Alþýðublaðið - 18.01.1950, Blaðsíða 8
4
Kosningaskrifstofa
A-iistans
1 er opin kl. 10—10
j í Álþýðuhúsinu.
Símar eru 5020 og 6724.
Miðvikudagur 18. janúar 1950.
Stuðningsmenn j
A-Sistans
Komið í skrifstofu listans
í Alþýðuhúsinu og leggið
hönd á plóginn í undir-?
búningi kosninganna. ,
Framieiðsla Landssmiðjunnar 7,4
miiij. kr., greidd vinnulaun 3,4 millj,
20 ár iiðin frá stoínun Landsssniðjunnar.
LANDSSMIÐJAN í REYKJAVÍK átti 20 ára starfsafmæli
í gær. Á síðasía ári nam framleiðsla smiðjunnar 7.2 milljónum
og greidd vinnulaun námu '3.4 milljónum kró,na. Tii saman-
burðar má geta þess, að fyrsta árið, sem Landssmiðjah starfaði,
árið 1930, nam framleiðslan ekki siema 190 þúsund krónum, og
þá námri greidd vinnulaun einungis 75 þúsund krónum, enda
hefur dýrtíðin vaxið mikið frá þeim tíma og kaupgjaldið rúm-
lega sjöfaldazt. Þannig hefur tímakaupið vaxið úr ltr. 1,60 í
kr. 11,82 á þessum 20 árum.
Georgia Björnsson.
FORSETAFRÚIN, FRÚ
GEORGIA BJÖRNSSON, er
66 ára í dag.
Frú Georgia er sem kunnugt
er af dönskum ættum, en kom
hingað kornung og hefur löngu
tekið ástfóstri við land og þjóð
manns síns, sem hún hefur
verið svo traustur lífsföru-
nautur.
Frú Georgía á fjölda per-
sónulegra vina hér og nýtur al-
mennrar virðingar með þjóð-
inni. Mundu margir vilja óska
henni til-hamingju í dag, á af-
mælisdaginn.
Áskorun frá s!ysa -
varnadeildinni
Eldey í Höfnum
SLYSAVARNADEILDIN
Eldey í Höfnum, skorar á Slysa
varnafélag íslans, að beita sér
fyrir því við ríkisstjórn og al-
þingi, að vegur verði lagður
hina hættulegu leið frá Kol-
mannstjörn í Höfnum suður á
Reykjanes og kemst þá vega-
6amband á í kringum nesið,
sem við teijum bráðnauðsyn-
legt gagnvart slysahættu.
Þá er Landssmiðjan Var
stofnuð var fyrst og fremst til
þess ætlazt, að hún annaðist
cmíði og viðgerðir fyrir ríkis-
fyrirtæki, en nú er svo komið,
að um helmingur af vinnu
emiðjunnar er fyrir aðra aðila
en ríkið. Yfirlit, sem gert hef-
ur verið fyrir árin 1938—1948
eýnir, að hlutfallstala ríkisfyr-
irtækjanna hefur verið rnest
1944 71% og minnst 1941 með
41%. Árið 1948 var mesta velti
ár stofnunarinnar, en þá skipt-
ust viðskiptin jafnt á milli rík-
isfyrirtækja og annarra við-
skipta, og var hvor aðili um
sig með um 3.9 milljónir króna
viðskipti.
Smiðjan tók til starfa í húsa-
kynnum vegamálastjórnarinn-
ar, þar sém nokkur hluti henn-
ar er enn í dag. Greindist starf-
œmin strax í plötusmíði, vél-
virkjun, rennismíði og eld-'
smíði, én þrem mánuðum síð-
ar hófst einnig skipasmíði, og
seinna bættust við járn- og
málmsteypa og módeismíði.
Árið 1942 byggði Landssmiðj-
an stórhýsi við Sölfhólsgötu,
henni frá stofnun, þeir Þor-
valdur Brynjólfsson yfirverk-
etjóri og Guðjón Sigurðsson
eldsmiður, enn fremur hefur
Páll Pálsson yfirverkstjóri
unnið þar frá 1930. Forstjóri
Landssmiðjunnar frá stofnun
til 1946 var Ásgeir Sigurðsson,
en núverandi forstjóri er Ólaf-
úr Sigurðsson.
í viðtali er Ólafur Sigurðs-
son átti við blaðamenn í gær,
sagði hann, að oít hefði fjár-
hagur Landssmiðjunnar verið
ræddur opinberlega, o'g þætti
oér því rétt að geta um niour-
stöðutöiurnar frá síðasta upp-
gjöri eins og það var í árslok
1948. Þar eru bókaðar eignir
stofnunarinnar kr. 5.012.022
og skuldir kr. 4.724.951, og eru
eignir. umfram skuldir því rúm
lega 287 þúsund krónur. Þetta
ár gaf um 145 þúsund krónur
í rekstrarágóða og útlit er fyr-
ir að árið 1949 gefi einnig nokk
urn ágóða, en þó ekki svo mik-
inn sem árið áður vegna auk-
ins reksturskostnaðar og
minnkaðrar álagningar. í sam-
bandi við álagningu vélsmiðj-
og er gólfflötur allrar smiðj- • anna gat Ólafur þess, að í árs
unnar nú um 3000 fermetrar.
Fyrsta árið unnu að meðal-
tali um 28 manns í Landssmiðj
unni, en nú vinna þar um 130
manns, og er skrifstofufólk þá
ekki meðtalið. Tveir starfs-
menn smiðjunar hafa unnið í
Eftirlæfis framkvæmdir íhalds-
: . _ . ' ' ; á ' .1
ins eru að innrétfa gömul
íbúðarhús fyrir bæjarstofnanir
EFTIRLÆTIS „FRAM KVÆMDIR“ íhaldsins í
Reykjavík virðast vera að innrétta gömul hús, helzt íbúða-
hús, til afnota fyrir stofnanir bæjarins, og er á þennan
hátt haldið miklu húsnæði vegna þess að bæjarstjórnin
hefur svikizt um að byggja sérstaklega yfir viðkomandi
stofnanir.
Þannig er húsmæðraskólinn í stóru íbúðarhúsnæði,
en veglegir húsmæðraskólar hafa risið upp víða á land-
inu. Bæjarbókasafnið er í allsendis ófullnægjandi salar-
kynnum á neðri hæð íbúðarhúss. Gagnfræðaskólar eru
hýstir í aflóga sjúkrahúsum (franska spítalanum) og verk-
smiðjubyggingu. Barnaheimili eru, þau sem til eru, öll
í íbúðahúsnæði. Skrifstofur bæjarins eru að nokkru leyti
í „ráðhúsi íhaldsins“, — Hótel Heklu. Og þannig mætti
iengi telja.
lok 1944 er fyrst voru sett
verðlagsákvæði fyrir smiðj-
[ urnar, var þeim leyft að leggja
kr. 3,16 á hverja útselda
klukkustund sveina og sam-
sváraði það um 32 % af greiddu
kaupi.' í árslok 1949 var hins
vegar búið að lækka álagning-
una niður í kr. 2.38 eða 20%
af greiddu kaupi. Hins vegar
hafa rekstrarútgjöld stigið all-
verulega á sama tíma.
Um framtíð smiðjunnar er
erfitt að segja, sagði Ólafur að
lokum, annað en það, að ekki
mun verða lagt í frekari fjár-
festingu í bili. Margt í fjár-
málum þjóðarinnar er nú í at-
hugun hjá sérfróðum mönn-
um og þær breytingar til um-
bótá, er kunna að verða gerð-
ar, geta haft töluverð áhrif á
afkomumöguleika fyrirtækis-
ins. Hins vegar vitum við að
menn hafa nú séð hvaða mögu-
leikar eru fyrir hendi til
bættra lífskjara með frekari
tæknilegri þróun, og fái hún
að verða óslitin, þá á Lands-
smiðjan sem önnur hliðstæð
fyrirtæki mikil verkefni fram-
undan.
Á eftir viðtalinu við for-
Gtjórann gengu fréttamenn um
hinar ýmsu deildir Lands-
smiðjunnar og skoðuðu þær, en
þar vinna nú eins og áður seg-
ir um 130 manns, en um helm-
ingur þeirra er venjulegast að
vinnu utan sjálfrar smiðjunn-
ar og þá einkanlega í skipum.
Piltur og stúlka á Akureyri
Leikfélag Akureyrar hefur undanfarið sýnt „Pilt og stúlku“
eftir Emil Thoroddsen. Sex sýningar eru búnar, allar fyrir
fullu húsi. Er það óvenjulega góð aðsókn að sjónleik á þessum
tírna árs, þegar öll samkomuhús bæjarins eru ætíð yfirfull af
öðrum skemmtunum. Leikendur eru samtals 22, margir ný-
liðar á leiksviðinu, þar á meðal þau sem leika SigríÖi og
Indriða, sem hugur leikhússgesta dvelur mest við. Myndin hér
að ofan er af Sigríði og Indriða, en þau eru íeikin af Bergrósu
Jóhannesdóttur og Sveini Kristjánssyni, — Leikstjóri er Jón
Norðfiörð.
yndum
dwin í listverzlun Vais
SÝNING á teiknuðum, and-
litsmyndum eftir hinn þekkta
danska myndhöggvara A. Niel-
cen-Edwin, stendur yfir þessa
dagana í listverzlun Vals Norð
dahl við Smiðjustíg. Flestar
eru myndirnar af börnum, en
bó einnig af fullorðnu fólki,
körlum og konum. Sýningin
stendur yfir til 28. þessa mán-
aðar, en aðgangur að henni er
ókeypis.
Nielsen-Edwin hefur hlotið
almenna viðurkenningu á
Norðurlöndum og víðar fyrir
verk sín. Eftir hann er til dæm-
is líkneskið, sem stendur fyrir
framan sýningarstað „Den
Frie“, og margir, sem dvalizt
hafa í Kaupmannahöfn, munu
hafa veit athygli. Nielsen-Ed-
win hlaut Eskersberg heiðurs-
pening árið 1943 og hefur
hlotið fleiri slík verðlaun.
Ýmsar byggingar ytra hefur
hann skreytt reliefverkum.
Síðast liðið sumar sýndi hann
verk sín bæði í París og Dan-
mörku. |
Andlitsmyndir Nielsen-Ed-
win hafa verið vinsælar hér*
ekki hvað sízt myndir hans af
börnum. En nú teiknar hanra
andlitsmyndir eftir pöntun og
geta þeir, sem óska að fá hanm
til að teikna myndir af sér,
gert aðvart í listverzlun Vals
Norðdahl.
í Landssmiðjunni er nú ver-
Ið að koma upp dieselrafstöð,
svo að starfsemin þar þurfi
ekki að vera háð duttlungum
rafmagnsveitunnar, en þegar
rafmagnið bilar, stöðvast all-
ar vélar og geta stórskemmzt,
auk þess sem allur mannafl-
inn verður verklaus, og er
hver klukkustund þannig dýr
Eyrir stofnunina. Rafstöð þessi
var reynd um síðustu helgi, og
reyndist í alla staði vel, og er
nú hægt að taka hana í notk-
un með einu handtaki, þá er
rafmagnsspennan í bænum
fellur.
Skemmtun 11.
hveríis Alþýðu-
flokksfélagsins
11. HVERFI Alþýðu-
flokksfélags Reykjavíkur
heldur spila- og skemmti-
fund í Þórscafé annað kvöld
kl. 8. Skemmtiatriði verða:
Félagsvist, Benedikt Grön-
dal flytur ræðu og kvik-
myndasýning. Félagar fjöl-
mennið og takið með ykkur
gesti. Hafið spil meðferðis.
MALFUNDAFLOKKUR
Félags ungra jafnaðarmanna
í Reykjavík kemur saman í
kvöld á sama stað og tíma
og venjulega.