Alþýðublaðið - 24.09.1949, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 24.09.1949, Blaðsíða 4
AtÞVeMBfcAÐK) Föstudagur 23. sept. 1549 0*rrmmmi Útfefandt: AlþýBuflokknrinn. Bitstjóri: Stefán Pjetursson. Fréttastjóri: Benedikt Gröndal. Þingfréttir: Helgi Sæmunðsson. Bitstjórnarsímar: 4901, 4902. Auglýsingar: Emiiía Möller. Auglýsingasimi: 4906. Afgreiðslusími: 4900. Aðsetur: Alþýðuhúsið. Alþýðuprentsmiðjan hX Ólánsferilf Fram- sóknarflokksins FRÉTT ARITST J ÓRI TÍM- ANS ræðst í gær á Alþýðu- flokkinn í sérdálki sínum í Fram sóknarblaðinu. Minnir hann á þá tíma, þegar Alþýðuflokkur- inn og Framsóknarflokkurinn fóru með stjórn landsins, og telur, að Alþýðuflokkurinn sé nú gerbreyttur frá því, sem hann var þá og dæmir hann ó- alandi og óferjandi. Gefur hann Reykvíkingum það ráð, að ganga af Alþýðuflokknum dauðum við kosningarnar í haust, en fylkja sér um Fram- sóknarflokkinn og senda Rann- veigu Þorsteinsdóttur á þing. Greinarhöfundur hefur sennilega ekki gert sér grein fjrrir því, að Framsóknarflokk- urinn þarf að bæta við sig 150 % atkvæðamagni. frá síðustu alþingiskosningum til að fá-full trúa kjörinn í höfuðstaðnum. Ef hann hefði leitt hugann að þeirri staðreynd, myndi hann naumast hafa fyrir því að fimbulfamba um sigurhorfur flokksins í Reykjavík við í hönd farandi kosningar. Framsókn- arflokkurinn býður hér fram af gömlum vana, en það verður ærið oft að skipta um menn í efsta sæti listans af því, að það er lýjandi og leiðinlegt að falla í sérhverri kosningaglímu. Nú hefur Pálmi Hannesson tekið sér hvíld, en eins og kunnugt. er staðhæfði Tíminn við síð- ustu alþingiskosningar, að hann ætti sigur vísan. Auðvit- að datt engum í hug að trúa þessari staðhæfingu, ekki einu sinni þeim, sem höfðu atvinnu af því að halda henni fram. Nú endurtekur sig sama sagan, nema hvað mannaskipti hafa átt sér stað. Framsóknarflokkn um er að sjálfsögðu ekki of gott að bjóða Reykvíkingum upp á Rannveigu Þorsteinsdótt ur. Hitt er hlægilegt, að til skuli vera í herbúðum þeirra svo blygðunarlausir skrumarar að halda því fram, að ungfrúin komist á þing. Slíkt er ókurt- eisi gagnvart Reykvíkingum og ónærgætni við Rannveigu Þor- steinsdóttur, sem kvað vera farin að trúa þessari endileysu. * Alþýðublaðinu kemúr það ekki á óvart, þó að fréttarit- stjóra Tímans sé í nöp við Al- þýðuflokkinn. Það er margt, sem til þess kemur, en ekkert af því er rakið í grein hans í gær, enda naumast við því að búast. En víst er það broslegt, að hann skuli hætta sér út á þanh hála ís að fordæma stefnu og störf Alþýðuflokksins síð- ast liðinn áratug, en bera !of á Framsóknarflokkinn, sem margir telja þó tvísýnt, að hann greiði atkvæði. Fréttaritstjórinn segir það satt, að stjórnarsamvinna Al- þýðuflokksins og Framsóknar- flokksins gaf góða raun, þó að árangur hennar yrði ekki sá, sem vonir stóðu til vegna óheil inda Framsóknarflokksins. Þá var efnt til ýmissa fram- kvæmda, sem ollu tímamótum í sögu þjóðarinnar og urðu grundvöllur nýrra og stærri framfara. Síldarverksmiðjurn- ar og hraðfrystihúsin, gömlu alþýðutryggingarnar og nýskip un landbúnaðarmálanna voru afrek samstjórnar þessara tveggja flokka, sem þó átti við mikla erfiðleika að stríða. En þessar framkvæmdir gátu að- eins verið byrjun og grundvöll- ur annars og meira. Og frétta- ritstjóra Tímans til nauðsyn- legrar pólitískrar leiðbeining- ar er ekki úr vegi að rifja upp, hvernig flokkarnir hvor um sig ræktu þá skyldu að halda á- fram því umbótastarfi, sem hafið var af þeim á þeim tíma, þegar Alþýðuflokkurinn naut velþóknunar Jóns Helgasonar. Þegar Alþýðuflokkurinn gerðist aðili að fyrrverandi rík isstjórn tryggði hann, að haf- izt yrði handa um stórfelldar verklegar framkvæmdir, sem yrðu áframhald af byrjuninni 1934—1937. Hann tryggði jafn- framt, að sett yrðu lög um al- mannatryggingar og opinber- um starfsmönnum veittar sjálf sagðar kjarabætur með nýji:m launalögum. En hvernig brást Framsóknarflokkurinn við þessari stefnu og þessu starfi Alþýðuflokksins? Hann barðist gegn aukningu og endurnýjun atvinnutækjanna, almanna- íryggingunum og launalögun- um af slíku offorsi, að andstaða -íhaldsins gegn framkvæmdum samstjórnar Aljþýðuflokksins og Framsóknarflokksins á ár- unum varð aðeins svipur hjá sjón við hliðina á þeim ósköp- um. Flokkurinn, sem færði þjóðinni gömlu alþýðutrygg- ingarnar ásamt Alþýðuflokkn- um á sínum tíma, léði ekki einu sinni máls á því að frum- varpið að almannatrygginga- lögunum hlyti þinglega af- greiðslu. Hann vildi láta vísa því frá og sýna þessu þjóðnauð synlega stórmáli þar með fá- heyrða óvirðingu. Svo hrópleg voru svik Framsóknarflokksins við fyrri stefnu hans, enda galt hann þeirra á eftirminnilegan hátt við síðustu alþingiskosn- ingar. Fréttaritstjóri Tímans, sem nú þykist dásama stefnu sam- stjórnar Alþýðuflokksins og Framsóknarflokksins 1934— 1937, lét ekki til sín heyra, þegar hann horfði upp á svik flokks síns við þessa stefnu. Hann réði þá yfir sérdálki í Tímanum eins og nú, en hann varði rúmi hans í níð og brigzl um Alþýðuflokkinn, þegar hann var að berjast fyrir fram gangi þeirra mála, sem frétta- ritstjórinn þykist nú hafa vel- sóknun á. Slíkur maður ætti að fara varlega í að ráðast á Al- þýðuflokkin, og reyna heldur að hreiðra um sig í einhverju skúmaskoti. Fjandskapur Framsóknar- flokksins við opinbera starfs- menn kom greinilegast í ljós, þegar hann barðist gegn launa- lögunum. Hann var síðan stað- festur í vor, þegar Framsóknar flokkurinn hamaðist gegn því, að opinberir starfsmenn fengju launauppbót, sem ekki varð á móti mælt, að þeir áttu kröfu- rétt á. En nú hugsar Fram- sóknarflokkurinn sér að blekkja opinbera starfsmenn til fylgis við sig með framboði Rannveigar Þorsteinsdóttur, sem hefur þótzt vera málsvari þessara aðila, en sýnir nú hug sinn til þeirra með því að ganga undir ok Framsóknarflokksins. Það er því áreiðanlegt, að Rannveig geldur Framsóknar- flokksins við þessar kosningar, en flokknum verður enginn á- vinningur að framboði hennar. Þannig er allt á sömu bókina lært hjá fréttaritstjóra Tím- ans. Hann er í þjónustu aftur- haldsflokks, sem er á fallanda fæti. Það er því vægast sagt hlægilegt, þegar hann er að Ný farþegaafgreiðsla Flugfélags ísiands. — Nýtt verðlag á Keflavíkurflugvelli. — Hvert fara pen- ingar Reykvikinga? — Að fleka saklausar stúlkur. FLUGFÉLAG ÍSLANDS hef- ur nú flutt farþegaafgreiffslu sína í ný húsakynni á flugvell- inum og er inngangur í af- greiffsluna frá Njarffargötu, rétt fyrir sunnan Tivoli. — Eitt sinn í sumar kvartaffi ég undan því, aff erfitt væri aff rata Ieiffina til Flugfélagsins á flugvellinum, ef maffur færi flugvallarveginn hjá Pólunum, enda höfffu margir hvatt mig til þess aff minnast á þaff. Ástæffan var sú, aff leiffin var mjög illa merkt, en hins vegar alls ekki hættulaust að aka um völlinn, nema maffur vissi nákvæmlega um leiffina. NÚ EB úr þessu bætt. Félagið hefur tekið í notkun nýtt og miklu betra húsnæði.. Það hefur gefið til kynna, að aðalinngang- urinn sé frá Njarðargötu, rétt fyrir sunnan Tivoli, en af Njarðargötunni í farþegaaf- um, er hann forðum fylgdi og hefur tekið upp á stefnuskrá sína allsherjar niðurfærslu eða gengislækkun til að svipta al- þýðuna margra ára kjarabótum. En af því má ráða, að annað hvort metur fréttaritstjóri Tím ans hinar fornu dyggðir flokks síns lítils eða hann skortir dómgreind til að glöggva sig á ólánsferli Framsóknar. Slík- ur maður er þess sannarlega burðast við að bera þær sakir J ekki umkominn að gagnrýna á Alþýðuflokkinn, að hann aðra, er halda á lofti því hafi horfið frá fyrri stefnu, en merki, sem Framsóknarflokk- reynir að tala máli Framsókn-1 urinn forðum vildi fylgja, en arflokksins, sem nú berst: hljópst brott frá yfir í herbúð- gegn öllum þeim framfaramál- ir afturhaldsins. Þá missir hann hálsinn ... ÁRNI: Kommarnir segja í Þjóðviljanum, að þeir hafi konu í fylkingarbrjósti, þótt Katrín sé í fimmta sæti á lista þeirra. BJARNI: Já, ég hélt í fyrstu, að hér væru þeir bara að snúa öllu við, af gömlum vana, eins og þeirra er siður. En svo sá ég, að þeir munu ætla að ganga inn á alþingi eins og seiðskrattar, öfugir og aftur á bak. ÁRNI: Já, og þá yrði Katrín, mannúðarkonan, fremst af þessum fimm, sem þeir þykj- ast ætla að koma að Það myndi vera sahnkölluð breið fylking, en á því orði eru kommar sífellt að stagast. BJARNI: Nafnið er ekki illa til fallið, en því kallarðu Katrínu mannúðarkonu? ÁRNI: Það er ekki ég, sem kalla hána það, heldur Þóra Tkvennasíðuritstjóri, sem mér er sagt að sé í Gromyko-sell- unni. En hvað hinu viðvíkur, þá væru þeir vísir til þess að ganga aftur á bak inn í al- þingi — það minnir á þegar Brynjólfur sneri við mynd- inni af Jóni Sigurðssyni. BJARNI: Það var nú víst ekki Brynjólfur, heldur hann Ás- mundur, sem vann þetta af- rek til heiðurs Austur-Skaft- fellingum, en auðvitað með Brynjólfs leyfi. Því Brynjólf- ur vill sjálfur stjórna öllum svívirðingum — þykist bezt fær um það sjálfur, og er það líklegast satt. ÁRNI: Nú, já, já, hann hefur þá ærið að starfa, greyið. — En nú. er Finnbogi Rútur kominn til kommanna. BJARNI Jú, jú, svo er nú það. En er það ekki einkennilegt um Þjóðviljann, að ekki eru menn fyrr gengnir honum á hönd, en þeir fara að segja ósatt. Eins og nú Rútur Finn- bogi, þegar hann segir þar, að hann verði óháður komm- únistaflokknum, ef hann komist á þing. Hefði hann sagt: Ég verð ekki háðari kommúnistum þótt égkomist á þing, hefði hann farið nær sannleikanum. En allt sitt pólitíska líf á hann undir þeim. Hvenær sem hann hættir samstarfi við þá, miss- ir hann hálsinn. ÁRNI: Þú átt þó ekki við, að þeir taki hann af lífi? BJARNI: Það væri þá pólitísku . lífi; en það sem ég sagði, var það, að hann missti hálsinn, það er Digraneshálsinn og oddvitastöðuna. Annars get ég sagt þér þær fréttir, að Rútur sagði sig úr Alþýðu- flokknum í gær, verður utan flokka í dag og á morgun, en gengur í kommúnistaflokk- inn hinn daginn. ÁRNI: Þú tókst eftir að Rútur segist eiga erindi á þing. Hann segist ætla að útrýma spillingunni, er sé kringum núverandi stjórn, því hann vill ekki að fjármálaspilling- in breiðist út á Digranes- hálsi, — ekki fá hana á háls- inn, eins og þéir segja, sem óvandað mál tala. BJARNI: Jæja, þetta ætlar hann sér. En hvað skyldi hann ætla sér, ef hann kemst ekki á þing, sem ekki verður. En komist hann á þing, þá óska ég kommúnistum hjart- anlega til hamingju með hann! greiðsluna er mjög stuttur spöl- ur og enginn vandi að rata. Er þetta mikil bót frá því, sem áð- ur var. Á KEFLAVÍKUBFLUG- VELLI hefur mönnum og fund- izt erfitt að rata, enda hefur varla verið þorandi að aka þar fyrir ókunnuga, því að leiðar- merki á hinum löngu og mörgu brautum vallarins til afgreiðsl- unnar hafa ekki verið glögg. Má þó vera að nú sé búið að lag- færa þetta. En ég hef átt bágt með að skilja það, hvers vegna ekki hafa verið greinileg leiðar- merki á flugvöllunum. GENGISBREYTINGIN hefur haft þ^g í för með sér, að mjög hefur allt verðlag á Keflavíkur- flugvelli hækkað. Miðdegis- verður í hótelinu hefur til dæm- is hækkað úr kr. 11,55 upp í kr. 17,00. Þá hefur verðlag á gist- tngu yfir nóttina hækkað veru- lega og mun nú kosta hvorki meira né minna en 65 krónur að gista þar eina nótt. Þsgar þetta er ritað er ekki vitað með vissu hvort eða um hvað mikið far- gjöld með amerískum farþega- flugvélum hækka, en gert er þó ráð fyrr að þau hækki nokkuð. ÉG GEKK niður Bankastræti t gær með kunningja mínum. Hann benti mér á framkvæmd- irnar í Lækjargötu og sagði: „Þetta er mikið nauðsynjaverk, en dýrt er það. Allir, sem hér fara um, geta sannfærzt um það í hvað fé þeirra fer. Nú eru sundurtætt verk, sem unnin hafa verið undanfarin ár. Þú sérð að hitaveituleiðslan er lögð í miðja götuna — og allt er eft- ir þessu. Að sjálfsögðu er ekki hægt að hafa þetta öðruvísi, en það er blóðugt að horfa upp á þetta samt sem áður. ÞETTA EB hin hraksmánar- legasta óráðsía, og öll stafar hún af því sleifarlagi, sem ríkt hef- ur í skipulagsmálum bæjarins um langan aldur. Ekkert skipu- lag hefur verið til. Meirihlutinn hefur verið svo sofandi á verð- inum, að hann hefur ekki einu sinni hugsað fyrir því, hvernig byggja ætti borgina. Það er nú búið að kosta okkur milljónir króna — og á eftir að kosta Reykvíkinga enn fleiri milljón- ir. TÍMINN er eitthvað smáveg- is að setja út á það, sem ég hef verið að segja út af framboði flokksins hér í Reykjavík. En mér er dálítið sárt um Rann- veigu, þetta var og er bezta stelpa. Og ég vil ekki að óvand- aðir braskarar séu að bl-ekkja hana. Broddarnir í flokknum eru að reyna að telja henni trú um að hún muni ekki gjalda flokksins við kosningarnar, heldur fá atkvæði manna, sem hvorki vilja sjá Hermann né heyra, en þetta er hin hrapal- legasta blekking. VIÐ SÍÐUSTU kosningar hér í Reykjavík fékk Framsóknar- flokkurinn 1436 atkvæði, en til þess að koma manni að þurfti (Frh. á 7. síðu.) J

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.