Alþýðublaðið - 13.04.1950, Blaðsíða 8
Gerizt áskrifendur
að Alþýðubiaðinu,
Alþýðublaðið inn á
I bvert heimili. Hring-
ið í síma 4900 eða'4908.
Fimmtudagsn 13. apríl 1950.
Börn og ungiingar.
Komið og seljið
Alþýðubiaðið. |
Allir viija kaupa j
Alþýðublaðið.
Félag Járniðnaðarmanna 30 ára
Siofnendur þess voru 17, en nú eru
í félaginu hátí á þriðja hundrað
I *—----»•—— --
Félagið á öfluga styrktarsjóði; félags-
menn greiða 520 kr, i félagsgöld á ári.
FÉLAG JÁKXIBXAÐARMANNA í REYKJAVÍK átti 30
ára afmæli síðast liömn þriðjudag. Félagið var stofnað 11. apríl
1920 í gamla alþýSuhúsinu við. Kverfisgötu. þar sem Alþýðu-
luisið stendur iuí. og voru stofnendur þess 17, en nú eru í félag-
inu hátt á þriðja hundrað manns.
Stjórn Járniðnaðarmanncifélagsins
ALLSHER J ARNEFND SAMEIN'AÐS ÞINGS hefur nú
skilað áliíi um þingsályktunartillögu Gylfa í». Gíslasonar og
Haraldar Guðmundssonar um kaup á lóðum í Jirjótaþorpinu
í Reykjavík. Leggur allsherjarnefndin til, að þingsályktunar-
tillagan verði samþykkt með þeirri brcytingu einni, að ríkis-
stjórninni verði heimilað að láía fram*tfara umrædda rann-
sókn og kaupa hlutaðeigandi lóðir í stað þess að henni er falið
þeíta í þitígsálykþunartillpgiinni. Er néfndin sammála um, að
rétt sé, að gengið verði úr skúgga um, eftir því, sem unnt er,
hvort bær Ingólís Arnarsonar hafi staðið á nefndum stað, og
veita ríkisstjórninni heimildir þær, er í tillögunni greinir, í
því skyni að tryggja það, að tilhlýðilegar ráðstafanir ver'ði
gerðar til verndár hinum fornhelgu minningum.
Félag já.rniðnaðarmarma er
nu með stérkustu verkalýðsfé-
lúgum landsins, og fá félög
rnnnu hafa betur skipulagða
styrktarsjóði, enda greiða með
lirnir þess 520 krónur á ári í
félagsgjöld.
.Þegar félagið var stofnað
liöfðu iðnaðarmenn lægri laun
en verkamenn. T. d. höfðu
verkamenn þá kr. 1,30 um
tímann, en járnsmiðir ekki
nema kr. 1,25.
,Auk hagsmunabaráttu stétt-
arinnar hefur eitt megin verk-
efni þess frá upphafi verið
það. að vernda og bæta vinnu
skilyrði járnsmiða og tryggja
meðlimi sína fyrir slysa- og
sjúkdómshættu. Á öðru ári
eftir stofnun félagsins var
stofnaður slysa- og sjúkra-
sjóður og árið 1940 var stofn-
aður ellilaunasjóður, sem mið-
aður er við það, að járnsmiðir,
sem orðnir ei*u 60 ára, fái úr
honum % af launum sveina í
iðngreininni. Þessi sjóður á nú
260 þúsund krónur.
Auk ellilaunasjóðsins starfa
svo slysa- og sjúkrasjóður og
ú.tfararsjóður. Úr sjúkrasjóðn-
um er félagsmönnum nú þeg-
ar greitt það mikið, ef þeir eru
frá vinnu sökum veikinda, að
þeir halda nálega fullum laun-
um, þegar með er talinn sá
sfyrkur, sem almannatrygg-
itigarnar greiða.
Á undanförnum árum hefur
verið mjög mikil viðkoma í
stétt járniðnaðarmanna, en
þess ber að geta, að mikill
Uianríkisverzlunin
minni é þessu
éri en í fyrra
VERZLUNIN við útlönd var
í febrúar og marz allmiklu
minni en sömu mánuði 1949,
að því er Hagstofan hefur
skýrt frá. Á þessu ári varð út-
fiatningurinn 42 917 830 kr.,
ea var í fyrra á sama tíma
48 014 650 kr., og hefur því
miönkað um rösklega 5 millj-
ónir. Innflutningurinn á sáma
tíma varð nú 43 785 510 kr., en
var í fyrra 56 052 080 kr. og
Iiefur því minnkað um tæplega
13 milljónir. Af helztu útflutn
ingsliðunum minnkaði ísfisk-
urinn úr 14,6' milljónum þessa
tvo mánuði 1949 í 5,1 milljón í
ár. Hins vegar jókst saltfisk-
urinn úr 3,7 milljónum í fyrra
í 11,2 milljónir nú.
hluti þeirra manna er nema
járnsmíði, halda áfram í vél-
stjóraskólann og gerast vél-
stjórar, en skilyrði fyrir vél-
stjóranámi er að menn hafi
áður unnið járnsmíði. Allir
þeir, sem útskrifast í iðn-
inni stöðvast því ekki í félag-
inu, en síðustu árin hafa þó
40—50 nýir meðlimir bætzt í
félagið. Nú eru samtals 233
nemendur í járniðnaði, rnis-
írunandi langt komnir, en bú-
ast má við að mikill hluti
þeirra haldi áfram vélstjóra-
námi. Járnsmiðanámið tekur
4 ár, en þeir, sem vilja verða
vélstjórar verða síðan að vera
3 ár i vélstjóraskólanum og
síðan að sigla eitt ár sem kynd
arar, unz þeir öðlazt vélstjóra
réttindi. Sjálft járnsmiðafag-
ið skiptist í sex greinar, það
er vélvirkjar, eldsmiðir, plötu-
og ketilsmiðir, rennismiðir,
málmsteypumenn og eirsmið-
ir.
Eitt af því, sem félagið hef-
ur beitt sér fyrir um mörg ár,
er bættur aðbúnaður á vinnu-
stöðvunum. Árangur af þessu
starfi er nú farinn að köma
í ljós. T. d. er það orðið þannig
hjá Hamri, að þar hefur verið
k; mið upp matstofu fyrir um
200 manns, þannig að starfs-
menriirnir þurfa ekki að fara
heim til sín í matmálstíman-
um, enda er þar einungis hálf
klukkustund til matar, en
starfsmennirnir hætta vinnu
kl. 4 á daginn. Þar geta starfs-
mennirnir fengið heitan mat
um hádegið fyrir 5 krónur, og
mælist þetta mjög vel fyrir
meðal starfsmannanna, og
svipað fyrirkomulag telja járn
smiðirnir að þyrfti að komast
á sem allra víðast.
Þann 4. marz í vetur hélt
félagið árshátíð sína og minnt-
ist þá jafnframt 30 ára afmæl-
isins. í tilefni af afmælinu
voru tveir af brautrýðjendum
félagsins kjörnir heiðusfélag-
ar, þeir Kristján Huseby og
Guðjón Sigurðsson. Áður
höfðu aðeins tveir menn verið
kjörnir heiðursfélagar, þeir
Filipus Ámundason og Einar
Bjarnason.
Fyrstu stjórn félagsins skip
uðu þessir menn:
• Loftur Bjarnason formaður,
Árni Jónsson ritari og Sigurð-
ur Sigdórsson gjaldkeri.
Formenn félagsins frá upp-
hafi hafa verið, auk Lofts
Bjarnasonar, þeir Loftur Þor-
steinsson, Filipus Ámundason,
Einar Bjarnason, Þorvaldur
Brynjólfsson, Snorri Jónsson
og Sigurjón Jónsson, núver-
andi formaður félagsins.
Nefndin birtir sem fylgis-
skjal með áliti sínu greinar-
gerð frá Kristjáni Eldjárn
þjóðminjaverði, en hún óskaði
eftir umsögn hans um málið.
Segir hann engum vafa undir-
orpið, að Reykjavíkurbærinn
hafi verið fyrir yestan kirkju-
garðinn gamia, rétt vestan við
Aðalstræti, enda séu allir, sem
um þetta hafi skrifað, á einu
máli um það,' Kr. Kálund, Ei-
rfkur Briesn, Jón Helgason og
Klemenz Jónsson, og auk þess
sjáist mætavel af uppdrætti af i
Reykjavík frá 1715, að þetta
var svo þá. Hitt segir þjóð-
minjavörður, að kynni að orka
tvímælis, hvernig bæjarhúsin
hafi snúið, enda hefur Jón
Helgason talið, að þau lægju í
beinni röð frá austri til vest-
urs frá norðvesturhorni kirkju
garðsins, þvert yfir Aðalstræti,
sem nú er, og upp að húsinu
Grjótagötu 4, framhlið bæjar-
ins móti suðri. Segist þjóð-
minjavörður þó telja gildari
ástæðu til að ætla, að húsin
hafi legið frá norðri til suð-
urs, framhlið mót austri, og
kveður sig fallast algerlega á
rök Eiríks Briem og Klemenz-
ar Jónssonar um þetta. Kirkj-
an hefur þá verið á hlaðinu
fram, líklega eitthvað til
vinstri frá, bæjardyrunum,
enda er þetta hin algengasta
afstaða bæjar og kirkju að
gömlum íslenzkum sið.
Að Reykjavíkurbærinn gamli
hafi á síðustu tímum staðið
,,um það bil þar, sem nú stend
ur húsið Grjótagata 4“, má
telja vafalaust, segir þjóð-
minjavörðúr enn fremur, en
svo fremi er það „bæjarstæði
Ingólfs Arnarsonar“, a5 bær-
inn hafi frá öndverðu staðið
á sama stað, en það er senni-
legt.
-------------------
Mótorhjóli stolið
Á PÁSKADAG var mótor-
hjólinu R 3945 stolið þaðan,
sem það stóð við húsið nr. 115
við Hringbraut. Hjólið var af
sænskri gerð, rautt að lit, en
annar hljólbarðinn svartur.
Pétur Kristjánsson
1
keppir á norrænu
sundmóti um helgina
HINN UNGI SUNDMAÐUR,
Pétur Kristjánsson, sem gat
sér mjög góðan orðstír á sund-
meistaramótinu hér um dag-
inn, fór utan í fyrradag tii
þess að taka þátt í norrænu
unglinga sund.meistaramóti,
sem haldið verður í Kaup-
mannahöfn á laugardaginn og'
, sunnudaginn.
Pétur mun keppa á sunnu-
: daginn og tekur hann þátt í
! 100 metra frjálsri aðferð. Skil-
yrði fyrir þátttakendur í þess-
ari grein, er að þeir hafi synt
vegalengdina á 1:06,5 mín, en
tími Péturs á sundmeistaramót
inu var 1:03,3 mín.
8 skíðaráð og hér-
aðasambönd í
)
skíðasambandinu
í SKÍÐASAMBANDI ÍS-
LANDS eru nú 8 héraðasam-
bönd og skíðaráð, með samtals
1231 meðlimi.
Meðlimir skíðasambandsins
eru þessir, samkv. ársskýrslu.
sambandsins fyrir síðasta starfs
ár: Héraðssamband Stranda-
manna, formaður Arngrímur
Guðbjörnsson. Virkir skíða-
ménn 90. Héraðssamband SuS-
ur Þingeyinga, formaður Har-
aldur Jónsson. Virkir skíða-
menn 62. íþróttabandalag
Hafnarfjarðar, formaður Gísií.
Sigurðsson. Virkir skíðamenn
55. Sldðaráð Akureyrar, for-
maður Gunnar Árnason, virkir
skíðamenn 250, Skíðaráð ísa-
fjarðar, formaður Pétur Péturs
son. Virkir skíðamenn 145..
Skíðaráð Reykjavíkur, formaS
ur tlaraldur Björnsson. Virkir
skíðamenn 369. Skíðaráð Siglu
fjarðar, formaður Helgi Sveins
son. Virkir skíðamenn 180 og
Skíoanefnd Ungmenna- og í-
þróttasambands Austurlands,
formaður Gunnar Ólafsson,
Virkir skíðamenn 80.
-----qgEac^—---
V
Uppstigning sýnd á
Akureyri á næstunni
S J ÓNLEIKÚRINN „Upp-
stigning“ eftir prófessor Sig-
urð Nordal verður næsta við-
fangsefni Leik'félags Akureyr-
ar, og munu sýningar hefjast í
þessum mánuði.
Æfingar hafa staðið yfir að
undanförnu og mun. þeim um
það bil að vera lokði. Leik-
stjóri verður Ágúst Kvaran.
Aðalhlutverkin verða leikirj.
af Guðmundi Gunnarssyni,
Birni Baldvinssyni, Matthildi.
Sveinsdóttur, Þóri Guðjóns-
syni og Jóníun Þorsteinsdótt.
ur.
Þeir, sem kynnu að hafa orðið’
hjólsins varir, eru beðnir að
gera rannsóknárlögreglunni aS
vart. ‘ !