Alþýðublaðið - 22.10.1950, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 22.10.1950, Blaðsíða 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÖ Sunnuclagur 22. október 1950 Leifur Leirs:- PERPETUM MOBILE Sumar Vetur sumar minningar lokað um hádegi á laugardögum sumarleyfi yfirfull/.r rútubíll veiðilaust veiðivatn kvef sami sandurinn í sömu pokunum morgun dagur kvöld vetur skemmtanir skammdegismyrkur skólafólk lambaslátur alþingismenn sviðahausar Leifur Leirs. Frú Dáríðui Dulbeinui: A ANDLEGUM VETTVANGI. Komandi vetur: Stjörnuafstaðan er býsna skrýtin bæði innbyrðis og út- byrðis; fastastjörnurnar hald- ast að vísu nokkurn veginn kyrrar á sínum stað, og bendir það til þess, að gætnir og reynd jr bitlingamenn megi vera ó- hræddir í stöðum sínum. Hins vegar eru reikistjörnurnar allar é reiki, og gæti það þýtt los mikið í pólitíkinni og siðferðis- Iífi landsmanna. Einkum er mikið rót og ringulreið um- hverfi% Merkúríus; stjörnuhröp og losarabragur, sem gæti þýtt óreiðu og vesen í verzlunarlíf - ‘ j inu; verðhækkanir, smákaup- ' mannagjaldþrot, vöruskort, hamstur og spákaupmennsku. Hins vegar er allt með kyrrum kjörum í Hrútsmerkinu og ] bendir það, á að allt verði í stakasta lagi hjá S.f.S. Þá er og talsvert los og ring- ulreið á reikistjörnunum í meyjarmerkinu, og er það rauninni ekkert nýtt fyrirbæri og þýðir sama og vant er, — lausung og flangs og ósiðsemi. Eitthvað er Marz að flækjast í nánd við það merki, og gæti það þýtt einhverjar kurteisis- heimsóknir, — þarf ekki nauð- synlega að þýða neitt annað meira. Satúrnus er í tólfta húsi, -— bendir á stöðuveitingar fyrir kunningsskap og pólitískar tengdir og baktjaldamakk. Góð ur vetur forstjórum opinberra stofnana, miður svefnsamt hjá æðstu mönnum einkafyrir- tækja; bærilegur vetur brösk- urum, en engin rifrildisafkoma bó hjá öðrum en svartamark- aðsmöngurum, smyglurum og sannfæringarsölum. Venus er í níunda húsi, en Merkúríus í tíunda, en þessi ná grennd þeirra virðist bsnda til, að ást verði föl fyrir nylon- sokka, stælskó og undirföt; einnig að vandamál viðskipta- lífsins, svo sem vöruskortur og innflutningshömlur auki raun- j hæf áhrif og afleiðingar ástar- innar. Annars lauslæti. Halastjarna er yfir fimmta húsi, og virðist benda á góðan vetur leikstarfsemi og leikur- um, óvænt heimsókn gæti þó gert það strik í reikninginn að konu yrði þar ofaukið; hins vegar skortur á meyjum, en gnægð skuggasveina. Jólasvein- ar á öllum sviðum. Revya at- vinnuleikara við Austurvöll. Stjórnarkreppa upp úr nýár- inu og ekki eina kreppan, sem þá verður við að glíma. Almenn skókreppa á kvenfótum nr. 39 og þar yfir. Jörðin fjarlægist sporðdreka- merkið; — boðar mannslát sundrung og erjur, en þó allt ástúðlegt . . . bak við tjöldin. Dáríður Dulheims. .^JFrank Yerby ------- HEITAR ÁSTRÍDUR Nýtt tímarií I er komið út. i HUCUIU’S 1 brott. Hálfri klúkkustund síð- ar;' reið“ haftri® &tigirfri^<h'éiöí'1 fið óðalssétri sínu, í háni ‘stáðáf'' Við hesthúsið og steig af baki. Ei allt hefði verið með felldu, mundi einhver negranna hafa komið til móts við hann, tekið Jiestinn í sínar vörzlur og ef Laird hefði að einhverju leyti verið svipaður Hugh Duncan, mundi negrinn auk þess hafa sýnt honum lotningu sína iheð frukti og beygingum. En engu slíku var til að dreifa. Það var eins og ósýnileg girðing lægi umhverfis cí'alssetrið, og inn fyrir þau landamæri mátti enginn svertingi stíga fæti sín- um. Þetta var öllum verka- mönnum hans ljóst, og þeir gerðu hvorki að brjóta það boð eða spyrja, um orsök þess. Laird gekk hröðum skrefum heim að húsinu og var ekki í sem beztu skapi. Áður en langt um liði, yrði hann að taka á allri sinni stillingu til þess að þola hvíta, subbulega og svifa- seina vinnukonu í návist sinni, og með söknuði minntist hann hinnar laglegu, fjörlegu og hreinlegu kynblendingsstúlku, sem var vinnukona á heimili foreldra hans áður en styrjöld- in hófst. Hann bölvaði svert- ingjahræðslu konu sinnar hátt og í hljóði, en þegar honum varð litið upp á veröndina, sá hann hvar Sabrína kom til móts við hann. Og hún þrosti. Hún hafði megrazt síðan þau komu heim til Plaisance. En fögur var hún eins og áður, ef til vill enn fegurri. Það var eitthvað ójarðbundið við feg- urð hennar og framkomu, eitt- hvað, sem varð þess valdancli, að margir, er litu hana, hugs- uðu sem svo, að hún gæti ekki orðið langlíf; þyldi ekki harð- ýðgi hans og kröfur. En Laird vissi ósköp vel að sú skoðun var tilefnislaus. Sabrína var gædd furðumiklum þrótti og líkamshreysti, og sótti hún það oflaust til skozkra forfeðra sinna. Hún hresstist nú dag frá degi, og það kom varla fyrír, að hún gréti eða yrði óttasleg- in. . Ég ræð kynblendingsstúlku fyrir vinnukonu áður en langt um líður, hugsaði Laird, og fari svo, að Sabrína óttist hana ekki, er það öruggt merki þess, að hún er í þann veginn að verða albata. Sabrína teygði granna, hvíta armana á móti honum. ,,Ég var farin að óttast um þig,“ mælti hún. „Ég hélt að þú ætlaðir aldrei að koma aft- ur“. Síðan lyfti hún andlitinu svo að hann gæti kysst hana. Laird laut að henni. „Það kemur hingað gestur innan skamms,“ sagði hann og hikaði við. „Ástin mín . . .“ bætti hann við, eins.og honurn hefði elcki þoít seímngn /fá', fullkommn enqa, nema þau orð fylgdu herini. „Ástin mín,“ endurtók hún. „Ef ég væri ástin þín en ekki. aðeins ...“ „Aðeins hvað?“ spurði hann og það var ekki laust við að hörku kenndi í röddinni. Sabrína starði á hann og svjpur hennar var þrunginn beirri harmrænu ástúð, þeirri blíðu undirgefni við örlögin, sem Laird þótti lakast að verða að þola. „Aðeins orsök þeirra mestu vonbrigða, sem þú hefur orðið fyrir í lífinu,“ hvíslaði hún. „Eiginkona, sem aldrei getur orðið þér eiginkona í þessa orðs fyllstu merkingu, sökum þess að þú óttast, að börn þau, sem þú kynnir þá að geta við þenni, erfðu brjálsemi hennar; sé það þá orsökin ..Rödd hennar brast skyndilega og brúnu augun hennar lauguðust tárum. Laird lagði hendur sínar blíðlega á axlir hennar. „Þetta breytist allt áður en langt um líður,“ mælti hann. „Ég vil aðeins að þú verðir orðin hress og hraust, fullkom- lega hraust, áður en við hætt- um á það, að þú verðir barns- hafandi.“ Hann laut enn að henni og snart varir hennar léttum kossi. „Ég kem aftur eftir eitt andartak,“ bætti hann við og gekk á brott í átt- ina til svertingjaskálans. Sabrína horfði á eftir hon- um og lagði fingurgómana að vörinni, þar sem varir hans höfðu snortið hana rétt sem snöggvast. Sú var tíðin, að kossar þínir brunnu á vörum mér, hugsaði hún og gekk hægt inn í húsið. Skömmu síðar stóð Laird við nlið henni úti á svölunum til þess að taka á móti Jim Demp- ster og bjóða honum inn. Slæði Jims voru gömul, höfðu auðsjáanlega verið saumijð á árunum fyrir styrjöldina, og enda þótt þau væru strokin og hrein, fóru þau honurn ekki sem bezt. Hann gekk hægt og þreytulega, og Laird minntist þess ósjálfrátt, að það var eng- in smáræðis leið á milli býl- anna. I,aird gekk niður stigann til :nóts við hann, tók undir höncl honum og leiddi hann upp á svalirnar. Jim var sveittur og göngumóður, eins og við var að búast. Þegar hann kom upp á svalirnar, nam hann skyndi- lega staðar, eins og hann sæi þar eitthvað yfirnáttúrlegt. „Hamingjan góða hjálpi :mér,“ varð honum ósjálfrátt að orði. Sabrína brosti og rétti hon- umi hvíta hönd síná. En hann hafði þá snúið sér að Laird. \ „Neí,'14,uMéshÁa6öÍ^‘í sagði hann undraridi! „HÚri'er ekki af holdi og blóði. Hvar fannst þú hana, kunningi? í einhverri ævintýrabók?" Sabrína roðnaði upp í hárs- rætur af barnslegri hrifni. „Þakka yður fyrir gullhamr ana, herra Dempster,“ mælti hún feimnislega. Jim þrýsti hönd hennar, sem hvarf eins og lítið, hvítt blóm í hrammstóra, dökka greip hans. „Það gleður mig að kynnast vður, frú,“ sagði hann. „Ég bjóst að vísu við því, að Laird hefði ekki valið sér konu af verri endanum, en satt að segja hafði ég gert mér allt aðra hugmynd um hana.“ „Og hvernig gerðuð þér yð- ur í hugarlund að ég myndi iíta út?“ spurði Sabrína. Jim roðnaði, og þurfti þó talsvert til svo að þess sæust nerki, þar eð hann var að jafn aði dimmrauður í andliti. „Dálítið feitari," stamaði hann, „dálítið ... ég á við ... ekki alveg svona himnesk.“ Sabrína hló, en það var eng- inn gleðiylur í hlátri hennar. Jim skotraði augunum til Laird, og veitti því athygli, að augnatillit hans var kalt og hvasst og brúnir hans hnykl- aðar. Eitthvað er þettá öðru- vísi en það ætti að vera, hugs- aði Jim. Eitthvert ólag er á sambúð þeirra, það bregzt mér ekki. Og Jim brá ónotalega, begar þetta vakti athygli hans. Hver skrattinn sem það svo er, bá . . . Laird vísaði honum inn í borðstofuna, svipkaldur og 'hlutlaus eins og andlitið væri meitlað í stein. „Þú færð ekki neinn hátíða- mat,“ mælti hann við Jim. „Þess verður eflaust langt að bíða, að við höfum efni á því að halda veizlur, hérna að Plaisance.“ Jim brosti. „Þið eruð þó betur á vegi stödd en flestir aðrir hér um slóðir“, varð honum að orði. „Hér í sveit hafa fæstir efni á því að éta.“ Sabrína bar þeim steiktan fugl og kartöflur. Undir borð- um hélt hún uppi samtalinu, mælti hratt og brá á gaman, en Laird neytti matarins svip- gneypur og lagði fátt til mál- anna. Hún óttast þögnina, hugsaði Jim og hlustaði á hjal hennar af meiri athygli, og varð þess þá var, að hún óð úr einu í annað, samhengislítið. Það er eitthvað athugavert við þetta, hugsaði hann enn; ann- arhvor aðilinn finnur ekki hinn. Hann virti Sabrínu fyrir

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.