Alþýðublaðið - 13.11.1949, Side 5

Alþýðublaðið - 13.11.1949, Side 5
Sunnudagur 13. rióv. 1949. 4* ^ÝÐtJBLAfHÐ Sæmundur Olafsson; á Reykjavíkursýninguna MEÐ ÞVÍ að skoða Reykja- víkursýninguna er hægt að gera sér grein fyrir því, hvern- ig bærinn hefur þróazt á nokkr um áratugum úr litlum, fátæk- um fiskimannabæ í þá auðugu ,,stórborg“, sem Reykjavík er í dag. Sýningin er að vísu stór- gölluð sem þróunarsaga, og verður því sýningargesturinn ( að nota þekkingu sína og hug- myndaflug í stað þeirra hlekkja, sem vantar til þess, að sagan sé samfelld. ! Síðast liðinn sunnudag eyddi ég nokkrum tíma á sýningunni mér til mikillar ánægju. En því ber ekki að leyna, að þeg- ar ég yfirgaf hið myndarlega stórhýsi, sem sýninguna geym- ir, varð mér nokkuð gramt í geði vegna þeirra mistaka, sem I ég tel að orðið hafi á undirbún- ingi sýningarinnar. Sýningar- nefndin hefur að minni hyggju gersamlega vanrækt að draga1 fram í dagsljósið þann hluta' menningarstarfsins á undan- j förnum árurn, sem hefur verið ' aflgjafi og undirstaða allrar j frsmþróunar í Reykjavíkurbæ. Félagsmálastarfinu í bænum hefur lítið rúm verið ætlað á sýningunni, og sýningarnefnd- in heiur gert sér hægt um vik og látið, eins og engin verka- lýðshreyfing hafi starfað i þessum bæ. Drög að iðnaðarsögu eru sýnd með því að birta myndir af vinnuaðferðum fyrr og nú, og ýmis iðnfyrirtæki sýna framleiðslu sína, sem er mjög ánægjulegt, því framleiðslan stenzt fyllilega kröfur tímans. En ánægjulegt hefði einnig verið, að fá greinargóða lýs- ingu á afkomu og högum iðn- aðarverkafólksins nú og þeirra sem t. d. bökuðu brauð og saumuðu föt fyrir 40 árum. Og margan hefði eflaust fýst að sjá á skilríkan hátt, hvernig þróun þessa fólks hefur verið. Höfn og stórhýsi hafa verið hyggð, götur lagðar, jörðin erjuð, stóriðnaður reistur, fiskiveiðar auknar 'og efldar, siglingar um öll heimsins höf teknar upp, bifreiðar þjóta um landið þvert og endilangt og ioftið kljúfa gljáandi drekar. Alls þessa er minnzt á sýning- unni, en mannanna, sem hafa með þrautseigju og mannviti þroskað sig úr því að vera frumstæðir kotungar upp í kunnáttumenn á heimsmæli- kvaröa, er þar ekki getið. Saga reykvískra bifreiðastjóra, vél- stjóra, vélsmiða, húsasmiða, verkakvenna, verkamanna, sjó- manna og allra þessara snill- inga, sem allt hafa skapað í bænum og við halda, er að engu getið, ef þeir hafa ekki komizt upp á það krambúðar- loftið, að verða ,,stjórar“ af einhverri ,,gráðu“. Sömu örlög fær frelsisþrá og félagshneigð þessa sama fólks. Verkalýðs- hreyfing hefur hér engin starf- að, ef taka á sýninguna sem fullgilda heimild fyrir athöfn- um Reykvíkinga á liðnum ár- «m. Ágæt mynd er að vísu af stofnendum Öldunnar, og er hún til mikillar prýði. Þeirra merkismanna verður aldrei of oft getið. En þessi mynd er líka það eina, sem ég sá og minnti á félagstarfsemi í*bænum, aðra en íþróttahreyfinguna. Vel hefði að mínu viti sómt sér að hafa sérstaka deild fyrir félagstarfsemina; þar hefði að sjálfsögðu verkalýðshreyfingin skipað öndvegi. Mynd sá ég af Jóni Baldvinsyni í hópi stór- burgeisa. Hann sómdi sér að vísu vel, blessa,ður karlinn, en kærara hefði mér verið, að sjá ! prentarann frá Bessastöðum í hópi sinna manna, sem hann lifði m eð og barðist fyrir. í þessum bæ hefur Alþýðu- samband íslands starfað síðan 1916. Hvergi er þess minnzt. Verkamannafélagið Dagsbrún og Sjómannafélag Reykjavík- ur, að ógleymdu Hinu íslenzka prentarafélagi, hafa starfað í bænum í marga áratugi. Sýn- ingarnefndin hefur hvorki haft hjartarúm né húsrúm fyrir þessi eða önnur verkalýðsfélög. Sjávarútvegsdeildin er skemmtileg og gefur góða hug- mynd um þróunina. Þegar komið er inn úr dyrum deild- arinnar, leggur að vitum manns ramman þef af gömlum þara, hertum íiski, veiðarfær- um og vergögnum. Það eru dásamlegar móttökur. Maður fyllir skynfæri sín af þessum gömlu kunningjum, verður gleiðstígur og háleitur, gléym- ir umhverfinu og fer að hugsa um, hvort róið verði á morgun, og svo gáir maður til veðurs, en í stað bliku í útsuðrinu eða rokkúfs á Skarðsheiðinni sér maður gamla kunningja í rjáfr- inu, máfinn og krumma, hina eilífu fylgifiska og kunningja vermannanna. Myndir Egg- erts Guðmundsonar: vermenn, beitifjara, kræklingskurður og þangskurður, eru ágætar. Þá er Ijósmynd af blóðgun á tog- ara, mjög góð mynd. Hún er glögg mynd af hinni erfiðu og óþrifalegu vinnu togaramann- anna, en sérstaklega skemmti- leg er þessi mynd vegna þess, að vinnugleði, atorka og lífs- hamingja sindrar af hverju andliti sjómannanna, en þann- ig vinna þeir velflestir. Skips- líkönin eru skemmtileg; en gaman hefði verið að birta mynd af skipshöfnum nýsköp- unartogaranna, sem þarna eru sýnd líkön af, Þá er sýndur uppdráttur af landinu og höf- unum í kringum það, og nokk- ur helztu fiskimiðin kringum landið auðkennd sérstaklega. En nokkuð er það fljótfærnis- lega gert, því engin Breiða- fjarðarmið eru sýnd og ekkert Vestfjarðamið annað en Hal- inn, og Norðurlandsmiðin vant- ar öll, nema Hornbankann og Skagagrunnið. Mörg önnur merk fiskimið eru ekki sýnd sérstaklega. Togarar að veið- um eru ekki góðar myndir, því botnvörpurnar. sem þeir draga. eru mjög fjarri því að vera líkar réttum botnvörpum; en ágæt eftirlíking af botn- vörpu hangir á sýningunni. Klefi sjómannadagsins og Slysavarnafélagsins eru til prýði, einnig myndir þær frá sjómannadeginum, sem sýndar eru. Við inngangsdyrnar í sýn- ingarklefann sér maður sjó- manninn, fátæklegan breiga, sem berst með frumstæðum ’farkosti og áhöldum við hafið og hafnleysið á ströndinni. Við útgöngudyrnar hefði átt að yera mynd af hinum stolta, vel efnaða og vel búna reykvíska sjómanni, sem-lagt hefur undir sig alla tækni nútímans og ber höfuð og herðar í aflaafköstum yfir alla starfsbræður sína um víða veröld. Garaan þótti mér að koma í Saurbæjareldhúsið gamla, og mér sýndist gömlu pottarnir frá Vorsabæ brosa til mín eins og gamlir kuningjar. Þangað þurfa ungu stúlkurnar og hús- mæðurnar að koma, þar geta þær kynnzt vinnuskilyrðum amma sinna og jafnvel mæðra. Þá var ekki amalegt að koma í gömlu búðina og sjá, en ekki fá bjór fyrir 12 aura og ágætis koníak fyrir kr. 2,50. ,,Kirkjan er vor mikla móð- ir“ er einkunnarorð fyrir deild kirkjunnar. En var það vegna þess, að mér fannst vinnunni, hinum skapandi mætti, ekki vera gerð nógu góð skil á sýn- ingunni, að mér duttu þesi orð í hug: „Vinnan er vor mikla móðir“? Ég bið séra Bjarna og alla hina prestana fyrirgefn- ingar á þessum syndsamlegu hugleiðingum. Og svo var það hann Óskar Clausen með verzlunarbókina úr Ólafsvík, þar sem stendur svart á hvítu, að garnall Ólsari, sem lifir enn þá, tók á sínum duggarabandsárum úr verzlun- inni kol, sem kostuðu 4 aura kílóið, og kaffi, óbrent og ómal- að, sem kostaði kr. 2,40, en þetta var ekki það merkilega við þesa bók, heldur hitt, hve Aðalfundur Skipstjóra- og síýrimannaféiagsins Kári, Hafnarfirði, . verður haldinn föstudaginn 18. nóvember kl. 8,30 síðdegis í Hafnarskrifstofunni. DAGSKRÁ: 1. Aðalfundarstörf 2. Mörg önnur mál. Félagar, mætið stundvíslega. STJÓRNIN. Lokaaðalfundur NÁTTÚRULÆKNINGAFÉLAGS ÍSLANDS verður haldinn í Félagsheimili verzlunarmanna, Vonarstræti 4 (uppi) þriðjudaginn 15. nóvember klukkan 20,30. FUNDAREFNI: 1. Skýrt frá stofnun Bandalags náttúrulækninga- félaga. 2. Lagabreytingar. 3. Kosningar. 4. Dvöl hjá dr. Nolfi (frú Unnur Skúladóttir). STJORNIN. hún er meistaralega vel skrif-. uð. „Svona eigið þið að skrifa, strákar," sagði Óskar og sótti orðin nokkuð djúpt niður í hálsinn, er hann ræddi við nokkra kotroskna skólastráka, sem gjarnan vildu hnýsast í hina miklu bók. Sýning skátanna finnst mér ágæt. Hún er einföld en hríf- andi. Tjald'á grænni flöt, hlóð- ir og há fjöll í baksýn. Einfalt líf, en stórbrotið. Þannig er líf skátanna og heilbrigðrar æsku. — Slæmt að vera ekki strákur og geta orðið skáti! Sæmundur Olafsson. Aðalfundur Vals Á AÐALFUNDI VALS, sem haldinn var í fyrradag, var skýrt frá því, að félagið hefði í hyggju að senda knattspyrnu- flokk utan til keppni næsta sumar, og hefur helzt verið rætt um Noreg. Enn fremur stendur félagið í samningum við danskt knattspyrnulið um að koma hingað, en engin fulln aðarákvörðun hefur verið tek- in um það, hvort liðið kemur. Stjórn Vals skipa nú; Úlfar Þórðarson læknir, for- maður, Jón Þórarinsson, Sig- urður Ólafsson, Baldur Stein- grímsson, Geir Guðmundsson, Þórður Þorkelsson og Sveinn Helgason. BÆKUR AFBORGUN íslendinga sögur, 13 bindi. Byskupa sögur, 3 bfndi. Sfurlunga saga, 3 bindi. Ánnálar og Nafnaskrá, 1 bindi Riddarasögur, 3 bindi. ALLAR þessar bækur getið þér eignast gegn 100 krónu mánaðargreiðslum. Hringið, skrifið eða komið í skrifstofu útgáfunnar, Túngötu 7. íslendingasagnaútgáfan h.f. Túngötu 7. — Pósthólf 73. — Sími 7508. — Reykjavík. ÞAR sem 'ég hef orðið þess var, að aðstandendum Þjóð- viljans nægir ekki að birta ó- sannindi sín um aðalfund Fé- lags ungra jafnaðarmanna s. 1. sunnudag og formannskosn- ingu þar tvisvar sinnum, held- ur eru nú ýmsir þeirra aS gera sér mat úr lygum blaðs- ins með rógi um F. U. J. og forustumenn Alþýðuflokksins, ,vil ég taka fram eftirfarandi: Frásögn Alþýðublaðsins af fundinum er í alla staði rétt, og þá jafnframt það, að ég baðst eindregið undan endur- kösningu. Skrif Þjóðviljans um, fundinn og að mér hafi á einn eða annan hátt verið bolað úr formannssæti, eru ósannincli ein. Að Öðru leyti stingur frá- sögn blaðsins um mig persónu- lega mjög í stúf við það, sem áður hefur verið um mig skrif- að í þessu ,,háttvirta“ blaði. En slík heljarstökk Þjóðviljans um menn og málefni eru eng- in nýmæli. Eggert G. Þorsteinsson. Einn af hverjum þremur farþegum ! LoftleiSa fór með i millilandavélum EINN af hverjum þremur farþegum með flugvélum Loft- leiða h.f. á þessu ári, hefur flogið með millilandaflugvél- unum Heklu og Geysi. Aiís hafa vélar félagsins flutt 16 059 farþega á fyrstu 9 mánuðum ársins, þar af 5525 milli landa en 10 534 innan lands. Á sama tíma nam annar flutningur, farangur, póstur og fleira 317 smálestum.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.