Alþýðublaðið - 22.02.1950, Page 8
Gerizt áskrifendur
að Alþyðublaðinu.
Alþýðublaðið inn á
« bvert heimili. Hring-
ið í síma 4900 eða 4906.
Miðvikudagur 22. febrúar 1950
Börn og unglir.gar,
Komið og seljið j
Alþýðublaðið. |
Allir vilj'a kaupa l
Alþýðublaðið.
Ármann J. Lárusson vann í kapp-
glímu UMFR á mánudaginn
........................
Drengjaglímu vann Guðmundur Jónsson
SIGURVEGAEINN í fyrstu kappglímu Ungmennafélags
Reykjavíkur, sem háð var á mánudagskvöldið í Iðnó, varð Ar-
tiiann J. Lárusson. og er hann því fyrsti handhafi Glæsisbik-
arsins; en það er farandbikar, sem Oddur Jónasson, forstjóri í
eíkvilauginni Glæsi, hefur gefið ungmennaíélaginu, og mun
verða keppt um hann árlega.
Þrír efstu mennirnir < kapp- *
glímuhni voru Ármann Lárus-
sort, eins og áður segir, með 6
vinninga, og hlaut hann jafn-
franit fyrstu fegurðarverðlaun,
arniar varð Þormóður Þorkels-
son með 5 vinninga og önnur
fégurðarverðlaun, og þriðji
Gunr.ar Ólafsson með 4 vinn-
inga og þriðju fegurðarverð-
laun.
Enn fremur var keppt 'í
dréngjaflokki. og voru þátttak-
endúr fjórir. Sigurvegari varð
Guðmúndur Jónsson með 3
vinrtinga; en hinir urðu allir
ijafnir í fvrstu umferð og urðu
að keppa til úrslita. S.sévar varð
amiar; hlaut 1+2 vinninga; 3.
varð Heimir; hlaut 1+1 vinn-
ing og fjórði varð Kristján.með
1 vinning.
Fegurðarverðlaun voru einn-
ig veitt í þessari glímu, og hlaut
Héimir fyrstu fegurðarverð-
laun, Guðmundur önnur og
Sævar þriðju.
Formaður Ungmennafélgas
Reykjavíkur, Stefán Runólfs-
son, afhenti hverjum keppenda
mimiingargrip frá félaginu, til
minningar um þessa fyrstu
kappglímu þess.
eKjuswpimi
andarí
ÞJOÐARTEKJUR Banda-
ríkjanna 1949 voru 210 millj-
arðar dollara, og hafa aðeins
einu sinni, 1948, verið meiri.
Meðaltekjur fjölskyldu í land-
inu voru á árinu 30 000 kr., en
skipting á milli tekjuflokka er
sem hér segir: 4100 000 fjöl-
skyldur höfðu 9400 kr. árslaun
eða minna. 26 500 000 f jöl-
skyldur höfðu frá 9400 kr. til
47 Ó00 kr. árslaun. 6 900 000
fjölskyldur höfðu 47 til 94 þús.
kr. árslaun og 1 100 000 fjöl-
skyldur höfðu 94 000 kr. eða
meira. Meðaltekjur hvítra
fjölskyldna voru helmingi
meiri en svartra, en árið 1939
voru meðaltekjur hvítra fjöl-
sk+dna þrisvar sinnum meiri
en svartra. (Peningatekjur er
ekki varlegt að bera. saman við
önnur lönd, nema taka tillit til
verlags hjá hvoru um sig.)
3
í Verkalýðsfélagi Vesfm.
SIÐAST LIÐINN föstudag
og laugardag fór fram allsherj-
ar aíkvæðagreiðsla um stjórn
og trúnaðarmannaráð í Verka-
lýðsfélagi Vestmannaeyja. A
simnudaginn var aðalfundur
féíagsinÍ haldinn og jýst þar úr-
s’iíum kosninganna. Unnu lýð-
ræðissmnar glæsilegan sigur í
féígainu, hiutu 105 atkvæði, en
kommúnistar fengu aðcins 56
aíkvæði.
Þátt tóku í kosningunni 161
af 231 félagsmanni, 27 voru á
aúkakjörskrá. Voru allir menn
bæði í stjórn og trúnaðarmanna
ráð kosnir af lista lýðræðis-
sinna, sem hlaut 105 atkvæði,
F.U.J í kvöld
M ALFUNÐ AFLOKKUR
félags ungra jafnaðarmanna
í Reykjavík hefur fund í
kvöld. Þátttakendur eru
beSnir að mæta á venjuleg-
una stað og tíma.
eins og áður segir, en íisti kom-
múnista "hlaut 56 atkvæði.
Stjórnina skipa þessir menn:
Formaður Elías Sigfússon; vara
formaður Pétur Guðjónsson;
ritari Jón Stefánsson; gjaldkeri
Jón Magnússon; fjármálaritari
Elías Bérgur Guðjónsson.
armanna hefjasS
að ný|u í kvöld
í KVÖLD kl. 8,30 hefjast að
nýju hinir vinsælu málfundir
verzlunarmanna í Félagsheim-
ili verzlunarmanna. Eru fundir
þessir haldnir að tilhlutan skrif
stofumannadeildar og af-
greiðslumannadeildar félagsins,
og er í ráði að fá mann, sem
hfeur góða kunnáttu í fram-
sögu og ræðumennsku, til þess
að veita félagsmönnum tilsögn
í fyrravetur voru haldnir
fundir með svipuðu sniði, og
gáfu þeir mjög góða raun, og
það, sem gerði þá fjölbreytta
og skemmtilega, var, að menn
úr öllum flokkum tóku til máls.
Sfjórnarkjör í Al-
þýðufiokksfélagi
Reykjavíkur
LISTI yfir það Alþýðu-
flokksfólk, sem stungið hef
ur verið upp á til stjórnar-
kjörs í Alþýðuflokksfélagi
Reykjavíkur liggur nú
frammi á skrifstofu félags-
ins í Alþýðuliúsinu. Geta fé
lagsmenn bætt við tillögu
um nöfn næstu 10 daga. List
inn eins og hann. nú er
skipaður, er samkvæmt til-
lögum trúnaðarmannafund-
ar og uppstillinganefndar.
Vegir teppasi vegna
Mjólk verður þó
ekki skömmtuð f
dag, þsr eö Krísu-
vfkurvegur er fær
VESTAN OG NORÐVEST-
AN rok og snjókoma var um
mest allt land, í fyrrinótt og í
gær, að undanteknum sunnan
verðum Austfjörðum. Var veð
ur hæðin víðast hvar 8, 9 og
10 vindstig. Margir fjallvegir
munu hafa teppst vegna snjó-
komunnar. T. d. varð Hellis-
heiðin ófær í gærmorgun og
urðu Mjólkurbílar á leið til
Reykjavíkur að snúa við og
fara Krýsuvíkurveginn, en
hann var snjólaus. Mosfells-
heiðarvegurinn var líka snjó-
lettur, og fóru bílar Þingvalla
leiðina í gær, en þó voru nokkr
ar driftir komnar í Almanna-
gjá. Talið er að ekki komi til
mjólkurskömmtunar í Reykja
vík í dag.
Ekki hafa borizt nákvæmar
fréttir af norðurleiðinni, nema
hvað að frétzt hefur að vegir
umhverfis Akureyri séu illfæv-
ir eða ófærir vegna snjóa. Bif
reið fór þó yfir Holtavörðuheiði
í gær, en ekki hefur frétzt um
hvort áætlunarbifreiðarnar,
sem fóru héðan norður í gær-
morgun hafa farið yfir Holta-
vörðuheiði í gær, eða hvort far
þegarnir hafa gist í Forna-
hvammi.
Jón Oddgeir sýndi kvikmynd Slysa-
varnafél. 20 sinnum í Færeyjum
Myndin yakti mikinn áhuga hjá Færey*
ingum fyrir slysavarnamálum.,
JÓN ODDGEIR JÓNSSON, fulltrúi slysavarnafélagsins, er
nýkominn heim frá Færeyjum, en þar hefur hann dvalizt um
fimm vikna skeið og sýnt skvikmynd slysavarnafélagsins a£
björguninni við Látrabjarg. Alls hafði Jón um 20 sýningar á !>
stöðum, það er að segja á öllum eyjunum nema Sandey, þangaS
gaf aldrei meðan hann dvaldizt í Færevjum.
Blaðið átti stutt samtal við* : *
Jón Oddgeir í gær, og sagði
hann, að Færeyingar hefðu
haft mikinn áhuga fyrir mynd-
inni og að hún hefði vakið þá
til umhugsunar um slysavarna-
málin, en þar er ekkert slysa-
varnafélag stárfandi og engin
björgunartæki, svo sem hér
tíðkast. Sagðist Jón hafa átt tal
við marga leiðandi menn á
ýmsum stöðum, og hefðu þeir
verið fullir áhuga um þessi mál
og vildu gjarnan koma á ein-
hvers konar slysavarnastarf-
semi í eyjunum, og hefðu með-
al annars rætt um það, að tvö
stór félög, það er samtök sjó-
manna og skipstjóra, tækju
þessi mál upp á sína arma í
framtíðinni.
Eins og áður segir, sýndi Jón
kvikmyndina á 9 stöðum í Fær-
eyjum og hélt samtals 20 sýn-
ingar, en um 2000 manns mun
hafa séð myndina, og þykir
það góð sókn þar, þegar miðað
er við fámennið, því að fá þorp-
in telja yfir 1000 manns, og
samkomuhúsin eru lítil, rúma
fæst fleiri en um 100 manns.
Sýningaferðin tók nokkru
lengri tíma en búizt hafði verið
við í fyrstu, og kom það til af
því, að oft var Jón veðurteppt-
ur 2—3 daga á hverjum sýning-
arstað.
Fylgdarmaður Jóns Oddgeirs
á sýningarferðunum var Stig
Rasmussen, prentari, sem fyrir
nokkrum árum vann hér í ísa-
foldarprentsmiðju, og skýrði
hann myndina ásamt Jóni.
HÁLKA er um þessar mund-
ir með allra mesta móti á
götunum, og er því ástæða til
þess að brýna fyrir bifreiða-
stjórum að sýna fyllstu varúð
við aksturinn.
Skinnaverdsmiðjan Iðunn opnar í
dag sýningu a vörum sínum
SKINNAVERKSMIÐJAN vel samkeppnisfær á erlendum
IÐUNN opnar í dag sýningu á
vörum sínum í Kirkjustræti 8,
og verður sýningin opin nokkra
næstu daga. Hefur starfsemi
verksmiðjunnar vaxið ört und
anfarin ár, og vann hún í fyrra
úr 20.800 skinnum og 12000
húðum 15 tegundir skinna og
leðurs. Er vara þessi mjög eft-
irsótt innanlands til skógerð-
ar, fata, hanzkagerðar, söðla-
smíði ofl., en er einnig talin
markaði, ef innlenda eftir-
spurnin tæki ekki alla fram-
leiðsluna.
SÍS hóf fyrst gæruskinna-
verkun 1923, en fyrir þá tíð
voru gærur og skinn seld úr
landi óverkuð fyrir lítið verð.
Skinnaverksmiðjan Iðunn ec á
Akureyri, og hefur Þorsteinn
Davíðsson verið framkvæmda
stjóri hennar frá upphafi.
i samoanai j
fi kolaverkiallið
í Bandaríkjunum
ÓEIRÐIR urðu í gær á nokkr
um stöðum í Bandaríkjunum S
sambandi við kolanámuverk-
fallið, sem enn stendur yfir þar
vestra. I Pennsynvaníu réyndu
1000 Verkfallsmenn að kveikja
í námu, sem únnið var við, og
í Vestur-Virginíu var fjöldi
námumanna handtekinn eftib
árás á námumenn, sem vildu
vinna. Tæplega 400 000 náinu
menn eru í verkfalli gegn rétt
arskipun og í andstöðu við
John Lewis. Kolabirgðir hafa
sjaldan verið minni í Banda-
ríkjunum en nú, og stálfrara
leiðsla mun innan skamms
leggjast niður.
Spila- og skemmii-
kvöld 11. hverfisins
SPILA,- OG SKEMMTI-
KVÖLD 11. hverfis Alþýðu-
flokksfélags Reykjavíkur er
annað kvöld að Þórscafé.
Spiluð verður félagsvist, og
Haraldur Guðmundsson alþing-
ismaður flytur ræðu.
Félagar eru beðnir að hafa
með sér spil og mæta stundvís-
lega kl. 8.
Bezfu leikarar o§
kvikmyndsr 1949
HIN FRÆGU ,,Oscar“ verð-
laun fyrir bezta leik og beztu
kvikmynd ársins 1949 voru ný-
lega veitt í Hollywood. Bezta
leikkona ársins var kjörin Je-
anne Crain fyrir myndina
,,Pinky“. Önnur verðlaun
hlaut Olivia de Havilland fyrir
„The Heiress“ og einnig hlutu
verðlaun Susan Hayward, De-
borah Kerr og Loretta Young.
Beztúr leikari var kjörinn Bro.
derick Crawford fyrir mynd-
ina „All the King’s Men“, en
einnig hlutu verðlaun Kirk
Douglas, Gregory Peck, Ric-
hard Todd og John Wayne.
Beztu kvikmyndir ársins voru
kjörnar í þessari röð: „All the
King’s Men“, „BattIeground“,
„The Heiress“, „A Letter to
Thrée Wives“ og „Twelve
O’Clock High“.