Alþýðublaðið - 11.05.1949, Page 4
4
alþyðublaðið
Miðvikudagur 11. maí 1949.
Úígefandi: Alþýðuflokkurinn.
Riístjóri: Stefán Pjetursson.
Fréttastjóri: Beneclikt Grönðal.
Þingfréttir: Helgi Sæmundsson.
Ritstjórnarsímar: 4901, 4902.
Auglýsingar: Emilía Möller.
Auglýsingasími: 4906.
Afgreiðslusími: 4900.
Aðsetur: Alþýðuhúsið.
Alþýðuprentsmiðjan bX
Vesían og ausfan
JárnfiaEdsins
KOMMÚNISTAR eru sem
kunnugt er miklir talsmenn
allra kauphækkana í Vestur-
og Norður-Evrópu, þar _sem
þeir eru ekki við völd; og
miklir andstæðingar al'lra
skattaálagna á alþýðuna.
Það er því ekki að furða þótt
til sé fólk, sem bindur ýmsar
vonir við það, að svo ágætir
menn kæmust til valda í lönd-
um Vestur- og Norður-Evrópu
og fengju að sýna, hvernig þeir
fara að því að stjórna.
En hvernig er þetta þá í
Austur-Evrópu, þar sem kom-
múnistar eru við völd? Eru
ekki kommúnistar talsmenn
nákvæmlega sömu kauphækk-
ana þar? Og verja þeir ekki
alþýðuna gegn öllum skatta-
álögum í þeim löndum, sem
svo lukkuleg eru að hafa þá
við völd?
Þetta gæti verið lærdóms-
ríkt að taka til athugunar; og
það því fremur, sem allt af
fáum er þetta kunnugt vestan
við járntjaldið.
I greinargerð varðandi ný-
gerða kaup- og kjarasamninga
í „alþýðulýðveldi" kommúnista
á Ungverjalandi í byrjun þessa
árs, segir hið kommúnistíska
landssamband verkalýðsfélag-
anna þar:
„Það höfuðsjónarmið, sem
hafa verður við ákvörðun
kaupgjalds í sósíalistískum á-
ætlunarbúskap, er það, að
heildarupphæð kaupgjaldsins,
sem kemur fram sem kaupgeta
á markaðinum, sé ekki hærri
en verðmæti þeirrar vöru, sem
framleidd er. Frá sjónarmiði
áætlunarbúskapar ber alveg
að vísa á bug hugmyndinni um
kauphækkanir, sem ef til vill
geta verið stundarhagur fyrir
ákveðnar stéttir, en aðeins á
yfirbórðinu þýða betri borgun
vinnunnar, þar sem þær hafa
í för með sér verðbólgu og
minnka verðgildi peninganna.
Markmiðið á þvert á móti að
vera, að auka kaupgetu laun-
anna með því að auka magn
og gæði þeirra vara, sem koma
á markaðinn.“
Þannig farast forsprökkum
kommúnista orð á Ungverja-
landi, þar sem þeir eru við
völd. Þar kveður óneitanlega
við nokkuð annan tón en þann,
sem er í ræðum þeirra og rit-
um vestan járntjaldsins.
Það er mikið satt í því, sem
í greinargerð hins ungverska
landssambands verkalýðsfélag-
anna er sagt. Sá sannleikur
hefur og oft verið sagður í
Vestur- og Norður-Evrópu í
sambandi við rökræður um
kaupgjaldsmál og dýrtíðarmál.
En hér mega kommúnistar
ekki heyra hann nefndan.
Þeir heimta í Vestur- og Norð-
ur-Evrópu ár eftir ár einmitt
þær kauphækkanir, sem „ef
til vill geta verið stundar hag-.
ur fyrir ákveðnar stéttir, en
aðeins á yfirborðinu þýða betri
borgun vinnunnar, þar sem
Ðraugagangur í landinu. — Fylgislaus flokks-
formaður. — Hvað skyldu kýrnar segja, ef þeir
væru sendir upp að Korpúlfsstöðum?
UNDANFARIÐ hefur verið
draugagangur í Iandinu. Þrír
þingmenn hafa risið upp á al-
þingi með dauð orð á vörunum
og heimtað afnám réttarbóta,
sem alþýðan hefur í áratuga bar
áttu aflað sér. Allir eru þessir
menn í Sjálfsfæðisflokknum,
enda var þaðan vís von á slík-
um vofum. Sem betur fer hafa
íslendingar litía trú á draugum,
enda er sýnt að ekki er tekið
tillit til orðaskaks þeirra. Jafn-
vel ekki málgagn Sjálfstæðis-
fiokksins tekur tillit til þess.
ÞÁ HEFl'R dauður stjórn-
málamaður risið upp á aftur-
lappirnar í Tímanum með
kenningar um stjórnarhæfni
fimmtu herdeildarinnar. Hina
sömu sögu er hægt að segja ura
þennan draug og hina þrjá, jafn-
vel ekki flokkur hans tekur til-
lit til hans. Munu þess engin
dæmi að formaður stjórnmála-
flokks standi eins fylgissnauður
á alþingi innan síns eigin flokks
og Hermann Jónasson.
VEGAMÁLASTJÓRNIN hef-
ur undanfarið verið að skvetta
vatni í holurnar á Hafnarfjarð-
arvegi. Oft hafa menn furðað
sig á vinnubrögðum vegamála-
stjórnarinnar, en þetta mun slá
öll rriet. Holurnar í Hafnar-
fjarðarvegi hafa valdið bifreiða
eigendum stórkostlegu tjóni. En
í stað þess að lagfæra þær eins
og mönnum er sæmandi, er
kákað við það af engu verks-
viti.
ÚTSVARSGREIÐANDI skrif
ar. Það er auðséð, að þú er al-
inn upp á mölinni og þekkir
ekki aftur, eða fram á kú. Mér
datt þetta í hug, er ég las til-
lögu þína um að gera bæjar-
fulltruana og verkfræðinga og
arkitekta bæjarins að fjósa-
mönnum á Korpólfstöðum!
Hvað heldurðu að heiðarlegar og
Hvað hellurðu að heiðarlegar og
samviskusamar og stundvísar
kýr, sem skila sinni lögboðnu
mjólk á tilsettum tíma, segðu-
þegar fjósamennirnir kæmu kl.
hálf ellefu til að gefa þeim,
hlaupa svo eftir hálf tíma frá
hállfunnu verki til þess að lesa
Alþýðublaðið eða að tala í síma
eða fá sér kaffi eða tala við bol-
ann, ef honum skyldi þóknast
að baula?
HVAB HELDURÐU, að kýra
ar segðu, þegar þ ;ir færu að
brjóta á sér leggina í holunum
á malbikuðum fjósflórnum, eða
hvernig heldurðu, að þeim lit-
ist á, þegar flórinn væri ekki
mokaður dag eftir dag, og allt
væri eftir þessu?
ÉG ER BARA HRÆÐDUR
UM, að kýrnar færu að sletta
til klepróttum halanum og' hafa
allt ,,á hornum sér“ eins og þú.
Og svo kæmi niðurjöfnunar-
nefndin að mjólka! Ég er hreint
ekki viss um, að kýrnar yrðu
eins þægar eða dropadrjúgar
eins og skattgreiðendurnir eru
nú, og kynnu jafnvel að finna
upp á því að sparka í mjólkur-
fötuna og geldast á stuttum
tíma.
NEI UPP AÐ KARPÓLFS-
STÖÐUM skaltu ekki senda
þetta fólk, a. m,-k. ekki til að
inna neitt starf af hendi. Hins
vegar er fallegt á Korpóifsstöð-
um, og nóg húsnæði á hlöðu-
loftinu og heilnæmt að dveljast
þar fyrir þá, sem eru á eftir-
laun og ekki þurfa neitt að
starfa. Þaðan er líka stutt upp
í Hamrahlíð. Þaðan er fagurt
útsýnil yfir hitaveitustokkana,
og þegar snjór er, væri gaman
að dútla við að leggja svig-
brautir og byggja skíðastökk-
palla í hlíoinni.
SKAMMT ER LÍKA niður
að sjó, og þar er sandur, sem
gaman er að búa til bogamynd-
uð hús úr, með hringmynduð-
um húsum fyrir framan, og hús
in gætu verið alveg hvert ofan
í öðru til þess að „spara pláss-
ið“, þó að sandurinn sé annars
nógur. Kannske annars, að þú
sendir þetta fólk upp að
Korpólfsstöðum! Gerðu það og
helzt strax“.
Sextugasti aðalfundur
Bóksalafélags íslands
NÝLEGA hélt Bóksalafélag
íslands 60. aðalfund sinn. í
stjórn voru kosnir: Gunnar
Einarsson formaður, Björn
Pétursson gjaldkeri, báðir end
urkjörnir, Lárus Blöndal Guð-
mundsson varaformaður, Egill
Bjarnason ritari og Ragnar
Jónsson lögfræðingur skjala-
vörður.
Félagið mun minnast 60 ára
afmælis síns á hausti kom-
anda.
þær hafa í för með sér verð-
bólgu og minnka verðgildi
peninganna.“ Þeir eru bara
ekki alveg eins hrifnir af slík-
um kauphækkunum í Austur-
Evrópu, þar sem þeir sjálfir
eru komnir til valda! Þar eru
þeir fljótir að snúa við blaðinu
og segja: „Markmiðið á þvert
á móti að vera, að auka kaup-
getu launanna með því að auka
magn og gæði þeirra vara,
sem koma á markaðinn“! Og
þeir láta ekki sitja við orðin
ein: Þeir banna að gera verk-
föll til að knýja fram kaup-
hækkanir. í Austur-Evrónu er
enginn verkfallsréttur til ieng-
ur!
Þannig er nú kommúnisminn
í reynd, þar sem hann er kom-
inn til valaa.
En hvað þá um skattaálög-
urnar á alþýðuna, sem komm-
únistar berjast svo skeleggir á
móti í Vestur- og Norður-Ev-
rópu? Það skyldi þó aldrei
vera, að alþýðan í sjálfri para-
dís kommúnismans, austur á
Rússlandi, yrði að sætta sig
við skattaálögur, sem eru
þéttings miklu þyngri en „al-
þýðuflokksskattarnir“ hér á ís-
landi, sem Þjóðviljinn ber sig
svo upp undan um þessar
mundir í sambandi við tekju-
öflun ríkisins til þess að mæta
hallanum. sem enn er á fjár-
íögunum!
Hvernig fer sovétstjórnin
Þau börn, sem fædd eru á árinu 1942 og
eru því skólaskyld frá 1. sept. n.k., skulu koma
koma • til innritunar og prófa í barnaskólum
bæjarins föstudaginn 27. maí n.k. kl. 1 e. h.
F ræðsluf uiltrúinn.
tilkynna:
Vegna orðsendingar Trolle & Rothe h.f. til bif-
reiðavátryggjenda skal það tekið fram, að bif-
reiðaeigendur eru vitanlega algerlega óbundnir
af öllum samningum milli Trolle & Rothe h.f.
og Almennar tryggingar h.f., og er þeim því
heimilt að tryggja bifreiðar sínar hjá hvoru
félaginu sem er. Ágreiningur um túlkun samn-
ings á milli félaganna mun að sjálfsögðu ekki
verða leiddur til lykta með blaðaauglýsingum.
Almennar tryggingar h.f.
Hef til sölu 4ra herbergja íbúðahæð í húsi í bygg-
ingu við Langholtsveg, 4ra herbergja íbúð í nýju
húsi við Karfavog, 4ra herbergja kjallaraíbúð í
Teigahverfinu. Auk þess margar íbúðir í skiptum.
BALDVIN JÓNSSON hdl.
Sími 5545. Austurstræti 12.
Ég undirriiaSur gerisl hér meS kaup-
andi að Alþýðubiaðinu
Auglýsið í Alþýðubiaðinu
að standast straum af ríkisbú-
skap sínum?
Hún gerir það fyrst og
fremst með því, að leggja sölu-
skatt á öll matvæli og hráefni,
sem hún fær frá .rússnesku
bændunum, ’ og sá söluskattur
er svo hár, að hann nemur um
tveimur þriðju til þremur
fjórðu af öllum tekjum sovét-
ríkisins; enda verður allur al-
menningur að kaupa nauðsynj-
ar sínar við tvöföldu verði á
við það, sem framleiðsla þeirra
kostar!
Þannig er háttað tekjuöflun
sovétstjórnarinnar í paradís
kommúnismans austur á Rúss-
landi. Sennilega myndi kom-
múnistum ekki þykja slíkar
skattaálögur nein fyrirmynd,
ef framkvæmdar væru af lýð-
ræðisstjórn vestan járntjalds-
ins. En austur á Rússlandi
þykja þær sjálfsagðar!
Þannig stangast hjá komm-
únistum orð og gerðir. Vestan
járntjaldsins, þar sem þeir eru
ekki við völd, lofa þeir gulli
og grænum skógum, beimta
kauphækkanir og neita að sam-
þykkja nauðsynlegustu skatta-
álögur. En austan járntjalds-
ins, þar sem þeir eru einráðir,
banna þeir verkföll til að knýja
fram kauphækkanir og binda
allri alþýðu manna drápsklyfj-
ar skatta, sem ekki eiga sinn
líka í öllum heiminum.