Alþýðublaðið - 19.01.1950, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 19. janúar 1950.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
7
$ SCIP AHT€i€R©
Herðubreið
austur um land til Bakkafjarð-
ar um helgina. Tekið á móti
flutningi til Y estmannaey j a,
Hornafjarðar, Djupavogs,
Breiðdalsvíkur, Stöðvarfjarðar,
Mjóafjarðar, Borgarfjarðar,
Vopnafjarðar og Bakkafjarðar
á morgun og laugardag. Pant-
aðir farseðlar óskast sóttir
árdegis á laugardag.
„Skjaldbrelð"
til Skagafjarðar og Eyjafjarðar
hinn 24. þ. m. Tekið á móti
flutningi til Sauðárkróks, Hofs-
óss, Haganesvíkur, Ólafsfjarð-
ar, Dalvíkur og Hríseyjar á
morgun og laugardag. Pantaðir
farseðlar óskaSt sóttir á mánu-
daginn.
Rúmur helmingur hefur fengið fast
skipulag.
SKIPULAGSSKYLDIR STADIR eru samtals um 60 á öllu
landinu, að því er segir í skýrslu skipulagsstjóra um starfsemi^
teiknistofu skipulagsins. Rúmur helmingur þessara staða hefur
nú þegar fengið fast skipulag, en skipulagsskyldir eru allir
þeir staðir, er hafa 200 íb’Aa eða floiri.
Samkvæmt skipulagslögun- ' staðir verið mældir og kort-
Móðir okkar,
Arndís B. Árnas@n?
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 20.
þ. m. kl. 1.30 eftir hádegi. — Blóm og kransar afbeðin.
Þeir, sem vilja heiðra minningu hennar, eru beðnir að
minnast sumardvalarstarfsemi Rauða kross íslands.
Börn hinnar látnu.
H
jt
vestur um land til Akureyrar
hinn 25. þ. m. Tekið á móti
flutningi til Patreksfjarðar,
Bíldudals, Þingeyrar. Flateyr-
ar, Súgandafjarðar, ísafjarðar,
Siglufjarðar og Akureyrar á
laugardag og mánudag. Pant-
aðir farseðlar óskast sóttir á
mánudag.
unum er verksvið teiknistofu
ckipulagsins fyrst og fremst
Gkipulagning bæja, kaupstaða
og sjávarþorpa, auk staða svo
cem skólahverfa, sveitaþorpa,
Eumarbústaðahverfa, auk
þeirra, sem myndast við orku-
ver. Er gert ráð fyrir að end-
urskoðun uppdrátta fimmta
hvert ár, en ör vöxtur kaup-
Etaða og þorpa hin síðari ár,
hefur leitt til þess, að endur-
Gkoða þarf skipulagsuppdrætti
binna fjölmennari staða oftar
en lög gera ráð fyrir.
Hin síðari ár hafa risið upp
allfjölmenn byggðahverfi víðs
vegar um landið. Hafa þannig
14 skólastaðir og smærri sveita
þorp verið tekin til skipulags-
lagðir: Reykhólar, Kaldrana-
nes, Kópasker, Breiðdalsvík,
Kirkjubæjarklaustur, Vík í
Mýrdal, Hvolsvöllur, Hella,
Kópavogur, Seltjarnarnes,
Flúðir, Stokkseyri, en um þess-
ar mundir er unnið að korta-
gerð fyrir: Flatey, Hrísey og
Reyðarfjörð.
Viðbótarmælingar hafa ver-
íð gerðar af Akureyri, Siglu-
firði, Ólafsfirði, Norðfirði,
Blönduósi, Bolungarvík og Sel-
fossi.
Skipulagsuppdrættir hafa
verið gerðir fyrir þessa staði:
Hóímavík, Drangsnes, Iiófsós,
Hvammstánga, Skagaströnd,
Egilsstaði, Höfn í Hornafirði,
Hvolsvöil, Hveragerði, Ytri-
n
<JS
til Vestmannaeyja á morgun.
íekið á móti flutningi í dag
og á morgun.
Bezfa bráðabirgða
Framhald af 3. síðu.
húsmálunum á annað og hærra
stig en það sem þessi mál eru
nú á.
Ég heiti á alla Reykvíkinga
að vinna ötullega að sigri A-
listans í þessum kosningum og
gera sigur hans sem stærstan
og glæsilegastan.
Hann les
i
Alþýöuhlaðið
* „ , , . Njarðvíkur, Hellissand og
meðferðar, ogílest þegar feng-1 Grindavík En að siálfsö ðu
ið uiiausn. Þoersvoaðenn! n þessara staða
hefur eigi tekizt að smna
mörgum smærri byggðalögum,
cökum skorts á vinnuafli í
teiknistofu.
Landmælingar er annað höf-
uðverkefni teiknistofu skipu-
lagsins, og undirstaða skipu-
lagsvinnunnar. í lögum er gert
ráð fyrir því, að sveitárstjórn-
irnar annist mælingarnar sjálf-
ar, enda séu þau störf unnin
af sérfræðingum, er stjórnar-
ráðið samþykkir.
Utan Reykjavíkur er eigi
nema takmarkaður kostur á
kunnáttumönnum til mæling-
arstarfanna, enda lætur nærri,
cð um helmingur af allri starf
semi teiknistofu skipulagsins
gangi til þeirra starfa.
I skjalastafni stofnunarinn-
ar eru nú þegar til fullkomnir
mælingaruppdrættir og kort
allra kaupstaðanna, en vel flest
skipulagsskyld kauptún og
þorp hafa verið mæld. Viðbót-
armælingar eru og iðulega
framkvæmdar þar sem þess
gerist þörf vegna framtíðar
fyrirætlana.
Frá því skipulagslögin gengu
í gildi árið 1921 og fram til
1938, höfðu allir kaupstaðirnir,
auk margra kauptúna, fengið
staðfestan skipulagsuppdrátt.
Reykjavíkurbær var þó undan-
skilinn.
Síðustu tvö árin hafa þessir
lengri aðdraganda en s. 1. tvö
ár.
Um þessar mundir eru eftir-
taldir staðir í undirbúningi um
ckipulag, og unnið er að korta-
gerð fyrir Brúarland, Reyk-
hóla, Kaldrananes, Laugaskóla,
Vopnafjörð, Breiðdalsvík, Þor-
lákshöfn, Innri Njarðvíkur,
Seltjarnarnes og Kópavogs-
Land.
Þá eru og til meðferðar end
urskoðun á skipulagi þessir
staðir: Vestmannaeyjar, Akur-
eyri, Ólafsvík, Patreksfjörður,
ísafjörður, Siglufjörður, Húsa-
vík, Neskaupstaður, Selfoss og
Keflavík.
Skipulag Reykjavíkur er
eitt höfuðverkefnið og jafnað-
arlega unnið að endurskoðun
þess og nýjum uppdráttum
fyrir einstök bæjarhverfi.
í teiknistofu skipulagsins eru
Btarfandi þrír arkitektar, tveir
mælingaverkfræðingar og
tveir aðstoðarteiknarar. Reykja
víkurbær hefur starfandi sjálf-
stæða skipulagsdeild, er að
mestu sér um uppdráttagerð í
skipulagsmálum bæjarins.
Jarðarför mannsins míns og sonar,
Kar@Ss Gíslasonar
rakara,
fer fram föstudaginn 20. janúar frá Fossvogskirkju kl.
2. — Blóm og kransar afbeðin. Óskað er að þeir, er
vilja minnast hans, láti Krabbameinsfélagið njóta þess.
Athöfninni verður útvarpað.
Aldís Kristjánsdóttir. Jónína Þórðardóttir.
7040 á f ramhalds Esperantistafélagið
opnar skrifsfofu
GeOverndar-
félags íslands
70—80 MANNS mættu
framhaldsstofnfundi Geðvernd
arfélags íslands, sem haldinn
var í 1. kennslustoíu Háskól-
ans í fyrrakvöld.
Dr. Helgi Tómasson flutti á
fundinum ræðu um geðvernd-
armál almennt, síðan var
frumvarp til laga félagsins bor-
ið undir atkvæði og samþykkt,
en að lokum kosið í 25 manna
fulltrúaráð, sem svo kýs stjórn
félagsins. Fundarstjóri var
Arnfinnur Jónsson skólastjóri.
145 erlendar flugvél-
ar lentu í Keflavík
í desember
ÚlbrelSIS
&lþyðublaSiðl
Auglysið í
Alþýðubiaðinu!
Örn Elding
Aðeins í
Gerizt áskrifendur
Alþý ðublaðinu.
— Símar: 4900 & 4906.
í DESEMBER lentu 145
flugvélar á Keflavíkurflugvelli
og voru þær frá eftirtöldum
flugfélögum:
Flugher Bandaríkjanna 36
flugvélar, Trans Canada Air
Lines 24, British Overseas Air-
ways Corp., 21, American Ov-
erseas Airlines 18, Air France
10, Royal Dutch Airlines
(KLM) 9, Lockheed Aircraft
Overseas Corp., 9, Scandinav-
ian Airlines System 7, Loft-
leiðir 2. (Einnig flugvélar frá
flugher Kanada, S.A.B.E.N.A.,
Seaboard & Western, Trans
Ocean,Airlines og Flying Tig-
ers, samtals 9.
Farþegar með flugvélunum
voru 2772. Til Keflavíkurflug-
vallar komu 315 farþegar. Frá
KjeflaVÍkur.flugvelAi Ifóru 190
farþegar. Flutningur með flug-
vélunum var 101.716 kg. Flutn-
tngur til íslands var 33.403 kg.
Flutningur , frá Keflavíkur-
flugvelli var 4.347 kg. Flug-
póstur með vélunum var 63.310
lcg. Póstur til Keflavíkurflug-
Vallar var 1.526 kg. Póstur frá
Keflavíkurflugvelli var 2.677
kg.
Meðal þekktra manna, sem
voru farþegar með millilanda-
Elugvélunum var kanadiski
hershöfðinginn Guy G. Sim-
onds, á leið til Kanada frá
London.
ESPERANTISTAFÉLAGIÐ
Auroro hélt aðalfund sinn ný-
lega. Ólafur S. Magnússon
liennari, sem hefur verið forseti
félagsins frá stofnun þess,
baðst eindregið undan endur-
kosningu vegna fjarveru úr
bænum, en hann er nú skóla-
stjóri í Vík í Mýrdal.
Stjórnina skipa nú: Forseti
Magnús Jónsson, varaforseti
Ragnar V. Sturluson, með-
stjórnendur Jóhann Bjarnason,
Óskar Ingimarsson, Pétur Har-
aldsson.
Innan skamms opnar Auroro
Ekrifstofu að Vesturgötu 3 og
verður þar miðstöð fyrir starf-
semi félagsins og esperanto-
hreyfingarinnar. Og í febrúar
næstkomandi mun svo prófess-
or Ivo Lapenna, doktor í al-
þjóðarétti, koma hingað til
(ancls, en hann ferðast nú land
úr landi á vegum Alheimsfé-
lags esperantista til eflingar og
útbreiðslu alþjóðamálsins esp-
eranto. Auk. þess mun hanm
flytja fræðsluerindi um ýmis
efni og sýna skuggamyndir
þeim til skýringar.
Söngskemmtun Einars
Sturlusonar í kvöld
EINAR STURLUSON óperu-
söngvari heldur söngskemmt-
un í Gamla Bíó í kvöld, og eru
á efnisskránni bæði íslenzk og
erlend lög. Við hljóðfærið
verður Róbert Abraham.
Hreppsnefndarlist-
inná
ALÞÝÐUFLOKKURINN og
Framsóknarmenn á Eskifirði
hafa lagt fram sameiginlegan
lista við hreppsnefndarkosn-
ingarnar þar 29. janúár. List-
inn er þannig skipaður:
Lúther Guðmundsson, Arn-
þór Jensson, Ari Hallgrímsson,
Charles Magnússon, Ragnar
Sigtryggsson, Bjarni Marteins-
son og Guðmundur Þórarins-
son. . •__í