Alþýðublaðið - 23.09.1950, Page 6

Alþýðublaðið - 23.09.1950, Page 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ Laugardagur 23. sept. 19.50 Fraiik Y erb y HEITAR ASTRIDU FEGURÐARSAMKEPPNI Hallur, roskinn bóndi. Lolly, ráðskona hans úr Rvík. 1. ræðumaður. 2. ræðumaður. 1. bóndi. 2. bóndi. Raddir. Hallur í Hvammi. Ókvæntur óðalsbóndi, tekinn nokkuð að reskjacV. LoIIy Gríms. Ráðskona hans úr Reykjavík. Lolly. (Situr við spegilinn og plokkar augabrúir sínar og gerir ýmist að söngla danslag eða kveinka sér.) Æ-jæja. . . . Og ef ég svo ekki hlýt fegurð- ardrottningartitilinn hérna í sveitinni eftir allt þetta erfiði og sársauka, — ja, þá skal ég verða svo grenjandi vond, að engin lifandi vera haldist við í nánd við mig. . . . (Sönglar og kveinkar sér sem áður.) Tfngin lifandi vera. . . . Já, hvorki Hall ur bóndi né kötturinn. Um aðr- ar lifandi verur er ekki að ræða á þessum blessuðum bæ . . . og mjög vafasamt hvort þeir geta þá talizt lifandi. Kötturinn sef- ur öllum stundum uppi í rúmi . . . æ, æ . . . og Hallur . . . æ . . . er nú eins og hann er . . . Hallur kemur inn). Ha . . . hvern þremilinn sjálfan értu nú að gera? Lolly (ek-ki óblíð í rómnum). Ég er að punta upp á andlitið, maður. . . . Fyrir feguðarsam- keppnina, sko. Ég er staðráðin í að verða fegurðardrottning sveitarinnar, skilurðu. Hallur. Og þú hsldur að fyrsta skilyrðið til þess sé það, að þú réytir þig í framan eins og maður reytir stél af dauðri hænu. Nei, kerli mín. . . . Þá hafa dómararnir kynlegan smekk, kalla ég. Lolly. Þeir hljóta að hafa þroskaðan smekk. Þeir eru úr Reykjavík . . . Hallur. Ekki skaltu nú treysta því, að þeir séu fífl, þótt þeir séu úr Reykjavík. Yfirdóm arinn á gripasýningunni verður líka úr Reykjavík, og ég ætla að minnsta kosti að vona, að hann verði með nokkurn veg- inn heilum sönsum. Lolly. Já, veiztu nú hvað . . . Agalega finnst mér það púgó af -ykkur, að hafa þessa gripasýn- ingu sama daginn og fegurðar- samkeppnina ... Bara regluleg ókurteisi. Hallur. Nú, hvað er að því? Ég er alls ekki svo viss um, að þið berið svo mikið af hinurn sýningargripunum. Nú, og svo er þetta alltaf tímasparnaður. Gunnar í Seli ætlar nú til dæm- is með öll hrossin, þrjár kýr og dæturnar allar fimm .. . Ætli það sé ekki munur fyrir hann að geta gert eina ferðina ... Jú, skyldi það ekki . . . Lolly. Ó, Hallur, þú ert svo . . . ég á bara stundum alls ekki orð yfir þig . . . En heyrðu, — heldurðu að mér stafi nokkur hætta af þeim . .. dætrunum, meina ég? Hallur. Nei, — og fjárinn hafi það. Hins vegar máttu vara þig á tíkinni . . . Lolly (reið). Að þú skulir ekki skammast þín, sveitalubb- inn þinn. Ég skal bara láta þig vita það, að það eru takmörk fyrir því, sem ég íæt bjóða mér. Hallur. Nú, hvað er þetta, kvenmaður. Ég svaraði bara því, sem þú spurðir. Og ég skal nú bara segja þér það, að hún fer ekki í manngreinarálit, tík- arskrattinn í Seli. Ég ve'it ekki betur en hún biti einn fram- bjóðandann við fundarhúsið í haust, og var það þó heldri maður úr Reykjavík. Hins veg- ar hef ég aldrei heyrt getið um, að dæturnar í Seli hafi bitið neinn. . . . Enda hefur víst eng- inn orðið til þess að stíga ofan á lappirnar á þeim. Lolly (getur ekki að sér gert að hlæja). Svei mér »f ég veit hvað ég á að halda um þig, Hallur bóndi í Hvammi. Ég' get eiginlega aldrei vitað hvort þú ert með afbrigðum heimskur, — eða svona agalega sniðugur. Auðvitað átti ég við hvort stelp urnar væru svo fallegar, að þær gætu orðið mér hættulegir keppinautar um fegurðardrottn ingartitilinn. Hallur. Já, — einmitt. Þú áttir við það. Ég skal ekkert um það segja, en víst er um það, að þær eru ógiftar allar fimm, þótt níu af bændum sveitarinnar séu ókvæntir og sumir svo að hsita manneskjulausir. Hins vegar hefur alltaf verið afburða fal- legt kúakynið á Seli, og það má fjárinn vita, nema sú skjöldótta þar verði kolóttu kvígunni minni hættuleg í hinni sam- keppninni. . . . Hvern skrattann ertu nú að gera? Hvers konar feiti er nú þetta, sem þú makar framan í þig? Lolly (hlær við). Þetta köll- um við nú kreme, Hallur minn. Fyrst nudda ég því vel inn í allt andlitið, síðan mála ég roða í kinnarnar, dreg svarta boga á augabrúnirnar, mála varirnar á mér víolettar . . . Hallur Víolett . .. hver brem illinn er það nú? Ja, hérna . . Lolly. Það er svo agalega sætt, maður. . . . Ég er viss um, að þig dreplangar til að kyssa mig á eftir. Hallur. Nei, fari það bölvmð. Ég hef andstyggð á öllu sætu. Drekk ' ekki einu sinni sætt Wilkes stóð. Hann nam staðe.r frammi fyrir honum og greiddi nonum svo snöggt og' vel úti látið hnefahögg, að hann hneig niður og missti bæði svipuna og skammbyssuna úr höndum sér. Laird tók upp skammbyss ■ una. „Jæja, Wilkes,“ mælti hann blíðlega. „Hlauptu nú eins og þú eigir lífið að leysa. Og ég gef þér leyfi til að hlaupa fram hjá tveim húsum, áður en ég miða. En, — ef þú hefur rangt við og hleypur fyrir hornið a því næsta, tek ég enga ábyrg'ð á, hvað ég kann að gera “ Wilkes hreyfði sig ekki, en gaut augunum til þeirra, sem næst stóðu. „Hlauptu, Wilkes,“ endurtók Laird, ákveðið en ofboð rólega. „Ég var að segja þér að hlaupa af stað; heyrðir þú það ekki, eða hvað?“ Wilkes reis á fætur og skiör- aði af stað, valtur í spori og óstyrkur í hnjáliðunum. Á- horfendurnir stóðu öldungis dolfallnir og þorðu ekki að haf- ast neitt að. Þegar Wilkes hugðist hlaupa fyrir hornið á öðru húsi frá þeim að telja, lyfti Laird skammbyssunni og skaut, en kúlan hvein rétt fyrir ofan höfuð Wilkes. „Ég hitti ekki,“ mælti Laird. „Bölvaður klaufi má ég vera!“ En það brá fy'rir glettnis- glampa í augum hans. Hann sneri sér að Hugh Duncan. „Við hittumst þá á morgun,“ mælti hann. Síðan leit hann til þeirra, sem stóðu á gangstétt- inni og fylgzt höfðu með at- hæfi hans. Þeir voru myrkir á svip og sumir þeirra höfðu kaffi. Ég held það væri líka öllu hægara fyrir þig að stinga upp í þið kandismola og jóðla á honum, svo lítið bæri á, heldur en að maka einhverri leðju á varirnar og vera svo auðvitað alltaf að sleikja út um. Lolly. Æ, það er ekki talandi við þig. Heyrðu annars . . . er nýtt blað í rakvélinni þinni? Hallur. Ha, nýtt blað . . ia, svo til. Ég hef rakað mig með því eitthvað fjórum—fimm sinn um. Nægir þér nú ekki að reyta af þér allar augnabrúnir og ætlarðu svo líka að fara að skafa á þér kjammana? Lolly. Þú heldur sama tónin- um. Nei, sko . . . nú púðra ég á mér vangana . . . Sjáðu, — held urðu að þeir geti orðiö fallegri, ha? Nú þarf ég bara að raka hálsinn að aftan. Heyrðu, Hall- ur minn . . . Vertu nú einu sinni kavaler, og settu nýtt blað í rakvélina þína og lánaðu mér. L dregið upp skammbyssur sín- ar. ■ „Ég verð víst. því miður, að kveðja ykkur í þetta skiptið,“ mælti Laird glettnislega og handlék skammbyssuna. „Ég bakka ykkur fvrir skemmtun- iná!“ Síðan gekk hann nokkur nkref fjær þeim og hélt skamm byssunni lágt. „Þið skuluð ekk e|t hirða um að fylgja mér,“ bætti hann við. „Ég vil helzt vera einn!“ Að svo mæltu stakk hann skammbyssunni í vasann eins og ekkert væri um að vera, sneri baki við þeim og gekk á brott. Hann þekkir þá, hugsaði Philip. Hann veit að enginn þeirra er sá ódrengur að skjóta hvítan mann í bakið. Síðan sneri hann sér að Duncan. „Þér vitið hvar Wilkes á heima,“ heyrði hann Duncan segja við Etienne Fox. „Viljið þér gera svo vel að biðja hann að heimsækja mig í St. Charles gistihúsinu á morgun. Þér kom ið líka. Það er dálítið, sem ég þarf að ræða við ykkur.“ Philip ,yppti brúnum. Á morgun er föstudagurinn 27 iúlí, hugsaði hann með sér. Enginn gæfudagur, eftir öllum sólarmerkjum að dæma. Hugh tók undir arm hans og leiddi hann til hershöfðingjans. „Komum,“ sagði hann, „og fáum okkur eitt staup í ró og næði.“ Philip brosti og síðan gengu þeir aftur inn í veitóngasalinn. SJÖTTI KAFLI. Hugh Duncan virti fyrir sér þá -félagana tvo, sem sátu gegnt honum við borðið og gæddu sér á úrvals sherry, sem hann hafði látið bera þeim. Svín og þórparar, báðir tveir, hugsaði hann. Fox hefur sennilega einhvérn tíma verið sæmilegur maður, en er r.ú löngu farinn í hundana. Hinn hefúr gengið með spillinguna í blóðinu lengst ævinnar. Orð- inn svo rotinn og gerspilltur, að óþefinn myndi leggja lang- ar leiðir, ef stungið væri gat á bjqrinn. Samt sem áður geta svona mannskepnur reynzt þeim notadrjúgar, sem með kann að fara. Og hann brosti góðlátlega við þeim báðum. Hann bar mjóan og langan vindilinn að öskubakkanum og drap öskunni niður í skálina fneð mjúkri fingrahreyfingix. Gestir hans gláptu á hann báð- ir og dáðust að því hve glæsi- lega honum fórst. „Má bjóða yður að reykja, 'aerrar mínir?“ spurði hann. ,,Því ætli maður þiggi bað kki!“ tuldrað Wílkns, en Eti- enne Fox hristi höfuðið neít- andi. Hugh beygði sig fram á borðið, opnaði vindlahvlkið, sem var úr Ijósgulu svínsleðri, og bauð Wilkes. Hann valdi sér einn þeirra mjóu, dökkbrúnu vindla, sem í hylkinu lágu. bar hann þvert að víðum, loðnurn nösunum og þefaði af honnm. „Fyrirtaks vindill!“ tuldraði hann. „Fari það bölvað, ef þér hafið ekki gott vit á vindlum, herra Duncan!“ Hvaða skynbragð skyldir þú hafa á þeim hlutum, bölvað svínið? hugsaði Duncan, en hélt þó brosi sínu. ,,Það er vindlagerðarmaour á Havanna, sem vefur þessa vindlategund sérstaldega fyrir mig,“ mælti hann. „Ég gæti út- vegað yður einn kassa, ef þér viljið.“ ,,Gott!“ svaraði Wilkes. Etienne Fox hafði stungið hægri hendinni inn í sítt skeggið og togaði í lokkana. Hann gaut augunum til Wil- kes og augnatillit hans var hat- ursþrungið. Laird Fournois er mannþekkjari, hugsaði hann, hvernig í ósköpunum stendur á því, að ég hef látið þennan þorpara leiða mig út í of- drykkju. Nú er svo komið, að ég verð að sætta mig við fé- lagsskap hans. Fari það norður og niður í sótsvartasta myrkra díki! Hugh kveikti á eldspýtu og bar að vindli Wilkes. Síðan rétti hann úr sér í sætinu. brosandi sem fyrr. „Jæja, herrar mínir“ mælti hann. „Því miður verð ég að hafa hraðan á. Ég hef mælt. mér mót við Laird Fournois á oftir.“ „Það svín!“ urraði í Wilkes. „Stilltu þig gæðingur!“ svar aði Hugh Duncan. „Mér fellur víst engu betur en yður við Laird Fournois, en samt sem áður kýs ég að haga fram- kvæmdum öllum á þann hátt, sem siðmenntuðum mönnuai sæmir „Ég skil yður víst ekki!“ urraði Wilkes. „Þér skiljið mig, þegar þar að kemur!“ mætli Hugh lágt. „Sannið til.'En nú skulum við snúa okkur að málefninu. Þið vitið báðir hvernig allt er i pottinn búið. Nái Norðurríkja- menn hér völdum, verður hver einasta akurrein einskis • virði, — nema ef vera skyldi á erfða- óðali mínu, Bienvue.“ „Ég fæ ekki skilið að þær ekrur yrðu þá nokkurs virði fremur en aðrar á þessum slóðum,“ varð Etienne að orði. „Skattarnir komnir upp úr

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.