Alþýðublaðið - 08.01.1950, Side 3
Suniuxdagur 8. janúar 1950.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FRÁMORGNITILKVOLÐS
í DAG er sunnudagurinn 8.
Janúar. .Fæddur .Arngrímur
Gíslason málari árið 1829. Lát-
tnn Galilco Galilei árið 1642.
Sólarupprás er kl. 10,11. Sól-
arlag verður kl. 14,59. Árdegis-
háflæður er kl. 8,10. Síðdegis-
háflæður er kl. 20,30. Sól er
hæst á lofti í Reykjavík kl.
12,34.
Næturvarzla: Lyfjabúðin Ið-
unn, sími 1911.
Næturakstur: Bifreiðastöð
Hrsyfils, sími 6633.
Helgidagslæknir: Kristján
Þorvarðsson, Skúlagötu 54,
sími 4341.
Flugferðir
AOA: í Keflavík kl. 10,55 til
11,40 í fyrramálið frá New
York, Boston og Gander til
Óslóar, Stokkhólms og Hels-
infors.
Skipafréttir
Brúarfoss kom til La-Rochelle
I Frakklandi 5.1. fór þaðan 6.1.
til Baulogne. Dettifoss kom til
Reykjavíkur 1.1. frá Hull. Fjall
Eoss kom til Kaupmannahafn-
ar 5.1., fer þaðan 9.1. til Gauta
faorgar og' Leith. Goðafoss kom
til Rotterdam 7.1. fer þaðan
9.1. til Hull. Lagarfoss er i
ZCaupmannahöfn. Selfoss fer
Erá Reykjavík kl. 2000 í kvöld
7.1. vestur og norður. Trölla-
Coss fór-frá Siglufirði 31.12. til
New York. Vatnajökull fer frá
Vestmannaeyjum 2.1. til Pól-
iands. Katla fór frá New York
30.12., væntanleg til Reykjavík-
Ur.
Hekla er í Reykjavík og' fer
þaðan fimmtudaginn 12. þ. m.
austur um land til Siglufjarðar.
Esja er í Reykjavík og fer það-
an á morgun vestur um land til
Akureyrar. Herðubreið er vænt
anlegt til Hornafjarðar um há-
degi í dag á leið til I’áskrúðs-
fjarðar. Skjaldbreið er væntan-
leg til Reykjavíkur seint í
kvöld eða nótt að vestan og norð
an. Þyrill er væntanlegur til
Reykjavíkur á morgun frá Pól-
landi. ‘ ri •: *
Brúðkaup
Ungfrú Líney Sigurjónsdóttir
og Matthías Matthíasson raf-
virki voru gefin saman í hjóna-
band í Hallgrímskirkju í gær.
Séra Sigurjón Árnason gaf sam-
Úfvarpsskák,
1. borð: Hvítt: Reykjavík, Jón
Guðmundsson og Konráð Árna-
son. — Svart: Akureyri: Jón
Þorsteinsson og Jóhann
Snorrason.
b c
fm, A. mm
m m mnm
WwM. v/,óí».W-M. o w=3',.
22. Hcl—fl
23. Bd2—e3
24. Rf3—g5f
.25 Be3 x g5
26. Bg5—d2
27. Rc4 x e5
28. Re5xf7
29. He4—e5
Da7—c5
Dc5—b5
Be7XRg5
Hd8—h8
Rc6 x e5
Hd7 x d2
Hh8—f8
Væri ekki nær að byggja ráðhúsii
í Grjófaþorpinu. þar sem bær Ing-
ólfs og innréftingar Skúla sfóðu \
an.
Söfn og sýningar
ÞjóðminjasafniS: Opið kl. 13
•—15.
Náttúrugripasafnið: Opið kl.
13.30—15.00.
Safn Einars Jónssonar: Öpið
kl. 13,30—15,30.
Skemmtanir
KVIKMYNDAHÚS:
Austurbæjarbíó (sími 1384):
„Mýrarkotsstelpan“ (sænsk).
Margareta Fahlén, Alf Kjellin.
Sýnd kl. 7 og 9. „Litla stúlkan
í Alaska“ (amerísk). Sýnd kl. 3
og 5.
Gamla bíó (sími 1475): -—
,,Koná biskupsins“ (amerísk).
David Niven. Sýnd kl. 9. —
„Þrumufjallið." Sýnd kl. 5 og 7.
„Ævintýraeimar.“ Sýnd kl. 3.
Hafnarbíó (sími 6444): —
,,Ellkrossinn“ (amerísk). Hank
Daniels, Virgina Patton. Sýnd
kl. 5, 7 og 9. „Sámyndasafn.“
Sýnt kl. 3.
Nýja bíó (sími 1544): —
„Fjárbændurnir í Fagradal“
(amerísk). Lon McCallister,
Peggy Ann Carner, Edmund
Gwenn. Sýnd kl. 7 og 9. „Hér
komum við syngjandi saman!“
Sýnd kl. 3 og 5.
Stjörnubíó (sími 81936): —
„Tarzan í gimsteinaleit“ (ensk).
Herman Brix, Ula Holt, Frank
Baker, Louis Sargent. Sýnd kl.
5, 7 og 9. ,,Steinblómið.“ Sýnd
kl. 3.
Tjarnarbíó (sími 6485): —
„Sagan af A1 Jolson“ (amerísk).
Larry Parks, Evelyn Keyes. —
Sýnd kl. 9. „Var Tonelli sek-
ur?“ (þýzk). Ferdipand Marian,
Winnie Markus. Sýnd kl. 3, 5, 7.
Tripolibíó (sími 1182): —
„Málverkastuldurinn“, amerísk.
Pat O’Briem, Claire Trevor,
Herbert Marshall/ Sýnd kl. 7 og
9. „Gög og Gokke.“ Sýnd kl. 3
og 5.
Bæjarbíó, Ilafnarfirði (sími
9184): „Morðingjar meðal vor“
(þýzk). Hildegard Knef, Elly
Burgnes. Sýnd kl. 7 og 9. -—
,,Hættuspil“ (amerísk). William
Boyd, Anly Clyde. Sýnd kl. 3
og 5.
Hafnarfjarðarbíó (sími 9249):
„Ríðandi lögregluhetjan“ (am-
erísk). Bob Steele, Joan Wood-
taury. Sýnd kl. 7 og 9. „11. Ol-
ympíuleikarnix„ í Berlín 1936.“
Sýnd kl. 5. ,,Leynifarþegarnir.“
Litli og Stóri, Sýnd kl. 3.
LEIKHÚS:
Óperettan Bláa kápan verður
sýnd> kl. 8 í Iðnó. Leikfélag
Reykjavíkur. \
5 AMKOMUHÚS:
Hótel Borg: Hljómsveit leik-
ur frá kl. 9 síðd.
Iðnó: Jölatrésfagnaður Vél-
stjórafélags Reykjavíkur, kl.
3,30. Jóladansleikur kl. 9 síðd.
Góðtemplarahúsið: SKT —
gömlu og nýju dansarnir kl. 9
síðd.
Ingólfscafé: Eldri dansarnir
£rá kl. 9 síðd.
Listamannaskálinn: Gestamót
og almenningsdansleikur U. M.
F. R. kl. 9 síðd.
Messur í dag
Fríkirkjan: Messað á 1. sunnu
dag eftir þréttánda kl. 2 e. h.
Ræðuefni: Máttur fraskornsins
í mannlegu hjarta. Séra Ragnar
Benediktsson.
ÞAÐ VAKTI nokkra athygli
manna síðast liðið haust, er í-
haldsmeirihlutinn í bæjarstjórn
samþykkti skipulagsuppdrátt
fyrir Aðalstræti og Grjótaþorp-
ið. Borgarstjóri vildi fyrir alla
muni samþykkja þennan upp-
drátt þá, og kom ekki til mála
að bíða, þar til uppdráttur lægi
fyrir af öllum miðbænum.
Hefði mátt ætla, að nú ætti' að
hefja einhverjar framkvæmdir
í þessum elzta hluta Reykjavík-
ur, en svo var ekki. Hér var í-
haldið aðeins a3 tryggja hags-
muni nokkurra aðila, sem það
ber mjög fyrir brjósti, með því
að ganga endanlega frá þessum
uppdrætti.
Aðalstræti og Grjótaþorp-
ið eru vagga hinnar íslenzku
höfuðborgar. Þar stóð bær
Ingólfs Arnarsonar, og er
ekkert líklegra, en að rústir
lians finnist, þegar grafið
verður þarna, eins og ösku-
haugurinn fannst undir
Steindórsprenti. Þarna stóðu
einnig innréttingar Skúla
Magnússonar, vísirinn að ís-
landi nútímans og Reykja-
vík nútímans. Það er því
ekki ofsagt, að þessi staður
sé sögulegasti blcttur
Reykjavíkur.
Sem von er með þjóð, er svo
mjög lætur sér umhugað um
GÖgu sína sem Islendingar, hafa
margir verið þeirrar skoðunar,
að einhverjar viðhafnarbygg-
ingar ættu að rísa við Aðal-
stræti og í brekkunni fyrir vest
an það. Hefur mönnum meðal
annars þótt þetta hinn sjálf-
sagðasti staður fyrir ráðhús
Reykjavíkur, og væri vel við
eigandi, ef svo skemmtilega
færi, að rústir af bæ Ingólfs
fyndust einhverjar, að þær
minjar væru vel geymdar í
kjallara ráðhússins.
Það munu allir vera sam-
mála um, að Aðalstrseti eigi að
breikka geysimikið, enda mun
hinn samþykkti uppdráttur
gera ráð fyrir því. Það er eðli-
legt um fyrstu götu bæjarins,
um sjávargötu Ingólfs land-
námsmanns.
Hins munu og margir vænta,
að einhver viðleitni sé sýnd til
að endurbygja þennan bæjar-
hluta, og vej;ður hann þá senni-
lega ekki betur hreinsaður en
með byggingu opinberrar bygg
ingar eins og ráðbúss, Norð-
menn notuðu ráðhússbygging-
una glæsilegu í Osló til að
hreinsa eitt versta hverfi bæj-
arins, og þykir hafa tekizt vel.
RÚSTIR INGÓLFSBÆJAR
í KJALLARA MOGGANS
Þessir draumar Reykvík-
inga uni elztu götu sína, um
vöggu höfuðborgar sinnar,
eiga þó ekki að rætast. I-
lialdsmeii'ihlutinn er búinn
að sjá til þess með skipu-
lagsuppdrætti sínum, að
ráðbús rísi ekki á þessum
síað. Hins vegar hafa auð-
tnenn Reykjavíkur undan-
farin ár verið að braska með
þessar helgustu lóðir borg-
arinnar, og mun nú allt útlit
á því, að Morgunblaðið reisi
þarna stórliýsi undir prent-
smiðju og Silli og Valdi
byggi við hlið þess. Hafnar-
megin við Moggann er svo
Tryggvi útgerðarmaður Ó-
feigsson, og er nú orðið auð-
séð, hvers vegna íhalds-
meirihlutinn í bæjarstjórn-
inni flýtti sér að samþykkja
skipulagsuppdrátt af þess-
um bæjarhluta og tvyggja
það’, að þarna risi ekld ráð-
hús, tryggja það, að þessir
1 auðmenn fengju breiða og
glæsilega götu fyrir framan
sig', svo að verðmæti lóða
þeirra stóreykst og auður
þeirra þar með.
Til þess að beina athygli borg
aranna frá þessum gamla og
sögulega stað hefur íhaldið
'oásúnað ýmsa aðra staði undir
hið fyrirhugaða ráðhús, svo
sem við tjarnarendann og jafn-
vel á opna svæðinu mikla í
Hlíðunum.
RÁÐHÚSIÐ MÁ FARA,
EN EKKI MOGGÍNN!
Það er fulíyrt, að í lóða-
kaupum sínunt hafi Morgun-
hlaðið sýnt svo mikla sér-
lund, að ráðamenn hlaðsíns
gátu ekki hugsað sér að
bygging blaðsins yrði ann-
ars staðar en í sjálfum Míð-
bænum, og helzt ekki ann-
ars staðar en við Austuv-
stræti. Svo fór, að keypt var
lóðin við endann á Ausíur-
stræti, ekki aðeins ein sögu-
legasta Ióð bæjarins, helclur
og ein hin glæsilegasta.
Svona er þá hugsunárhátt-
urinn! Morgunblaðið má alls
elcki víkja frá sjálfri aðal-
götu bæjarins, en það getur
vel komið til mála að seíja
ráðhúsið upp í Hlíðahverfi!
Samkvæmt hinu nýja skipu-
lagi á Aðalstræti að breikka
geysimikið. Þar mundi fást hið
ákjósanlegasta ráðhússtorg.
Kirkjustræti á einnig að
breikka og Túngata, svo að
breiðar götur munu ganga aust-
ur og vestur. Tjarnargata
breikkar sömuleiðis, svo að
bar er þjóðleið til suðurs, og
loks hefði á margvíslegan hátt
mátt ganga frá norðurenda
torgsins.
Við ráðhúsið ættu að vera
líkneski Skúla Magnússonar og
Ingólfs Arnarsonar. Það er vit-
að mál, að endurbyggja þarf
allt Grjótaþorpið, svo að þarna
mætti hafa rúmgott kringum
ráðhúsið, og brekkan rís nógu
hátt til þess, að þar gæti risið
klukkuturn, er saeist víða um
bæinn, ef menn óskuðu eftir
slíku, þegar ráðhúsið verður
íoksins bjrggt.
Það er margt, sem kemur
saman á þessum gamla stað þar
cem Reykjavík varð til. Og
neyðarlegt væri það, ef svo fer,
sem íhaldsklíkan, er stjórnar
bænum, virðist vilja, að blaða-
menn Morgunblaðsins stæðu
rétt yfir rústum Ingólfsbæjar,
er þeir ganga frá blaðinu einn
góðan veðurdag eftir nokkur
úr, og setja í það frétt um það,
að ráðhúsinu hafi verið ákveð-
inn staður inni við Elliðaár!
En það sýnir bezt hug íhalds-
klíkunnar til sögulegra staða í
bænum, að í Grjótaþorpinu,
þar sem ráðhús bæjarins mundi
standa með mestum sóma fyrir
bæjarbúa, hefur ennþá aðeins
verið reist eitt náðhús!
Gamall Reykvíkingur.
Ingólfs Café
í Alþýðuhúsinu í kvöld kl. 9.
Aðgöngum. seldir frá kl. 6 í dag.
Sími 2826.
Kvennadeikl Slysavarnafélags íslands, Hafnarf.,
hefur
AÐALFUND
miðvikud. 11. jan. kl. 8.30 sd. í Alþýðuhúsinu.
Venjuleg aðalfundarstörf. — Til skemmtunar:
Kaffidrykkja og dans. Síjórnin.
Kaupum
flöskur og glös.
Efnageröin Valur.
SÆKJUM HEIM.
Hverfisgötu 61.
Sími 6205.
Augiýsið í
Alþýðublaðinu!