Alþýðublaðið - 17.08.1950, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 17.08.1950, Blaðsíða 1
Veðurhorfur: Norðan stinningskaldi; víðast léttskýjaö. Forustugreln: Fulltingi Sigurðar Nordals. 1 XXXI. árg. Fimmtudagiu- 17. ágúst 1S50. 17«. tbl. mmmm Fyrsla Íslandssíld ársins komin til Svíþjéðar SÆNSKA útvarpið skýrði frá því í gærkveldi, strax á eft- ir heimsfréttum og fyrst inn- lendra fregna, að Fjallfoss væri væntanlegur til Gautaborgar í nótt með 10 000 tunnur af nýrri Íslandssíld. Var frá því skýrt, að þetta væri fyrsta síldin, sem veið'st hefði. Þykir bað jafnan mikil frétt í Svíþióð, fyrsta síldin berst þangað frá íslands- miðum. Esju á sinnudai FULLTRÚARÁÐ sjómanna- dagsins efnir til skemmtiferðar til Akranes n. k. sunnudag. Til ferðar þessarar var boðað 30. júlí s.I. en varð að aflýsa vegna verkfalls þess er Samband mat- reiðslu- og framreiðslumanna boðuðu til og hófst það kvöld. . Lagt verður af stað með m. s. Esju kl. 1 e. h. Til skemmtun ar verður dans í Báruhúsinu, og einnig verða ferðir að Ölver, og verður einnig dansað þar. Ágóði af þessari ferð rennur óskiptur til byggingars j óðs dvalarheimilis aldraðra sjó- manna. Varðandi sölu farseðla vísist til auglýsingar í blaðinu í dag. Ferðir þessar hafa ætíð ver- ið f jölmennar og farið vel fram, og mun óefað verða einnig nú. Komið verður til Reykjavík ur aftur um kvöldið. EUGENE BLACK, forstjóri alþjóðabankans, mun innan skamms takast ferð á hendur til nokkurra Evrópulanda til þess að ræða um fyrirhugað- ar lánveitingar. UTFLUTNINGUR Breta til dollaralandanna var í síðast liðnum mánuði meiri en nokkru sinni síðan fyrir stríð. -------------------— Alllee neilar enn að kalla þingið sam- an fyrir 12, sept. BREZKA ÞINGIÐ verður kallað saman 12. september, eins og ráðgert hefur verið, og ekki fyrr, að því er Attlee for- sætisráðherra hefur tilkynnt í London. Gaf hann þessa yfir- lýsingu eftir fund, er hann átti með Churchill,. Eden, - Da- vis og Bevin ,en .ihaldsmenn krefjast , þ.éss,. að þingið homi saman: fyrr, og laki þá til um- ræðu Tandvamamáim. Amerfkufflenn gera mikla loflárás á 400 manna kommúnistaher við Waegwan Miklar orustur standa nú yfir í hafnarbænum Pohang á austurströnd Kóreu og hefur verið barizt þar í tæplega viku. Myndin er frá Pohang. eypuvi vegshúsin frá þ Byggingarfélögin segja upp mönn- um vegna algers skorts á semenfi BYGGINGARFELÖGIN BRÚ OG STOÐ, sem sjá um byggmigarframkvæmdir við bæjarhúsin við Bústaðaveg, hafa nú neyðst til að segja upp mönnum vegna efniskorts, og munu ekiki komast hjá að segja upp enn fleirum, ef ekki rætist úr á næstunni. Frá því um miðjan júlí hefur engin steypuvinna getað farið fram vegna sementsl'eysis,. en síðan hafa smiðirnir unnið að því að slá upp mótum, og bíða nú um 10 hæð- ir, sam slegið hefur verið upp fyrir, en ekki er til sementsfcorn í mótin. ur verið að slá upp fyrir, en ekki er hæg't að steypa fyrr en sement kemur. Þá eru nokkrir grunnar, sem byrjað var á, en hafa stöðvazt vegna efnisskorts ins. Von mun vera na við Búsfað I um miðjan jú Samkvæmt upplýsingum, sem Alþýðublaðið fékk í gær hjá byggingarfélaginu Brú, má heita að alger stöðvun hafi verið á byggingarframkvæmd- unum um mánaðartíma, og hefur engin steypuvinna verið frá því um miðjan júlí. Reyndu byggingíf félögin í lengstu lög að komast hjá því að segja upp mönnum, sem ráðnir vorú að byggingunum, og létu verka- monnina fyrst í stað vinna við að laga til lóðir í kringum hús- in. . Smiðirnir hafa unnið að mótauppslætti og bíða, .uú oriL ið um 10 hæðir. sem lokið hef- á sements- skipi í næstu viku, en allt er enn í óvissu um það, hve mikið af því sementi fæst til Bústaða vegshúsanna. Sama máli gegnir um þau hús, sem þegar hefur verið lok- ið við að steypa upp og gerð hafa verið fokheld. Þar, ganga framkvæmdir seint vegna efn- ’ isskorts. Til dæmis eru mið- stöðvar og lagnir enn ekki fengnar í húsin, og meðan er ekki unnt að ganga frá þeim, hvorki múrverki eða málningu. INDÓNESÍA varð í gær formlega að einu óskiptu lýð- veldi, en hefur áður verið sam bandsríki. Mun nú ein stjórn fara með völd á öllum eyjun- um, en ekki margar. Um þetta hafa verið deilur í landinu og uppreisnir á nokkrum hinna austlægari eyja. .........» Almannatryggingar auknar stórlega í Bandaríkjunum FULLTRÚADEILD ame- ríska þjóðþingsins samþykkti í gær frumvarp um stórfellda aukningu almannatrygginga á vegum ríkisins, og munu nú þessar skyldutryggingar ná til tíu milljóna manna til viðþót- ar við þær milljónir, sem tryggingalögin þegar ná til. Almannatryggingar hófust í stiórnartíð Roosevelts í Bandaríkjunum, og byrjuðu þær í smáum: stíl, en hafa ver- ið auknar stig af stigi, og ná nú til tuga milljóna. Herinn í upplausn effír árás 99 risafiugvirkja AFMERÍSKI FLUGHERINN gerði í gær stóikostleg^ loftárás á sex ferkíló- metra svæði við Waegvvan, norðan við Taegon, þar sem kommúnistar höfðu safnað saman um 40.009 manna her og miklum fjölda skriðdreka til nýrrar sókn- ar. Geröu 99 risaflugvirld árásina og vörp- uðu á tveim tímum niSur tæplega 1000 smálestum af sprengjum, Eftir árásina voru tíu bæir og þorp, þar sem kommúnistaherinn hafði stöðvar sínar og hergögn, í Ijósum logum. Sást fátt kvikt á ferli, er orustuflugvélar sveimuðu yfir svæðinu, og bótti augljóst, að loftárásin hefði valdið mikilli upp- lausn í liði kommúnista. Loftárás þessi var gerð án þess að kommúnistar kæmu við nokkrum vörn- um. Ekki ein einasta orrustuflugvél var her þeirra til varnar, og loftvarnaskothríð af jörðu var lítil sem engin. í gær höfðu __________^borizt fregnir af þessum mikla liðsafnaði, og var talið, að þarna væru á annað hundrað skriðdrekajisamt 40.000 manna her. Var augijóst, að her þess- um var ætlað að gera mikla sókn gegn Taegu. Sunnar á Naktong-víglín- unni hafa kommúnistar komið auknum liðssstyrk yfir Úljótið og sótt fram. Þykir nokkur hætta stafa af þeim á þessum stað, en ætlun þeir ra þarna er að afkróa varnarher Ame- ííkumanna í Taegu. í Pohang standa enn yfir miklar orustur og verjast Ameríkumenn þar á flugvelli borgarinnar og bíða frekari liðsstyrks. 4000 MANNA HER FRÁ SÍAM. í Washington hefur Louis Johnson landvarnaráðherra tilkynnt fyrir hönd herstjórn- ar sameinuðu þjóðanna í Kór- eu, að boði Síamstjórnar um að senda 4000 manna her til Kóreu hafi verið tekið. Ekki var nánar frá því skýrt, hve- nær her þessi yrði fluttur til Kóreu. Renaud krefsl að franska þingið komi saman \ PAUL RENAUD, fyrrver- and iforsætisráðherra Frakka, hefur krafizt þess, að franska þingið verði kallað saman hið fyrsta tiL að ræða landvama- mál. Þingið á ekki að koma saman fyrr en í október.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.