Alþýðublaðið - 18.01.1951, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 18.01.1951, Blaðsíða 5
Fiinmtudagui* 18. janúar 1951. ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5 Bjarnadóftín ERINDIÐ, sem hér birtist, örlítið stytt, flutti frú Bjarnveig' Bjarnadóttir í ríkisútvarpinu síðast liðinn mánudag, í dagskrárlig þess um daginn og veginn. Er- indií) vakti mikla athygli og hafa Alþýðublaðinu borizt mörg tilmæli um að freista þess að fá það til birtingar. Hefur höfundurinn nú góðfúslega 'eyft blaðinu að birta það í dálkum sínum. OG NÚ ER BYRJAÐ nýtt ár. Ég las í dagblaði, að það ó- | trúlega hefði skeð, að aðeins ( f jórir menn voru teknir úr um-; ferð á gamlárskvöld sökum öl-1 æðis og stungið inn í kjallara 1 lögreglunnar — Þetta gamlárs 1 kvöld kvað hafa verið það ró-; legasta í fjölda mörg ár. Spá j ýmsir, að hér sé um að ræða hugarfarsbreytingu 'hjá fólki. Og færi betur, að svo væri, því og margir hafa haft af því á- hyggjur miklar og margvísleg- ar, hve Bakkus hefur verið dýrkaður mikið undanfarin ár, — ekki sízt foreldrarnir, sem horft hafa upp á það, að efni- leg börn þeirra yrðu honum að bráð. En mörgum brá í brún, beg- ar eitt af dagblöðum bæjarins birti þá fregn nýlega, að ýmis af aðalíþróttafélögum bæjarins hefðu stórfelldar vínveitingar á skemmtunum þeim, sem fé- lögin halda. Mörgum varð á að spyrja: „Hverjum er nú að treysta?11 Kjörorð félaganna hefur verið: „Heilbrigð sál í hraustum líkama.“ Foreldrarn- ir hafa hvatt unga fólkið til þess að ganga í íþróttafélögin og ætlazt til, að þangað sæktu þau þrótt og heilbrigði, and- lega og líkamlega. —- Það er engin furða, þó að margur yrði hissa. En þegar málið upplýst- Ist betur, var helzt að sjá, að sökin væri einnig að finna hjá sumum stjórnendum samkomu húsanna. Þeir leigja salarkynn- in ekki öðrum en þeim, sem leggja á borð með sér vínveit- ingaleyfi. Eklcert tillit er tekið til þess, þó að æskufólk eigi í hlut, aðeins hugsað um það eitt, að ná inn sem mestum gróða í aðra hönd, hvernig svo sem hann er fenginn. Það er engin furða, þó að ástandið sé ömur- legt, þegar þannig er í pottinn búið. Ég held, að gestir, sem neyta ekki áfengis, séu í meðallagi vel séðir á skemmtunum veit- ingahúsanna, að minnsta kosíi sumum þeirra. Kvöld eitt fór kunningi minn ásamt vini sín- um á skemmtun í eitt af aðal veitingahúsunum hér. Þeir eru báðir bindindismenn og hugð- ust sitja yfir kaffibolla eða öl- glasi, því að þeir voru búnir að kaupa aðgöngumiða að skemmtuninni. Allt gekk vel í fyrstu. Þarna ríkti glaumur og gleði, og dansinn dunaði dátt, ,og tóku þeir þátt í honum. En þeim brá í brún, þegar þeir .komu að borðinu eftir einn dansinn og sáu, að borðið var þéttskipað af fólki, sem þeir könnuðust ekki við. Piltunum var sagt kurteislega, að nú væri borðið ætlað öðrum en þeim. Þeir mölduðu í móinn; fannst þetta súrt í broti. En allt kom fyrir ekki. Þeir hypj- uðu sig út. Fyrir nokkru var ég boðin rneð góðu kunningjafólki mínu í máltíð að kvöldi dags í eitt af veitingahúsunum hér í borg. Vinkona mín átti afmæli. og var það tilefni boðs þessa. Þegar búið var að bera okkur súpuna, kom þjónninn, prúð- mannlegur og kurteis, til okk- ar og sagði vig þann, sem beðið hafði um matinn: „Afsakið, herra. Var það eitthvert sér- stakt vín?“ — En ætlun okkar var ekki að setjast að vín- drykkju, þó að við skryppum kvöldstund inn í veitingastað. — En við skildum,' hvers af okkur var vænzt. Ég hef heyrt, að þegar kvölda tekur, sé töluverður greinar- munur gerður á gestum þeim, rem sækja veitingastaðina. Kváðu þeir sitja í fyrirrúmi, sem víndrykkju stunda. I október síðast liðnum voru gefin út fyrirmæli af mennta- málaráðherra, Birni Ólafssyni, sem allir hugsandi menn og konur eru honum mjög þakk- lát fyrir. Fyrirmælin eru þau, að algerrar reglusemi er kraf- izt af nemendum og kennur- um opinberra skóla. Það er opinbert leyndarmál, að vínneyzla hefur verið all- mikil á skólaskemmtunum ung- linganna undanfarin ár. Marg- ir foreldrar, sem sent hafa reglusöm og mannvænleg börn sín í skólana, hafa haft áhyggj ur af þessum skemmtunum og fundizt þær allt of tíðar. En foreldrarnir virðast ekki ráða þar neinu um, — þeirra álits er aldrei leitað um þá hluti. Það virðist vera lítil samvinna milli skóla og foreldra. Ég gleymi aldrei atviki, sem ég var áhorfandi að á skóla- skemmtun hér í bænum. Þetta kvöld var veður mjög fagurt. Bjartviðri og blæjalogn. Ég gekk út mér til hressingar. Gekk ég fram hjá unglinga- skóla nokkrum. Á efri hæð skólans var gleðskapur mikill, músik og dans í hálfrökkri. Ég staldraði við og leit upp í glugg- ann. Var stór gluggi opinn, og á gluggakistunni vóg salt ung- ur, laglegur piltur, dauða- drukkinn. Brjóstið, höfuð og handleggirnir héngu lífvana út um gluggann. Pilturinn gat á hverri stundu dottið út íyrir og af því hlotizt mikið slys, því að fallið var hátt. Eftir dálitla stund greip í hann sterkleg hönd, og heyrði ég að sagt var með drafandi málrómi: „Heyrðu, lagsi. Ertu dauður?“ Pilturinn var dreginn inn fyrir — honum var borgið. Síðar frétti ég af dansleik þessum. Kennari skólans gætti þess, að ,allt færi fram með ró og spékt, og að vín væri alls ekki haft um hönd. En nokkrir drengjanna' léku á kennarann. Komu þeir sér saman um, að aðdrættir vínfanga á skóla- skemmtun þessa skyldu fara fram inn um opinn gluggann. Voru vínflöskurnar dregnar upp í taug, og býst ég við, að lag- legi drengurinn dauðadrukkni olaldakjöt í 1—2 kg. pökkum: Steik. Smásteik í gluggakistunni hafi verið sá, sem tók á móti, og hafi tekið drjúgan toll af. j Það væri óskandi, að reglu- gerð ráðherrans bæri tilætlao- an árangur, hva’ð snertir vín- neyzlu í skólum. i Ég held mér finnist fátt eins óhugnanlegt og að sjá mann- vænlegt æskufólk ölótt. Ég skil ekki í því háttalagi, að meina því leigu á samkomuhúsunum, nema því aðeins að vínveitinga leyfi fylgi leigubeiðninni. Það hefur a’drei þótt fallegt, að leiða þá í freistni, sem veikir eru á svellinu. Margt skeður sorglegt á skemmtistöðunum í sambandi ‘ ----------- vio vínveitingarnar. Það er eng regluna, því að betra væri fyr- ið úr býtum meðan á því stóo. lnl*. fnrða’.Þ° að foreldrarmr , ir hann ag Hggja í „kjallaran-; Nú hefur hann fullt kaup. En ha í ahyggjur miklar og marg- um« en fyrir hunda og manna í bæði eru fátæk, og margt þarf Samband ísl. samvinnufélaga. Sími 2678. r, ve§na örlaga sona sinna og fótum f húsasundi. En ég gat dætra. einhvern veginn ekki komið mér að því, að láta lögregluna Það rífjast upp fyrir mér ann hirða hann- sá mikið eftir að raunalegt atvik. Það var fag Þvi>' hafa ekki gert það. urt vorkvöld. Eitt af fegurstu vorkvöldunum í Reykjavík. Mér hefur orðið tíðrætt um Ég var á gangi með móður áfengismálin hér í borg. En minni. Gengum við Lækjargöt • hugleiðingar um þau, hvörfluðu una, og ætluðum að stytta okk að mér, eftir lestur greinar ur leið að Austurvelli. Fórum þeirrar í dagblaðinu, sem birti við gegnum sund, sem lá þar á þá fregn, að stórfelldar vín milli húsa. í þessu baksundi er fornfálegt og gamalt hús. Upp við húsvegginn studdist góð- iegur dauðadrukkinn 17 ára pilt ur. Hann húkti þarna einn og yfirgefinn — svo sorglega ein- mana í þessu ömurlega ástandi. Við gengum til hans, og yrtum á hann. Mér skildist á honum, að hann hefði setið að drykkju með félögum sínum í veitinga- húsi þar skammt frá, og þeir svo yfirgefið hann. Ég spurði piltinn, hvort við ættum ekki að ná í bíl, og hjálpa honura heim. En þá fékk hann málið, og mælti: „Mamma og pabbi eru skilin. Mér þykir svo und ur! vænt um mömmu mína. Hún vill allt gera fyrir mig. En ég hef komið drukkinn heim, og hún hefur ekki fundið að því við mig, en ég hef séð hana gráta yfir því, — Ég get ekki horft upp á mömmu mína gráta. Ég fer ekki heim“. Við spurð- um drenginn, hvort hann vildi koma heim með okkur. En það var ekki viðlit. Við urðum að skilja hann eftir þarna, í vesal dómi sínum og einmanaleik. Ég var að hugsa um að kalla á lög veitingar færu fram á vegum íþróttafélaganna. Það er sorg legt, að þetta skuli koma fyrir, um líkt leyti og bindindiseftir- lit er hafið í skólunum. Við íslendingar setjum met í ýmsu, þótt smáir séum. Eitt metið erum við að nálgast. Hér kvað fjórða hvert barn, rem nú fæðist, vera óskilgetið. Ýmsar eru víst ástæðurnar. Ég nefni hér eina, sem vert er að gefa gaum að, og fulltrúar okkar á alþingi geta hæglega ráðíð bót á. Allir vita, hvað skattaálög- urnar eru orðnar þungar. Þær eru því valdandi, að oft er erf- itt fyrir ungt og efnalítið fólk, að gifta sig, um leið og það skapar sér heimili. Unga fólk- ið hefur uppgötvað það, að fjár hagslega séð, er heppilegra fyr. ir það, að búa saman ógift en gift. Unga stúlkan stundar at- vinnu, og hún heldur áfram að vinna utan heimilisins, þótt hún stofni bú með piltinum sínum. Pilturinn er ungur, og hefur nýlokið einhverju námi — til dæmis, iðnnámi, og borið lít- Barnaskólar hyggðir fyrir 33 milljónir á þremur árum SÍÐAST LIÐIN ÞRJÚ ÁR hafa verið bygg’ðir barnaskólar og skólastjóraíbúðir fyrir samtals 33 milljónir króna, og áætlað er að á þessu ári muni vera þörf á að verja um C milljónum króna til bessara framkvæmda. Frá 1947 hefur verið byrjað á byggingu 10 skólahúsa í kaup stöðum. Tvö eru enn í smíðum, en hin eru fullgerð. Áfallinn kostnaður við þessar bygging- ar er um 14,7 milljónir króna og áætlaður kostnaður á þessu ári um 4 milljónir. Utan kaupstaða hefur verið byrjað á byggingu 27 skóla- húsa og 3 hafa verið endur- bætt. 13 þessara húsa eru full- gerð og 11 að mestu leyti. 31 þúsund krónur. skólahús eru skemmra á veg 'komin. Áfallinn kostnaður við þessar byggingar nemur 16,5 milljónum króna og á þessu ári er áætlaður kostnaður 1,7 milljónir. Þá hafa verið byggðir 11 skólastjórabústaðir frá 1947, þar af eru 10 fullgerðir og einn er í smíðum. Kostnaður við þá nemur 1,6 milljónum króna og til viðbótar er áætl- að að þurf.i á þessu ári 119 að kaupa til búsins, og .allir hlutir dýrir. Ef prestur leggur blessun sína yfir ungu stúlk- una og piltinn, þýðir það: haérri skatt. En stúlkan og pilturinn eignast ef til vill erfingja, áð- ur en langt um líður. Éftir hæíi legan tíma, er barninu komið í fóstur á daginn, svo að unga stúlkan geti hjálpað til, að afla • til búsins. Þessi börn eru köll- uð óskilgetin börn, og hefur töluvert verið á fjölda þeirra minnzt í dagblöðunum. Að nokkru leyti er skattalög gjöfinni hér um að kenna. Ef gift kona vinnur utan heimilis, eru tekjur hennar lagðar við tekjur mannsins. Árangurimi er: stórauknir skattar. En sjálf sagt er, að skattleggja hjón, hvort í sínu lagi. Einn fulltrúi okkar kvenna á alþingi, frú Soffía Ingvarsdótt ir, flutti frumvarp um skatta- mál hjóna. Það virðist ekki fá sérstaklega góðan byr undir vængi. Yrði það þó ekki síður í hag karlmanna, en kvenna, ef það yrði að lögum. Og frum- varp þetta verður að ná fram að ganga. Við eigum að gera ungu fólki kleift að stofna bú, og gifta sig. Skattalöggjöfin. má ekki vera slíkur refsivönd- ur, að gifting sé umflúin, vegna hræðslu við hana. Ungt, efna- lítið fólk, sem giftir sig og á börn, á frekar að styðja en hundelta, þó að unga konan leggi það á sig, að vinna, jáfn framt heimilisstörfunum, útan heimilis, fyrir daglegum þörf- um lífsins. — Og svo 1 ofaná- lag að heyra það, að barnið hennar sé óskilgetið. — Ég spurði einu sinni unga indæla stúlku, sem bjó með piltinum sínum, hvers vegna þau giftu sig ekki. Ég vissi, að þau vom bæði mjög siðavönd. Unga stúlk an svaraði: „Við verðum að vera gift fyrir guði. Við höfum ekki efni á, að vera gift fyrir mönnum". Það mun álit flestra, að hér sé farið inn á mjög varhuga- verða braut, bæði frá siðferð- is- og þjóðfélagslegu sjónar- miði séð, o.g er það nú, á valdi fulltrúa okkar á alþingi, að ráða bót á þessum málum, svo vel megi við una. Nú er tíma mínum senn að verða lokið. Mig langar að síð- ustu, að minnast á mikinn leik listarviðburð hér í borg. Það er sýningin á „Marmara“, hinu stórfenglega leikrit Guðmund- ar Kambans. Ég held, að ég Framh. á 7. síðu. •

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.