Alþýðublaðið - 17.05.1950, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 17.05.1950, Blaðsíða 5
M iS vikiidasiSt 17. maí 1950. ALÞÝÐUBLAÐIÐ Haraldur Guðmundsson: GENGISLÆKKUNARÞINGINU er að Ijúka. f til- efni af því þykir Alþýðubíaðinu rétt að birta í dag og á morgun ræðu þá, sem Haraldur Guðmundsson flutti um gengislækkunarfrumvarpið, er það var til umræðu í efri dei'd 17. marz s. 1. Getur lesandinn nú borio þá revnslu, sem þegar er fengin af gengislækkuninni, saman við það, sem Haraldur sagði fyrir við umræðurnar um hana. HÆSTVIRTUR ATVINNU- MÁLARÁÐHERRA sagði í frumræðu sinni, að íítið þýddi •að ræða hið liðna, því að allir hefðum við gert mistök og þýddi ekki að sakast um slíkt. Hitt væru allir sammála um, að nú væri allt komið í óefni. Þessi yfirlýsing ein út af fyr- ir sig, að allt sé komið í fullt óefni, er harla athyglisverð. Enginn neitar því, að undan- farin ár, allt til tveggja eoa þriggja hinna síðustu, hrfa verið fjárhagslega óvenjuloga hagstæð fyrir okkur. Þjóðar- tekjurnar hafa aukizt gífur- lega, svo að við söfnuðum ár- lega innstæðum erlendis og áttum um eitt skeið allt ao 600 milljón króna innstæður er- lendis. Það eru nú rúmlega 10 ár síðan gengi íslenzku krón- unnar var síðast breytt. I heild sinni hefur þetta tímabíl verið okkur mjög hagstætt, en samt er nú svo komið, sam- kvæmt því, sem hæstvirtur at- vinnumálaráðherra sagði, að eina leiðin út úr ógöngunum er ■að fella gengið og það ekki um neitt smáræði, heldur um 42- 43%. Ég held því, að það sé fullkomlega athugavert, hvort ekki sé ástæða til að gera aðr- ar og meira róttækar breyting- ar á .þjóðarbúskap okkar, en endurtaka gengislækkunina frá 1939, og nú í enn stærri stíl en þá var. Hæstvirtur atvinnumálaráð- herra sagði, að það þýddi ekki að deila nú um hverjir ættu sök á ástandinu. Ég skal taka undir það, að það er þýðingar- lítið að hafa mörg orð um það. En ég vil þó benda á, að Alþýðuflokkurinn hefur sér stoöii í þessum efnum allt þetta tímabil, og hefði ráð- um hans verið fylgt, þá væri nú ekki komið í siíkt óefni í þessum málum og raun ber vitni. Og ef von á að verða um að vel fari, þá verður að fara þær leiðir, sem Al- þýðuflokkurinn hefur bent á. Veröldin er nú svo breytt, að það er hreinn barnaskapur að halda, að hægt sé með einu írumvarpi að færa allt í sama horfið og var fyrir styx’jöldina. Tillögnr Alþýðy- flokksins 1940 til 1942. Ég vil nú rifja upp stefnu og tillögur Alþýðuflokksins á þessu tímabili. Strax haustið 1940 þegar Ijóst var, að verð á ísfiski xnundi hækka í Bretlandi og verð á landbúnaðarvörum var rækkandi hér heima, lagði Al- þýðuflokkurinn til að skattur yrði lagður á út- fluttan ísfisk i£i;I að g,:eiða niður farmgjöld og Iandbún aðarvörui’, en þetta fékk engar undirtekt- ir. 1941 og 1942 flutti Alþýgu- flokkurinn ýtarlegt frumvarp um ráðstafanir gegn dýrtíð- inni, og var í því lagt til, að allt verðlagseftirlit væri á einum stað og næði til allrar vöru bæði innlendrar o.g erlendrar og álagning skyldi ekki verða miðúð við hundraðshíuta verðsins, heldur einingu. Farmgjöld skyldu lækka og tollar á nauðsynjavörum skyldu af- numdir, en 'söluskattur lagð ur á vörur, sem seldar væru til útlanda með stríðsgróða. Stofnaður skyldi sjóður, • dýrtíðarsjóður, til að halda niðri verði innanlands. Rík- isstjórnin skyldi fá ótak- markað Ieyfi til að kaupa birgðir af erlenclri nauð- synjavöru, svo að ekki yrði skortur á þeim í landinu og tii að minnka dreifingar- kostnað a vörum, sem til landsins væru fluttar. - Ég er sannfærður um, að ef þetta hefði verið gert, væri á- standið allt annað og betra en nú er. Sama ár, 1942, flutti Al- þýðuflokkurinn einnig frum- varp um. að gengi krónunnar yrði hækkað, þannig að eitt ster- lingspund jafngilti 22,50 kr. Slíkt hefði þá verið leikur einn. Og slík ráðstöfun hefði orðið til þess að hamla mjög Haraldur Guðmundsson. á móti verðhækkun á þeim tíma og draga úr dýrtíð og verðbólgu síðar. Traust manna á gilai peninga hefði þá auk- ízt og minna hefði venð eytt í óþarfa, og gildi peninganna hefði vaxið í stað þess að íninnka. Gerðardómsiögio og afieiðingar þeirra. Fram að þessurn tíma hafði kaup lítið hækkað, samanborið við innlendar afurðir, þannig að 1. október 1941 hafði kaup íiækkað um rúmlega 60%,, en innlend matvara hafði á sama tíma hækkað um ca. 125%, eða tvöfalt það, sem kaup hafði hækkað. Þannig var á- standið, þegar við lögðum fram dýrtíðartillögur okkar. En til- lögur okkar voru að engu hafð ar. Og um áramótin 1941 og 42 komu Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn sér faman um að setja gerðardóms lögin, sem bönnuðu allar kaup- hækkanir með lögum á sama tíma, sem þjóðartekjui-nar höfðu aukizt meira en dæmi voru til áður, en hlutur verka manna í þeim hafði að sama bkapi minnkað með árí hverju. En það revndist að vonum ekki hægt að framkvæma lög- in, og flokkarnir, sem að þeim ! tóðu, fóru í hár saman strax á eftir og skildu með heiting- um. sem enn eru í minnum liafðar, og hefur eimt eftir af jiessum viðskilnaði og torveld að samvinnu milli flokkanna allt til þessa dags. Afleiðing- arnar voru svo þær, að al- þýðusamtökin hófu sókn til að j.rinda gerðardómslögunum og fá kauphækkanir með skæru- hernaði. Og haustið 1942 varð svo hækkun á landbúnaðar- vöi’um. Ingólfsstyttan svokall- aða, sem var svo gegndarlaus, ' að jafnvel þeim, sem að hækk- uninni stóðu, hnykkti við, en hetta leiddi svo aftur til hærra kaups og þar með var skrúfan komin af stað. Kayphækkunin af- leiðing, ekki orsök. Alþýðuflokkurinn varaði við þessu og sagði, að þetta stefndi að því að gera þó fátæku fátækari og þó ríku ríkari. Fasteignir söi'nuðust saman hjá auðmönnunum, en sparifé og Iaun urðu verðminni með hverjum deginum, sem Iei'ð. Eftir að tillögur Alþýðu- flokksins voru að engu hafðar, þá þótti mér sýnt að hverju stefndi, eins og nú er komið á daginn. 1943 flutti Alþýðu- flokkurinn frumvarp um upp- bætur á sparifé og miðlunar- sjóð húsaleigu, en þessu vai' heldur ekki sinnt, húsaleigan hækkaði óðfluga, Ekkert var gert í þessum efnum Enginn skyldusparnaður og ekkert gert til að jafna húsaleiguna, svo að hún varð mjög mismun- andi eftir því, hvort menn bjuggu í ný.iiim húsuiti eða Sœljónið og geddan Slúika óskast. — Húsnæði. CAFÉ HGLL Austurstræti 3. Sími 1016. sem nýr, dökkbiár, vir góðu efni til sölu. Ránar- götu TA, 1. hæð. Viðtals- tími miðvikud. og fimmtu- dag kl. 7—8. Þessa sjon rnatti nyiega sjá í fjólieikahúsi á Englandi. Það er sæljón, sem er að leika sér með geddu á trýninu. Að vísu var geddan aðeins eí tiriíking; enda myndi hún annars fljótt hafa horfið í ginið á sæljóninu. gömlum. Húsaleigan í nýju húsunum óx með hverjum mánuðinum, sem leið, og um leið mísmunurinn á kiörum manna. Þegar sýnt þótti, að allar leiðir til að stöðva dyrtíðina væru Iokaðar, þá átti verka- lýðurinn ekki annars kost en reyna að hækka tekjirr sínar svo sem unnt var, enda er sagt í áliti hagfræS- inganna, að allt fram á s. ]. vor, hafi kauphækkanir a!- mennings í landinu veriö afleiðing dýrfíðarinnar, ew ekki .orsök. Ber jafnan að hafa þetta í huga, þegar rætt er um kaupgiald verka lýðsins. NýsköpLfnín: og nið- yipreiðsíurnar. Þegar nýsköpunarstjórnin var mynduð og Alþýðuflokk- urinn fór í hana, setti hann sem skilyrði, að 300 milljónum króna að minnsta kosti af inn- stæðunum erlendis yrði var- ið til kaupa á framleiðslutækj- um, til að auka afkastamögu- Ieikana, svo að kjör alþýðu bötnuðu. Alþýðuflokkurinn íagði aldrei til. að öllum inn- ctæðunum yrði varið í þessu skyni. Honum var Ijóst, að r.okkur hluti þeirra væri nauð synlegur í efni í byggingar- framkvæmdir og annað slíkt. En auk þess fjár, sem verja skyldi til efniskaupa í bygg- jngarframkvæmdir og þess háttar, ætluðumst við til, að. hiuti af innstæðunum væri geymdur, 100 til 200 millj., til þess að jafna síðar hallann meðan útflutningsframleiðsl- an nægði ekki til nauðsynlegra vörukaupa og jafnvægi væri að skapast, Ef þetta hefði ver- ið gert v.æri annað viðhorf nú. Með því hefði mátt koma í veg íyrir . vöruskortinn og svarta markaðinn. Þegar Alþýðuflokkurinn tók þátt í stjórnarsamstarfi 1947 var þegar uppi krafa uin geng isíækkun, en fyrir tilstilli Ookksins tókst að koma í veg íyrir það, en þess í stað var yalin sú leið, að uppbætur voru greiddar á báíafískinn og at- vinnuvegunum þannig haldið gangandi án þess að gengið væri lækkað að minnsta kosti fram á s. 1. sumar. Það kann að vera, að sú leið sé torfær nú, enda allt rekið á reiðan- Framhald á 7. síðu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.