Alþýðublaðið - 22.02.1950, Page 1
Veðurhorfur:
Minnkandi su'ðvestan átt
fyrst, en þykknar upp
með vaxandi sunnan átt
- .z
þegar líður á daginn.
Forustugreln:
Hótelmálið.
Atvinnuleysið.
XXXI. árgangur.
MiðvikudagUr 22. febrúar 1950
45. tbl.
Olíuskipið
í Lauganiesí
Neðri deild alþingis samþykkti í gær.-
Tillaga þess efnis samþykkt
15 atkvæðum gegn 14!
„Clam“ á strandstaðnum í gær. (Ljósmynd: Guðm. Hannesson.)
BIÍEZKA OLÍUSKIPIÐ
,,CLAM“, sem hingað er kom
ið með olíufarm frá Curacao,
strandaði í Laugarnesi í gær
morgun. Skipið var að losa
farm sinn í nýju olíustöðina
þar, er óveðrið skall á, og
dró það legufæri sín upp og
sieit böncl við dufl, svo að
það rak, þar til það tók niðri
að aftan við Skarfaklett.
„Clam“, sem er með olíu-
farm fil BP og Shell, kom í
fyrradag, og var byrjað að
dæla olíu í Iand í fyrrakvöld
og því haldið áfram mestaíia
nóttina. • Skipið kom mcð 9
290 lestir af brennsluoliu, og
var búið að dæla úr því 1400
lestum, er slysið vildi til.
Flóð var, er skipið rak á
land, og á fjöru í gær, tók
það allt niðri. Ekki sáust þó
nein merki um skemmdir á
skipinu. I gær varð ekkerc
aðhafzt vegna veðurs, en
strax og unnt er, verður
haldið áfram að afferma
það. Verður síðan reynt að
ná því út á flóði.
aðar til þess að fá Bretann Saunders til þess að játa á sig
sakargiftir ungversku stjórnarinnar í Budapest, að því er brezka
utanríkismálaráðuneytið lýsti yfir í gærkvöldi. Segist ráðu-
neytið sjá af luinnum staðreyndum í máli hans, að það, sem
Saunders bar fyrir réttinum, hafi verið útúrsnúningur og
lygaL sem hann hafi síður en svo liag af að fara með.
-------------------------------Jtt
Ráðuneytið hendir á orðaval
Saunders og framkomu hans
alla fyrir réttinum máli sínu
til stuðnings, og segir, að ekki
geti leikið nokkur vafi á því,
að skuggalegar aðferðir hafi
verið notaðar við „undirbún-
ing“ mannsins fyrir réttarhöld
in, encla hafi sendifulltrúum
Breta verið neitað um leyfi til
að tala við hann og brezkum
lögfræðingum neitað um levfi
til að verja hann.
ðð
rlsa í Frakklandi!
er
VAXANDI ÓANÆGJA
nú með launakjör innan
frönsku verkalýðshreyfingar-
innar. Eru þegar hafin verk-
föll í Ford og Renault bifreiða-
verksmiðjunum, og líkur tald-
ar á verkföllum í byggingariðn
aðinum, kolaiðnaðinum og við
gas- og rafmagnsstöðvar.
Saunders var í gærmorg
un dæmdur í 13 ára fangelsi
fyrir njósnir og skemmdar-
verk. AmeríkumaSurinn
NEÐRI DEILD ALÞINGIS sarnþykkti í gær, að
bæjar- og sveitarfélögin, sem þess cska, skuli hafa for-
gangsrétt að því að kaupa þá tíu togara, sem eru í
smíðum á Bretlandi fyrir frumkvæði íyrrverandi rík-
isstjórnar. Skal ríkisstjórninni heimilt að lána þessum
bæjar- og sveitarfélögum 75% af andvirði togafanna,
og skal lánið greiðasf með jöfnum afborgunum á 20
árum, en vextir vera 'hinir sömu og ríkisstjórnin
greiðir af láni því, að upphæð 32 775 000 krónur, sem
hún kemur til með að taka vegna togarakaupanna.
Breytingartillaga við frum
varpið til laga um tcgara-
kaup ríkisins, um forkaups-
rétt bæjar- og sveitarfélag-
anna að nýju togurunum tíu
var samþykkí í neðri deild
með 15 atkvæðum gegn 14,
en 6 þingmenn voru fjarver-
andi. Fer frumvarpið þessu
næst til efri deildar og sætir
meðferð hennar áður en það
verður að lögum.
hefst annað kvöld
í Englandl
TALNING atkvæða í Eng-
landi mun hefjast þegar annað
kvöld, og útvarpar brezka út-
varpið tölum með stuttu milli-
bili alla nótinna. Endanleg úr-
slit kosninganna verða þó ekki
kunn fyrr en á föstudag.
Leiðtogar beggja stærstu
flokkanna, Herbert Morrison
varaforsætisráðherra og Wool-
ton lávarður, hafa lýst eindreg
inni sigur vissu sinni. Kosninga
baráttunni er lokið, og hefur
verið hlé á henni síðustu tvo
Vogeler hlaut 15 ára fang- elsi, en tvcir Ungverjar voru dæmdir íil dauða og þrír í 5—10 ára fangelsi. Ameríska félagið, sem Vogel ' er er starfsmaður hjá, hefur 1 lýsí yfir, að það hafi í fórum sínum upplýsingar, er sanna sakleysi hans. Mun félagið senda utanríkismáðuneytinu þessar upplýsingar. dagana.
Hargir áreksfrar ALLMARGIR bílaárekstrar hafa orðið í bænum síðustu daga vegna hálkunnar á götun- um, en engin alvarleg slys hafa hlotizt af. Hins vegar hafa orð- ið töluverðar skemmdir á þó nokkrum bifreiðum.
Bandaríkin slitu stjórnmála samhandi við Búlgara í gœr
BANDARÍKIN slitu í gær stjórnmálasambandi við Búlg- aríu. Er þetta afleiðing af framkomu Búlgara í garð ame ríska sendiherrans og stöðug- um ákærum þeirra í hans garð um njósnir og skemmdarverk. St j órnmálafréttaritari brezka útvarpsins segir um þetta, að auðséð sé, að Búlg- arir hafi stefnt að þessu, en slík skref taki þeir varla án vitundar og samþykkis Rússa. Bendi því allt til þess, að Rúss ar séu að reyna að hrekja full trúa vesturveldanna úr öllum leppríkjum sínum. Ameríski sendiherrann í Soffíu, Heatk, var í gær á nýj- an leik ákærður um njósnir, er fimm Búlgarir voru dregnir fyr ir rétt fyrir njósnir, sem sendi- herrann á að hafa stjórnað.
Aðrar breytingartillögur við,
frumvarpið voru allar felldar
af neðri deild við atvkæða-
greiðsluna í gær, en meginefni
sjálfs frumvarpsins er það, að
ríkisstjórninni er heimilt að
láta smíða allt að tíu togara í
Bretlandi, og er þar um að ræða
staðfestingu alþingis á ákvörð-
un fyrrverandi ríkisstjórnar,
enda hefur þegar verið samið
um smíði umræddra togara. Til
þessara framkvæmda er ríkis-
stjórninni heimilt að taka allt
að 32 775 000 króna eða 1 250
þúsund sterlingspunda lán til
þess tíma og með þeim kjörum,
sem um semst. Veðsetja skal
togarana með fyrsta veðrétti til
tryggingar láninu, og skal sú
veðsetning halda fullu gildi,
þótt togararnir verði seldir.
ATKVÆÐAGREIÐSLAN
Atkvæðagreiðsian um for-
kaupsrétt bæjar- og sveitar-
félaganna að nýju togurun-
um tíu fór fram að viðhöfðu
nafnakalli. Allir þingmenn
Alþýðuflokksins og komm-
únista í deildinni greiddu
lienni atkvæði, en aðeins
þrír þingmenn Framsóknar-
flokksins og einn þirigmaður
Sjálfstæðisflokksins. Aðrir
þingmenn borgaraflokkanna
beggja greiddu atkvæði gegn
breytingartillögunni eða
voru fjarverandi. Borgar-
stjórinn í Reykjavík, Gunn-
ar Thoroddsen, var í liópi
þeirra þingmanna, sem
greiddu atkvæði gegn for-
Framhaíci á 7 síðu.