu. Á þann fund komu um 30 skólamenn og menntafrömuðir, og var þar rætt um drykkju skap í skólum og óhollar skemmtanir æskulýðsins og hver ráð væru þar til úrbóta. 2, október átti nefndin fund með Erlingi Pálssyni yfirlög- regluþjóni, til þess að ræða um meðferð ölvaðra manna, og hvað gera þyrfti fyrir þá, sem sjúkir eru af drykkjuhneigð. 4. október átti nefndin sam eiginlegan fund með áfengis- varnanefnd kvenna í Iðnó. Var þar rætt um samstarf þessara nefnda. 9. október boðaði nefndin íðnrekendur og kaupsýslumenn til fundar í G. T. húsinu og var þar rætt um það tjón, sem at- vinnuvegirnir bíða vegna drykkjuskapar starfsmanna sinna. 11. október gekk nefndin á fund háskólarektors og ræddi við hann um það, hvern styrk sú virðulega stofnun gæti lagt viðleitninni um aukna reglu- semi. 12. október kom nefndin, eftir áskorun, á fyrsta fund áfengisvarnanefndar Hafnar- fjarðar, til þess «ð ræða um samvinnu milli nefndanna. Þá hefur nefndin og átt fund með F. Á. Brekkan, ráðunauti stjórnarinnar í áfengismálum. Um starf nefndarinnar að öðru leyti er þetta að segja: 1. Þegar á fyrsta fundi skor aði hún á ríkisstjórn að gefa út og birtá skv. 26. gr. áfengis- laganna útdrátt úr þeim lögum. Það hefur ekki verið gert enn. Nefndin hafði í sumar sam- vinnu við frú Guðrúnu Kempf, og með aðstoð hennar var hér stofnuð deild úr ,,A. A.“, félags skap ónafngreindra drykkju manna. 3. Nefndin sendi áskorun til ríkisstjórnar og bæjarstjórnar um að ganga á undan öðrum með góðu fordæmi og veita ekki áfengi í veizlum. 4. Nefndin mótmælti því, að áfengisveitingar væru leyfðar um borð í Esju, undir því yfir skyni, að hún væri skeimnti- ferðaskip. 5. Nefndin hefur igert marg ítrekaðar tilraunir til að reyna að koma hér á fót hjúkrunar- stöðvum fyrir áfengisjúklinga, bæði karla qg konur, en það hefur jafnan strandað á húsnæð isleysi, þótt víða hafi verið leit að. 6. Nefndin hefur sent áskor un til ríkisstjórnar og bæjar- stjórnar um það, að lögreglan í Reykjavík fái nú þegar viðun andi húsnæði fyrir þá menn, sem lögreglan verður að taka fasta vegna ölvunar. 7. Nefndin hefur haft sam- vinnu við læknana Alfreð Gíslason og Kristján Þorvarðs son um væntanlegar tillögur um meðferð drykkjusjúkra manna í framtíðinni. 8. Að tilhlutun nefndarinnar kom hingað í haust fyrsta send ingin af ,.Antebus“-töflum og hóf þá Alfreð Gíslason læknir tilraunir um lækningamátt þeirra gegn drykkjuskapar- fýsn. Hefur þeim tilraunum síð an verið haldið áfram, og í mörgum tilfellum með mjög góðum árangri. Um fyrirætlanir og störf nefndarinnar á þessu ári verð ur ekkert sagt, að svo komnu. Það fer eftir því, hve mikið fé nefndin fær hjá hinu opinbera. Hún hefur hvað eftir annað farið fram, á að fá starfsfé, en það hefur ekki fengizt enn, þrátt fyrir skýlaus fyrirmæli í reglugerð um áfengisvarna- nefndir.“ í áfengisvarnanefndinni eiga Maðurinn minn . Berithard Frledrieh Schmidt, Njálsgötu 30. verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 10. febrúar kl. l3/2 e. h. Blóm afþökkuð. Fyrir hönd barna og tengdabarna Anna Schmidt sæti: Þorsteinn J. Sigurðsson formaður, Árni Óla ritari, Gísli Sigurbjörnsson gjaldkeri, Har- aldur Norðdahl, Hersteinn Páls son, Margrét Jónsdóttir, Sig- þrúður Pétursdóttir, Karl Karlsson og Sigurður Guð- mundsson. Nítján þáíttakendur í vélstjóra- namskeiði í Olaísvík. -— ....... Fimm bátar róa nú úr þorpinu. Frá fréttaritara Alþýðublaðsins í ÓLAFSVÍIv. FYRIR NOKKRU LAUK í Ólafsvík vélstióranámskeiði Fiskifélags íslands hinu minna, og hafði það staðið í .12 vik- ur. Forstöðumaður og vélfræðikennari var Helgi Ki’istjáns- son, Siglufirði. Aðrir kennarar á námskeiðinu voru Jónas Þorvarðsson, skólastjóri, Þorgiis SteÆánsson, Magnúls Guð- mundsson og Arngidmur Björnsson, héraðslæknir. Prófdómar- ar voru, auk kennara, Jóhann Pétursson vélstjóri og Bjarni Sigurðöson. Nítján menn tóku þátt í nám- skeiði þessu, þar af 10 úr Ól- afsvík, 2 af Hellissandi og hinir annars staðar að. Fjórir luku prófi með ágætiseinkunn. Elín- bergur Sveinsson, Ólafsvík, varð hæstur, 47 tó .stig, Pálmi Sveinsson hlaut 46%, Kjartan Þorsteinsson 43 og Hilmar Ágústsson 42. Að loknu námskeiðinu héldu nemendur kennurum samsæti í samkomuhúsi Ólafsvíkur. Stýrðí Hilmar Ágústsson hófinu, og af- henti hann fyrir hönd nemenda forstöðumanni námskeiðsins vegle'ga gjöf. FIMM BÁTAR RÓA ÚR ÓLAFSVÍK Fimm bátar róa nú úr Ólafs- vík, og fóru þeir í fyrsta róður sinn 28. janúar. Fram að þeim tíma hafði verið beituskortur. Þá komu 100 tunnur síldar, og síðan hafa komið 450 tunnur af norskri s'íl-d. Afli hefur verið 4—7 smálestir á bát í róðri. OTTÓ. erindi m núlima- Framh- ^l 5. síðu. samtökum, sem Rússar eru með í, að verkalýðssamtök lýðræðis. landanna geti knúið fram meira en í bezta lagi hálfvolgt og hættulegt samkomulag, þar sem kommúnistar 'hafa öll trompin á hendinni eftir sem áður; því að enginn • ákveðinn kommúnisti gerir neitt samkomulag af heil- um hug'. Heima fyrir myndu engin frjáls verkalýðssamtök vilja þola verkalýðssamtök, sem stofnuð eru af atvinnurekendum og stjórnað af þeim, í sínum röðum; enda væri það sjálfs. blelcking að ætla, að slík verka. lýðssénfetök myndu hlíta lýðræð islegiím meirihlutasamþykktum. En það er þó ennþá meiri og hættújegri sjálfbblekking, að ætla, að verkalýðssamtök ein. ræðislandanna, sem stjórnað cr í einu ,og öllu af ríkisvaldi þeirra, . séu í þeim efnum nokkru bétri. í W.F.T.U. hafa Rússar þar að auki aðstöðu til að skapa sér yf irgnæfandi meirihluta hvenær sem þeir telja það nauðsynlegt. Til þess þurfa þeir ekki annað en að tilkynna stórkostlega fjölgun í vcrkalýðssamtökum Rússlands eða leppríkja þess; því að sjálfsögðu myndu þeir neita öllu eftirliti með með. limafjölda þeirra á nákvæmlega sama hátt og þeir hafa vísað á bug hvers konar alþjóðaeftir- liti hjá sér með framleiðslu kjarnorkuvopna. Öfl frjálslynd isins og lýðræðisins ættu því fyrir löngu að vera búin að gera sér grein fyrir því, að í ,,sam. fylkingu“ við kommúnista eru engar líkur til þess, að þau geti leikið á þá, svo óheilir og samvizkulausir sem þeir eru. Það er líka með öllu ómögulegt að sigra andstæðing þótt ekki sé nema í venjulegri refskák á þingi, ef hann virðir allar leik- reglur þar að vettugi. (Niðurlagsgrein næst.) MARTIN LARSEN sendi- kennari byrjar fyrirlestra sína í dag, miðvikudaginn 9. febrú ar kl. 6,15 í III. kennslustofu háskólans. Fyrh’lestrarnir fjalla um danska nútímarithöfundinn Martin A. Hansen. Þeir, sem hafa hugsað sér að sækja fyrirlestrana eru beðnir að koma til viðtals við sendikennarann skönrmu fyr ir tiltekinn fyrirlestrartíma. Fyrirlestrarnir verða senni- lega ekki auglýstir í hvert sinn hér eftir. Tunnuverksmiðjan á Akureyri. Frá fréttaritara Alþýðubl. AKUREYRI í gær. TUNNUVERKSMIÐJA ríkis. ins mun hefja smíði tunna nú bráðlega. Munu 12 menn vinna þar, þegar byrjað verður. Akureyrarbær hefur að und- anförnu haldið uppi atvinnu. bótavinnu fyrir um það bil 40 Imanns. HAFR,

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.