Alþýðublaðið - 09.07.1949, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 09.07.1949, Blaðsíða 8
Gerizt áskrifendur að AiþýðublaSinu. Alþýðublaðið inn á hvert > heimili. Hringið í síma É900 eða 4906. Laugardagurinn 9. júlí 1949. Börn og ungiingar* ALÞÝÐUBLABIÐ < Kcxmið og seljið J Allir vilja kaupa f ALÞÝÐUBLAÐIÐ Winston Churchill í sumárfríi, \ Hesfamannaíélagið Fákur heldur Þossar myndir af hinum fræga brezka stjórnmálamanni voru teknar í einum hinna heitu og sólríku baðstaða á Suður-Frakklandi. 11 verkalýðsfélög úti um land fá kjarabæfur með nýjum samningurn —..............—-»— ------ Gronnkayp í aimennri dagvinnu hækk- ar yfirleitt um 28 eöa 30 ayra á klukkust. ELLEFU VERKALÝÐSFÉLÖG úti um land hafa nýlega, ffest um og eftir síðustu mánaðamót, gert nýja kjarasamn.higa við atvinnurekendur, og hefur grunnkaup í almennri dagvinnu yfirleiít hækkað um 28 eða 30 aura á klukkustund samkvæmt þeim, að hví er skrifstofa Albýðusambands íslands hefur skýrt blaðinu frá. ífalir unnu íslendinga \ gær á bridgemóí- inu í París. ÍTALIR unnu íslendiuga í sjöundu umferð bridgemótsins í París í gær með 25 stigum gegn 11. í þeirri umferð unnu einnig Svíar Pólverja með 20 gegn 17, Bretar íra með 45 gegn 11, Frakkar Norðmenn með 19 gegn 12 og Danir Finna með 19 gegn 6. Belgíumenn sátu hjá í sjöundu umferð. --------:—9---------. Ný bók.- „Holdið er veikf' efíir Hans Klaufa. Mest er hækkunin hjá Verkalýðsfélaginu Vörn á Bíldudal, hjá því hækkaði kaupið úr kr. 2,56 upp í kr. 2,95. Þau verkalýðsfélög, sem fengu hækkun á grunnkaupi í almennri dagvinnu úr kr. 2,80 upp í kr. 3,08, voru Verka- mannafélagið Báran á Eyrar- bakka, Verkalýðsfélag Hvera- gerðis, Verkalýðsfélag Sval- barðsstrandar og Verkamanna- félag Akureyrarkaupstaðar. Hjá Verkamannafélaginu Hvöt á Hvammstanga og Verkalýðsfélagi Hrútfirðinga á Borðeyri hækkaði kaunið úr kr. 2,60 í kr, 2,90 á klukku- stund. Verkalýðsfélagið Farsæll á Hofsósi fékk kaup hækkað úr kr. 2.65 upp í kr. 2,90, Verka- mannafélag Reyðarfjarðar- hrepps úr kr. 2,60 upp í 2,80, Verkamannafélagið Fram á Sauðárkróki úr kr. 2,80 upp í 2,90 og Verkamannaíélagið Valur í Búðardal úr kr. 2,80 upp í kr. 2,92 á klukkustund. SAMKOMULAG hefur orð- ið milli Verkakvennafélagsins Framsókn og Vinnuveitenda- sambands íslands um að kaup verkakvenna skuli vera frá og rneð mánudeginum 11. júlí sem hér segir: Við hreingerningar í dagv. kr. 6,90; í eftirv. kr. 10,35 og nætur- og helgidv. 13,80. Við uppskipun á saltfiski kr. 6,90; í eftirv. kr. 10,35 og næt- ur- og helgidv. 13,80. Almenn vinna kr. 6,60; í eftirv. kr. 9,90 og nætur- og helgidv. kr. 13,20. Ákvæðisvinna í vaski hækk- ar enn fremur um 7%. Samsæfi fyrir norsku kennarana. NORSKU kennararnir, sem hér hafa dvalizt undanfarið, verður haldið kveðjusamsæti í Tjarnarcafé á. þriðjudaginn kemur. Þeir munu sumir að minnsta kosti fara flugleiðis til Noregs á fimmtudaginn. kappreiðar á Skeiðvellinum í dag -----------------—» Reyndir verða 7 hestar á skeiði með 250 nio sprettfæri; 13 á 300 og 350 m. stökki -*» HESTAMANNAFÉLAGIÐ FÁKUR efnir til kappreiða á skeiðvellinum við Elliðaárnar í dag í annað sinn á hessu vorL Kappreiðarnar hefjast kl. 3.30 eftir hádegi, en reyndir verða 26 gæðingar, har af 7 á skeiði með 250 metra sprettfæri, 6 á 350 metra stökki oz 13 á 300 metra stökki. í skeiði keppa 7 hestar, þar á meðal hin gammvakra hryssa Gletta, sem alkunn er frá fyrri kappreiðum fyrir snilli sína; eigandi Sigurður Ólafsson; enn fremur Léttir Jóns í |Varmadal, er tók fyrstu verð- laun á síðustu kappreiðum, : Nasi Þorláks Kristjánssonar, j Álfsnesi, og Kolbakur Jóhanns 1 Kristjánssonar og fleiri úrvals hestar, sem gætu orðið fyrr greindum gæðingum hættu- j legir keppinautar. í stökki keppa 6 hestar, þar á meðal hinn kunni 18 vetra hlaupagarpur, Hörður, Þor- geirs í Gufunesi; enn fremur Gnýfari, sami eigandi, 7 vetra, er varð fyrstur í 300 m hlaupi á síðustu kappreiðum, en kepp- ir nú í fyrsta sinn í 350 m hlaupi við sér eldri og reynd- ari hesta; en allar líkur benda samt til þess,. að hann gangi með sigur af hólmi. Loks Hauk- ur Ólafs Þórarinssonar, harð- snúinn mjög, og fleiri góðhest- ar. í 300 m. stökki keppa 13 hestar, meðal annars Glytnur Guðmundar í Bergvík, Freyja Viggós Eyjólfssonar, Depill Magnúsar Aðalsteinssonar, Fengur Birnu Nordahl. Þá keppa og nokkrir nýir hestar í þessu hlaupi, sem líklegir eru til þess að geta orðið hinum eldri gæðingum skeinuhættir. Verðlaun verða samtals 5—6 þúsund krónur. Veðbanki verð- ur starfræktur að vanda. Hestamannafélagið Fákur hefur jafnan viljað stuðla að bættri meðferð hesta. Það vill i og stuðla að því, að aldir séu j upp í Iandinu góðir hestar og j fólk læri að meta þá. ♦---------------------------- Taít mótfallinn [ vopnasendingum fil Aflanfshafs- ríkjanna. TAFT öldungadeildarþing- maður tilkynnti í Washington í gær, að hann mundi beita sér gegn hernaðarlegri aðstoð til Atlantshafsríkjanna. Sagði hann enn fremur, að hann mundi greiða atkvæði gegn sáttmálanum, ef vopnasending- ar til bandalagsríkjanna verða tengdar sáttmálanum við af- greiðslu hans í öldungadeild- inni. Taft er formaður þingflokks republikana í öldungadeildinni, en ekki virðist flokkur hans allur hafa þessa afstöðu. Tru- man forseti mun að líkindum innan skamms biðja þingið að samþykkja 1 500 000 000 doll- ara vopnasendingar til annarra ríkja, fyrst og fremst Atlants- hafsríkjanna. ----------»--------- Síðasta erindi Ðr. i Lindsey fresfað. í ERINDI því, er Dr. Lind- sey flutti í gær í háskólanum, sýndi hann glögglega fram á, hve þroskaður listiðnaður var í fornöld hér á Norðurlöndum og Bretlandseyjum. Var efindið mjög fróðlegt og sýndi fyrir- lesarinn fjölda mynda af forn- um listmunum frá þessurh löndum. Lokaerindi Dr. Lindseys, sem átti að fjalla um hagnýt- ingu listasafna í þágu almenn- ings, verður að fresta um sinn, þar eð kvikmyndir, sem bví eiga að fylgja, enn eru ókomn- ar til landsins. NÝLEGA er komin út bók á vegum Bókfelisútgáfunnar, sem nefnist: „Holdið er veikt“, og er eftir Kans Klaufa, en undir því nafni hefur Haraldur Á. Sigurðsson skrifað ýmsa gamanþætti og leikrit. Þessir þættir, sem nú eru gefnir út, hafa ekki birzt áður á prenti og eru skriíaðar af þeirri kímni og gamansemi, sem Har. Á. Sigurðsson er alkunn- ur fyrir. Fjöldi teikninga prýðir bókina og eru þær frá- bærlega vel gerðar. isfirðingar sigursælir í Færeyjum ÍSFIRÐINGAR hafa verið sigursælir í fyrstu kappleikj- um sínum í Færeyjum. Þeir hafa þegar keppt í knattspyrnu við Havnar boltfélag og báru sigur úr býtum með 3 mörkum gegn 2. í frjálsum íþróttum unnu þeir allar greinar, og var það afrek athyglisverðast, að Guðmundur Hermannsson hljóp 100 m. á 11,4 sek. og er það nýtt Vestfjarðamet. GESTKVÆMT hefur und- anfarið verið á sólskirisdögum á baðstaðnum í Nauthólsvík, en þar hafa nú verið gerðar ýmsar , umbætur, og meðal annars ráðinn baðvörður, Páll Guðmundsson íþróttakennari, sem er viðstaddur daglega frá ki. 1—7 síðd. Byggðar hafa verið rotþrær fyrir frárennsli flugvallarhót- elsins, nýtt svæði vestan vík- urinnar tyrft og stigar settir í bergið, Þá hefur björgunar- tækjum verið komið fyrir við baðstaðinn. , Reykjavíkurbær hefxlr borið allan kostnað af sjóbaðstaðn- um frá byrjun og látið gera þessar umbætur að öðru leyti en því, að flugvallarstjóri lán- aði jarðýtu til jarðabóta og lét byggja rotþrærnar, en Slysa- varnafélag íslands lagði til björgunartækin og kom þeim fyrir. Veitingar eru fyrir baðgesti á flugvallarhótelinu og í því eru einnig snyrtiherbergi fvr- ir þá. Fólk ætti ekki að leyfa börnum að fara til baðstaðar- ins á þeim tímum, sem bað- vörðurinn er ekki við, nema í fylgd með fullorðnum. Rafvirkjar fagna nýju iðnfræðslulögunum Á FUNDI í Félagi íslenzkra rafvirkja í fyrradag var eftir- farandi tillaga samþykkt sam- hljóða: „Fundur í Félagi íslenzkra rafvirkja 7. júlí 1949 fagnar setningu hinna nýju laga um iðnfræðslu, sem samþykkt voru á nýafstöðnu alþingi. Jafnframt vottar fundurinn iðnaðarmálaráðherra þakkir sínar fyrir baráttu hans fyrir framgangi málsins.“

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.