Alþýðublaðið - 07.05.1950, Blaðsíða 8
Gerizt áskrifendur
að Alþýðublaðinu.
i Alþýðublaðið inn á
i bvert hertnili Hring-
i ið í síma 4900 eða 4906.
Sunnudagur 7. maí 1950.
Börri rii unglingaY.
Komið og seljið
Aíþýðublaðiðo ]
Allir vilja kaupa
Alþýðublaðið. !
í speglðsalnum í „Tivoli”
Dfltiifi ¥81,
ilMUUlllf
unnar minnkar
Lárus Salómonsson keppti fyrir Ánnann
son simn, sem ekki gat mætt til leiks,
---------*"%•>---—
ÚESLII í ’næfniglímunni, er frara fór a3 Hálogalandi í
fyrrakvöld urðu þau, að Rúnar Guðmundsson frá Urigmenha-
félaginu Vöku varð hæstur í fyrsta flokki, Steinn Guðmunds-
snn, Ármanni, í öðrum flokki og Ingólfur Guðmundsson, Ár-
manrii í þriðja fiokki.
Skipt var í flokka í glímunni
eftix þyngd keppenda. Þeir,
sem eru þyngri en 83 kg., skipa
fyrsta flókk: þeir, sem eru 77
—83 kg. að þyngd, skipa ann-
an flokk; og þeir, sem eru léít-
ari en 77 kg. skipa þriðja flokk.
Úrslit urðu annars þessi:
Fyrsti flokkur:
1. Rúnar Guðmundsson, UMF
Vöku, 58 stig.
2. Lárus Salamonsson, UMFR,
53!/2 stig.
3. Sigurður Sigurjónsson, KR,
52 stig.
Lárus Salomonsson keppti í
staðinn fyrir Ármann son sinn.
er ekki gat mætt til leiks.
Annar flokkur.
1. Steinn Guðmundsson, Á, 78
stig.
2. Gunpar Óiafsson, UMFR, 45
stig.
3. Gunnlaugur Ingason, Á, 42
stig.
Þriðji flokkur.
1. Ingólfur Guðnason, Á 208
stig.
2. Pétur Sigurðsson, ÍBA, 207
stig.
3. Eli Auðunsson, Umf Trausti,
167 stig.
INGÓLFUR JÓNSSON,
einn af þingmönnum Sjálf-
stæðisflokksins, lýsti nokk-
uð ástandínu hér á landi
rösklega mánuði eftir gengis
lækkunina, er hann ræddi
verzlunarmálin í neðri deild
í gær. Hann sagði að gjaid-
Æyrisástandið heíði aldrei
verið verra en nú, dýriíðin
Iiefði vaxiS gífurlega og kaup
máttur krómmnar færi stór-
um minnkandi. Jafnvel stuðn
ingsmenn genyS/lækkunar-
innar á þingi viðurkenna nú
þessa staðrevndir, sem al-
menningur finnur æ betur
með hverjum degi.
.Valnjberinn' setíur
upp við 8ankasíræ
FEGRUNARFÉLAGIÐ hefur
gefið bænum höggmyndina
„Vatnsberann" eftir Ásmund
Sveinsson, og óskar félagið eft-
ir því, að henni verði valinn
staður við Bankastræti,
TÍU BIFREIÐIR lentu í á-
rekstri í fyrradag hér í bæn-
um, og er það óvenjulega mik-
ið, eftir því sem verið hefur
að undan förnú. Slys urðu þá
engin á mönnum, en margar
bifreiðanna skemmdust . tals-
vert mikið.
Nemendasýning í myndlisfarskóla
Félags íslenzkra frístundamálara
------------—-» —
135 nemesidor voru í skóíanum í vetur,
en alls hafa um 4ÖÖ stondað þar nám.
OPNUS hefur verið nemendasýning í myndlistarskóla Fé-
lags ísienzkra frístundamálara, og verður sýningin opin þessa
vsku, Á sýriirigunni eru verk, sem nemendur hafa unniS í skól-
anum í vetur. Mýndlistarskólanum var nýdega slitið, og stund-
uðu 135 manns nám í skólanum í vetur. Er það fólk á öllum
aldri, aiíi upp í 65 ára. Frá því skólinn tók til starfa fyrir
þrerour árum hafa um 400 manns stundað nám í skólanum.
Hingað til hefur skólinn
starfað sem kvöldskóli. en
næstá vetur er ákveðið að deild
verði starfandi fyrir þá, sem]
stunda vilja námið að deginum
og gildir það jafnt fyrir þá, sem
æfcla sér að læra listmálun eða
höggmyndalist.
Geta má þess að einn nem-
andinn, sem sótt hefur kvöld-
námskeið í tvo vetur í högg-
myndadeíld Myndlistarskola
3?IF, á nú höggmynd á sýningu
myndlistarmanna í þjóðminja-
safninu. Hafði þessi nemandi
aldrei mótað í leir áður.
Kennarar við skólann eru
þessir: Ásmundur Sveinsson
myndhöggvari, Þorvaldur
Skúlasori listmálari og Kjartan
Guðjónsson listmálari.
Nemendasýning sú. sem nú
stendur yfir, verður aðeins op-
in þessa viku í húsakynnum
skólans, Laugavegi 166:
Það tognar úr honum, þessum tveggja vetra snáða, sem stendur
fyrir framan einn spéspegilinn í Tivoli þeirra í Kaupmannahöfn
og horfir undrandi á sjálfan sig.
8 þáftfakendur í fyrsfa frjálsí-
iróiíarnófi ársins, er fram fer í dac
Keppt verður í 9 fþrottagreinum,
FYRSTA frjálsíþróttamót arsins fer fram í dag á gamla
íþróttavellinum og hefst kl. 3 e. h. Keppt er í níu greinum,
en hátttakendur verða 58 frá 11 félögum.
Fyrst er keppt í 100 metra
hlaupi, þremur fiðlum. Þar
lendir þeim saman í seinasta
riðlinum kempunum Finnbirni
Þorvaldsyni, handhafa íslands-
metsins (10,5 sek.) og Hauk
Clausen, skæðum og hættuleg-
um keppinaut. í kúluvarpi
keppir meðal margra annarra
Evrópumeistarinn og Norður-
landamethafinn Gunnar .Huse-
by. Enn fremur margir gamlir
kappar; svo sem Bragi Guö-
mundsspn frá Siglufirði, Fr.iö-
rik Guðmundsson, Ástvaldur
Jónsson, Vilhjálmur Vilmund-
arson, Sigfús Sigurðsson frá
Selfossi og síðast en ekki sízt
Örn Clausen. í spiótkasti verð-
ur íslandsmeistarinn Jóel Sig-
urðsson sennilega ekki sigrað-
ur að þessu sinni, en tveir Ár-
menningar munu þó að
minnsta kosti veita honum
nokkurt aðhald. í 100 metra
hlaupi drengja keppa hvorki
meira né minna en 19 ungir
menn. í langstökki kvenna
keppa 4 ungar stúlkur, þeirra á
rneðal methafinn Hafdís Ragn-
arsdóttir, og í kringlukasti
karla keppa 12 menn, þeirra á
meðal Gunnar Husebv, ,sem
fyrir nokkru bætti íslandsmet-
ið um hátt á annan meter, en
auk hans t. d. þeir Ástvaldur
Jónsson, Bragi Friðriksson,
Örn Clausen, Ástvaldur Jóns-
son og Friðrik Guðmundsson,
svo nokkrir þeir þekktustu séu
nefndir. Að lokum fer fram
spennandi boðhlaup milli Ár-
manns, ÍR og KR, sem hvort
um sig senda tvær sveitir til
þeirrar keppni. Samtals taka
11 félög þátt í mótinu, og eru
keppendur 58.
Ekki er að efa að Reykvík-
ingar munu fjölmenna á völl-
inn í dag, því mönnum leiknr
að vonum forvitni á að kynnast
af eigin raun hvernig íþrótta-
mönnum okkar hefur tekizt að
halda þjálfuninni við yfir vet-
urinn. Þeirra bíðul* eldraun,
sem beðið er með mikilli ó-
þreyju. ekki aðeins hér á landi,
heldur og miklu víðar: Fyrsta
landskeppni í frjálsum íþrótt-
um, sem íslendingar heyja viö
aðra þjóð, að þessu sinni við
Dani. ..
25 vörubílstjérar og
NÝLEGA er lokið atvinnu-
leysisskráningu í Reykjavík og
skráðu sig samtals 42 menn,
þar af voru 25 vörubifreiða-
stjórar og 17 verkamenn. .
24 af bifreiðastjórunum eru
kvæntir og hafa fyrir samtals
58 börnum að sjá, en einn er
ókvæntur. Af verkamönnun-
um eru 12 einhleypir, en 5
kvæntir og hafa þeir 4 börn á
íramfæri.
Landslíðsveifin
í bridge fapar
Á S.L. VETRI skipaði stjorn
Bridgesambands íslands lands
liðssveit í bridge, er keppa
skyldi fyrir Islands hönd á Ev
rópumeistaramóti í þessari í-
þrótt, sem fram á að fara í Eng
landi n.k. sumar. Landsliðssveit
in var þannig 'skipuð: Hörður
Þórðarson (foringi sveitarinn-
ar), Einar Þorfinnsson, Lárus
Karlsson, Kristinn Bergþórs-
son, Örn Guðmundsson og Sig
urhjörtur Pétursson. Jafnframt
var tilkynnt að öðrum bridge-
spilurum væri heimilt að skora
á landsliðssveitina til einvígis.
Fyrir skömmu skoraði sveit
bridgemanna á landsliðssveit-
ina til einvígis. Sveitin skipuðu:
Guðlaugur Pétursson, Ingólfur
Isebarn, Skarphéðinn Péturs-
son og Gunngeir Pétursson. Á-
kveðið var að spiluð skyldu 100
spil í þremur lotum. Keppní
þessi hefur nú farið fram.
Fyrstu lotuna vann sveit Guð-
laugs með 7 stigum og voru þá
spiluð 32 spil, Aðra lotuna, 32
spii líka, vann sveit Guðlaugs
einnig með 16 stigum. Þriðju
lotuna vann landsliðssveitin
með 2 stigum. Hefur því lands-
liðssveitin tapað þessari keppn-
með samtals 21 stigi.
Ekki er enn vitað hvort nokk
urar breytingar verða gerðar á
sveit landsliðsins að þessari
prófraun lokinni og mun það
vera til athugunar hjá stjórn
Bridgesambandsins.
MÁLARÁÐUNEYTIÐ til-
kynnti í gær, að fjögur sænsk
fiskiskip hefðu horfið í austan
verðu Eystrasalti síðustu vik-
urnar, tvö þeirra fyrii* hálfum
mánuði, og hefur ekkert til
þeirra spurzt síðan.
Lítið efi er bó talinn á því, að
Rússar hafi tekið þessi skip
og haft þau með sér til hafnar
austan við Eystrasalt, eins og
svo oft hefur komið fyrir áður
bæði sænsk og dönsk fiskiskip.