Alþýðublaðið - 11.11.1949, Page 6

Alþýðublaðið - 11.11.1949, Page 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ Föstudagur 11. nóvembev 1949. NÓTT ÐAGSINS (Opus nr. 00). í logni stormsLns galar þögnin á öðrum íæti út í firrSl nálægðarinnar en kolsvartar stjörnur lýsa slompuðum deginum inn í upphækkað hyldýpi hesthússstallsins og stálkrómuð ský eagtenntrar sorgar í endurbættri útgáfu dansa á pólitískum hjólaskautum meðan léttúðin steglir í sig harðfisk kvöldroðans Leifur Leirs (poet. absolutiumas). Vöðvan Ó. Sigurs: ÍÞRÓTTABÁLKUR. Það er fryst og fremst Reykja víkursýningin og íþróttimar. Hreinasta skömmi Bravo, bravo, bravo; þarna er verið að ’sýna hitt og þetta gamalt og nýtt rusl, — en ekki er sýndur þar einn einasti íþróttamaður í keppni. Ég bara spyr — hvað hefur rétt Reykvíkinga úr kútn um, — og öll íþróttafélagahapp- drættin munu svara fullum kassa: íþróttirnar! Auðvitað í- þróttimar! Nei, það er svo margt og mik ið, sem vantar á að íþróttahreyf ingunni séu gerð makleg skil á þessarri sýningu, að: það gegnir hreinustu furðu og verður ao skoðast sem viljandi eða óvilj- andi naglaskapur í vorn garð. Þarna er til dæmis engin við- unandi statistík, sem sýni hvar Reykvíkingar standa samkvæmt finnsku stigatöflunni og saman borið víð aðrar höfuðborgir heimsins eftir mannfjölda, og með tilliti til þess, að við erum íslendingar. Ekki heldur nein statistík yfir alla sigrana, sem við höfum unnið á erlendum vettvöngum, áður en við k-eppt- þar með taldir allir slikir knatt spyrnusigTar. Ekki heldur Statistik um það, hvað mörgum útlendingum við höfum, með þátttökum okkar í íþróttakeppn um á erlendum leikvöngum, snúið frá þeirri einu og háska- legu villutrú, að hér byggju Eskimóar! Og ekki nóg með það! Þarna vantar gersamlega nokkra út- stoppaða íþróttamenn í keppni. Til dæmis útstoppaða íþrótta- menn í hástökki; það mætti sem bezt láta hann hanga í böndum úr loftinu og láta hann stökkva 2.35 m. og setja heimsmct. Húrra, húrra, húrra! Það er gam an að vera uppstoppaður íþrótta maður, strákar! Og svo mætti standa stóru letri á veggnum, að Reykvíkíngar væru fyrsta og eina þjóðín, sem synti Viðeyjar sund! Og auk þess ættu svo að vera þarna á hverju kvöldi leik fimissýningar karla og kvenna, glímur, naglaboðhlaup og kassa boðhlaup auk pokahlaups, strætisvagnahlaups og Hærings hlaups. íþróttamenn: Bæði dauðir og AtPHOMSEDAUDET S A P P ringulreið þess dásamlega lífs, sem vekur öfund ungra manna og drauma kvennanna draum- iyndu. Hvað gekk að þeim öll- um saman? Hvaða drykk bar hún þeim? Hann reyndi hinar hræðilegu kvalir bundins og hjálparvana manns, sem sæi þá konu, er hann elskar, svívirta fyrir augum sér. Og samt gat hann ekki tekið ákvörðun um að tæma kassann í skyndi með lokuðum augum. Nú var komið að hinum blá- fátæka og óþekkta leturgraf- ara, sem hafði ekki annarri og lifandi! Ég heiti á ykkur að , frægð fyrir að fara en þeirri, hefja raunliæfar hefndarráð- er Dómblöðin veittu honum. stafanir, við næstu kosningar, n-ema þessu verði þegar kippt í lag! Með íþróttakveðjum. Vöðvan Ó. Siguvs. P.S. Við höfum einnig berið beðn- ir að birta þá athugasemd frá sýningargesti, að í statistík þá, sem birt er um starfsemi Ríkis útvarpsins, vanti í prósentu- reikninginn þann tíma, sem far ið h-efur af útvarpstímanum í ,,truflanir“, ,afsakið þetta hlé sem stafaði af smávegis bilun“ og „helgahjörvar". •• Onnumst kaup og og allskonar samningagerð- ir. SALA og SAMNDíGAR Aðalstraeti 18. Sími 6916. Kaupum fíöskur og glös. Efnagerðin Valur. SÆKJUM HEIM. Hverfisgötu 61. Sími 620-5. Kaypum fuskur Baldursgötu 30. Bústað sinn í þessu helgiskríni átti hann eingöngu að þakka hinni miklu ást, sem hún var til hans. Bréfin frá Mazas voru mjög niðurlægjandi, heimsku- leg, klaufaleg og full við- kvæmni, líkt og bréf hermanns til unnustu sinnar í sveitinni. En á bak við viðkvæmniha og hin hversdagslegu orð varð maður var við alvöruhreim í ástríðu hans. Þar gat að líta virðingu fyrir konunni og sjálfsgleymsku, sem greindi hann frá hinum. Það lýsti sér í því, þegar hann bað Fanny til dæmis fyrirgefningar á því, að hann hefði drýgt þann.glæp að elska hana of heitt. Einnig kom slíkt í ljós, er hann stóð í biðherbergi réttarsalsins að dómi sínum loknum og sagði ástmey sinni frá fögnuði sínum vegna þess, að hann vissi, að hún hafði verið sýknuð og var frjáls. Hann kvartaði ekki und- j an neinu. Hann átti það henni að þakka, að hann hafði lifað tvö ár í slíkri fullkominni, himneskri hamingju, að minn- ingin mn hana nægði til þess að fylla líf hans fögnuði — að bæta hið hryllilega hlutskipti hans Og hann lauk með því að biðja hana bónar......... „Þú veizt, að ég á barn uppi í sveit. Móðir þess dó fyrir löngu. Drengurinn býr hjá gamalli frænku sinni á svo af- skekktum stað, að þar mun i fólk aldrei heyra um vandræð- in, sem ég hef ratað í. Ég hef sent þeim þá peninga, sem ég átti eftir. Ég sagðist vera að fara í langa ferð. Nú treysti ég þér, elsku Nini mín, til þess að spyrjast fyrir um vesalings litla snáðann öðru hverju og láta mig vita um hann“. Áhugi Fanny lýsti ser í öðru bréfi, sem var fremur nýtt, varla sex mánaða gamalt: ,,Ó, hversu góð þú varst að koma! Hve fögur þú ert! Hve ilmur inn af þér var sætur við hlið fangajakkans míns! Ilmurinn kom mér til að skammast mín svo mikið . . . . “ að hitta hann?“ spurði Jean grimmdarlega og hætti lestrin- um. „Með löngu millibili. Það er bara sem góðverk í augum mínum.“ „Jafnvel síðan við höfum byrjað að vera saman?“ „Já, einu sinni — aðeins einu sinni — í heimsóknarstof- unni í fangelsinu. Enginn get- ur hitt þá á nokkrum öðrum stað.“ „Já, þú ert góð stúlka!“ Hugsunin um, að hún hefði heimsótt þennan peningafals- ara, þrátt fyrir samband sitt við hann sjálfan, gerði honum enn gramara í geði en allt hitt. Hann var of stoltur til þess að nefna það. En síðasti bréfabunkinn, sem bundinn var saman með bláu bandi, leysti alla reiði hans úr læðingi. Bréf þessi voru skrifuð með fíngerðri, hallandi skrift. Þáð var rithönd konu. „Ég skipti um búning eftir vagnasýninguna. Komdu i bún- ingsherbergið mitt.“ „Nei, nei — léstu þetta ekki.“ Hún fleygði sér á hann, greip allan búnkann og kastaði honum á eldinn. Hann skildi heldur ekki í fyrstu, hvernig í öllu lá; jafnvel ekki er hann sá hana krjúpa við kné honum og leit andlit hennar, rjótt af endurskini eldsins og játning- unni, sem hún skammaðist sín fyrir. „Ég var ung. Það var Caou- dal, heimskinginn sá. Ég gerði það, sem hann vildi.“ Þá fyrst skildi hann, og hann náfölnaði sem dáuðinn. „Ójá— Shappó — öll harp- an!“ Hann ýtti henni i burt með fæti sínum líkt og óhreinu dýri og bætti við: „Farðu frá mér! Sner-tu mig ékki! Þú veldur mér ógleði!“ Óp hennar drukknaði í hroða légu þrumuhljóði, sem varð mjög langt og virtist mjög ná- lægt, en í sama augnabliki lýsti bjartur glampi upp herbergið. Eldur! Hún spratt dauðhrædd á fætur, greip ósjálfrátt vatns- könnuna, sem stóð á borðinu, og tæmdi úr henni á bréfahrúg una, sem hafði kveikt í sóti vetrarins. Síðan tæmdi hún úr blómakönnunni og öðrum vatnskönnum. Svo sá hún, að hún gat ekkert gert og logarn- ir voru teknir að teygjast út í herbergið. Þá hljóp hún út á svalir og æpti: „Eldur! Eldur!“ Herra og frú Hettéma komu fyrst á vettvang, síðan hús- vörðurinn og lögreglan. „Látið eldspjaldið niður,“ öskruðu þau. „Earið upp á þak- „Þú hefur þá haldið hitam iö’ Fatn! Vatn! Nei, ábreiðu!“ Þau störðu skelfd á útataða heimilið sitt, sem hafði orðið fyrir þessari innrás. Elskend- urnir stóðu þarna einir og yfir- gefnir, er uppnáminu var lokið og eldurinn slökktur, — þegar svört mannþyrpingin undir gasljósinu niðri á strætinu hafði dreyfzt og nágrannar þeirra höfðu snúið aftur á- hyggjulausir til íbúðar sinnar. Þau stóðu þarna mitt í þessari ringulreið, innan um vatn, sótklessur, gegnvot húsgögn, sem lágu á hliðinni hingað og þangað. Þau voru döpur í hjarta og huglaus. Þau skorti afl til að endurnýja deilur sín- ar eða laga til í herberginu. Eitthvað ógnandi og niðurlæg'j andi hafði hafið inmæið sína í líf þeirra. Og þau gleymdu sinni fornu óbeit og sváfu nótt þessa í leiguhúsinu. Fórn Fanny hlaut þau örlög að verða til einskis. Elskhuginn kunni heila kafla úr þessum brenndu, horfnu bréfum utan að. Og þessir kaflar lögðu minni hans í einelti, spruttu fram í kinnar hans í blóðöld- um, líkt og vissir kaflar í sorp- ritum. Og þessir fyrrverandi elskhugar ástmeyjar hans voru næstum allir frægir menn. Hinir dauðu héldu lífi. Myndir og nöfn hinna lifandi sáust alls staðar.. Fólk talaði um þá í ná- vist hans, og í.hvert sinn fann hann til þjakandi óþæginda, líkt: og fjölskylduband væri slitið á kvalafullan hátt. Þar eð vandræði hans skerptu vit hans og augu, tók hann brátt að sjá hjá Fanny merki fyrri áhrifa úr lífi henn- ar„ Hann kom auga á þau orða- tiltæki, þær hugmyndir og venjur, sem hún hafði tileink- að sér og haldið við. Hann kannaðist við þann kæk henn- ar að rétta. út þumalfingurinn, líkt og hún væri að mynda og móta hlut þann, sem hún talaði um. Svo sagði hún um leið: „Þú getur séð það héðan“ Þessi kækur var frá myndhöggvar- anum. Hjá Dejoie hafði hún tekið að láni æði sitt í löng orð, einnig vinsælu vísurnar, sem hann hafði gefið út í safni, sem var frægt í hverjum krók og kima Frakklands, og einnig stranga dóma sína um nýtízku bókmenntir. Hún hafði tileinkað sér þetta allt og samlagazt því öllu. Hún hafði hrúgað hverri mótsögn- inni ofan á aðra með hinni undraverðu lagmyndun, sem gerir það mögulfegt að segja með vissu um aldur og bylt- ingar jarSarinnar á hinum mis- munandi jarðfræðilfegu tíma- bilum. Ef til vill var hún ekki jafn gáfuð og honum hafði fyrst fundizt hún vera. En gáf-

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.