Alþýðublaðið - 06.07.1949, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 06.07.1949, Blaðsíða 8
M Gerizt áskrifendur iað Alþýðubiaðinu. Alþýðublaðið inn á hverí heimili. Hringið í síma É900 eða 4906. Miðvikudagur 6. júlí 1949. Börn og unglsngaí. AJLÞÝÐUBLAÐIÐ j Komið og seljið f Allir vilja kaupa ! ALÞÝÐUBLAÐIÐ 1 Sjálfstæðismenn í fjárhagsráði vissu um aísföðu Alþýðuflokksfull- trúans fyrir atkvæðagreiðsluna! Yíirlýsing frá ðskari Jónssyni, sem var fuilfrúi Áljsýðufíokksins í fjárhagsráði þegar málið var afgreitt. FULLTRÚAR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS í fjárhagsráði vissu vel um það, 'þegar ‘byggingarleyfið fyrir 100 íbúðum var áfgreitt 'til Reykjavíkurbæjar, áð ful'ltrúi A'lþýðuflokksins vi'Mi veita bænum leyfi fyrir fleiri íbúðum. Fulltrúi Alþýðuflokksins, Óskar Jónsson, las upp bókun sína varð'andi málið, áður en gengið var til atkvæða, ti'l þess áð fcanna, hvort xvrir 'hendi væri ósk um fl'eiri íbúðir; en svo virtist ekki ver'a. Sjálfstæðismönnum var þVí í lófa lágið að fá samþykktar f'leiri en 100 'íbúðir fyrir Reykjavík. ef viljinn hefði verið fyrir hiendi. Huseby kastar kúlunni í Oslo. Gunnar Huseby á Bisletvellinum í Osló. Ivö mef í Oslo: Huseby í kúlu- varpi og Torfi í sfangarstökk KR-ingar settu einnig met í 4x400 m. —-- -.............. .......... GUNNAR HUSEBY setti nýtt íslandsmet í kúluvarpi á Oslóleikunum í gærkveldi. Kastaði hann 15,82 metra, en fyrra met hans var 15,69 m. Þá sigruðu KR-ingar, sem nú eru á i’erð í Nore^i, í 4X400 metra boðhlaur'i á 3:26,4 mín. í 200 metra hlaupi sigraði Norðmaðurinn Peter Bloch á 22,4 sek., rétt á undan Asmundi Bjarnasyni, sem hljóp á 22,5 sek. Af öðrum úrslitum var sigur Svíans Lennarts Strand í 1500 m. athvglis- verðastur, en hann hljóp á 3:51,4 mín. ♦ Hjalti Jónsson ræS- ismaður iáiinn. HJALTI JÓNSSON ræðis- maður andaðist í fyrrinótt í sumarbústað sínum, Hjalta- stað i Mosfellsdal, áttræður að aldri. Hjalti fæddist 15. apríl T869 að Fossi í Mýrdal. Árið 1888 fluttist hann til Vest- mannaeyja og stundaði þar formennsku til 1895. Hina írægu för sína til Eldeyjar fór Iiann, ásamt tveimur Vest- mannaeyingum, árið 1894, er hann kleif eyjuna fyrstur rnanna. Fyrir aldamót fluttist liann til Reykjavíkur og tók próf úr stýrimannaskólanum 1899. Varð hann síðan skip- stjóri á þilskipum og togurum og er hann einn af brautryðj- endum togaraútgerðar á ís- landi. Hann var stofnandi og meðstjórnandi fjölda fyrir- tækja í Reykjavík. Einnig var liann ræðismaður Pólverja á íslandi. Nýtt knattspyrnaféíag í Reykjayík. NÝTT knattspyrnufélag var stofnað hér í Reykjavík í fyrrakvöld, og eru þá knatt- spyrnufélögin hér í bænum orðin fimm. Þetta nýja íélag nefnist Knattspyrnufélagið 1949, sem sé skammstafað K- 49. Bráðabirgðastjórn félagsins skipa Ingjaldur Kjartansson formaður, Svavar Þórhallsson ritari og Ove Jörgensen féhirð- ir. Dr. Lindsey hélt ann- að erindi sitt í gær. 1 ERINDI sínu í gær gaf Dr. Lindsey greinargott og skemmtilegt yfirlit um þróun í myndlistum frá blómatíma hins austur-rómverska ríkis, sem kennt er við höfuðborg þess, Byzan, allt fram yfir end- urreisnartímabilið. Eins og með fyrra erindi sínu sýndi Dr. Lindsey fjölda af ágæturn myndum af listaverkum. Síðdegis í dag, kl. 6, flytur Dr. Lindsey þriðja erindi sitt á vegum Handíðaskólans. Fjall- ar það erindi um upphaf og þróun málaralistarinnar í Norður-Evrópu, Niðurlöndum og Þýzkalandi. ÁREKSTUR varð í gær á vegamótum Stórholts og Lönguhlíðar milli bifhjóls og bifreiðar. Meiddist maðurinn, sem var á bifhjólinu, nokkuð og var fluttur á sjúkrahús. Óskar Jónsson, sem var full-1 trúi Alþýðuflokksins í fjárhags ráði, þegar mál þetta var af- greitt, hefur beðið Alþýðu- blaðið fyrir athugasemd við skýrslu Birgis Kjarans um mál þetta, en skýrsla Kjarans var lesin á bæjarstjórnarfunai og prentuð í Morgunblaðinu. At- hugasemd Óskars fer hér á eítir: „Það er rangt hjá Birgi Kjaran í skýrslu hans til borg- arstjórans í Reykjavík, sem birt var í Morgunblaðinu á dögunum, að honum hafi verið ókunnugt um afstöðu mína til umsóknar Reykjavíkurbæjar um að fá að byggja 200 bæjar- íbúðir, áður en málið fékk fullnaðarafgreiðslu í fjárbags- ráði. Sannlcikurinn er sá, og það veit B. Kj. fullvel, að áð- Rekstursreikningur SÍS fyr- ir 1948 sýnir 1 695 000 kr. tekjuafgang, en 1 321 000 er úthlutað til félaganna, og verða þá eftir 374 000 kr. Efna- hagsreikningur sýnir 85 940- 454 kr. Innflutningur sam- bandsins minnkaði um 3 millj. ur en atkvæðagreiðsla fór fram um tillögu formanns, Magnúsar Jónssonar, sem B. Kj. tók upp og gerði einnig að tillögu sinni, lýsti ég þeirri bókun, er ég sagðist óska að Sá bókaða að lokinni afgreiðslu málsins og B. Kj. birtir orð- rétta í skýrslu sinni. Með því að lesa þessa bókun upp áður en atkvæðagreiðsla færi fram um tillögu formanns (100 íbúð- ir), vildi ég kanna, hvort fyrir hendi væri ósk um fleiri íbúðir handa Reykjavíkurbæ, en svo virtist ekki vera, þótt hægðar- leikur hefði verið að taka frest í málinu, þar sem yfirlýsing mín bar það skýlaust með sér, að ég myndi geta fallizt á fleiri bæjaríbúðir, ef ósk um það kæmi fram og þá fyrst og fremst frá þeim, er ríkasta frá 1947, en sala útfhitnings- deildar hefur aukizt um 20 milljónir. Starfsemi sambandsins hef- ur verið margþætt. „Hvassa- fell“, skip sambandsins, kom við í 25 íslenzkum höfnum og 19 erlendum, og vfirð 766 000 skyldu böfðu til að gæta hags- muna byggingarmála Reykja- víkurbæjar. Þá er það alrangt, að í mín- um breytingartillögum fælist íillaga um 109 íbúðir handa Reykjavíkurbæ. B. Kj. birtir aðeins síðasta lið tillagna minna, en ef liann hefði birt þær allar, kæmi skýrt fram, að ég á enga tillögu um 100 íbúðir fyrir Reykjavík. Annars mun ég síðar, ef frekara tilefni gefst til, segja sögu þessa máls frá upphafi, þegar það kom fyrst á dag- skrá í fjárhagsráði á s. 1. vetri. Og hó að ég hafi fleira að at- huga við skýrslu B. Kj., læt ég þetta nægja að sinni. Hafnarfirði, 2. júlí 1949. •Oskar Jónsson.“ kr. hagnaður af rekstri skips- ins, eða rétt fyrir lögheimilaðri 20% afskrift. Hagnaður af rekstri leiguskipa varð 39 000 kr. Sambandið á nýtt skip, ,,Arnarfell“, í smíðum í Sví- þjóð. Af iðnfyrirtækjum sam- bandsins skilaði ullarverk- smiðjan Gefjun 163 000 kr. tekjuafgangi, skinnaverksmiðj- an Iðunn 50 000 kr. og fata- verksmiðjan Hekla 2500 kr. Gefjun framleiddi 60 500 m. af dúkum, 23 000 kg. af bandi og 84 000 kg. af lopa. Iðunn sút- aði 28 611 skinn og framleiddi 36 432 pör af skóm. Fundarstjóri á aðalfundinum er Eysteinn Jónsson mennta- málaráðherra, en til vara Jör- undur Brynjólfsson. Fundinum lýkur væntanlega á fimmtu- dag. Osló-leikarnir hófust á Bis- let íþróttavellinum á mánudag. Setti Torfi Bryngeirsson þá nýtt íslandsmet í stangar- stökki, er hann komst yfir 4,08 metra. Varð hann annar á eftir Norðmanninum Erling Kaas, sem stökk 4,21 m. Ásmundur varð þá þriðji í 100 m. hlaupi á 11,0 sefc og Trausti Eyjólfsson sjötti á 11,2 sek. Huseby varð 5. í kringlukasti með 42,60 og í boðhlaupi voru íslendingar með 15 metra forskot þar til á síðasta sprettinum, að Ás- mundur meiddist og haltraði í nrark. KASTAÐI 16 M. ' í ÓGÍLDU KASTI ' Gunnar Huseby kastaði um 16 metra í ógildu kasti á mót- inu í Hönefoss á sunnudag, en • lengsta kast hans, sem var gilt, var 15,56. Kasthringurinn var laus og lítil viðspyrna, svo að mörg köst urðu ógild. Afrek Gunnars var bezta afrek móts- ins, en áhorfendur voru aðeins 400. í 100 metra úrslitum, A- flokki, varð Ásmundur Bjarna- son þriðji á 11,3 sek. Siguvöur Björnsson vann 400 metrana á 53,8, Norðrnaðurinn Langseth varð annar á 54,1 og Sveinn Björnsson þriðji á 54,4. I kúiu- varpinu sigraði Huseby á 15,55 m., en Friðrik Guðmundsson varð annar á 14,10. í 1500 m. sigraði Norðmaðurinn Kjeil Stenersen á 4:11,6 mín., en Þórður Þorgeirsson varð annar á 4:14,3 mín. Þá vann Torfi Bryngeirsson langstökkið á 6,70 m., en Norðmaðurinn Björn Langbakke stökk 6,67 m. Loks varð Huseby þriðji í kringlukasti með 43,30 á eftir Stein Johnsen með 46,59 og Öi- vind Edvardsen með 43,57 m. SAMVINNUFÉLÖG, sem standa aS SÍS og eru samíals 55 taísins, höfðu við síðustu áramót 27 274 félaga, en félagar og menn á framfæri beirra voru 89 204, ef hver maður er aðeins talinn einu sinni, þótt hann sé í fleiri félögum. Kom betta íi am í skýrslum Sigurðar Kristjánssonar og Vilhjálms Þór um starf- semi SIS á síðasta ári, er beir fluttu á aðalfundi sambandsins, sem nú stendur yfir. Sækia fundinn 87 fulltrúar frá 50 félög- um, en rétt til fundarsetu hafa 92 fulltrúar 53 félaga.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.