Alþýðublaðið - 22.04.1920, Page 2
2
ALÞYÐUBLÁÐIÐ
ekki hitt, að það þurfi neina smá-
sjá til að koma auga á hana, og
var óþarfi af Steingrími að mis-
skilja það.
Tilgangnr greinar minnar var
i' vitanlega sá að benda á það, sem
miður fer og haft getur og hef-
ir spillavdi áhrif á menningu
jReykjavíkur.
En Steingrímur verður að fyrir-
gefa, þótt eg álíti, að dómur um
menningarástand bæjarins í heild-
inni, byggður eingöngu á starf*
semi kvikmyndahúsanna, myndi
verða sleggjudómur, —jafnvel þótt
hann væri kveðinn upp af Stein-
grími sjállum.
Því, sem Steingrímur segir um
fiðluspilið, hefir ritstjóri Alþ blaðs-
ins svarað nægilega í sama blaði
og grein Steingríms birtist í, og
vísast til þess.
Að endingu skal eg taka það
fram, að dómur minn um fiðlu-
spil Th. Á, er eingönu bygður á
því, sem eg heyrði til hans á um-
ræddri kvikmyndasýningu, en alls
gigi á samanburði við aðra fiðlu-
leikara.
Pkilharmonicus.
norðan.
Áfengisbannlogin. Á þingmála-
fundi, sem haldinn var á Siglu-
fiirði í febrúar sl. var samþykt með
54 atkv. gegn 23, svohljóðandi
tillaga frá Jósef Björnssyni:
>Fundurinn er eindregið á móti
þvf, að bannlögin séu úr gildi
numin og skorar á Alþingi að
halda fast við þau og bæta þær
misfellur, sem reynslan hefir sýnt
að á þeim séu«.
Yerkamannafélagið á Siglu-
firði gekst fyrir þorrablóti 7. febr.
sl. Tóku um 230 manns þátt í
því. »Snæddu menn þar úr trog-
um, með sjálfskeiðingum og stand-
andi«, segir iFram«.
Slysatrygging verkamanna. Á
þingmálafundinum, sem getið er
hér að ofan, var eftirfarandi till-
laga frá bæjarfógeta samþykt með
öllum greiddum atkvæðum:
iFundurinn skorar á alþ.menn
Eyjafjarðarsýsiu, að bera fram á
Alþingi, þingsályktunartillögu, er
skori á stjórnina að Ieggja fyrir
næsta Aþingi frv til laga um
slysatryggingu verkamanna, eink-
um við verksmiðjuvinnu og út-
skipun og upp«kipun«.
Ber þessi tillaga vott um það,
að Siglfi'ðingar hugsa fyrir kom
andi dögum. En ekki báru víst
þingmennirnir fram þessa þings
ályktunartillögu, og er það illa
farið.
Leikfimisflokk hafa nokkrir
ungir menn haft með sér á Ak-
ureyri í vetur. Sýndu þeir þar ný-
skeð leikfimi opinberlega, við góð-
an orðstýr, og gáfu ágóðann, 319
krónur, til ljóslækningastofunar á
Akureyri.
Kanpfélag Yerkamanna á Ak-
ureyri hélt^ nýskeð aðalfund sinn.
Hafði ve)tan verið um 200 þús.
kr. í rúma 7 mánuði, sem félag-
ið var búið að starfa og félags-
menn fengu 8% ágóða af við-
skiftum sínum. Er sagt í bréfi að
norðan, að allflestir Akureyringar
verzli nú við félagið.
Kanpfélag Eyflrðinga er og
nýbúið að halda aðaltund sinn.
Var ágóðinn sl. ár um 130 þús-
und krónur og er félagsmönnum
útbýtt n°/0 f ágóða af viðskift-
um þeirra. Vöruverð mun yfirleitt
hærra í þessu félagi en hinu og
sömuleiðis verzlar það með ís-
lenzkar afurðir.
Um daginn og veginn.
Þróttnr inniheldur í þetta sinn:
Víðavangshlaup íþróttafélags R -
víkur 1919 með mynd af ölafi
Sveinssyni er hann kemur fyrstur
að markinu, Opið bréf, til skóla-
nefnda og fræðslunefnda, íþróttir
og leikir við barnaskóla f Stokk-
hólmi, Barnaskóli Reykjavíkur, Til
framtíðarmanna, Ágrip af ferða-
sögu íþróttafélagsins „Höfrungur“
1917, Sundbók, upphaf, með
myndum, Um tennur, Skátar og
Ioks íþróttafréttir. „Þróttur" er
fróðlegur, ekki aðeins fyrir íþrótta-
menn, heldur einnig allan almenn-
ing.
Víðavangshlaupið byrjar kl. 2
frá Austurvelli og verður hlaupið
þaðan suður Laufásveg suður að
Hlíð, þá þvert yfir túnin og á
Laugaveg á móts við Gasstöðina
og síðan niður eftir veginum og
stansað fyrir framan ísafoldarprent-
smiðju. Fólk ætti að gæta þess
vandlega, að verða ekki hlaupúr-
unum til trafala, standa t. d. ekkt
á götunni, heldur á gangstéttun-
um. Þetta er í 5 sinn sjm hlaujp-
ið fer fram. Um 20 taka þátt í
hlaupinu og hlaupa f 4 flokkum.
Verðlaun verða veitt.
,
Yeturinn kvaddi í gær mjeð'
blíðviðri og þýðu um alt larid.
Var sagt f símtali við Akureyri í
gær, að því nær snjólaust væri
orðlð i Eyjafirði.
Stúdentafélag lteykjavíkur
heldur fund i Iðnó í kvöid kl. 9.
Bjarni frá Vogi talar um Latfnu-
skólann og verða síðan umræður
á eftir. Attu umræður þessar að
verða á síðasta fundi, en varfr
ekki úr sökum þess að mentamála-
nefndina vantaði, en nú lætur hún
væntanlega ekki standa á sér.
Öllnm búðnm er lokað í dag,
samkv. bæjarsamþyktinni, sömu-
leiðis munu flestar vinnustofur lok-
aðar.
Hjónaefni. Ungfrú Sigurlaug
Hallgrímsdóttir á Akureyri og
Brynleifur Tobiasson, kennari og
ritstjóri, opinberuðu trúlofun sína
í gær.
Skúli iógeti kom inn í gær
með um 90 tunnur lifrar úr fyrstu
ferð sinni.
Að öllu forfallalausu spilar
lúðrafél. „Gígja* úti í dag kl I.
Tveir ólíkir. „Skallagrímur"
og „Leifur hepni" eru nýkomnir
af veiðum. „Skallagrímur" (skip-
stjóri Guðm. Jónsson) var úti f 6
daga og kom með 127 föt af lif-
ur. „Leifur hepni“ (skipstjóri Gísli
Oddsson) var úti í 8 daga og
kom með 105 föt. Á Skallagrími
fengu hásetar aldrei minna en 5
tfma hvíld á sólarhring. En á
Leifi fengu þeir 1U/2 — eilefu og
hálfs — tíma hvíld yfir 8 daga.