Alþýðublaðið - 16.05.1950, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 16.05.1950, Blaðsíða 5
ÞriSjudagúr 16. maí 1950. ALÞÝÐL'RLAÐIÐ ---» UMRÆÐUR ÞESSAR hafa af hálfu hæstvirtrar ríkis- stjórnar að miklu leyti snúist upp í ádeilu á Alþýðuflokkinn fyrir að hann standi utan rík- ísstjórnarinnar og hafi neitað að taka þátt í gengisfelling- unni. Gera andmælendur ým- ist að bera Alþýðuflokknum vammir á brýn eða kvarta yfir að hafa hann ekki með sér x ríkisstjórn. Síðustu alþingiskosningar snerust að verulegu leyti um gengisfeilinguna. Við Alþýðuflokksmenn lýstum yfir í kosningunum að við værunr andstæðir gengislækkun. Kjósendur okkar kusu okkur á þeim for sendum. Við erum fulltrúar á alþingi fyrir þá, sem eru á móti gengislækkun. Eng- inn þarf að ganga þess dui- inn. Við hefðum brugðizt kjós- endum’ og kosningaloforðum, ef við hefðum snúist í lið með gengisækkunarmönnunum að loknum kosningum. Bæði Þjóð viljinn og Tíminn sögðu fyrir kosningar, að við myndurn svíkja kosningaloforð okkar og siú eru framsóknarmenn bál- vondir yfir því, að við uppfyll um ekki þennan spádóm ‘þeirra. Kemur þar fram, að margur heldur mann af sér mátulega dyggan. Loforð öðrumegin, svik hinumegin. Vonzka framsóknarmanna yfir orðheldni okkar Alþýðu- flokksmanna við okkar kosn- ingastefnu er skiljanleg, þeg- ar athuguð eru þeirra kosn- íngaloforð og þeirra orðheldni, svo sem rakið hefur verið hér í þessum útvarpsumræðum. Kjósendur Framsóknarflokks- ins og Sjálfstæiðsflokksins um allt land spyrja: Hvar er bless- un gengislækkunarinnar? Hvar eru hliðarráðstafanirnar, út- rýming svarta markaðsins, hvar er hið volduga verðlags- eftirlit, afnám húsaleiguokurs- íns, uppfylling loforðanna um næga skömmtunarvöru, breiðu hckin, sem bera áttu byrðarn- ar o .s. frv. o. s. frv.? Þeir mega lengi spyrja. Svarið verð ur hið sama og hjá Bólu-Hjálm ari með tóman klyfjahestinn: ..Ioforð öðru megin og svik hinu megin“. „Hin góðy áhrif“ gengisfallsins. Hæstvirtur forsætisráðherra kvartaði yfir því hér í gær, að Alþýðuflokkurinn stæði' við hlið kommúnista í því að eyði ieggja hin góðu áhrif gengis- íækkunarlaganna. Þetta er ekki rétt. í fyrsta lagi stendur Alþýðu flokkurinn ekki við hlið kom- múnista í þessu máli. Alþýðu- flokkurinn er eindreginn í and etöðunni gegn lagasetningunni, cn Kommúnistaflokkurinn hef- ur m. a. verið með tillögu um að Iáta útvegsmer.n selja helming gjaldeyrisins á svört um markaði, sem myndi verðfella gjaldeyrinn enn meira, ef hann gæti á þann hátt náð sínu takmarki. í öðru lagi sjást engin góð Finnur Jónsson: Gengislækkunin hefur enn eigi valdið öðm en tjóni og vandræðum í hvívefna. FINNUR JÓNSSON talaði síðastur af hálfu Alþýðú- flokksins í útvarpsumræðunum á alþingi í vikunni, senr leið, og deildi hart á gengislækkunina, ekki hvað sízt fyrir það, hvernig hún hefði þegar leikið bátaútveginn, sem hún átti að biarga. Alþj’óublaðið birtir ræðu Finns Jónssonar hér með orðrétta. áhrif gengislækkunarinrtar. í þriðja lagi hvolfast yfir rík isstjórnina andmæli gegn á- hrifum gengisíækkunarinnar frá framsóknarmönnum og sjálfstæðismönnum. Ekki hef- ur Alþýðuflokkurinn staðið að fundurn bænda austanfjalls eða í Borgarfirði, þar sem bændur hafa gert kröfur til l'íkisstjórnarinnar og mótmælt verðhækkun á tilbúnum á- burði, verðhækkun á benzíni og verðhækkun á landbúnað- arvélum! Ekki hefur Alþýðu- flokkurinn stjórnað umkvört- unum útvegsmanna, sem sent hafa hverja nefndina á fætur annarri á fund hæstvirts at- vinnumálaráðherra til þess að :,annfæra hann um, að hagur bátaútvegsins" er lakari . eftir gengislækkun- ina en áður. Þetta hafa flest verið ágætir sjálfstæðismenn, og svörin, nem þeir hafa fengið, hafa jafn an verið þessi: ,,Ætlið þið að drepa Sjálfstæðisflokkinn með því að segja frá þessu opin- berlega.“ Og útvegsmanna- nefndirnar hafa snúið aftur vonsviknar til funda landssam bands útvegsmanna, þar sagt sínar farir ekki sléttar og setið þar hnípnar og ráðvilltar. Þeir hafa eins og bændur, cg eins og Alþýðuflokkurinn, leitað að blessun gengislækkunarinnar en eigi fundið hana. Bjargráðin svonefndu við útgcrðina hafa í framkvæmd og höndum núverandx ríkis- stjórnar snúist upp í bölv- un. Hið sama hefur orðið uppi á teningnum hjá sjómönnum, verkamönnum, iðnaðarmönn- um, verzlunarmönnum og embættismönnum. Öllum hef- ur verið lofað öllu fögru af .hæstvirtri ríkisstjórn, en veru loikinn hefur verið allur ann- ar. Ríkisstjórnin er blind fyrir þessu. Síðast í gærkvöldi ræddi hæstvirtur. forsætisráðherra um ,,smáfórnir“. Staðreyndirnar blasa þó við. I skjóli gengislækkunarinn- ar hafa ýmsir braskarar grætt stórfé á innflutningi og útflutningi án þess að nokkur tilraun sé gerð af hálfu hæstvirtrar ríkisstjórn ar til þess að hafa hendur í hári þeirra. Hins vegar hef- ur gengislækkunin, eins og hún hefur veri'ð framkvæmd, enn eigi valdið Öðru en tjóni og vandræðum í hví-. vetna. • Þetta er ekki eingöngu reynsla Alþýðuflokksins, held ur sameiginleg skoðun allra stétta, nema örfárra braskara, | r.em í skjóli lélégrar lagasetn- I ingar og ónógs eftirlits hafa I Finnur Jónsson. grætt of fjár á gengislækkun- inni. Eina björgunar- starfið, sem tókst. Hin eina björgunarstarf- semi hæstvirtrar ríkisstjórnar, sem sannarlega hefur tekizt, er sú, að bjarga Björgvin i Bjarnasyni ur landi. Mér virð- ist afgreiðsla hæstvirtrar rík- isstjórnar á því máli vera tákn ræn fyrir hina svonefndu björgun hennar við atvinnu- vegina. Utgerðarmaður fer úr iandi með fjögur skip, öll eik- exbyggð, eitt er gamalt, en gott síldarskip, sem lengi var með hæstu síldarskipum, tvö eru aðeins 15 ára og eitt er 10 ára gamalt. Skipunum er ágæt legá við haldið. Eigandinn býðst tií að greiða sjóveðskröf ur skipverja með því skilyrði að hann fái útflutningsleyfi mannsins. Ríkisstjórnin segir, að Björgvin verði að borga rneira en sjóveðskröfurnar. Björgvin fellst á það, en segir nm leið: ,.Ef ég á að borga meira, verð ég að fá útflutning á öllu lausafé mínu á ísafirði“. Ríkisstjórnin fellst á það, og sendir á eftir Björgvin 20 smá- (estir af herpinótum og fjóra snyrpibáta með vélum og til- heyrandi. Björgvin setur trygg ! ingu fyrir greiðslu á 1.7 millj. króna. Kröfuhafar fyrir tveim miiljónum króna fá ekki tæki færi til að lýsa þeim, og Björg vin er fyrsti útgerðarmaður- inn, sem fær útstríkað aðstoð- arlán frá ríkisjóði. Kærur fyr- ir stórkostleg gjaldeyrissvik og anriað verra athæfi eru látn ar niður falla. Flóttinn frá á- kærum, skuldum og skuldbind ingum er verðlaunaður með útflutningi skipanna. Hæstvirt ur atvinnumálaráðherra, Olaf- ur Thors, sagði í gærkvöldi, að hann hefði sett kíkinn fyrir þrinda augaö. Jafnframt fuil- yrti hann og hafði sér tl' af- tókunar. að hin ágætu skip ís- firðinga væru fúaduggur. Þann ig rflótti og -s-vik verðiaun- uð af hæstvirtri ríkistjórn. Einn treysti Sjálfstæðis- flokkurinn sér ekki til þess að framkvæma þetta. Hann þurfti að fá Framsókn í ríkisstjórn- ina með sér til að deila ábyrgð inni. Með þessu hefur verið sett fordæmi, sem varla á sinn líka í stjórnmála- eða atvinnu sögunni. Útgerðarmaður, sem Oýr úr landi með skip sín, setur ríkisstjórninni skilvrði fyrir lögveðsgreiðslum og fær íulla áhreyrn hjá hæstvirtri ríkisstjórn á sama tíma og þeir útvegsmenn, sem heima sitja, eru látnir bíða afgreiðslu. Ein áhrif gengisfallsins, sem. okki hefur verið bent á, er verðfall íslenzkra afurða á ei- iendum markaði. Kaupcndum er kunnug gengisíelling krón- unnar, og nokkur dæmi munu nú þegar vera til þess, aö kraf- izt hefur verið verðlækkunai þeim grundvelli. Arinais ryrir skipunum. Fyrrverandi væri óskiljanleg sú verðiækk- un, sem orðið hefur á sait- fiski t. d. á Ítalíu. Hiutverk Alþýð'u- flokksios. Tírninn ieyfir eigi að ég fari ríkísstjórnarinnar og stroku- nánar út í þetta mál, en ég vil ríkisstjórn, minnihlutastjórn Sjálfstæðisilokksins. neitaði um leyfið. Dollarar útflytjand ans hækkk í verði, krónan er felld, skuldirnar lækka. Frarn- sóknarflokkurinn myndar rík- isstjórn með Sjálfstæðisflokkn um. Samningar hefjast milli Nr. 13/1950.\ Ríkisstjórnin hefur : ákveðið nýtt hámarks- verð á skömmtuðu smjöri ,sem hér segir: í heildsölu kr. 22,50 pr. kg. í smáSöIu kr. 24.00 pr. kg. Reykjavík, 15.*maí 1950. V er ðla gsstj órinn. ■ ■ Onnums! kaup og söiu fasieigna og alls konar samningagerðir. SALA og SAMNINGAJt Aðaistræti 18. Sími 6916. að lokum víkja ■ riokkrum orð- um að hinum eðlilega þætti stjórnarandstöðunnar. Ýmsar aðgerðir núverandi stjórnarflokka ganga mjög á rétt sjómanna, verkamanna, iðnaðarmanna og annarra iaunastétta í landinu. Á þessu þarf að .hafa vakandi auga og veita sem öfiugasta andstöðu. Þetta er hlutverk Alþýðu- flokksins. Kjósentlur Kommúnista- flokksins eru yfirleitt ár sömu stéttum og kjósendur Alþýðuflokksins, en for- ustumenn kommúnista sinrxa fyrst og fremst hagsmunum Rússa. og er því í engu trú- andi til aS gæta ré.ttar eða hagsmuna launastéítanna. Hæstvirtur atvinnumálaráð- herra varð að viðurkenna í gærkvöldi, að Alþýðuflokkur- :nn hefði mörgu góðu til leið- ot komið með stjórnmiíaba:-'- áttu sinni. ÍÞetta eru orð að sönnu. En hinn góði árangur af baráttu Alþýðuflokksins hefur ýriiist náðsi með stjórn- arsamvinnu eða í stjórnarand- stöðu. Það er Alþýðuflokksins cins og einskis annars að á- kveða, hverja leið hann telur að hverju sínni líklegasta til árangurs. Hlutverk AÍþýðu- flokksins hefur oft verið það, að fá aðra flokka, þ. á m. Sjátf stæðisflokkinn til þess að fram kvæma hið .góða, sem hann annars ekki vildi gera, því sá flokkur hefur síður en svo ver ið á sömu línu og postulinn Páll. Stundum hefur þetta tek- ist eftir ítrekaðar tilraunir. Fé- lagsmálalöggjöf okkar og kjör almenníngs í landinu beia þess ljósan vott. Jafnsðarstefna og komrmíhÉsmi. Kommúnistum, sem sífelít eru að reka hornin í Alþýðu- fiokkinn. skal á það bent, að Alþýðuflokkurinn var stofnað- ur 1916 og byltingin í. Rúss- iandi var gerð á næsta ári, 1917. Þessi fyrirtæki mega þvx heita jafngömul. .4 þessum árum heíur AJ- þýSuflokknunx með staríx sínu í verkalýðsfélögunum og á alþingi tekizt að bæta stórkostlega kjör alþýðunn- ar á Islandi. þannig að hú«x á við ólíkt beíri kiör að búa, og þar að auki fullt frelsi, heldur en alþýðan. í hin»x volduga Rússlandi, þar sem kommúnisminn er einráð- ur; þar býr alþýðan við kúg- un, örbirgð og ófrclsi. Slíkur er munur á árangri af starfi lýðræðjsjafnaðar- manna og. kommúnista. Hér á íslandi hafa kommúnistar taf- ið framgang jafnaðarstefn-. unnar með því að berjast harS Lega gegn Alþýðuflokknum, en Alþýðufiokkurinn heldur ó- trauður áfram að berjast fyrir Framh. á 7. síðu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.