Alþýðublaðið - 24.08.1950, Qupperneq 8
LEITIÐ EKKI GÆF-
UNNAK langt yfir skammt;
kaupið miða í bifreiðaliapp-
drætti Sambands ungra
jafnaðarmanna. —
Briisselmótið
Finnbjörn og Haukur.
Framh. af 1. síðu.
4x100 m. boðhlaup:
1. riðili: 1. Bretland, 2 Rúss-
land, 3. ísland. Einnig Belgía
og Júgóslavía.
2. riðill: 1. Frakkland. 2. Sví
þjóð, 3. Ítalía. Einnig Noregur
og Sviss.
í 400 m. hiaupi komst Guð-
mundur Lárusson í milliriðil
með því að'hlaupa á 49,8 sek. á
eítir Pugh, Bretlandi, sem
hljóp á 49,5. Þeir voru aðeins
tveir í öðrum riðli.
Bezta tíma höfðu Wolfbrandt,
Svíþjóð, á 48,8 sek. og Lumis,
Frakklandi á 48,9 sek.
í 110 m. grindahlaupi hafði
Marie, Frakklandi, beztan tíma
í riðlum, 14,6 sek.
I kúluvarpi kvejma sigraði
Andreyeva með 14,35 m. Önn-
ur varð rússnesk stúlka með
13,92 m. og þriðja Ostermeyer,
Frakklandi.
I spjótkasti kvenna sigraði
rússnesk astúlkan Smelnyta á
47,55 m., önnur varð Baum,
Austurríki, með 43.87 m. og
þriðja Zybina, Rússlandi, með
42,75 m.
Berjaför AljiýSu-
flokksfélagsins
í Hafnarfirði
ÁKVEÐIÐ hefur verið, að
Alþýðuflokksfólk í Hafnarfirði
fari berjaferð um næstu helgi,
en síðar mun auglýst, hvert
farið verður.
Grindavíkurbátar
tnokafla í reknef
GRINDAVÍKURBÁTAR öfl
uðu meira í fyrrnótt af síld í
reknet en 'nokkru sinni áður á
þessu sumri. Komst aflinn upp
í 8 tunnur í net, og heiidarafli
eins bátsins var 300 tunnur.
Aflinn var þó misjafn; lægstur
var hann aðeins lYz tunna í
net. Lægstu bátarnir voru þó
með 50 tunnur.
Frystihúsin gátu ekki annað
þessum mikla afla, og var
nokkuð af síldinni saltað. Er
það fyrsta Faxaflóasíldin, sem
söltuð er á þessu sumri.
Goð berjaspretta
BERJASPRETTA virðíst
munu verða með bezta móti í
sumar hér í nágrenni Reykja-
víkur, og fjöldi fólks leitar nú
til berja um helgar. Frétzt hef-
nr, að óvenju góð berjaspretta
sé sums staðar á Vestfjörðum.
ALÞÝÐUFLOKKSFÓLKI
Takið höndum saman við
unga jafnaðarmenn ®g að«
stoðið við sö'lu happdrættis'
miða í bifreiðaliappdrættl
Sambands ungra jafnaðars
manna. ,
Fimmtudagur 24. ágúst 1959
landsleiðangri Egils Knulh
Frósögn Kouths af vísiodastörfum leiö-
austar dregor á laadið.
„ARANGUKINN af rann-
sóknum danska leiðangursins á
Pearylandi mun reynast hinn j
merkilegasti, þegar rannsókn-1
argögnin og annað efni, sem j
hann safnaði ^par, hefur verið
athugað og rannsakað til „hlít-
ar“, segir danski myndhöggv-
arinn, greifinn og landkönnuð-
urinn Egii Knuth, leiðangurs-
stjóri. „Þetta er líka í fyrsta
skipti, sem þetta landflæmi hef
ur verið kannað gaumgæfilega.
Að vísu hafa ýmsir landkönn
uðir ferðast þar um, allt frá
því er Peary var þar fyrstur
hvítra manna, en þeir gátu lít-
ið rannsakað landið, vegna þess
að fararbúnaður þeirra leyfði
það ekki, og ekki var unnt fyr-
ir þá að hafa annað með sér á
hundasleðunum en brýnustu
nauðsynjar. Um starf danska
leiðangursins 1906—8 veit mað-
ur lítið, þar eð enginn þátttak-
enda komst lífs af og engin gögn
hafa fundizt varðandi það.
Lauge Koch flaug að vísu yfir
landið frá Spitzbergen árið
1931 og gerðþ ýmsar landfræði
legar athuganir úr lofti og eft-
ir þeim var gert fyrsta viðun-
andi kortið af landinu; meðal
annars fann Lauge Koch þá
ýmsa stóra firði og fjallgarða,
sem áður voru ókunnir.
Leiðangur okkar hófst sum-
arið 1947. Fyrst urðum við að
koma okkur upp aðalbirgðastöð,
og reistum við hana við Lacken
berg á 74 gráðu n. 1. br. Þaðan
urðum við síðan að flytja 40
smálestir farangurs til fyrir-
hugaðrar dvalarstöðvar okkar
við Brönlundsfjörð á Peary-
landi, með flugvélum, en sá
staður er norður undir 83 gráðu
norðl. br. Þrír Catalinaflugbát-
ar önnuðust það stgrf og flugu
samtals um 50 ferðir milli stöðv
anna, undir forustu Overbys
flugforingja. Gengu þeir flutn,-
Lngar með öllu slysalaust, sem
betur fór, því að lítil líkindi
væri til þess, að þeir menn
kæmust af, sem yrðu að nauð-
lenda einhversstaðar á þeirri
leið.
Brönlundsfjörður er langur
og vel varinn fyrir ísreki, þar
sem hann gengur inn úr Indep-
encefirði. Þar völdum við okk-
ur aðsetur og gafst vel, og það
an fórum við svo rannsóknar-
ferðir víðsvegar um landið og
með ströndum þess og notuð-
um hundasleða til þeirra ferða.
Sleðahundarnir voru fluttir sjó
leiðis frá Vestur-Grænlandi til
Austur-Grænlands með við-
komu í Reykjavík, en síðan
flugleiðis norður, og voru þeir
26 talsins. Fyrstu tvö árin vor
um við leiðangursmenn átta,
sjö Danir og einn Grænlending
ur, en 1949 var skipt að nokkru
leyti um menn, og eftir það vor
um við Danirnir fimm saman
og tveir Græplendingar. í hópi
okkar voru landfræðingur,
plöntu- og dýrafræðingur, veð-
urfræðingur, menn, sem önn-
uðust jökiamælingar og rann-
sóknir og söfnun fornminja og
fleira. Á þessu stigi er ekki
unnt að segja um árangur
rannsóknanna nema að litlu
leyti. Jöklarnælingarnar, sem
voru framkv'/ndar sem einn
’.iður í alþjóðlegum jöklarann-
sóknum, er kenndar eru við
Ahlmann prófessor hinn sænka,
sýndu, að jöklar fara nú minnk
andi norður þar. Gróðurathug
anir sýndu, að ýmsar jurtir
vaxa þarna á norðlægara svæði
en áður var álitið. Meðal ann-
ars vaxa þarna bláber á 83
gráðu norðl br. Annars er land
Lð mjög hrjóstugt og gróður-
laust. Grávíðir vex mikið í
dölum, og á honum hljóta hin-
ar miklu sauðnautab^arðir, sem
barna reika um, að lifa, og verð
ur ekki séð annað en þau séu
hin feitustu. Engin hreindýr
fyrirfinnast ný á þessum slóð-
um, en í rústum Eskimóabú-
staða fundum við merki þess,
að þau hafi hafzt þar við áð-
ur fyrr meir.
Fornleifafundir leiðangursins
voru hinir merkilegustu. Við
Brönlundsfjörð fundum við
um 80 tjaldhringi, sem sanna,
að Eskimóar hafa áður hafzt
þar við. Norðan Independence-
fjarðar fundum við og rústir 7
Eskimóabústaða. Tjaldbúarnir
hafa verið steinaldarmenn að
menningu, en þeir, sem bústað-
ina byggðu, mun lengra á veg
komnir. Austur við Eiler-Ras-
mussen-höfða fundum við
merkilegustu fornleiíarnar,
konubát, sennilega frá því um
1600, furðu vel gerðan og lítt
skemmdan, enda þótt hundar
hafi á sínum tíma nagað húð-
þekjuna af þeirri hliðinni, sem
upp sneri. Þennan merka grip
fann ég af hendingu, er ég var
að leita birgða, sem flugvélar
okkar höfðu varpað þarna nið-
Grasspreiía sæmileg og nýting
heyja ágæí vestanlands í sumar
— -...........-—«+■- ■
Tíðin þeim mun óhagstæðari, sem
austar dregur á landinu.
HEYSKAPARTÍÐ hefur v'erið mjög hagstæð í sumar um>
vestanvert landið, á svæðinu fvá Borgarnesi og norður fyrir
ísafjarðardjúp. Grasspxetta var sæmileg og nýting virðist
ætla að verða með allra bezta móti, að því er Gísli Kristjáns-
son ritstjóri skýrði blaðinu frá í gær. Spretta í görðum lítiir
yfirleitt vel út.
hagstæðari tíð þar en í Austur-
Húnavatnssýslu og jafnvel f
Skagafirði.
Eyfirðingar eiga miklar ný-
ræktir og byrja því fyrr slátt
en aðrir Norðlendingar. Fengu:
þeir góða nýtingu á hey í júrd-
mánuði, en síðan mun stirðlega:
hafa gengið.
í Suður-Þingeyjarsýslu heíur
verið slæm tíð, en langverst þú
á Austurlandi, þar sem variai
hefur verið hirt óhrakin tugga
og hey eyðilagzt í flóðum og
stríðum hlaupum.
vei
Allgóð spretta var víða á
túnum, en lakari á engjum.
Kemur það raunar síður að sök
en áður var sökum þess að
engjaheyskapur hefur farið
mjög minnkandi.
Sums staðar á Vesturlandi
hefur þó verið fullþurrt um
sláttinn til þess að gott gras
verði í seinni slætti. Ekki er þó
svo í Borgarfirði; þar hefur allt
af verið nægilega mikil rekja,
en seinni sláttur mun annars
varla vera byrjaður þar.
Þokusamt hefur verið á
Ströndum og í Hrútafirði, og ó-
ur í fallhlífum.
Þótt margt sé enn á huldu
um ferðir og „landnám“ Eski-
móa á Grænlandi, er hægt að
gera sér grein fyrir þeim í
stórum dráttum. Þeir munu
hafa komið frá Kanada, annar
hópurinn hefur haldið suður
vesturströndina, fyrir Hvarf og
síðan norður austurströndina,
en hinn norðanvert Pearyland
og suður austurströndina. Síð-
an hafa hópar þessir mætzt á
svæðinu norðan við Ellaey.
Hvenær þetta hefur gerzt vit-
um við ekki. en samkvæmt frá-
sögum í íslendingasögum hafa
Eskimóar verið á sunnanverðri
vesturströndinni um árið 1000.
Þá benda fornleifafundir til
þess, að íslendingar þeir, sem
byggðu Grænland, hafi farið
norður vesturströndina, alla
leið norður til Thule. Hefur
Holdtved fornleifafræðingur
fundið ýmsar minjar og . muni,
er þykja sanna þetta, í rústum
norður þar, meðal annars á
Inglefieldlandi.
FUJ
fara
r
I
Hafnarfirði og Reykjavík
skemmtiferð í Borgarfjörð
FELÖG UNGRA JAFNAÐ-
ARMANNA í Hafnarfirði og
Reykjavík efna til sameigin-
legrar skemmtiferðar upp í
Borgarfjörð um næstu helgi.
Lagt verður af stað eftir hádegi
á laugardag og komið aftur á
sunnudagskvöld.
Þátttakendur frá Hafnarfirði
leggja af stað kl. 2 þaðan, og
mætast hóparnir við Alþýðu-
húsið í Reykjavík, en þaðan
verður haldið kl. 2,30.
Ekið verður kringum Hval-
fjörð og upp í Reykholtsdal á
laugardagskvöldið, en gist
verður að Logalandi í Reyk-
holtsdal, og þar verður dansað
í samkomuhúsinu um kvöldið.
Á sunnudaginn verður ekið urn
uppsveitir Borgarfjarðár og
héraðið skoðað.
Þátttakendur í förinni' bæði
' Reykjavík og Hafnarfirði eru
beðnir að gefa sig fram sem
fyrst. I Hafnarfirði getur fólk
tilkynnt þátttöku í skrifstofu
Alþýðuflokksins milli kl. 10—
12 f. h„ sími 9499, og í Reykja-
vík í skrifstofu FUJ, símar
5020 og 6724. Allar nánari upp-
lýsingar várðandi ferðalagið
eru og gefnar í skrifstofunum.
GOÐ UPPSKERA
ÚR GÖRÐUM
Góð uppskera virðist ætla að'
verða allvíða á landinu úr görð-
um. Vorið var að vísu nokkuS
kalt sums staðar, en nætur-
frost þó engin, nema lítils hátt-
ar í Skagafirði og Húnavatns-
sýslu í júnímánuði. Hætt er þó>
við að skemmdir verði á kart-
öfluuppskerunni af völdum.
kartöflumyglunnar, þar sém
votviðrin hafa verið mest.
Páll Arasoa æflar a
aka Skessubása-
veg um helgina
PÁLL ARASON bifreiðar-
stjóri ætlar að fara Skessubása-
veg að Hagavatni um næstw
helgi. Fer hann með tvær bif-
reiðir, ef þátttaka veröur næg,
«g leggur af stað kl. 2 á laugar-
daginn, en kemur aftur á
sunnudagskvöld.
Ekið verður Kaldadalsveg;
norður fyrir Brunna, en þar
liggur Skessubásavegur austur
af Kaldadalsvegi norðan við
Skjaldbreið. Tjaldað verður á.
Hlöðuvöllum á laugardags-
kvöldið, og geta þeir, sem vilja,,
gengið á Hlöðufell. Á sunnu-
daginn verður ekið að Haga-
vatni og svo niður hjá Gull-
fossi. Skessubásavegur hefur
einu sinni verið farinn á jeppa.
Þórunn endurtekur
píanóhljómleikana
í kvöld kf< 7
ÞÓRUNN JÓHANNSDÓTT-
IR hélt píanóhljómleika í Aust-
urbæjarbíói í gærkvöldi við
mikla hrifningu áheyrenda.
Hún endurtekur hljómleik-
ana í kvöld M, 7.