Alþýðublaðið - 15.06.1950, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 15.06.1950, Blaðsíða 1
Ffeðurliorfiirs Hæg vestlæg átt, skýjað. |gj wr* Forustugreln: Tillögur Sehumans. XXXI. árgangnr. Fimmtudagur 15. júní 1950. 130. tBl. 1^5 i Píslarsjónleikarnir bvriaðir aftur í Oberammergau. Hinir frægu árlegu píslarsjónleikar eru nú byrjaðir aftur í Oberammergau í Bayern, eftir að þeir höíou legið niðri í fjórtán ár, eða mest ttn mutann af valdatíma Hitlers, svo og árin eftir stríoið. Á rnyndinni sést hinn fsgri fjali abær, sem þúsundir ferðamanna streyma nú aítur til, til þess að sjá þ essa einstæðu sjónleika. HÆRINGI mun nú bráð- lega verða siglt austur á Seyðisfjörð’ og hann látinn vera þar í sumar við vinnslu síldar, að hví er Alþýðu- blaðið hefur fréít á skot- spónum, en áður var vitað, að skipið mundi verða fært til Norður- eða Austurlands, svo að hægt verði að reyna það vi'ð viimslu síldar í sum- ar. Nauðsynlegt mun vera, að skipið liggi í höfn, rneðan vinnsla fer fram í því, sök- um þess, hve mikið vatn þarf til vinnslunnar. Er ekki um að ræða í nánd við sumar- síldarmiðin marga staði, er uppfylli nauðsynleg skilyrði fyrir því, að skipi'ð geti haft þár bækistöð; naumast aðra en Akurcyri og Siglufjörð, fyrir i;tan Seyðisfjörð. ser TORRACE BODET, aðalrit- ari UNESCO, menningarstofn- unar sameinuðu þjóðanna, sagði af sér starfi á ráðstefnu sambandsins1 í Flórenz í gær. Afsögn hans kom þingheimi mjög á óvart. eia i si Toguranum, er leggja upp í fiskimjölsverk- sr KARFAVEIÐI er nú mjög góð, og ltom EgiII Skallagríms- son til Reykjavíkur í gær með mikknr "afla, allar lestir fullar og 24 poka á þilfari. Svalbakur kom til Akureyrar og Jörundur var á ieiðinni þangað, báðir með eins mikí'ð og þeir gáíu í sig láíið, að því er fréttaritari blaðsins nyrðra síniaði. Aflinn úr Agli er nú lagður upp í Faxaverksmiðjuna í Ör- firisey, og Iiófst vinnsla þar í'gær. Áður var búið að leggja fisk í verltsmí'ðjuna nokkrum sinnum til reynslu, og enn mun vera eftir að ganga frá slökkvitækjum í „extractions-verksmiðjuna“, áður en vinnsla geíur hafizt a£ fullum krafti. Mjög margir togarar stunda nú „gúanóveiðar" .svokallaðar, sumir að öllu leyti, en aðrir jafnhliða siltfiskveiðum. Er þá bezti þorskurinn saltaður, en annar fiskur lagður upp í fiski- mjölsverksmiðjurnar. Egill Skallagrímsson lagði fyrir viku afla upp í verksmiðj- una á Hjalteyri, en fyllti sig aftur djúpt úti af Breiðafirði á tæpri viku. Auk Egils, sem leggur nú afla sinn upp í Faxaverksmiðj- una, hefur Helgafell lagt upp afla í Reykjavík, og var hann fluttur á bílum til Hafnarf jarð-' ar. Þá eru tveir af bæjartogur- um Reykjavíkur, Ingólfur Arn- arson og Skúli Magnússon, að veiða til fiskimjölsvinnslu, og munu þeir leggja aflann upp hér, en úr Ingólfi verður að lík- indum flutt til Hafnarfjarðar og úr Skúla í verksmiðju hér eða í Hafnarfirði. Á Akranesi leggja tveir tog- arar upp til fiskimjölsvinnslu, þeir Bjarni Ólafsson og Karls- efni, og í Keflavík leggur einn upp, Forseti. Loks leggja þrír Akureyrartogararnir, Svalbak- ur, Kaldbakur og Jörundur, upp í Krossanessverksmiðjuna, en ekkert varð úr því, að Siglu- fjarðartogarinn Elliði legði þar einnig upþ. GEIR SELDI FYRIR 4529 PUND ASeins einn togari er enn á ísfiskveiðum, en það er Geir. Seldi hann afla sinn, 2534 kit, í Grimsby í gær, og fékk fyrir hann 4529 sterlingspund. Framhald á 8. síðu. Schuman-áætlunin: Franskir jafnaðarmenn óánægð ieð yfirlýsingu brezka flokksins Ráðstefna sexveldanna um áætlunina hefst i París í næstu viku. FRANSKIR JÍAFNAÐARMENN hafa nú Iýst óánægju sinni með afstöðu brezka alþýðuflokksins til Schuman-áætl- unarinnar, og telja þeir, að afstaða brezka flokksins sé stórt skref afíur á bak. Benda þeir enn fremur á, að með þessari afstöðu sé brugðið frá þeirri stefnu, sem fylgt liefur verið um aukna samvinnu Norðurálfuþjóða. Telur franski flokkurínn það mj.ög ólieppilegt, áð þessi stefnuyfirlýsing skyldi vera gefin út í London. Yfirlýsing brezka flokksins hefur fengið mjög slæmar und- irtektir í blöðum borgaraflokk- anna á Englandi, og gagnrýna þau hana harðlega. Þá krefjast þessi blöð þess, að Schuman- áætlunin verði rædd sem fyrst i enska þinginu, en stjórnin telur það ekki tímaba rí. Blöð í Bandaríkjunum taka einnig mjög illa í hina brezku flokksyfirlýsingu og harma það ósamlyndi, sem nú er orðið um áframhaldandi efnahags- samvinnu Evrópulandanna. Ráðstefna sexveldanna, sem boðin hafa verið til viðræðna um áætlun Schumans, hefst í París í næstu viku. Bretar hafa þegar útnefnt tvo fulltrúa með sendiherratign, er sitja munu fundinn. Þeir munu fylgjast með öllu, sem þar fer fram, en hafa ekki tillögurétt eða at- kvæðisrétt. Þátttökuríkin eru Frakkland, Þýzkaland, Belgía Holland, Luxemburg og Ítalía. H P H U l BREZKA STJÓRNIN bar sigur af hólmi í atkvæða- greiðslu í neðri deild þingsins í London í gærkvöldi. Var til umræðu og afgreiðslu tillaga í- haldsflokksins um að afnuminn skylda benzínskáttur, sem stjórnin setti á, er skömmtun á benzíni var hætt. Tillagan var felld með 310 atkvæðum gegn 288, eða 22 atkvæða meirihluta. TAFT, formaður þingflokks repúblikana í Bandaríkjunum, hefur heitið Trumanstjórninni stuðningi flokks síns í utanrík- Robert Schuman. Bohr iteiiar að und- irrita friðarávarp NIELS BOHR, danski vís- indamaðurinn, sem á mánudag sendi sameinuðu þjóðunum op- ið bréf um friðarmálin. hefur neitað að undirrita friðarávarp kommúnista. Kveðst hann ekki undirrita nein slík skjöl, nema þar sé greinilega fram tekið, að allar þjóðir verði að „opna gluggana“ og taka upp full- komna hreinskilni hver við aðra. ismálum, en áskilur sér þó rétt til gagnrýni og vill auknar við- ræður flokkanna um utanríkis- málin. F.U.J. hélt fund í Iðnó í gærkvöídi. Var hann fjölmennur mjög og gengu sjötíu nýir meðlimir í félagið. Mörg mál voru rædd, meðal annars væntanlegt starf félags- ‘ ins við trjágróðursetningu í Heiðmörk og fleira viðvíkjandi sumarstarfsemi félagsins, og kom fram mikill áhugi félags- manna á verkefnum þess.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.