Alþýðublaðið - 09.07.1949, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 09.07.1949, Blaðsíða 1
XXX. árgangur. Laugardagurinn 9. júlí 1949. 150. tölublað. Súðin leggur af slað í dag vestur fii Grænlands. SÚÐIN leggur a£ stað í dag vestur á Grænlandsmið. Verða gerðir út frá henni í sumar 5—6 trillubátar og 5 stórir vélbátar, en sextíu manns verða í leiðangrinum alls. Súðin verður á Græn- landsmiðum í allt sumar sem móðurskip og aðalbæki- stöð sjómanna í þessum leið- angri. Hafa þeir þjónustu í Súðinni og geymslu fyrir aliar nauðsynjar sínar. I skipinu er einnig nokkur aðstaða til þess að gera við minni háttar bilanir, sem fyrir kunna að koma. Lækn- islærður maður verður með í förinni. Skipstjóri á Súðinni er Bernharð Pálsson, en Ieið- angursstjóri er, eins og skýrt hefur verið frá áður í blaðinu, Steindór Hjaltalín. Eru Júgóslavar að innlima Triesfe? ÍTALIR hafa nú kvartað undan því, að Júgóslavar séu að innlima hernámssvæði sitt við Trieste í Júgóslavíu. Hafa borgarar þar fengið júgóslav- nesk vegabréf og embættis- menn fá júgóslavneska ein- kennisbúninga. ítalir hafa í þessu sambandi fullyr't, að hvað sem fyrir komi, muni Trieste fyrr eða síðar samein- ast Ítalíu. Skora á bæjarsfjórn- ina að semja þegar við bifvélavirkja. „FUNDUR haldinn í Félagi ísl. rafvirkja 7. júlí 1949 lýsir yfir fyllstu samúð sinni og skilningi á kaupdeilu þeirri, er bifvéiavirkjar og skipasmiðir eiga nú í. Jafnframt krefst S AMNIN G AFUNDUR var haldinn í gær að tilhlutan sáttasemjara ríkisins' með samninganefnd frá Félagi bif- vélavirkja og atvinnurekndum, og lögðu fulltrúar atvinnurek- enda þar fram tillögu til sam- komulags, sem fulltrúar bif- vélavirkja treysta sér að vísu ekki til að mæla með við félag sitt, en rædd verður þó á fundi þess í dag kl. 2 eftir hádegi. Poul Henry Spcmk greiðir atkvœði. Mynd þessi er frá belgísku kosningunum, og sýnir Spaak, þáverandi forsætisráðherra, sem er foringi jafnaðarmanna, greiða atkvæði. Júgóslavar segjasf ekki haía hjálpað grísku stjórninni. JÚGÓSLAVAR hafa opin- berlega neitað því, sem gríska stjórnin hafði skýrt frá að júgóslavneskir hermenn hefðu aðstoðað gríska stjórnarher- menn gegn uppreisnarmönn- um. Kalla Júgóslavar þessa fregn hið mesta níð um sig, og segjast aðeins hafa Veitt særð- um uppreisnarmönnum lækn- ishjálp við landamærin. fundurinn þess, að bæjarstjórn Reykjavíkur semji tafarlaust við Félag bifvélavirkja og firri með því bæjarbúa því stórkost- lega fjárhagstjóni, sem hlýzt af áframhaldandi stöðvun stræt- isvagnanna.“ Þessi tillaga var samþykkt samhljóða á fundi í Félagi ís- I lenzkra rafvirkja í fyrradag. Það er með öllu óvíst, hvort þessar samningatilraunir leiða til endanlegs samkomulags nú þegar, en þeim verður haldið áfram í dag, ef fyrrgreind til- vélavirkja treystu sér að vísu vélavirkja, sem alveg er óvíst. Er því ekki að vita nema hin langa og hvimleiða stöðvun strætisvagnanna í Reykjavík taki enda nú um helgina. Búizt við að iausn finnist bráölegaa -----------------------♦--------- FJÁRMÁLARÁÐHERRAR Breta, Kanadamanna og Bandaríkjaníanna sitja nú á fundi í London, og ræða þeir dollaraskort sterlingslandanna. Munu þeir reyna að finna lausn á þessum vanda, en útflutningur Bretlands og annarra sterlingslanda vestur um liaf hefur minnkað í seinni tíð, og hafa af því skapazt hin mestu vandræði. Talið er líklegt, að ráðlierrunum takist að finna viðunanlega lausn á málinu. Ástæðan til þess, að útflutn-*' ingurinn til dollaralandanna hefur minnkað, er talin sú, að framboð á flestum vörum er nú orðið álíka mikið og eftir- spurnin vestan hafs. Auk þess hefur orðrómurinn um gengis- lækkun í Englandi orðið til þess, að verzlunarmenn hafa beðið með pantanir sínar til Breta í von um að úr gengis- lækkuninni verði. Undanfarna daga hefur á- standið í viðskiptamálum Bandaríkjanna og Bretlands þó batnað nokkuð. Snyder, fjármálaráðherra Breta, til- kynnti í London, að Bandarík- in myndu innan skamms hefja hráefnakaup í brezka heims- veldinu á ný, og hafði það mjög góð áhrif í kauphöllinni í London. Cripps, fjármálaráð- herra Breta, hefur barizt harð- lega gegn gengislækkun og lýst því yfir, að sú leið verði ekki farin. Uiför Hjalla Jóns- sonar fér fram irá Fríkirkjunnl í gær. ÚTFÖR' Hjalta Jónssonar konsúls, sem lézt aðfaranótt 5. þessa mánaðar, fór fram frá fríkirkjunni í Reykjavík í gær að viðstöddu fjölmenni. Jarð- sett var í gamla kirkjugarðin- um. Síra Bjarni Jónsson vígslu- biskup flutti húskveðju og ræðu í kirkju, en oddfellowar, samstarfsmenn Hjalta og ætt- ingjar báru kistuna. Guðmund- ur Jónsson einsöngvari söng við jarðarförina. Meðal kransa, er bárust, var einn frá Knúti ríkiserfingja Dana og Karoline Mathilde prinsessu konu hans. Kommúnisfar reyna a& hindra endur- reisn Englands með verkföllum. BREZKA STJÓRNIN tilkynnti í gærikveldi, að lýst verði yfir h'ernaoará- standi í London, ef verk- fal'l hafnarverkamai'jna leysist ekki fyrir næst- kornandi mánudag. Verði þetta gert, fær stjór-nin næstum ótakmarkað vald til 'þes's að gera hvers kon- ar ráðst'afanir, sem reyn- ast nauðsynfegar til þess að tryggj a m'atvælaflutn- in'ga o'g halda friði í borg- inni. Innanríkisráðherra Breta, Ede, sagði í neðri málstofunni í gær, að verkfall þetta væri gert að undirlagi kommúnista, sem vildu með því spilla fyrir endurreisn Bretlands og koma á sundrung í landinu. Verka- mennirnir fara ekki fram á kauphækkun eða neins konar kjarabætur. Þeir gerðu verk- fallið aðeins til að mótmæla því, að tvö kanadisk skip væru afgreidd, en annað sjómanna- félagið í Kanada er undir stjórn kommúnista. Ede sagði, að sjómannadeilan væri al- kanadiskt mál og væri alger ó- þarfi að láta hana verða að deiluefni í Englandi. Yfir 100 skip bíða nú af- greiðslu í Rondon, en 10 000 af 25 000 hafnarverkamönnum eru í verkfalli. Hermenn og sjóliðar hafa verið settir til að skipa upp matvælum, sem ann- ars liggja undir skemmdum. Atkvæðagreiðsla fór í gær fram um það, hvort verka- mennirnir skyldu hverfa aftur til vinnu sinnar. Mjög fáir tóku þátt í henni, en tveir þriðju þeirra, sem greiddu atkvæði, vildu hefja vinnu á ný. Eldgos á Kanari- eyjum. PELATOFJALL á eyj- unni La Palma í Kanari- eyjaltlasanum úti fyrir > vesturströnd Afríku byrjaði að gjósa fyrir nokkrum dög- um. Er þetta mikið gos og rennur hraunflóð niður fjallshlíðarnar. Tvö þorp eru sögð vera í hættu frá hraunflóðinu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.