Alþýðublaðið - 18.01.1950, Side 6

Alþýðublaðið - 18.01.1950, Side 6
s ALÞYÐUBLAÐIÐ' Miðvikutlagar 18. janúar 1950. verður haldinn í Iðnó fimmtudaginn 19. þ. m. kl. 8.30 sd. DAGSKRÁ: Stjórnarkosningin. Félagsmenn eru beðnir- að mæta stundvíslega og sýna skírteini sín við. innganginn. Stjórnin. Leifur ' Leirs: HIC RHOBOS------------ Þessi mynd sem ég. keypti hérna um árið af blönku seníi fyrir brennivínsflösku og síðan hefur' hangið þarna á veggnum veldur mér öðru hverju óþægilegum heilabrotum ekki táknmál hennar þar eð hún hefur engan boðskap að flytja og þó svo væri mundi ég hundsa hann eins og hvern annan boðskap -------- ekki heldur það hvernig hún eigi að snúa það er hennar einkámál þaðan af síður litasamstilling hennar eða línubygging því að krossgátur eru mér andstyggð nei heilabrot mín hring snuast um það eitt hvenær ég muni fyrirhitta mann svo fullan , og vitlausan að ég geti platað myndinni inn á h.ann fyrir sama verð og ég keypti hana. Leifur Leirs. TILKYNNING FRÁ Háttvirti herra! Þar eð oss hefur borizt til eyrna, að kona yðar hafi leitað læknisráða, yðar og sín vegna. varðandi hvimleiðan galla, sem yður sé áskapaður og valdi henni svo miklum óþægindum og leiðindum, að við sjálft liggi, að það geri henni sambúð í hjónabandi, — og þ,ói©inkum í einni sæng, — með y§pr liart- nær óbærilega, sendum vér yð- ur virðingarfyllst þetta bréf í von um góð svör og greið. Ver viljum þegar taka það fram, að það litla, sem vér vit- um um þetta mál, er haft eftir konu yðar, svo. að ekki er um trúnaðarbrot læknis að ræða. Að sjálfsögðu vitum vér, að orsakir, sem slíkum hjúskapar örðugleikum valda, geta verið margar og margs konar. Eitt er þó það, sem í allflestum tilfell- um, eða 93%, þessum óþægind- um valda, eru HROTUR annars hjúskaparaðilans eða jafnvei beggja. Og þar sem félagsskap- ur vor hefur fyrir skömmu hlotið upptöku 1 Alheimssam- band almennra og óalmennra búkhljóðaréttinda (I.A.C.S.) viljum vér, ef þetta kynni að vera hin raunverulega orsök fyrrnefnds tilfellis varðandi hjónasambúð yðar, bera upp nokkrar spurningar þar að lút- andi, sem vér vonum að þér svarið fljótt og samvizkusam- lega. 1. Hrjótið þér á hverri nóttu, og ef svo er ,hversu langan tíma að meðaltali per nótt? (stundir, mínútur qg sekúnd- ur) — Vér viljum í þessu sam- bandi vekja athygli yðar á, að það er að mörgu leyíi haganleg- ast 'að hrjóta 5—6 klukkust. á hverri nóttu, þar þér komizt þá að tiltölulega lægri taxta sam- kvæmt gjaldskrá. 2. Hrjótið þér með opnum munni, (31% af vergum tekj- um) eða lokuðum? (30% v. t.). 3. Hrjótið þér með löngu og djúpu andsogi 35%+7,5% a£ v. t.) eða stuttu og snöggu? (35% — 0% af v. t.). 4. Hrjótið þér í dúr eða moll, og ef svo er, í hvaða dúr eða moll, og yfir hvaða tónbil spenn ir hrotuskali yðar? (Einnig tákt tegund). 5. Hrjótið þér í löngum eða skömmum tónlínum? (Greinið einnig þagnarlengd). 6 Minna hrotur yðar á nokk- urt þekkt eða óþekkt verk þékktra eða óþekktra tónskálla, orkesterverk, symgóníur, instru mental, vocal eða höfuðverk? Að svo mæltu vonum vér að svör yðar reynist bæði skjót og skýr, og að þeim athuguðum mun félagsskapur vor senda yð- ur nákvæmlega sundurliðaða kröfu yfir greiðslur þær, sem yður ber að inna af hendi til vor og Alheimssambandsins, — samkvæmt gjaldskrá vorri. Virðingarfyllst! Yðar ------— ÁLf HONSE Kaspum fuskir Baldursgötu 30. Auglýsio í Alþýðublaðinu! skal fá þér þau. Þau eru hérna ínni. Hann elti hana inn í svefn- tierbergið, tók eftir rúminu, er var í óreiðu, fötunum, sem hafði verið kastað í flýti yfir báða koddana. Hann andaði að sér lytinni af vindlingareik, er blandazt hafði ilminum af k.vensnyrtimeðölunum, er hann kannaðist við. Hann kannaðist Binnig við litla skjaldböku- skeljakassann á borðinu. Sömu hugsuninni skaut upp í huga þ'eirra beggja, og hún sagði því, um leið og hún öpnaði kassann: ,,Þau eru ekki mjög mörg. Við ættum ekkert á hættu, þótt við settum þau í eldinn.“ Rósemi hugar hans var skyndilega raskað, og hann sagði ekkert. Munnur hans var sem límdur saman. Hann hik- aði við að nálgast óumbúið rúmið, þar sem hún var að líta á bréfin í síðasta sinn. Hún beygði höfuðið. Hálsinn var stinnur og hvít- ur fyrir neðan hárlokka henn- ar. Líkami hennar var frjáls og óþvingaður í ullarsloppnum, er féll mjúklega að henni, Líkami hennar var sveigjanlegur og eftirlátssamur á svipinn, og það var sem hann væri nokkuð þrýstnari en fyrrum. „Svona! Þarna eru þau öll!‘ Hann tók við bunkanum og stakk honum annars hugar í vasann, því að hugsanastraum- ur hans hafði tekið aðra stefnu. en hóf síðan máls að nýju. „Svo hann er farinn í burt með barnið? Hvert fara þeir?“ „Til Morvan, heim í héraðið hans. Hann fer þangað til þess að fela sig og vinna að letur- greftri, en munina sendir hann svo til Parísar undir dulnefni.“ „Og þú? Býstu við að fara þangað til hans?“ Hún leit undan til þess að forðast augnaráð hans og stam- aði, að nú yrði allt mjög ömur- legt. Henni hafði því dottið í hug .... hún hélt því .... ef til vill færi hún bráðum í burt .... í stutta ferð .... „Auðvitað til Morvan? Til þess að sjá um heimilið hans!“ Síðan gaf hann afbrýðiþrung- inni reiði sinni lausan taum- inn: „Hvers vegna segirðu ekki strax, að þú ætlir í burt til að hitta þjófinn þinn ,að þú ætlir að búa með honum? Þig hefur nógu lengi langað til þess. Ágætt! Farðu aftur í hunds- byrgið þitt. Skækja og peninga- falsari eiga alveg prýðilega saman! Ég var ágætur til þess að reyna að draga þig upp úr þessu kviksyndi!“ Hún stóð ennþá grafkyrr og þögul, en sigurglampi læddist fram á milli hálfluktra augna- loka hennar. Hún virtist verða því stoltari eftirþví sem hann særði hana grimmilegar með ruddalegu og móðgandi háði sínu, og titringurinn í munn- vikum hennar varð því greini- legri. Nú var hann tekinn að tala um hamingju sína og sína dyggðum prýddu og ungu ást — bina einu sönnu ást. Ó, hve indælt var að halla höfði sínu að hjarta dyggðugrar konu! Hve sá koddi var mjúkur! Svo lækkaði hann skyndilega rödd- ina, líkt og hann skammaðist sín. „Ég hitti hann Flamant þinn rétt áðan. Var hann hér í nótt?“ „Já, það var orðið svo fram- orðið, og það snjóaði. Ég bjó um hann á íegubekknum.“ „Þú lýgur! Hann svaf hérna. Maður þarf ekki að gera annað en að nota augun til að sjá það!“ „Og ef svo væri? Hvað þá?“ spurði hún og rak andlit sitt alveg fast upp að andliti hans. Storu, gráu augun hennar tóku að ljóma af lostafgiampa. „Vissi ég', að þú kæmir? Því skyldi mér ekki hafa staðið á sama um allt annað, fyrst að ég hafði misst þig? Ég var alein, sorg- mædd, full viðbjóðs og leiða?“ „Og svo meS „fulltrúa" gal- eiðanna, eftir að hafa búið svo iengi með heiðvirðum manni! Hve þú hlýtur að hafa notið ná- vistar hans heitt! Ó, þú saur- uga skepna! Þetta skaltu fá og þetta!!“ ■ Hún sá höggið koma, en hreyfði sig ekki ögn til þess að forðast það, heldur lét það skella á rnitt andlitið. Síðan fleygði hún sér í fang honum og vafði hann örmum með lágri stunu, er þrungin var sárs- auka, gleði — vitund um sigur. „M’ami, m’ami, — vinur minn, vinur minn! Þú elskar mig ennþá!“ Hraðlest, sem æddi fram hjá með miklum hávaða, vakti hann skyndilega, er komið var fram á kvöld. Og hánn lá kyrr í nokkur augnablik með lokuð augu og þekkti í rauninni ekki njálfan sig, einan, djúpt sókk- inn ofan í þetta stóra rúm. Það hafði snjóað mikið síðari hluta dagsins. Það ríkti djúp þögn líkt og í eyðimörk væri.. Hann gat heyrt snjóinn bráðna, renna niður veggi og glugga og leka í dropatali ofan í þakrennurnar. Við og við beyrði hann hvísl- andi hljóð* er þeir láku niður á kokseldinn í arninum. Hvar var hann? Hvað var hann að gera þarna? Smám naman kom herbergið umhverf- is hann í ljós í endurskini birt- unnar utan úr litla garðinum. Það var hvítt, upplýst neðan frá af arineldinum. Á veggn- um á móti honum hékk stóra tnálverkið af Faniiy. Og hann minntist nú . aðstæðnanna í sambandi við syndafall sitt án hinnar minnstu undrunar. Hann hafði strax fundið, að hann var á ný kominn í snör- una — glataður —, þegar haún kom inn í þetta herbergi og stóð við þetta rúm. Gamlar endur- minningar, sem voru bundnar við það, drógu hann að sér líkt og ægidjúp gjá. Og haim sagði við sjálfan sig: „Falli ég núna, verður það óafturkallanlegt og eilíft fall“. Það hafði gerzt. Og hann fann til" þunglyndis og viðbjóðs vegna heigulsháttar síns, en á bak við þessar kennd ir gat að líta nokkurs konar hugarlétti við þá hugsun, að Iiann kæmist aldrei framar upp úr þessu kviksyndi. Þetta var hin aumkunarverða ánægja hins særða manns, sem kastar sér á mykjuhaug til þess að deyja, er blóðið spýtist úr sári hans. Allar æðar hans eru opn- ar. Hann er dauðþreyttur á að þjást og berjast á móti, og hann grefur sig í alsælu niður í mjúka og daunilla hlýjuna. Það var hræðilegt, en mjög einfalt, sem hann átti nú eftir að gera. Gat hann snúið aftur til Iréne eftir slík svik og hætt á að stofna til hjúskapar að hætti De Potters? Hann haíði sokkið djúpt, en hann var samt ekki svo djúpt sokkinn. Hann ætlaði að skrifa Bouhereau, þessum mikla lífeðlisfræðingi, sem fyrstur rannsakaði og lýsti sjúkdómum viljans. Hann ætl- aði að skrifa honum og segja honum hræðilega sjúkdóms- sögu, — sögu lífs síns frá fyrsta fundinum við konu þessa, er húrf hafði lagt hönd sína á arm- legg honum, og allt til dags þessa, er hún náði aftur tang- arhaldi á honum með töfrum sinnar hræðilegu fortíðar, sem ástin átti svo lítinn þátt í, held- ur aðeins bleyðukenndur vani □g lösturinn, er hafði smogið verður haldin að Hótel Borg annað kvöld, fimmtudag 19. janúar klukkan 8.30. DAGSKRÁ: 1. Sr. Jón Thorarensen: Frásaga um ÍSL þjóðhætti. 2. ívar Björnsson stud. mag. og Ólafur H. Ólafs- son stud. med.: Frumsamin kvæði. 3. Ævar R. Kvaran: Einsöngur. 4. Spurningaþáttur. Einar Magnússon mennta- _ skólakennari stjórnar. ' Spurningum svara: Bjarni Guðmundsson blaðafulltrúi, dr. Björn Sigfússon háskólabókavörður, Ólafur Hansson menntask.kennari og Skúli Thoroddsen læknir. D a n s. Aðgöngumiðar verða seldir að Hótel Borg (gengið um suð- urdyr) kl. 5—7 í dag og á morgun. Pantaðir aðgöngumiðar, sem ekki hafa verið sóttir kl. 6 síðari söludaginn, verða seldir öðrum. Þeir, sem framvísa félagsskírteinum, njóta sérstakra hlunninda við aðgöngumiðakaup. Félagsskír- teini verða afgreidd á sama tíma og aðgöngumiðasala fer fram. — Engin borð verða tekin frá. Stjórn Stúdentafélags Reykjavíkur.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.