Alþýðublaðið - 22.10.1950, Blaðsíða 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Sunnudagur 22. október 1950
Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Ritstjóri: Stefán Pjetursson.
Fréttastjóri: Benedikt Gröndal
Þingfréttir: Helgi Sæmundsson
Ritstjórnarsímar: 4901, 4902.
Auglýsingar: Emilía Möller.
Auglýsingasími: 4906.
Afgfeiðslúyiéii: 49ÖÖ.U' 11
Aðsetur: Alþýðuhúsið.
Aíþýðuprentsmiðjan h.f.
Fáheyrð tvdfeldni
ÞJÓÐVILJINN heldur áfram
blekkingaskrifum sínum í sam
bandi við togaradeiluna. Kom-
múnistar hafa rekið rýting í
bak sunnlenzkum sjómönnum
með verkfallsbrotum sínum
norðan lands og austan. En
eigi að síður reynir málgagn
veskfallsbrjótanna að telja sjó
mönnum trú um, að það beri
hag þeirra og heill fyrir brjósti
öllum öðrum fremur og leggur
megináherzlu á kröfuna um
tólf stunda hvíld togarasjó-
manna. En samræminu er svo
sem ekki fyrir að fara í þess-
um blekkingaskrifum, því að
samtímis ræðst Þjóðviljinn á
stjórn Sjómannafélags Reykja
víkur fyrir afstöðu hennar til
karfaveiðisamninganna. norð-
an lands og austan og segir, að
hún hafi stöðvað karfaveiðar
sunnlenzkra sjómanna að þeim
sjálfum fomspurðum og bann
að þeim þannig að vinna fyr-
ir sæmileg kjör.
Nú liggur fyrir sú óhaggan-
Iega staðreynd, að karfaveiði-
samningar verkfallsbrjótanna
Bjama Þórðarsonar, Tryggva
Helgasonar og Gunnars Jó-
hannssonar eru sýnu lakari en
miðlunartillaga sáttanefndar
ríkisstj órnarinnar, sem sunn-
lenzkir sjómenn kolfelldu á
dögunum. Þjóðviljinn kallaði
miðlunartillöguna smánartil-
boð og hvatti eindregið til þess
að henni yrði vísað á bug. En
hann á naumast orð til að lýsa
því, hversu hrifinn hann er af
karfaveiðisamningunum norð-
án lands og austan og er hinn
æfasti yfir því, að þeir skuli
ekki einnig komnir til fram-
kvæmda hér syðra! Það er því
engum blöðum um það að
fletta, að allt skraf kommún-
ista um að þeir berjist fyrir
mannsæmandi kaupi og kjör-
um sjómönnum til handa er
b’.ekking. Karfaveiðisamningar
Bjama, Tryggva og Gunnars
hafa svipt af þeim grímunni.
*
Þó kastar fyrst tólfunum,
begar Þjóðviljinn dirfist að
halda því fram, að stjórn Sjó-
mannafélags Reykjavíkur sitji
á svikráðum við kröfuna um
fcóif stunda hvíldartímann, en
'íommúnistar vaki týhraustir
á þeim verði. Samkvæmt karfa
veiðisamningunum norðan
lands og austan eru togarasjó-
menn látnir þræla sextán
stundir í sólarhring. En stjórn
S j ómannaf élags Reykjavíkur
hefur haldið þannig á kröfunni
um þetta mikla og rökstudda
réttlætismál, að sunnlenzkir
sjómenn eiga nú þess kost að
gera samninga, sem tryggi
þeim tólf stunda hvíld í sól-
arhring bæðj á saltfiskveiðum
og karfaveiðum. En kommíin-
istar hafa í raun og veru ekki
meiri áhuga á tólf stunda hvíld
artímanum en það, að þeir ráð
ást á stjórn Sjómannafélags
Reykj avíkur með dólgslegum
illyrðum vegna þéss að karfa-
veiðisamningarnir norðan
lands og austan skuli ekki
einnig koma til framkvæmda
hér syðra. Ef farið hefði verið
að þessu ráði kommúnista,
myndu togarasjómenn nú
þræla sextán klukkustundir í
sólarhring og aðstaða til þess
að knýja fram lengingu hvíld-
artímans , í samningum . milli
þeirra og útgerðarmanna vera
rgé;fsamlé^á nr' sö^unni í ár að
minnsta kosti. Tvöfeldni kom-
múnista í þessu máli mun væg
ast sagt einsdæmi. Þeir gera
fyrir hönd siómanna norðan
lands og austan'samninga, sem
skylda þá til að þræla sextán
klukkustundir í sólarhring á
karfaveiðum. En hins vegar
beita kommúnistar sér gegn
því, að sunnlenzkir sjómenn
geri samninga, er tryggja þeim
tólf stunda hvíld á sólarhring
bæði á karfaveiðum og salt-
fiskveiðum!
Þessi blekkingaleikur kom-
múnista er svo augljós, að eng-
inn þarf að vera í vafa um,
hvað hér er á seyði. Þeir hafa
brennimerkt sjálfa sig í tog-
aradeilunni. Þeir hafa svikið
kröfuna um tólf stunda hvíld-
artímann þar, sem þeim bar að
hafa forustuna í baráttunni
fyrir sigri hennar. Og þeir
væru fyrir löngu búnir að
svíkja hana einnig hér syðra,
ef sunnlenzkir sjómenn væru
ekki svo forsjálir að láta komm
únista vera valdalausa og á-
hrifalitla í stéttarfélagi sínu.
*
Þáttur kommúnista í togara
Verkfallinu er með endemum.
Þeir hafa rekið rýting í bak
cunnlenzkum sjómönnum með
verkfallsbrotum sínum norðan
íands og austan. Þeir hafa svik
ið kröfuna um tólf stunda
hvfldartímann og gert kjara-
samninga, sem eru sýnu. lakari
en samningsuppkast það, er
þeir hafa sjálfir stimplað sem
smánartilboð. Kommúnistar
hafa því verið trúir og trygg-
ir þjónar útgerðarauðvaldsins í
togaradeilunni. Þeir hafa ekki
hikað við að ganga í berhögg
við hagsmuni sunnlenzkra sjó
manna _ af blindu pólitísku
hatÉbj f garð forustumátlna
hei'rra.
Svo þykjast pessir menn vera
hinir einu og sönnu baráttu-
menn þess, að tólf stunda hvíld:
artíminn nái fram að ganga og
sjómenn fái mannsæmandi
kaup og kjör. Auvirðilegri
hræsni er naumast hægt að
hugsa sér. Verkfallsbrjótamir
ganga meira að segja svo langt
að bera upplognar sakir á for-
ustumenn sunnlenzkra sjó-
manna, sem aldrei hafa látið
sér til hugar koma a§ hvika
frá hinum réttmætu og rök-
studdu kröfum þeirra. Sunn-
.enzkir sjómenn eru einhuga
um að bera þessar kröfur sín-
ar fram til sigurs. En þeír
t-urfa að gera sér ljóst, að bar-
útan fyrir sigri þeirra verður
háð á tveimur vígstöðvum;
annars vegar gegn útgerðar-
auðvaldinu, hins vegar gegn
kommúnistasvikurunum.
Hver fekur við af
Trygve Lie
Framh. af 1. síðu.
síðan yrði kosið um þá. . Var
sýnt, að tillaga þessi myndi
ekki fá tilskilið fylgi í ráðinu
eða 7 alkvæði af 11. Fulltrúi
Rússa, Jakob Malik bar þá
fram -tillögu um sérstakan fund
Stórveldanna til að fjalla um
þetta mál, cg var hún sam-
þykkt.
KjörtimaBil Trvgve Lie er
úti í febrúarmánuði næsta ár.
Okkar ám
e ■ a
HÁSKÓLAHÁTÍÐIN var í
gær, og hófst þar með starfs-
ár háskólans. Eru á þessu
hausti fleiri stúdentar innrit
aðir í skólann en nokkru
sinni, og stafar það ekki ein-
ungis af hinum vaxandi hóp
nýrra stúdenta, er mennta-
* skólarnir útskrifa á hverju
vori, heldur einnig af erfið-
leikum, er nú hafa orðið á
vegi þeirra, sem sækja vilja
erlenda háskóla. Úndanfarin
ár hefur sá hópur verið
mjög stór, en nú valda geng-
islækkun og þrengri fjár-
hagur því, að fleiri sitja
heima og hefja nám í háskól
anum hér.
VONANDI tekur ekki að fullu
fyrir námsferðir stúdenta til
erlendra háskóla, þótt slíkar
ferðir verði ekki eins tíðar
og verið hefur undanfarin ár.
Hitt verður þó að teljast
eðlQegt, að allur þorri stúd-
enta stundi nám hér heima,
að minnsta kosti fyrri hluta
námsferils síns, en sem flest
ir geti síðan farið utan til
framhaldsnáms eða í kynn-
isferðir. Virðist fori'áðamönn
um háskólans hér vera þetta
fyllilega ljóst, enda er nú í
undirbúningi að auka mjög
fjölbreytni þeirrar kennslu,
sem háskólinn hefur fram að
bjóða.
ti C> : -S.Ct y.i>nn.ú '* V'.t ' |
MÖRGUM KANN að virðasþ
EKKERT TYGGIGÚMMÍ! Bæjarstjórn hefur nýlega sam-
þykkt nýjar reglur fyrir baðgesti í Sundhöll Reykjavíkur.
* * * j,ar er stranglega bannað að nota tyggigúmmí innan
dyra Sundhallarinnar. * * f Væri ekki leið fyrir stofnanir,
ÚL 4j%nfs‘:' kvíkmySáahusin og sjoppurnar. að setja sömu
regiur? > hJ
HUNTLEY WOODCOCK hefur verið skipaður fiski-
ráðunautur við íslenzka sendiráðið í London.ef* * ‘*TTJtan-
áskrift hans er 31 Laceby Road, Grimsby.
BARNABÓK UM ÍSLAND kemur út í Noregi í haust.
* * * Er það „Ole Jakob opdager Island“ eftir Eli Erichsen og
segir frá því, er Ole Jakob fer til íslands í sumarleyfi.
HEILDARAFLI norsku síldveiðiskipanna við ísland í
sumar nam 85 000 tunnum. * * * Er mikil eftirspurn eftir síld-
inni og fá færri en vilja.
BÆJARYFIRVÖLDIN sendu nýlega bréf ti! alíia
þeirra, sem keypt hafa íbúíjir í Bústaðavegshúsununi, og
minnti þá á að tappa af miðstöðvarkerfum húsanna í
frostum. * * * Það furðulega er, að bærinn hefur enn
ekki útvegað miðstöð í husin, og aðeins fimm húseigend-
ur, sem sjálfir áttu miðstöðvar, eru búnir að fá þær í í-
búðir sínar!
Aftan við fjárlagafrumvarpið, sem liggur fyrir alþingi,
er prentuð skrá yfir laun allra embættismanna ríkisins, eins
og áætlað er að þau verði árið 1951. * * * Forseti íslands hef-
ur að sjálfsögðu hæst laun, 91 535 krónur. * * * Næstur er
prófastur einn ónefndur með 59.513 kr., þá ráðherrar með
56.925, hæstaréttardómarar með 56—57.000 kr., próféssorar
tveir, sem jafnframt eru yfirlæknar, með 53.100 kr. og póst-
og símamálastjóri með 53.100 kr. * * * Næstir þessum koma
helztu forstjórar ríkisfyrirtækja, skrifstofustjórar ráðuneyta,
dómarar, bæjarfógetar og sýslumenn og helztu „stjórar“, sem
allir hafa 45—50.000 kr. árslaun.
ARNULF ÖVERLAND sendir í haust frá sér nýja
ljóðabók, „Fiskeren og hans sjel.“
NÝ FYRIRTÆKI: Hálsklútagerðin, eigandi Svava Jen-
sen. * * * „Vera Trading Company“, ný heildsala, eigendur
Sigurður Sigurðsson og Ingimar Jörgensson.
SINDRI h.f. sækir um 10.000 fermetra lóð til iðnrekstrar.
NORÐMENN sáu ekki aðeins bláa sól hér á dögun-
um, heldur einnig grænan mána. * * * Þeir héldu fyrst,
að orsökin væri ískrystallar í andrúmsloftinu.
Það er æthm stjórnarinnar að ljúka þingstörfum mjög
snemma, ef til vQl fyrir hátíðir.
Háskólahátíðin.
5 Tvær íslenzkar kvik-
myndir í Tjarnarbíó
að fjöldi þeirra landsmanna,
sem nú afla sér háskóla-
menntúnar, sé ærið mikill
fyrir svo fámenna þjóð. Þyk-
ir mörgum sem núverandi
emfaætti muni varla hrökkva
til, og þessi vaxandi fjöldi því
knýja á um myndun nýrra
embætta og draga sig út úr
beinum framleiðslustörfum.
Svo var að heyra á ræðu
rektors í gær, að honum og
öðrum forráðamönnum skól-
ans sé þetta einnig fyllilega
ljóst. Er nú unnið að því að
auka fjölbreytni náms við
skólann, svo að hann geti séð
kennarastéttinni fyrir sem
fullkomnastri og beztri
menntun. En rektor hvatti
stúdenta einnig t.Q þess að
leggja fyrir sig framleiðslu-
störf, til dæmis landbúnað,
og mundi það verða aukinn
styrkur bændastétt landsins,
ef stúdentar beindu starfs-
kröftum sínum í þá átt í stað
þess að setjast á skrifstofur
og taka þátt í kapphlaupi um
embætti í bæjunum. Svipað
mætti segja um fleiri at-
vinnugreinar. Haldi fjölgun
stúdenta áfram eins og verið
hefur undanfarin ár, verður
sá háttur að komast á, að þeir
láti sér stúdentspróf eða BA
próf nægja og fari með það
ágæta vegarnesti til fram-
leiðslustarfa, en bætist ekki
allir í hóp embættismanna og
embættisumsækjenda.
ÞAÐ ER GOTT, að forráða-
menn háskólans gera sér
þetta ljóst, og vilja beina
þróun háskólans inn á þær
brautir, að hann sé í sem nán
ustum tengslum við þarfir
þjóðarinnar, án þess að
nokkru sé fórnað á sviði
fræðimennsku og menntunar
embættismanna, sem er hið
fasta og forna aðalhlutverk
háskólanna. Er þá vonandi,
að þjóðin sjái sér fært að búa
sem bezt í haginn fyrir þenn-
an skóla, enda er hann og á
að vera musteri íslenzkrar
menningar.
5000 kr. gjöf iil
siyrkfar bændum á
óþurrkasvæðinu
SPARISJÓÐUR AKRANESS
hefur gefið fimm þúsund krón
ur tQ söfnunarinnar, sem Stétt-
arsamband bænda efnir nú til,
vegna þeirra bænda, er harð-
ast hafa orðið úti um heyskap
í sumar á óþurrkasvæðinu aust-
an lands og norðaustan.
Pétri Ottesen, alþingismanni
Borgfirðinga var afhent þessi
gjöf. Fréttir berast um það, að
hvrvetna bregðist menn vel
við, ef til er leftað. — -íí
um helgina
TJARNARBÍÓ sýnir um
bessa helgi tvær íslenzkar
kvikmyridir eftir Osvald Knud
oen. Önnur er af hrognkelsa-
veiði í Skerjafirði, en hin nefn
ist „Tjöld í skógi“ og byggist
samnefndri drengjasögu eft-
:r Aðalstein Sigmundsson.
Myndirnar eru báðar í litum
og tekur sýning þeirra um eina
klukkustund.
„Tjöld í skógi“ er tekin í
Þrastarskógi, og koma fram í
henni þrír drengir, þeir Björn
Stefánsson, sem leikur Harald;
G<u.ð:ón I. Sigurðsson er leik-
ur Árna og Sigmundur Frey-
steinsson er leikur Jón. Krist-
ján Sólmundsson flytur text-
arm í myndinni en Radio og
raftækjastofan, Óðinsgötu 4,
annaðist tónupptökuna.
Myndin fjallar um sumar-
dvöl drengjanna í skóginum,
en þar eru þeir skógarverðir.
Drengirnir grisja skóg, veiða
silung og lax og fylgjast með
fugla og skordýralífi skógar-
ins. Myndin er falleg, en nokk-
uð langdregin og líkir atburð-
ir sýndir aftur og aftur.
Myndin af hrognkelsaveið-
um í Skerjafirði, hefur upp á
meiri fjölbreytni að bjóða. Þar
er sýnt athafnálífið í Gríms-
staðavörinni á vorin um hrogn
kelsatímann, og enn fremur
veiðarnar á firðinum; einnig
sjávargróðurinn og fuglalífið.