Alþýðublaðið - 22.02.1950, Side 5
B'IiSvikudagur 22. febrúar 1950
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
5
r;
I
SÍÐAN árið 1934 hef ' ég
aldrei séð eða heyrt nafn Hart-
vigs Frisch svo, að ég hafi ekki
tninnzt bókar hans, Pest over
Europa. Sú bók kom út sáma
árið og Hitler komst til valda í
Þýzkalandi. Eftir áramótin
1933—34 náði ég í þessa bók og
las hana af hinni mestu áfergju.
Höfundurinn var maður, sem
hafði til að bera mikla þekk-
íngu og sérstæða rökvísi, raun-
sær maður í bezta lagi og um
leið einlægur unnandi andlegs
frelsis, háleitra hugsjóna. og
sannrar mannhelgi. Sú aukna.
þekking, sem bókin veitti mér,
varð. mér síðan mikils virði og
enn fremur hitt, að ályktanir
höfundarins um tvíhöfðaða ó-
freskju nazisma og kommún-
Isma voru í innilegasta sam-
ræmi við skynsemi mína og
eðlisávísun og meðfædda and-
úð mína á hvoru tveggja: kúgun
og undirlægjuhætti. Upp frá
þessu hef ég haft hinar mestu
mætur á Hartvig Frisch sem
inthöfundi og persónuleika og
lesið flest það, sem frá hans
Iiendi hefur komið. En nú er
hann allur; nú býr hann hvorki
öér né öðrum í hendur ný vopn
gegn kvalalostugum harðstjór-
um og þýljmdum þjónum
þeirra, •— og ,ekki mun hann
smíða, andlegu frelsi, mannúð
og mannhelgi fleiri brynjur en
hann hefur þegar gert.
Hartvig Frisch fæddist í
Hilleröd á Sjálandi 17. janúar
1893, og var hann sonur skóla-
stjóra þar í borginni. Frisch
yarð stúdent 1910 og kandídat
með latínu sem aðalnámsgrein
árið 1917, en hafði 1914—’15
Verið kennari við menntaskól-
ann í Sórey. Árin 1917—1923
Var hann adjunkt við Aarhus
Katedralskole og frá 1923—’29
við Metrópólítanskólann í
Kaupmánnahöfn. Við. sama
skóla var hann svo lektor frá
1929—’41, en það ár skrifaði
liann doktorsritgerð um stjórn-
skipun Aþenubúa til forna.
Þykir hún afbragðsrit, og öll
framkoma Frisch, þá er hann
varði ritgerðina, þótti afburða
glæsileg. Hann varð svo pró-
fessor í fornmálunum við Kaup-
mannahafnarháskóla 1941 - og
gegndi hann því embætti, unz
hann varð menntamálaráð-
herra í stjórn Hans Hedtofts
árið 1947.
Hann gekk í Alþýðuflokkinn
danska 1911, og ræddi hann
-mikið félagsmál og stjórnmál í
studentafélagi þeirra alþýðu-
flokksmanna, en einnig í Stu-
dentersamfundet, félagi danskra
stúdenta af öllum flokkum, og
var hann formaður þess 1923—
1925. Árið 1926 bauð hann sig
fram til þings á Láglandi, og var
hann síðan einn af þingmönn-
um Láglendinga til dauðadags.
Frá 1935—'40 var hann for-
maður þingflokks jafnaðar-
manna og hafði orð fyrir þeim
í þjóðþinginu, en þá er Þjóð-
verjar höfðu hernumið Dan-
mörku, dró hann sig í hlé frá
hvoru tveggia þessara trún-
aðarstarfa. Þjóðverjar höfðu á
honum hinn versta bifur, og
auk þess mun hann vart hafa
treyst sér svo til að sigla milli
skers og báru, sem nauðsyn-
legt mun hafa verið talið, eins
og á statt var. Frá 1939-’45 var
hann í miðstjórn Alþýðuflokks-
ins, en allt frá 1924 var F'risch
í nánum tengslum við höfuð-
blað flokks síns, og þangað til
Hartvig Frisch -
Hartvig Frisch.
hann varð ráðherra ritaði hann
í það um stjórnmál og menn-
ingarmál, og bókmenníalegur
ritstjóri þess var hann á árun-
um milli 1930 og ‘40, þó að Júl-
íus Bomholt, núverandi forseti
þjóðþingsins og af mörgum tal-
inn væntanlegur eftirmaður
Frisch sem menntamálaráð-
herra, ritaði flesta ritdóma í
blaðið á þeim árum. Frisch
starfaði í mörgum veigamestu
nefndum þingsins, var t. d. í ut-
anríkismálanefnd frá 1945 og
þangað til hann varð ráðherra
— og um hríð formaður hennar.
Hann var einn af fulltrúum
Dana á fundum þjóðabanda-
lagsins og í alþjóðlega þing-
mannasambandinu, og var
hann í stjórn þess. Ilann mætti
á stofnfundi sameinuðu þjóð-
anna og síðan á fundum þeirrar
stofnunar, unz hann varð ráð-
herra. Hann var í fulltrúaráði
þjóðbankans —• og í útvarps-
ráði frá 1930—1947.
!
Hartvig Frisch var veiga-
mikill rithöfundur, hugsunin
skörp og rökvís, framsetningin
ljós og stíllinn jafnvægur, í
burðarlaus, en lífrænn. Sem
vísindamaður var Frisch talinn
gæddur ágætum gáfum, og þótti
hann einkum afbrigða skarp-
skyggn á sögu Grikkja og Róm-
verja og þau öfl, sem þar reynd-
ust örlögþrungin. Hann hafði
og sérlega gott lag á því, að
draga af sögu þessara fornu
öndvegisþjóða verðmætar á-
lyktanir um nútímann. Þrátt
fyrir það, að doktorsritgerð
Hartvigs Frisch var hin glæsi-
legasta, efuðust ýmsir um, að
hann mundi sem prófessor
hal^a sér að samningu vísinda-
legra rita, en hann gaf út mörg
slík rit þau sex ár, sem hann
var prófessor, og einkenni
þeirra vísindarita hans, sem ég
hef lesið, er það, að auk þess,
sem vísindaraenn telja þ.au hin
merkustu frá fræðilegu sjónar-
miði, hafa þau mjög mikið ai-
mennt gildi, eru svo Ijóst skrif-
uð, að þau koma að gagni
hverjum greindum og sæmi-
lega upplýstum manni. Af rit-
um Frisch vil ég einkum benda
þorra greindra manna á íslandi
á Pest overJSuropa og' Europas
kulturhistorie, en hún kom út
árið 1928 og mun koma út í
nýrri og endurskoðaðri útgáfu
á þessu ári. Þessi rit feia í sér
mikinn fróðleik, eru hin ágæt-
asta vörn andlegs frelsis og
meinlegur þröskuldur á vegi
ofstækis- og einræðismanna og
málaliðs þeirra eða ginningar-
fífla, svo á íslan.di sem í Dan-
mörku.
Sem kennari var .Hartvig
Frisch mjög rómaður. Andlegt
fjör hans, þekking hans og
framsetningargáfa voru eigin-
ieikar, sem voru vel til þess
fallnir að hrífa nemendurna,
hvort sem þeir voru lítt þrosk-
aðir unglingar eða menn, sem
höfðu náð allmiklum þroska og
vcru teknir að fara sínar eigin
brautir í hugsun.
Sem stjórnmálamaður var
Hartvig Frisch mjög mikilhæf-
ur. Hann var ágætur ræðumað-
ur, svo mælskur, að hann talaði
um hin vandasömustu mál án
þess að hafa skrifaðar ræður,
Hann var oft harðskeyttur og
allóvæginn, en þó drengilegur
í hvívetna, svo að jafnt flokks-
bræðrum sem heiðvirðum and-
stæðingum ber saman um það,
að hann hafi öðlazt traust og
virðingu allra þeirra, er með
honum unnu, hvað sem á milli
bar í skoðunum. Hann var á-
vallt hreinn og beinn, jafnvel
svo óvenjulega bersögull, að
flestum öðrum hefði orðið hált
á slíku — en drengskapur hans
og manndómur fékk því áork-
að, að ekki féll á hann varan-
legur skuggi, jafnvel þá, er
hann hélt fram mjög óvinsæl-
um skoðunum og óþægilegum
fyrir hans eigin flokk. Hann
sýndi og það, að hann, þessi
lærði bókabéus, gat sett sig
flestum betur inn í hin vanda-
sömustu fjármál og atvinnumál
og tekið forustuna um lausn
sumra þeirra. Hann vann sér
geipimikið álit sem mennta-
málaráðherra, svo að sæti hans
þykir þar mjög vandskipað.
Hann leysti ýmis vandamál,
sem legið höfðu frá tíð fyrrver-
andi ráðherra, en kom og fram
með fjölda af gagnlegum ný-
mælum. Hann fékk samþykkt
ný lög um yfirstjórn barna-
fræðslu og um eftirlit með
barnaskólum; hann fékk til
leiðar komið slíkum stuðningi
við danska myndlist, að lista-
menn hafa ekki nægilega sterk
orð honum til hróss; hann
hækkaði styrki til rithöíunda,
og nú liggur fyrir þinginu frá
hans hendi breyting á lögum
um alþýðubókasöfn, sem á að
koma því til vegar, að betra lag
Skinnaverksmiðjunnar Iðunnar, Akur-
eyri, verður opin í dag og næstu daga
frá kl. 10 f. h. til kl. 8 e. h. í Kirkju-
stræti 8.
Samband ísl samvlnnuiélaga.
Vörujöfnus? KRON
Y1-V2-V3
Þeim félagsmönnum, sem eiga ónotaða yörujöfnun-
arreiti VI, V2, V3 á vörujöfnunarkorti 1949 — 1950, vero
ur gefinn kostur á að nota þessa vörujöfnunarreiti til inn-
kaupa á vefnaðarvörum og skófatnaði og hefst þessi vöru.
jöfnun fimmtudaginn 23. febrúar.
Byrjað verður að afgreiða nr. 1.
Þeir félagsmenn, sem áttu að fá afgreiðslu dagana
17. og 19 desember (nr. 4221 og yfir), en gátu þá eigi kom-
ið, fá afgreiðslu tvo fyrstu daga jöfnunarinnar.
Nánar auglýst um afgreiðsluröð í matvörubúðunum.
komist á þessar stofnanir og að
þær verði til í hverri sveit og
hverju þorpi í Danmörku. Þá
þykir hann hafa sýnt afbrigða
lagni, þá er hann kom fram
mjög umdeildri breytingu á
réttritun Dana, og tókst honum
þar að sameina menn úr öllum
flokkum, þá menn, sem málinu
voru velviljaðir, en þetta var
annars mesta æsingamál.
Hartvig Frisch lá alllengi í
sjúkrahúsi, áður en hann lézt,
og upp á síðkastið vissi hann,
hvað í vændum var. Hann tók
þeirri vitneskju með frábærri
stillingu og hafði fram á sein-
ustu stundu hugann við óleyst
vandamál þjóðar sinnar og
mannkynsins alls. Upp úr
klukkan níu að kvöldi föstu-
dagsins 10. þ. m. ræddi hann í
heilan klukkutíma við vin sinn
og samstarfsmann, Hans Hed- j
toft forsætisráðherra — cg átta j
síundum eftir að þeir kvöddust
var það rúm autt á sviði stjórn-
mála og menningarmála, sem
Hartvig Frisch hafði skipað.
Fjöldi manna, innan lands og
utan, skoðanabræður og and-
stæðingar, hafa látið í Ijós
söknuð sinn út af fráfalli Hart-
vigs Frisch og vottað minningu.
hans virðingu. Daginn eftir lát
hans birtust í Social-Bemo-
kraten meðal annars ummæli
foringja allra lýðræðisflokk-
anna í Danmörku um hinn
látna afburðamann.
Foringi íhaldsmanna, Ole
Björn Kraft, segir meðal ann-
ars:
,,Á þeim viðsjálu árum, sem
framundan eru, mun mjög
verða saknað þessa forvígis-
manns lýðræðisstefnunnar í
Danmörku."
Vinstri maðurinn Thorkil
Kristensen, fy^rverandi fjár-
málaráðherra, segir:
„Þrátt fyrir mikla þekkingu
og um flest ákveðnar skoðanir
var hann á mörgum sviðum leit
andi andi. Hann vildi gjarna
finna færar leiðir í hinum nýja
bg viðsjála heimi, sem við nú
lifum í. Hann hlustaði mjög
fúslega á aðra menn gera grein
fyrir hugsunum sínum og hafði
mikinn áhuga á að ræða þær. Á
þessum tímum, þegar svo
margir ganga í skoðanaílíkum,
| heir hafa keypt í búð. er
það hressandi að hitta slíkan
mann.“
Jörgen Jörgensen, fyrrum
menntamálaráðherra og lengi
foringja radikala flokksins, far-
ast þannig orð:
| „Við fráfall Hartvígs Frisch
1 er orðið það skarð fyrir skildi,
sem enginn getur fyllt.“
LoKs segir Hans Hedtoft í
stuttri umsögn:
„Frelsi, sannleiki, mannúð og
þjóðfélagslegt réttlæti voru
hornsteinar lífsskoðunar ha.ns
og stjórnmálastarfsemi.“
Hartvig Frisch er fallinn í
valinn, en lengi mun starf hans
og stefna hafa áhrif sem heiíur
og lífgandi straumur í dönsk-
um stjórnmálum og menningar-
lífi — og rit hans eru þannig,
að vel mættu þau verða íslend-
ingum að gagni í viðnámi við
bölvöldum veraldar og í sókn
gegn þeím íslendingum, sem
þrá að mega hjálpa til við að
leggja fjötra austrænnar harð-
stjórnar og villimannlegs kvala
losta á þjóð sína, þá er hún loks
hefur hlotið mannsæmandi
lífskjör.
Kaupmannahöfn, 14. 2. 50.
Guðm. Gíslason Hagalí.n-
Bazar Kvenfélags
Álþýðuflokkslns
KVENFÉLAG ALÞÝÐU-
FLOKKSINS í Reykjavík hef
ur ákveðið að halda hinn ár-
lega bazar sinn 6. marz n. k.
Stjórn félagsins heitir því á
allar félagskonar að bregðast
vel við að þessu sinni eins og
endra nær og gefa muni á
bazarinn. Það er að vísu öílum
Ijóst; að á þessu eru miklir
örðugleikar, sökum þess hví-
líkur skortur er á efni til þess
að vinna úr. En af því tileíni
skal á það bent, að í.þessu sem
öðru félagsstarfi er það aðal-
atriðið, að þátttakan sé sem
mest, og þótt framlag hvers fyr
ir sig sé ef til vill ekki svo
stórt, þá safnast, þegar sam-
an kemur.
Félagskonur og svo aðrir,
sem kynnu að vilja styrkja
bazarinn. geta skilað munum
til hverfisstjóranna og fimrn
eftirtaldra kvenna, sem skipa
bazarnefndina: Herdís Bryn-
jólfsdóttir, Laugaveg 68, Ingi-
björg Magnúsdóttir, Bergþóru
götu 23, Emilía Höller, Laugar
veg 58, Rannveig Eyjólfsdótt-
ir, Ásvallágötu 53 og Guðmý
Árnadóttir, Blómvallagötu 13.
lesið Álþýðublaðið 1