Alþýðublaðið - 19.01.1950, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 19.01.1950, Blaðsíða 5
Fimmíiidagur 19. janúar 1950. ALÞÝÐUBLAÐÍÐ 5 Alþýðuflokkurinn hœjarmílim Pennan veg lagði ríkiö fyrir áratiíg síðan ... ALÞÝÐUFLOKKURINN átelur, að enn skuli ekki hafa verið gerðar rækilegar athuganir á því, hvernig og úr hvaða efni götur verði gerðar endingar- fbeztar við íslenzfkar aðstæður. Telur flckkurian, að slíka athugun beri aö láta gera nú þegar, enda skuli teinskis lát»a ófreistað til að draga úr hinum gífurlega 'Viðhaldsfcostnaði gatnanna. Flokkurinn telur, að afla 'þurfi fu'lfcomnari vinnuvéla til gatnagerðar, bæði til ma'l'bikunar og steinsteypugerðar. ! Umferðaræðar fil úfhverfanna Þá telur Alþýðuflokkurinn, að leggja beri aðaláherzlu á teð maibika hið fyrsta eða steinsteypa umferðaræðarnar til hinna stærri úthverfa, og gangi þær fyrir tninni umferðargöt- iim, bæði í gamla bænum og úthverfunum. í þessu sambandi bendir flokkurinn sérstaklega á umferðaræðarnar til Laugar- ness- og Langholtshverfa, á Hringbraut og Miklubraut til Hlíðahverfis, á Háteigsveg og Lönguhlíð til Rauðarárholts, Nesveg til Kaplaskjóls og Suðurgötu til Grímstaðaholts og Skyldinganessbyggða. Loks er brýn nauðsyn þess að samræma vinnubrögð raf- magnsveitu, síma og hitaveitu í sambandi við göturnar. Raffcnúnfr sfrætisvagnar! Alþýðuflokkurinn vill beita sér fyrir því, að athugaðir verði möguleikar á að nota raíknúnar almenningsbifreiðir í Reykjavík, og miðist athugunin við það, að slíkir vagnar væru teknir í notkun. er nýja Sogsstöðin verður Tilbúin. Fullfcomnari og befri vagnar Flokkurinn vill átelja það, að eftir bifreiðaflóð undanfar- inna ára skuli Strætisvagnar Reykjavíkur enn ekki eiga full- komnari og betri vagna en raun ber vitni. Flokkurinn telur, að skapa verði Strætisvögnunum aðstöðu til að kaupa aðeins eina tegund bifreiða, og auðvelda á þann hátt viðhald og gera rekstur vagnanna ódýrari en nú er. Þá þarf innrétting vagn- anna að miðast við þau þægindi, að sem flestir farþegar sitji, þótt ekki sé leið löng. Þá ber að beina sem flestum ferðum fram hjá Lækjartorgi og hafa endastöðvar í úthverfum bæjarins. Hvar eru sfræfisvagnaskýlin! Loks átelur Alþýðuflokkurinn, að enn hefur ekki verið reist eitt einasta farþegaskýli við leiðir strætisvagnanna, og vill, að slíkum skýlum verði komið upp áji tafar. Samvinna við almenning um skipulsg Ljúka ,skal skipulagsuppdrætti að bænum og'leitað nán- ara samstarfs við almenning með aukinni fræðslu um skipu- lagsmál. Nýjar tillögur að skipulagsuppdráttum, bæði teikn- ingar og líkön, skulu höfð almenningi til sýnis á aðgengilegum stöðum í nokkrar vikur áður en uppdrættirnir eru endanlega ræddir í bæjarstjórn, svo að almenningsálit nái að skapast og koma fram. öffmíffn fái sfóraufcin þægindi .Skipulag bæjarins skal stefna að þvi að gera úthverfin að nokkru leyti sjálfum sér nóg, skapa þau sem heildir. Skal hvert þeirra hafa eins konar „miðbæ“, þar sem risið geti með tímanum sérverzlanir, skemmtistaðir, svo sem kvikmyndahús en svona eru aðalhrauúrnar í Reykjavík íhaldsins í dag Fyrir meira en áratug síðan iagði ríkið steinsteyptan veg frá Rej'kjavík inn að Elliða- ám. Þessi vegarspotti er énn þann dag í dag betri en nokkr- ar götur í Reykjavík og hefur kostað sama sem ekkert í við- baldi, meðan eyða þarf hundr- uðum þúsunda á hverju ein- asta ári í viðhaldið á götum eins og Laugaveginum. Þessi ríkisvegur þoldi hið gífurlega élag hernámsáranna og ber enn þá af umferðaæðum bæj- aríhaldsins. Myndin við hlið- ina er af einni af aðalbraut- unum í einu af stærstu hverf- um bæjarins. Það má nærri geta, að slíkar götur fara hörmulega með farartækin, sem um þau aka, og mundu fullkomnar umferðaæðar á ör- skömmum tíma spara þúsundir í viðhaldi og endingu farar- tækjanna, auk þess, sem við- hald þeirra mundi stórminnka. Listabókstafur Ál- og samkomuhús, útibú pósthúss og símastöð, bifreiðastöðvar og fleira slíkt, svo að hverfisbúar þurfi ekki að sækja álla hluti til gamla bæjarins. Gert sé ráð fyrir opnum svæðum í bænum, almennings- görðum og leiksvæðum. Endursfcipulag gamia bæjarins Hraða skal endusskipulagningu gamla bæjarins, svo að skipulagið tefji ekki endurbyggingu hans. Hugsað skal vand- lega fyrir nægilegum bifreiðastæðum, og ef hentugt þykir at- hugaðir möguleikar á bifreiðageymslum í miðbænum, þar sem geyma megi bifreiðir um styttri eða lengri tíma, í stað þess að leggja þeim við aðalgöturnar. Þá verði benzinstöðvar þegar fiuttar úr miðbænum. Reykjavíkurbær beiti sér fyrir því, að komið verði upp umferðarmiðstöð fyrir langferðabifreiðir svo fljótt sem kostur er á. Bærinn beiti sér fyrir því, að stöðin verði staðsett þannig, að langíerðabifreiðar þurfi sem minnst að fara um mestu um- ferðargötur í elztu hlutum bæjarins. Jafnframt verði séð um, að tíðar og hentugar strætisvagnaferðir verði til stöðvarinnar úr öllum helztu hverfum bæ jai-ins. Þá skal það athugað, hvort eigi sé hægt að sameina þessa j stöð afgreiðslu flugvéla á Reykjavíkurílugvelli. LISTABÓKSTAFUR. AI- þýðuflokksins við bæjarstjórn- ar- og hreppsnefndakosningarn ar 29. janúar næstkomandi verður sem hér segir á hinum ninstöku stöðum: Kaupstaðir: Reykjavík A-listi. Hafnarfjörður A-listi Akranes A-listi ísafjörður A-listi Sauðárkrókur A-listi Siglufjörður A-listi Ólafsfjörður A-listi Akureyri A-listi Seyðisfjörður A-listi Neskaupstaður B-listi. Vestmannaeyjar A-listi Keflavík A-listi. Kauptún: Borgarnes A-listi Ólafsvík A-listi Stykkishólmur A-listi Suðureyri A-listi Flateyri A-listi Súðavík A-listi Bolungarvík -A-Iisti Hvammstangi A-listi Dalvík Á-listi Djúpivogur A-listi Fáskrúðsfjörður A-listi Sandgerði A-listi Sel'foss A-listi Stokkseyri A-listi Eyrarbakki A-listi Kópavogshreppur A-listi Seltjarnarneshreppur A-Iisti

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.