Alþýðublaðið - 17.08.1950, Blaðsíða 8
LEITIÐ EKKI GÆF-
UNNAR langt yfir skammt;
kaupið miða x bifreiðahapp-
drætti Sambands ungra
jáfnaðarmanna. —
ALÞÝÐUFLOKKSFÓLK2
Takið höndum saman við
unga jafnaðarmenn og að«
stoðið við sölu happdrættia
miða í bifreiðahappdrættH
Sambands ungra jafnaðaí>
manna. ,
Fimmtudagur 17. ágúst 1950.
þýzku knaftspy rnumenni rni r höfðu
i skjöi sín í lagi og komu ekki
&llur síldarfiollnn
Ero væntaniegir á sunnydag og fyrsti
íeikur þeirra verður vi"ð Fram á mánisda^
ÞÝZKU KNATTSPYRNUMENNIRNIR komu ekki í gær-
kvöldi eins og ráð hafði veri'ð fyrir gcrt, og stafaði það af því,
að þeir höfðu ekki fengið gengið frá vegabréfum sínum í tæka
tíð, og hæíti Geysir því við að fara til Hamborgar eftir þeim.
------------:------------♦ Samkvæmt símskeyti, sem
móttökunefndinni hér hefur
borizt frá knattspyrnuflokkn-
um, er vonast til þess, að búið
verði að ganga frá vegabréfum
allra á föstudag, og muni þeir
þá koma með Gullfaxa á sunnu
daginn og keppa fyrsta leikinn
hér á mánudagskvöld, og er
ákveðið að fyrsti leikurinn
verði við Fram.
Ráðgert hafði verið að fyrsti
leikurinn yrði í kvöld, og hefúr
verið mikil eftirspurn eftir
miðum á völlinn, en sennilega
verða engir miðar seldir fyrir
fram á leikina, því að ef svo
illa tekst til, að knattspyrnu-
mennirnir verði ekki heldur
feðrbúnir um helgi, getur ekki
orðið úr þessari heimsókn í
sumar. Vonandi kemur það þó
ekki til, að för þeirra tefjist
öðru sinni, þar sem ekki mun
vera nema um smávægileg
formsatriði að ræða til þess að
þeir geti komizt út úr landinu.
Hins vegar er nú fyrirséð að
þýzki knattspyrnuflokkurinn
getur einungis keppt hér fjóra
leiki þótt hann komi á sunnu-
dag, en hann fer utan aftur
jafnsnemma og ákveðið var í
fyrstu, eða 29. ágúst.
NOKÐANSLAGVIÐEI var í
gser á SiglufirSi og veiðiflot-
inn allur í höfn. Engin síld hef-
ur sést á miðunum svo vitað sé,
og frézt hafði, að erlendu i-ek-
netaskipin hefðu ekki orðið
síldar vör.
Um tvö þúsund mál síldar
bárust til Hjalteyrarverksmiðj-
unnar, en þar var aðeins um
að ræða gamla slatta, sem veiði
skipin losuðu. Bíða menn þess
nú með eftirvæntingu hvernig
veiðihorfur verða á miðunum
þegar veður lægir, þar eð varia
er eftir af veiðitíma nema tæp-
ur hálfur mánuður, hvað
bræðslusíldarafla snertir.
§22 lendingar á
Reykjayíkurfiug-
velli í júlí
í JÚLÍMÁNUÐI s. 1. var um-
ferð flugvéla um Reykjavíkur-
flugvöll sem hér segir:
Millilandaflugvélar 60 lend- j
ingar, farþegaflugvélar, innan-
landsflug, 322 lendingar. einka-
og kennsluflugvélar 440 lend-
ingar, eða samtals 822 lending-
ar. Með millilandaflugvélum
fóru og komu til Reykjavíkur
923 farþegar, 15 881 kg farang-
'ur, 28 872 kg af flutningi (fragt)
og 1260 kg póstur.
Með farþegaflugvélum í inn-
anlandsflugi, er fóru og komu
jii Reykjavíkur, voru 6292 far-
þegar, 68.201 kg. af farangri,
31.318 kg. af vöruflutningi og
6787 kg. af pósti.
Lendingar millilandaflug-
véla voru fleiri í þessum mán-
uði, en nokkru sinni fyrr frá
því að íslendingar byrjuðu að
reka Reykjavíkurflugvöll.
Þessi mikla umferð milli-
landaflugvéla stafaði aðallega
af miklum flugsamgöngum við
Grænland í sambandi við ýmsa
rannsóknarleiðangra þar. Má
segja, að Reykjavíkurflugvöll-
ur sé orðinn eins konar mið-
stöð þessara leiðangra.
Meðal flugvéla, sem höíðu
hér viðkomu, voru vélar frá
Scandinavian Airlines Pystem,
danska flughernum og flotan-
m og stjórn Grænlands
(Grönlands Styrelse).
Þingi Frjálsíþrótla-
Þrjú félög enn
segjaupp
ÞRJÚ verkalýðsfélög hafa
nýlega tilkynnt uppsögn samn-
inga og ganga samningar úr
gildi 15. september hjá ölluni
félögunum.
Félögin eru þessi: Verka-
mannafélag Raufarhafnar,
verkakvennafélagið Von á
Húsavík og verkakvennafélag-
ið Eining á Akureyri.
íslands nýlokið
ÁRSÞING Frjálsíþróttasam-
bands íslands var haldið hér i
Revkjavík dagana 14. og 15.
ágúst. Forsetar þingsins voru
þeir Jens Guðbiörnsson, for-
maður Gltmufélagsins Ár-
manns, og Guðmundur Siguf-
ións=on, en hinfo'itarar Bragi
Friðriks«'on og Jón M. Guð-
rnundsson.
Þinff:ð vai- hið fmhóttasta,
sem hpfur vonð f*-á stofn
tin fi'i"l=’v'T.iV!'tí»c,xrr'band!::Í'ns, og
sóttn hað 21 fulltrúi frá félaga-
samböndum' víðs vegar að af
landinu. Rædd voru ýms áhuga
mál friálsíþróttamanna og
marcar ályktanir gerðar.
I stiórn -sambandsins til eins
árs voru kosnir: Formaður
Garðar S. Gíslason. Hafnar-
firði. en aðrir í stiórn Lárus
Halldórsson skólastióri, Oliver
Steinn verzlunarstjóri, Ingólf-
ur Steinsson nrentari og Jó-
hann Bernharð. í varastiórn
voru kosnir: Þorbjörn Guð-
mundsson . blaðamaður, Árni
Kjartansson; verzlunarmaður
og -Jón M, Guðmundsson.
Fráfarandi stjórn var þakkað
mikið og' fórnfúst starf -á síð-
asta starfsári.
Danskur blaðamað-
ur í kynnisför
hér á landi
KRISTIAN SEEBERG,
danskur blaðamaður, er nú
staddur hér á landi um þessar
mundir, og hyggst hann kynna
sér land og þjóð. Hefur hann
hlotið styrk til kynnisferðar
þessarar og mun ferðast um
landið auk þess sem hann ræð-
ir við forustumenn í stjórnmál-
um og menningarmálum í
Reykjavík. Seeberg er fúlltrúi
fyrir samtök dagblaða jafnað-
armanna í Danmörku, en þau
eru alls 63, auk vikublaðsins
Landet. Hann starfar sjálfur
við „Sönderjyden“ í Sönder-
borg.
Búið að velja keppendur á
Evrópumeisíaramótið í Brussel
Byrjað að þurrka fisk í nýja fisk-
vinnsluhúsinu við Elliðaárvog
-----------------.»
Byrjað að grafa fyrir stóru þurrkhúsl
bæjarútgerðarinnar á Bráðræðisholti.,
--------------- i
FISKVINNSLUHÚSIÐ VIÐ ELLIÐAÁRVOG, sem byggfe
er upp af rústum bragganna, sem brunnu í vetur, er nú nsí
fullgert, og er þegar byrjað að þurrka fisk í nokkrum liluta
þess. Er ein vélasamstæða fiskþurrkunartækjanna komin í saæ.
band, en verið er að koma hinum tveimur fyrir. Alls verðffl
þriú kerfi í húsinu.
EFTIRTALDIR MENN hafa
nú verið valdir til þátttöku í
Evrópumeistaramótinu í frjáls
um íþróttum í Briissel í þess-
um mánuði:
m.
hlaupi: Haukur
Finnbjörn Þor-
i loo
Clausen og
valdsson.
f 200 m. hlaupi: Ásmundur
Bjarnason og ef til vill Hörður
Haraldsson, ef meiðsli lagast.
í 400 m. hlaupi: Guðmundur
Lárusson og Ásmundur Bjarna
son.
f 800 m. hlaupi: Magnús
Jónsson og Pétur Einarsson.
í 4X100 m. boðhlaupi: Ás-
mundur, Guðmundur, Finn-
björn og Haukur.
í kúluvarpi og kringlukasti:
Gunnar Huseby.
í spjótkasti: Jóel Sigurðsson.
f stangarstökki og lang-
stökki: Torfi Bryngeirsson.
í hástökki: Skúli Guðmunds
son, ef meiðsli leyfa.
í tugþraut: Örn Clausen.
Flokkurinn fer til Bríissel á
mánudag.
Fiskverkunarhús ’ þetta er
mjög stórt og er byggt yfir
stæði beggja stóru bragganna,
sem brunnu í vetur. Neðan við
það er fiskgeymsla í stórum
bröggum, sem ekki skemmdust
í eldinúm í vetur, og þar er
fiskúrinn einnig þveginn. Eru
þar nú fyrir miklar birgðir af
saltfiski, og mun það taka á
annan mánuð að þurrka hann
eftir að þurrkhúsið er komið
í fulla notkun.
Byggingu sjálfs hússins er
nú lokið, en verið er að inn-
rétta hólfin, þar sem fiskur-
inn er þurrkaður, en í hólf
þessi er leitt heitt loft frá blás-
urum þurrkvélanna. Eitt kerf-
ið er þegar komið í samband,
en verið er að ganga ffá hin-
um tveimur, og er búizt, við
að þau verði öll komin í notk-
un í byrjun næsta mánaðar.
Þegar þurrkunartækm eru öll
komin í notkun, veronr hægt
að þurrka um 30 smálestir af
tiski í húsinu í einu, en hvert
keifi þurrkar um 10 smálest-
ir. Að vísu er ekki hægt að
fullþurrka fiskinn í einni
þurrkun, og verður að taka
hann út úr hólfunum og stafla
honum á milli og láta hann
síðar aftur í þurrkarana, en
þurrkunaraðferð þessi verður
í alla staði mun fljótlegri og
betri en sólþurrkun, þar eð
ekki þarf að sæta veðráttu við
fiskþurrkunina.
Fiskvinnslustöðin, sem brann
við Elliðaárvoginn í vetur, var
eign SIF, en nú mun Skúli
'TKorarensen og fleiri hafa yf-
irtekig stöðina.
* Slílfar fiskverkunarstöðvar
eru np í undirbúningi v/ða um
land, og verður alls staðar
komið fyrir þurrkt^ekjum.
Tækin í þurrkunarstöðinni við
Elliðaár eru kanadisk, fen vél-
smiðjurnar hér eru nú farn u
að framleiða slík tæki, að und
anskildum blásurunum og
nokkrum fleiri hlutum í sam-
bandi við þurrkunarkerfin,
sem verður að fá erlendis frá.
ÞURRKSTÖÐ BÆJARÚT-
GERÐARINNAR.
Um þessar mundir er. verið
að byrja á byggingu fiskþurrk
unarhúss fyrir Bæjarútgerð
Reykjavíkur, og verður það
reist vestur á Bráðræðisholti
við hið gamla stakkstæði
Dvergs. Þar vinnur nú mokst-
ursvél að því að grafa fyrir
húsinu, en það verður 3644
fermetrar að stærð, og þar
verða fjögur vélakerfi, svo að
búast má við að afköst þeirra
verði 40 smálestir af fiski mið-
að við afköst
Elliðaár.
i stöðinni vitS
259 lendingar á
Keflavíkurflug-
r
I
í JÚLÍMÁNUÐI 1950 lenta'
429 flugvélar á Keflavíkurfiug
velli. Milillandaflugvélar vorut
259. Aðrar lendingar voru ís-
lenzkar flugvélar, svo og björg;
unarflugvélar vallarins. Með!
flestar lendingar millilandaflug
véla voru eftirfarandi flugfé-
lög: )
Flugher Bandaríkjanna 128p
Trans-Canada Air Lines 27, Airi
France 27, British Overseas Ain
ways Corp. 18, American Ovem
seas Airlines 11, K. L. M., Roy-
al Dutch Airlines 10, Lockheed
Aircraft Overseas Corp. 8, Sea-
board & Western 6, Flying
Tiers 5, Aðrar lendingar 19,
Samtals 259.
Farþegar með millilandaflug
vélunum voru 3826. Til Kefla-
víkurflugvallar komu 187 far-
þegar. Frá Keflavíkurflugvelli
fóru 163 farþegar.
Flutningur með milliianda-
flugvélunum var 95 077 kg.
Flutningur til íslands var 16829
kg. Flutningur frá Keflavíkur-
flugvelli 3354 kg.
Flugpóstur með flugvélunum
var 22 170 kg. Flugpóstur bl
Keflavíkurflugvallar var 585
kg. Flugpóstur frá Keflavíkur-
flugvelli var 160 kg.
Meðal þekktra manna moð>
millilandaflugvélunum voru;-
Kvikmyndlaeikkonan Marshœ
Hunt og brezki flugmarskálk-
úrinn Sir Keith Park ásamt
konu sinni.
I
Bessaslaðakirkja 1
opin almenn- !
ingi alla daga 1
____________ I
BESSASTAÐAKIRKJA
verður opin almenningi fyrsfi
um sinn frá hádegi til kl. 8 síð-
degis. Er þess vænzt að gestir
gangi svo vel um, að hægt
verði að hafa kirkjuna opna al-
menningi áfram. Að sjálfsögðu
mega gestir ekki trufla er
messa eða aðrar helgiathafni!?
fára fram í kirkjunni.