Alþýðublaðið - 17.05.1950, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 17.05.1950, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 17. maí 1950. ALÞYÐUBLAÐIÐ 3 f DAG er miðvikiyiagurinn 17. maí. Þjóðhátíðardagur Norð manna. Þennan tlga árið 1804 tók Napoleon mikli við keisara tign í Frakklantli. Sólarupprás var kl. 4.09. Sól arlag Verður kl. 22,42. Árdeg- isháflæður er kl. 7,25. Siðdegis háflæður verður kl. 18,45. Sól er hæst á lofti í Reykjavík kl. 13,24. Næturvarzla: Laugavegsapó- tek, sími 1618. Flugfcrðir FLUGFÉLAG ÍSLANDS: Gull- faxi kom í fyrrnótt. Fer n. k. laugardag til Khafnar. LOFTLEIÐIR: Geysir fór í gær - kvöldi kl. 23,00 til Khafnar. Sklpafréttir Laxfoss fer frá Reykjavík kl. S, frá Akranesi kl. 9,30. Frá Reyk’javík kl. 13, frá Borgar- nesi kl. 18 og frá Akranesi kl. 20. Hekla fór frá Akureyri í gær austur um land til Reykjavík- ur. Esja var væntanleg til Rvík- nr í morgun að vestan og horð- an. Herðubreið fer frá Reykja- vík í kvöld austur um land til Mjóafjarðar. Skjaldbreiö fór frá Reykjavík í gærkvöldi i.il Skagafjarðar- og Eýjafjarðar- hafna. Þyrill er í Réykjávík. Ármann fór frá Revkjavík í gærkvöldi til Vestmannaeyja. Arnarfell er í Aþenu. fívassa fell fór frá Bremen í gær áleið ís til Reyðarfjarðar. Katla fer væntaniega í dag frá Napobil til Ibiza. Blöð og tímarit Tímaritið „Ægir“, mar-apríl heftið er nýkomið út. Efni: Gerig islækkunin og bátaútvegurinn, Svipmjmdir frá netsíldarvertíð Norðmanna, Síldveiðar og síld- véiðarfæri á Norðurlöndum, Hag nýting síldarsoðs, Manntjón og skipstapar í nlarz og apríl, út- gerð og aflabrög'ð, Raddir ann- ars o.m. fl. Gangleri, 1. hefti 24 árgangs hefur blaðinu borizt. Flytur það greinarnár Vizkuskólar, Guð- spekilegt líf og Meingerðámað- urinn eftir Gretar Fells, Eigum við að biðja? Hvers eigum við að foiðja? eftir Þorlák Ófeigsson, Litirnir og áhrif þeirra eftir Jón Árnason prentara, nokkur kvæði og margt ileira. Skinfaxi, tímarit UMFÍ 1. hefti 1950, er nýkomið út. Efni: Afturelding, kvæði eftir Þór- odd Guðmundssori frá Sandi, við tal við formann Ungmennafé- lags Reykjavíkur, Stefán Run- ólfsson, Þjóðdansar á Norðui'- löndum eftir Sigríði Valgéirs- dóttur, Barrskógar á íslandi eft ir Helga Kr. Einarsson o. fl. Dýraveíridarinn, 1-3 tbl. 1950, er nýkominn út. Efni: Minn- ingar, eftir Emií Tómasson, 20.30 Upplestur og tónleikar: Um Oslóborg. 21.15 Tónleikar: Ballade í g- nioll eftir Grieg (plötur). 21.30 Erindi: Frá íslenzkri konu í Osló (Einar M. Jónsson). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Danslög (plötur). Endurminningar frá vetrinurri 1918 eftir Jón N. Jónsson og margar smásögur og' frásagnir. Skemmtanlr Austurbæjarbíó (sími 1384): ,,Sandfok“ (amerísk). — John Wayne, Sigrid Gurie, Charles Coburn. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Gamla Bíó (simi 1475:) — „Lady Hamilton“ (ensk). Vivi- en Leigh, Laurence Olivier. Sýnd kl. 9. „Bófarnir í Ari- zona.“ James Warren, Steve Brodie. Sýnd kl. 5 og 7. Hafnarbíó (sími 6444): — „Nóttin langa“ (amerísk). Hen- ry Fonda, Vincent Price o. fl. Sýnd kl. 7 og 9. Nýja Bíó (sími 1544): — „Ráðskona Baggabræðra“ •—- (sænsk). Alolf Jahr, Emy Hat- man. Sýnd kl. 9. „Fuzzy sem póstræningi.“ Sýnd kl. 5 og 7. Stjörnubíó (sími 81936): — ,,Tvífarinn“ (amerísk). Rex Harrison, Karen Verns. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Tjarnarbíó (sími 6485): — „Adam og Eva“ (ensk). Stew- art Granger, Jean Simmons. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Tripolibíó (sími 1182): — „Fanginn í Zenda“ (amerísk). Roland Colman, Madeloino Carroll, Douglas Faribanks jr. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bæjarbíó, Haínarfirði (sími 9184): „Járnkórónan“ (ítölsk). Massimo Girotti, Luisa Ferida. Sýnd kl. 7 og 9. Hafnarfjarðarbíó (sími 9249): „Ástarbréf skáldsins (amerísk). Susan Hayward og Robert Cummings. Sýnl kl. 7 og 9. — „Gissur og Rasmína fyrir rétti1 (amerísk). Sýnd kl. 5. ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ: í dag kl. 20: Nýársnóttin. Á morgun kl. 20: Nýársnóttin. 6AMKOMUHÚS: íngólfscafé: Eldri ' tíansarnir 1:1. 9,30 síðd. Iffnó: Sjómannafélag Reykja- víkur, dansleikur kl. 9,30 s. d. Or öSIum átturu Vegfarendur: Farið aldrei út á götu fyrir aftan strætisvagn eða aðrar bifreiðir. Siíkt hel- ur valdið mörg'um dauðasiys- um. f tiléfni þjóðhátíðardags Norð- manna taka sendiherrahjónin 'iorsku á móti gestum í norska teridiherrabústaðnum í dag kl. 1S—18. Leiðrétíing': Nafn eins-manns ins, sem útskrifaðist úr raf- magnsdeild Vélstjóraskólans í vor misritaðist í frétt í blaðinu i gær. Stóð í fréttinni Björn Á. ólafsson, en maðurinri heitir 'liörn Andrés Óskarsson. Biðst blaðið velvirðingar á þessum mistökurri. Munið Minningarsjóð frú öldri Möller leikkonu. Hægt er sið skrifa sig fyrir framlógum í nfgreiðslu Alþýðublaðsins, einn ig hjá ö'ðrum dagblöðum, viku- blaðinu Fálkanum og í bóka- búðum. iVlessiir á morgun Dómkirkjan: M'essa kl. 11. Séra Jón Auouns. Haligrímskirkja: Messa kl. 11 f. h. Séra Sigurjón Árnason pre- dikar. Laugarneskirkja: Messa kl; 2 e. h. Séra Garðar Svavarsson. iínféníuhljémsveifin MOZART — BRAHMS Föstudagskvöld 19. þ. m. kl. 8.30 í Þjóðleiknúsinu. Stjórnandi: Robert Abraham. Einleikari: W. Lanzky-Otto. Aðgöngumiðar á 15 og 20 krónur seldir í dag frá kl. 1.15 í Þióðleikhúsinu. FUNDUR í Blaðamannafé- iagi íslands, haldinn í gær, sam- þykkti einróma eftirfarandi: „Fundur í Blaðamannafélagi íslands, haldinn 16. mai 1950, lýsir óblandinni ánægju sinni yfir þeirri ósk, er fram kemur í bréfi, dagsettu í gær, frá stjórnum þriggja stærstu í- þróttafélaganna í Reykjavík, Ármánni, íþróttafélagi Reykja- víkur og Knattspyrnufélagi Reykjavíkur, um að áfram megi haldast sú góða samvinna. er ætíð hefur ríkt milli blaða- manna og fyrr nefndra félaga: slíkt er einmitt gagnkvæm ósk blaðamanna, og fullvissar fund- urinn fyrr nefnd félög um, að svo muni verða frá hálfu blaða- manna. Jafníramt þakkar Blaðamannafélag íslands stjórnum fyrr nefndra félaga fyrir drengilega og afdráttar- lausa yfirlýsingu þeirra um rétt blaðamanna til aðgangs að íþrótta- og leikmótum fyrr nefndra félaga, gegn , framvís- un félagsskírteinis í Blaða- mannafélagi íslands. Fundurinn ályktar enn fremur, með íilliti til þeirrar góðu samvinnu, er ríkt hefur milii blaoamanna og' íþrótta- .amtakanna, að íélagsmenn skrifi hér eftir sem hingað til fréttir og greinar um málefni hvers þess íþróttafélags og sér- sambands, er viðurkennir rétt- indi blaðamanna, eins og Ár- mann, Í.R. og K.R. hafá nú gert, en hins veg'ar ítrekar fUndurinn fyrri samþykkt fé- lagsins um að félagsmenn birti ekki fréttir frá Í.S.Í. og skrifi ekki fréttir né greinar um íþróttamót þeirra félaga eða rérsambanda, sem ekki viður- kenna aðgangsrétt blaðamanna að íþrótta- og kappmótum sín- nm gegn framvísun fullgilds fé- lagsskírteinis í Blaðamannafé- iagi íslands.“ Fundurinn‘fól stjórn félags- ins að senda blöðunum til birt- ingar samþykkt þessa, ásamt meðfylgjandi greinargerð: Það ætti að sjálfsögðu að vera óþarfi, en skal þó gert, að laka það frarri, að blaðamenn óska einhuga eftir góðri sam- vinnu við íþróttasamtökin eins og verið hefur. Gangur þessa máls er í stuttu máli. að síðasta marz s. 1., að undan gengnu mjög vinsamlegu samtáli við forseta Í.S.Í., hr. Benedikt G. Waage, skrifaði Blaðamannafé- lag íslands íþróttasambandi ís- lands og óskaði staðfesíingar á anna við ÍS joví, að félagsskírteini í B.í. veitti aðgang að íþróttamótum hinna ýmsu félaga og sérsam- banda innan Í.S.Í., og stóð B.í. í þeirri trú, að hér væri aðeins um formlega staðfestingu að ræða á því, sem viðkomandi aðiiar væru sammála um. Fyrsta svar stjórnar Í.S.Í. við málaleitun B.í. verður einna helzt að teljast neitun, en ítrek- uðum tilmælum svaraði stjórn Í.S.Í. þannig, að málið skyldi athugað. Milli blaðamanna og íþrótta- samtakanna hefur ætíð verið hin bezta samvinna. Blaðamenn hafa ætíð veitt áhugamálum í- þróttafélaganna beztu fyrir- greiðslu, — og er þetta ekki sagt hér vegna þess, að blaða- menn telji þetta neinna sér- stakra þakka vert. Hins vegar mun þetta vera í fyrsta skipti sem blaðamenn leita fyrir- greiðsiu stjórnar Í.S.Í., og það um mál, er blaðame'nn héldu að ekki myndi verða neinn ágrein- ingur um. Blaðamenn áttu alls ekki von á svo tregri og seinni afgreiðslu stjórnar Í.S.Í., og ramþykkti blaðamannafélags- fundur s. 1. sunnudag, að félags- menn B.í. skrifi ekki um íþrótta mót áður en þau eru haldin,' þar til endanlegt svar fæst frá íþróttasamtökunum. Formaður og ritari B.í. gengu svo á fund stjórnar Í.S.Í. í fyrrakvöld og nkýröu henni frá afstöðu B.í. IJmræður þær fóru mjög vin- ramlega fram og lauk svo, að flestir í stjórn Í.S.Í. virtust vilja verða við tilmælum B.Í., er þeir töldu eðileg og sann- gjörn, en jafnframt kvaðst r.tjórn Í.S.Í. ekki hafa umboð til þess fyrr en á sambands- stjórnarfundi 10. júní n. k. (eða 2Vá mánuði eftir að stjórn Í.S.Í. bárust tilmæli B.Í.). Í gærmorguri barst B.Í. bréf frá þremur stærstu íþróttafé- lögunum í Reykjavík, ’ Ár- tnanni, Í.R. og K.R., þar sem þau óska að sama vinsamleg samvinna haldist og verið hefur og viðurkenna með ánægju að- gangsrétt gegn frajnvísun blaðamannaskírteinis. Blaða- mannafélagið ræddi þetta mál á fundi í gær, þar.sem formað- ur félagsins skýrði frá viðræð- unum við stjórn Í.S.Í. og bréf- inu frá fyrr nefndum íþrótta- félögum. Fundurinn samþykkti einróma ályktun þá, er að fram- :,n greinir. Með þeirri samþykkt' felur B.Í. sig hafa gert sitt til að hin góða samvinna blaða- manna og íþróttasamtakanna geti' haldizt. Hins végar taldi t'undurinn sér ekki fært að veiva |..eim félögum eða sérsambönd- iim — ef nokkur reynast —V sem telja makiegt og viðeigandi að draga Blaðamannafélag ís- lands á fullnaðarsvari í þessu máli í nær 2Vi mánuð, njóta sömu vinsemdar og þau íélög, er ætíð hafa sýnt blaðamönnum hina fyllstu vinsemd. Vænta blaðamenn þess fastlega, að öli- um öðrum íþróttafélögum og rérsamböndum sé liúft að taka í framrétta hönd blaðamanna íil áfratnhaldandi vinsamlegrar samvinnu eins og framangreind þrjú stærstu félögin hafa þeg- ar gert, þannig, að báðir aðilar megi vel við una. — Lííshæiia fyrir bðrn- c r B E a IS1 I ^ Stórkostlegt jarðrask hefur verið framkvæmt austan Mið- túns og sunnan Nóatúns. Mun bar vera í undirbúningi að gera íþróttavcll. Grafnir hafa veriS stórir og djúpir sknrðir meö- fram Miðtúni sunnanvevon og Laugarnesvegi, svo og margir þverskurðir. I skurðum þessum situr vatn, víða alldjúpt. Á svæði þessu léku börn sér mjóg' mikið áður, enda eru mjög mörg börn hér í hverfinu. Bregður þeim við, að geta ekki notað túnið sem áður, og eru riú mjög sólgin í að nota blett- ina milli skurðanna, en til þes3 þurfa þau að komast yfir þá. Bn það er lííshættulegt smá- 'oörnum, og þora mæður barn- anna ekki af þeim að líta af ótta við, að þau fari sér að voða. Hér þarf skjótra aðgerða 'úð, því dauðaslys getur elia af hlotizt á hverri stundu. Við í- búarnir í hverfinu vitum ekki, til hvaða aðila á að kvarta yfir þessu. Það hlýtur þó að ver'a einhver aðili, sem er skyldur að láta þetta til sín taka. Ef ein hver skjddi efast um að urn- kvörtun okkar sé á rökum rsist, ætti sá hinn sami að gera sér ferð þarna inn eftir, og nann myndi saiinfærast um að ótti okkar um líf barnanna er ekki ístæðulaus. I I il.esíö álbvðuhlaS®! óskast til Kleppjárnsreykjahælisins í Borgarfirði. Upplýsingar' hjá yfirhjúkrunarkonúnni og í skrif- stofu ríkisspítalanna.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.