Alþýðublaðið - 13.04.1950, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 13.04.1950, Blaðsíða 4
4 Útgefandi: Alþýðnflokkurinn. Ritstjóri: Stefán Pjetursson. Fréttastjóri: Benedikt Gröndal. Þingfréttir: Helgi Sæmundsson. Ritstjórnarsímar: 4901, 4902. Auglýsingar: Emilía Möller. Auglýsingasími: 4906. Afgreiðslusími: 4900. Aðsetur: Alþýðuhúsið. Alþýðuprentsmiðjan h.f. Björgvinshneykslið fulikomnað ÞAÐ er sök sér, að til sé svo ábyrgðarlaus braskari, að hann víli ekki fyrir sér að misnota hið. marglofaða athafnafrelsi atvinnurekandans til þess að stökkva úr landi með dýrmæt framleiðslutæki, eins og Björg vin Bjarnason gerði, er hann strauk með fióra báta sina frá ísafirði til Nýfundnalands og sendi síðan sjómenn sína kaup- lausa heim þaðan. En hitt er annað, og ennþá alvarlegra, að sjálf ríkisstjórnin skuli vera svo fylgispök við braskaralýð- inn, að leggja blessun sína yfir slíkan verknað. En það hefur núverandi ríkisstjórn okkar gert með útflutningsleyfi því, sem Ólafur Thors atvinnumála ráðherra hefur veitt strokuút- gerðarmanninum fyrir bátun- um, sem hann fór með. Fer skörin þá sannarlega að færast upp í bekkinn, þegar sjálf stjórnarvöld landsins láta gera sig þannig að skálkaskjóli til þess að ábyrgðarlausir ævin- týramenn geti svipt þjóðina bjargarmöguleikum, þegar þeim býður svo við að horfa og þeir sjá sér persórfulegan hag í því. Og það er alveg ó- hætt að fullyrða það, að ríkis- stjórnin hefur í þessu máli. breytt þvert um vilja allrar þjóðarinnar, efþeir fáu braskar ar eru undan skildir, sem kynnu að hafa hug á því að feta í fótspor Björgvins Bjarna sonar. Þeim er vitanlega það fordæmi, sem hér er skapað, ekki nema kærkomið. * Það er kapítuli út af fyrir sig, að Ólafur Thors hefur veitt Björgvini Bjarnasyni útflutn- ingsleyfið fyrir ísfirzku bátun- um í blóra við alþingi, sem nú situr á rökstólum og hefur með al annars mál Björgvins til umræðu. Þingmenn Alþýðu- flokksins fluttu fyrir nokkru tillögu til þingsályktunar á al- þingi einmitt um það, að rík- isstjórnin skyldi ekki veita út-. flutningsleyfi fyrir bátunum, og sú þingsályktunartillaga var enn óafgreidd, er Ólafur Thors tók sér vald til þess að veita leyfið. Það er því ómögulegt að segia annað, en að hann hafi með ákvörðun sinni beinlínis hundsað alþingi. Hitt er svo annað mál, hvort hann hefur máske á bak við tiöldin tryggt þessari ráðstöf- un sinni meirihlutastuðning á alþingi; en það er að minnsta kosti með öllu óhugsanlegt, nema töluverður hluti Fram- sóknarflokksins hafi ákveðið að leggja blessun sína einnig yfir þessa smán, eins og svo marg- ar aðrar, sem sá flokkur hefur tekið ábyrgð á síðan hann gekk í eina sæng með íhaldsflokkn- um. Má vel vera að svo sé. Engu að síður var ríkisstjórn- inni það siðferðislega skylt, að bíða afgreiðslu alþingis á þings ályktunartillögu Alþýðuflokks- ALÞÝÐUBLAÐIÐ Fimmtudagur 13. apríl' 1950. ins áður erf hún tók ákvörðun sína í þessu máli. En svo virð- ist, sem þeir herrar, sem nú sitja í ríkisstjórn, telji sig hafna yfir slíka háttvísi. Hið svokallaða Björgvinsmál er með ákvörðun Ólafs Thors, að veita honum útflutnings- leyfi fyrir ísfirzku bátunum, sem hann strauk með, orðið að stórfurðulegu hneyksli, miklu stærra hneyksli, en nokkurn óraði fyrir í fyrstu, að það gæti orðið. Að því er Björgvin sjálfan snertir, sýnir það, hvað óhlut- vandir braskarar oiga við, þeg ar þeir eru að lofsyngja „frjálst framtak“ og „athafna- frelsi“ sem einhvern helgi- dóm, sem allir eigi að virða og k-ygja sig í duftið fyrir. Það er vitanlega ágætt fyrir slíka ærumenn sem Björgvin Bjarnason að hafa ,,frelsi“ til þess að strjúka með nauðsyn- leg framleiðslutæki sjávarút- vegsins úr landi, senda sjó- menn sína kauplausa heim og skilja byggðarlag sitt fátæk- ara eftir í baráttunni fyrir at- vinnu og afkpmu. En frá sjón- armiði þeirra, sem eftir eru heima, og frá sjónarmiði þjóð- arinnar yfjrleitt, lítur slíkt ,,frelsi“ allt öðruvísi út, þegar það er misnotað svo freklega í eiginhagsmuna skyni á kostn að heildarinnar. Menn skvldu því hafa ætl- að, að sjálf ríkisstjórnin tæki hér í taumana, og hvetti að minnsta kosti ekki aðra til eftirbreytni með því að leggja blessun sína yfir til- tæki Björgvins og veita hon- um beinlínis útflutningsleyfi fyrir bátunum, sem hann fór með. En hvað kemur í ljós? Ríkisstjórn íhaldsflokksins og Framsóknarflokksins tekur af- stöðu með braskaranum á móti þjóðinni, sem hún á að sjá farborða, hvað atvinnu og afkomu snertir. Þar með er hneyksli Björgvins fyrst full- komnað, og það einnig orðið að hneyksli Ólafs Thors og raunar ríkistjórnarinnar allr- ar. En alþjóð manna er orðin einni sönnuninni ríkari um það en áður, að stjórn borg- araflokkanna miðar störf sín ekki við þjpðafhag, heldur við hagsmuni hinna fáu og ríku. Þeir eiga að fá að fara sínu fram um hvað eina, þó að al- þýðan, þjóðin í heild, bíði af því stórtjón! Tímaleiðari í Morg- Heimsókn á Kolhvitz-sýningima. — Djúpstæð og varanleg áhrif. — Um páskaegg, nöldur og hégómaskap. — Húsmóðir segir systur sinni til syndanna. ALLIR, sem koma á Kollwitz það er skortur á páskaeggjum“ MORGUNBLAÐIÐ var í stuttri ritstjórnargrein í gær að brígzla Alþýðuflokknum um það, að hafa „farið í fýlu“ úr ríkisstjórn eftir kosningarnar í haust, af því að hann af- þakkaði þann heiður að vera með íhaldsflokkunum í gengis lækkunarstjórn. Og enn frem- ur var blaðið að saka Alþýðu- flokkinn um samvinnu við kommúnista af sömu orsök- um! ^ Það er sannarlega ástæðu- laust að eyða mörgum orðum að slíkum skrifum, enda Al- þýðublaðið margsinnis búið að ómerkja slík orð í garð Al- þýðuflokksins í rökræðum sín- um við Tímann. Hin stutta ritstjórnargrein Morgunblaðs- ins í gær, hafði ekkert nýtt inni að halda; hún var aðeins upptugga úr Tímanum, meira að segja orðrétt, samanber kjafthátt Tímans í vetur um það, að Alþýðuflokkurinn væri að „fara í fýlu“ úr ríkisstjórn. Ritstjórnargrein Morgunblaðs- ins í gær var ekkert annað en venjulegur Tímaleiðari, þótt hún væri í Morgunblaðsdálki. sýninguna í . sýningarsal As- mundar Sveinssonar við Freyju götu munu verða fyrir djúp- stæðum og varanlegum áhrif- um. Ég þekkti nokkuð verk Káthe Kollwitz áður, kynntist þeim af bókum fyrir riiörgum árum og gleymdi aldrei neinum myndum hennar. Flestav þær myjidir, sem eru á sýningunni, hafði ég séð áður prentaðar og þær lifðu í huga mímim. Nú birtust þær mér skýrari og full komnari, og um leið áhrifa- meiri. . ■ MÖRGUM -MUN ÞYKJA sem ekki stafi neinn fegurðarljómi af þessari, svartlist sem túlkar eymd mannanná, sorg þeirra og kvöl. En þarna getur að líta myndir úr djúpunum, myndir listakonu, sem varð til sem lista kona, upp úr fyrri heimstyrjöld inni í fátækrahvérfum Berlínar borgar, en óvíða í Evröpu var eymdin ægilegri en einmitt þar. Slíku ber manni að kynnast. HÚSMÓMR skrifar mér á þessa leið: „Víkars-dálkum Morgunblaðsins er grein frá hús móður, og byrjar hún á þess- ari klausu: „Víkar góður. •— Mér datt í liug að senda þér nokkrar línur út af máli. sem margir hafa áhyggjur af, en Skrautfesti íkaldsstjórnarhmar ALMENNINGUR hefur enn ekki orðið var við þfer „hlið- arráðstafanir“ gengislækkun- arinnar, sem Framsóknar- flokkurinn sagðist setja að skilyrði fyrir aðild sinni að afgreiðslu hennar óg fram- kvæmd. Húsaleigan er hin sama og hún var; laun opin- berra starfsmanna hafa ver- ið lækkuð, þar eð uppbótin á laun þeirra hefur verið skert úr 20% í 15%, og verzlunar- hættirnir hafa breytzt að því leyti einu, að fjölmargar vörur hafa stórhækkað í verði svo og ýmisleg þjónusta. En loforðin um hækkun fisk- verðsins hafa verið svikin, svo að gengislækkunin legg- ur þungar byrðar á herðar þeirri atvinnustétt, sem hún átti þó fyrst og fremst að bjarga að dómi höfunda hennar og frumkvöðla. FYRIR PÁSKANA var hækk- un vara og þjónustu tilkynnt nær daglega. Það var engu líkara en að stjórnarvöldin væru að raða djásnum geng- islækkunarinnar upp á festi, og þau voru: Kolatonnið hækkaði úr kr. 240 í kr. 310; síma- og póstgjöld til útlanda hækkuðu að miklum mun; benzínlítrinn hækkaði úr kr. 1,12 í kr. 1,35; hráolíutonnið úr kr. 450 upp í kr. 653; gömlu dýrtíðarálögurnar, söluskatturinn, skatturinn á ferðagjaldeyri og skatturinn á nýjar bifreiðir, voru fram- lengdar, þrátt fyrir gengis- iækKunina og ofan á hana; fargjöld með flugvélum til út landa hækkuðu um 75%; kílóið af molasykri hækkaði úr kr. 2,55 upp í kr. 3,20 og kílóið af strásykri úr kr. 2,60 upp í kr. 2,85! NÚ HEFUR ENN EITT djásn- ið bætzt við þessa skrautfesti íhaldsstjórnarinnaE. Fargjöld íslenzkra skipa, er flytja vörur til landsins eða frá því, hækka um hvorki meira né minna en 45%. Raunar mun hafa orðið ágreiningur um það í verðlagsnefnd, hvort hækkun þessi skyldi nema 35% eða 45%, en auðvitað var miðað við hærri upphæð- ina, þegar endanleg ákvörð- un var tekin. Talið er, að kostnaður við rekstur hlutað- eigandi skipa aukist þó ekki um meira en 30—35%. Hitt er bróðurpartur viðkomandi burgeisa af ránsfeng gengis- lækkunarinnar, sem tekinn er úr vösum almennings. Þannig efnir ríkisstjórn það fyrirheit sitt, að hafa strangt eftirlit með því, að hækkanir vegna gengislækkunarinnar yrðu ekki umfram það, sem hinn aukni kostnaður næmi! ÞESSAR HLIÐARRÁÐSTAF- ANIR voru ekki á stefnuskrá stjórnarflokkanna, þegar gengislækkunin var afgreidd. En þeir hafa lagt því meira kapp á þær í framkvæmd- inni. Verðbólgan og dýrtíð- in vex óðfluga vegna ráðstaf- ananna, sem áttu að verða einmitt þessa válega meins bót. Svo eru stjómar- blöðin, Morgunblaðið, Tím- inn og Vísir, að tala um ábyrgðarleysi Alþýðuflokks- ins, sem varaði við þessu feigðarflani. Þeim væri sæmst að segja sannleikann um áhrif gengislækkunarinn- ar, telja upp hækkanirnar, sem þau stinga undir stól, og geta um „hliðarráðstafanirn- ar“, sem boðaðar voru við af- greiðslu gengislækkunarinn- ar. Nú fjasar Vísir um það, að hægur vandi sé að ala á óánægju vegna gengislækk- unarinnar og sakar Alþýðu- flokkinn um að leggja allt kapp á þá iðju. En er Vísir búinn að gleyma því, að höf- undar og frumkvöðlar geng- islækkunarinnar töldu hana bjargráð og lausn á öllum vanda samtíðarinnar? Dóm- ur reynslunnar yfir gengis- lækkuninni er nú að birtast. Hann er á allt aðra lund en áróður gengislækkunarpost- ulanna. Hann staðfestir það, sem Alþýðuflokkurinn boð- aði, að gengislækkunin væri engin lausn. Hún gerir að- eins^þá fátæku fátækari og hina ríku rikari og evkur þar — Ég varð bæði undrandi. og hugsandi eftir lestur þessarar klausu. Þessi húsmóðir virðíst ekki hafa miklar áhyggjur,: úr því hún gerir sér rellu út af vöntun á páskaeggjum. Það er auðséð, að hún þekkir ekki bar áttuna fyrir brýnustu lífsnauð- synjum, sem mörg heimili verða að heyja, sökum vaxandi at- vinnuleysis og verðhækkunár. ÉG . GET SAGT umræddri húsmóður það, að — mér er víst óhætt að segja allar okkar nema hún — við erum dauðfegnar að þessi munaðarvara fæst ekki lengur. Við losnum þá við suð- ið í börnunum, og spörum okk- ur fé um leið, því þessi varning ur hefur verið seldur rándýru verði, og oftast miður góður. Það veldur okkur ekki neinum „áhyggjum11 þótt þessi útlenzki páskaseggja-siður leggist niður. í mínu ungdæmi var páskahátíð in ekki óhátíðlegri þótt þessi súkkulaði-egg væru o:kki á borðum. MÉR FINNST LEIÐINLEGT þegar slík umkvörtun sem þessi, birtist frá íslenzkri húsmóður. Og það á þessum erfiðleikatím- um,' sem þjóðin okkar býr við nú. Hún hefði heldur átt að skrifa rækilega um peruskort- inn, sem margar húsmæður liafa áhyggjur út af. Það er ekki heppilegt að þurfa að stoppa og staga í garmana af krökkunum við 10 ker.ta peru — og það þegar sjónin er far- in að gefa sig. ANNARS HEFÐI þessi hús- móðir gott af að sjá sýninguna af verkum Káthe Kollwitz. Hún er mjög lærdómsrík. Teikning- arnar sem þar eru, segja sorg- arsögu af þeim, sem undir hafa orðið í lífsbaráttunni og búið við ógnir stríðsins. Maður sér hungr uð börnin með stór biðjandi augu rétta fram skálarnar.sínar og biðja um mat. Maður sér einnig börnin, sem halda í pils- feld þrautpíndrar sorgmæddrar móður og sárbiðja um brauð. ÞESSI SÝNING vakti mig til umhugsunar. Hún orkaði þann- ig á mig, að mér hefur aldrei þótt eins vænt um litla heimil- ið mitt og eftir að hafa skoðað hana. Mér fannst ég vera ham- ingjusöm að eiga hæli og nægj- anlegt til daglegra þarfa. Ég fór að hugsa um, að alltof oft gerði maður sér rellu út af smá munum. Og þegar ég sá, að hús. móðir í þessum bæ hafði miklar „áhyggjur út af páskaeggja skorti, get ég ekki orða buhd- izt“. Ufbreiílð Alþýðublaðið! með ójöfnuðinn í þjóðfélag- inu og magnar verðbólguna og dýrtíðina.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.