Alþýðublaðið - 20.03.1951, Qupperneq 8
Gerizt áskrifendur
að Alþýðublaðinu.
Alþýðublaðið inn á
hvert heimili. Hring-
ið í sími 4900 og 4906
Börn og unglingaU
Komið og seljið
Alþýðublað|ð>
Allir vi'lja kaupa
Alþýðublaðfð
Þriðjudagur 20. marz 1951
Verkaiýðsfélag Ákraness sam*
þykkir uppsögn samninga
----------------
Telur fulia mánaðarlega dýrtíðaruppböt
nú lágmarkskröfu vinnandi fólks.
----------------*-------
VERKALÝÐSFÉLAG AKEANESS samþykkti á aðalfundi
sínum á sunnudaginn að fara efiir tilmælum Alþýðusambands
Islands og segja upp samningum vi'ð atvinnurekedur með það
fýrir augum að fá greidda íulla mánaðarlega dýrtíðaruppbót.
Éar það áiit fundarins, að fuil dýrtíðaruppbót væri nú lág-
markskrafa liins vinnandi fólks.
Samþykkt fundarins er svo*------------
hljóðandi:
Sfinxin á Egipfalandi í viðgerð
„Aðalfundur Verkalýðsfélags
Akraness, haldinn 13. marz
1951, er samþykkur áskorun
stjórnar ASÍ um. að öll verka-
lýðsfélög landsins segi upp
kaupgjaldssamningum sínum
þannig að þeir verði lausir sem
næst fyrsta apríl n. k. og sam.-
þykkir að fela stjórn félagsins,
að segja nú þegar upp öllum
gildandi samningum deildanna,
sem fela í sér kaupgjaldsávæði,
Fundurinn samþykkir jafn-
framt, að eigi skuli krafizt
grunnkaupshækkunar við nýja
samninga, heldur einungis, að
þau ákvæði um greiðslu dýrtíð
aruppbótar, sem eru í gildandi
samningum og þing og stjórn
hafa að engu gert, verði fram-
vegis að fullu haldin.
Verkalýðsfélaginu er full
Ijóst, að grunnkaupshækkanir
eru ekki bót þeirra meina, sem
nú þjá þjóðlíf vort. Aftur á
móti teljum vér það lágmarks-
kröfur í nauðvörn hins ‘ vinn-
andi fólks að fá greidda um-
samda dýrtíðaruppbót, enda er
það á valdi ríkisstjórnar og
meirihluta alþingis að lækka
dýrtíðina í stað þess að hækka
hana stöðugt. eins og verið hef
ur, en það er fyrsta krafa
fólksins".
offleiðir kaupa
flugvéllna á
Vatnajökli
LOFTLEIÐIR hafa nú fest
kaup á amerísku Dakotaflug-
vélinni, sem tepptist á Vatna-
jökli í hc.ust í sambandi við
Geysisslysið. Enn fremur hef-
ur félagið aflað sér réttinda til
þess að hirða það, sem unnt
kann að reynast að bjarga af
farmi Geysis.
Munu Loft’eiðir gera út leið
angur með vorinu til þess að
reyna að bjarga Dakotaflugvél
inni, annað hvort með því að
fljúga henni þaðan burt, eða
taka hana sundur að öðrum
kosti og flytja hana í stykkj-
um niður af. jöklinum. Enn
fremur mun verða gerð tilraun
til þess að finna Geysisflakið
á ný og bjarj|a einhverju af
farminum.
Eídur í kolagrepslu
SLÖKKVILIÐIÐ var um kl.
1 í gær kvatt vestur á Víð'mel
32, en þar hafði kviknað í kola
Báfur sfrandar við
Eyrarbakka en
áhðfnín bjargasl
SNEMMA í gærmorgun
strandaði vélbáturinn Ægir við
Eyrc.rbakka. Á bátnum voru
áíta menn og varð þeim öllum
bjargað, en talið er að bátur-
inn muni vera ónýtur.
Var bgturinn að koma úr
róðri, en vél hans mun hafa
bilað, þegar komið var inn á
sundið, og rak bátinn upp í
klappir ,en skipshöfninni var j
bjargað af bát slysavarnafé-1
lagsins, er þarna var. Talið er
vonlítið að unnt verði að
bjarga bátnum, enda var í gær
kominn suðaustan stormur
fyrir austan.
Það er verið að gera við sfinxina frægu á Egyptalandi, hið
risavaxna steinljón með mannsandlitið úti á eyðimörkinni
vestan við Níl. Hér á myndinni sést höfuðið á þessu ferlíki
á bak við grindaverkið, sem búið er að reisa í kringum það.
Préfessor sýnl bana-
tilræði í Teheran
PRÓFESSOR við háskólann
í Teheran höfuðborg íran, var
sýnt banatilræði í gær, er hann
var að koma út úr háskólan-
um, að sakaði ekki. Tilræðismað
urinn var gripinn og er talinn
vera úr ofstækisflokki Múham-
eðstrúarmanna, eins og morð-
ingi Razmara forsætisráðherra.
Prófessorinn hafði átt sæti í
stjórn Razmara.
Þrljð bindið af rifsafni Bene-
difefs Gröndals koml úf
-------*-------
Flytur úrva! blaðagreina hans og rit-
gerða, sem birtust á árunum 1849-1890.
------------------*—------
ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA hcfur gefið út þriðja bindið
af ritsafni Benedikts Sveinbjarnarsonar Gröndá’s, en efni þess
eru blaðagreinar og ritgerðir, sem birtust á áiunum 1849—1890.
Hefur Gils Guðmundsson ritstjóri séð um útgáfuna, og skrifar
hann skýringar við greinarnar og ritgerðirnar. Alls mun rit-
safn Gröndals ver'ða fjögur bindi, og er útgáfa þessi mjög
vönduð.
Ritgerðir Benedikts Gröndals
og blaðagreinar eru mýmarg
ar og á mörgum tungumálum.
Þótti ekki koma til mála að
Jöfn afkvæði við sfjórnarkjör-
ið í Sókn, 65 hjá hvorunr
-------+-------
En kommúoistar fengu 4 af 5 í stjórn á
persónuatkvæði og hlutkesti.
-------------—«.------
SÖGULEG ÚRSLIT urðu í stjórnarkjörinu hjá Starfs-
stúlknafélaginu Sókn, en kosið var á laugardag og sunnudag
að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu. Hlutu listarnir sömu
atkvæ’ðatölu, 65 iistaatkvæði hvor. En einurn seðli var bre> tt
þannig, að þrír fulltrúar á iista kommúnista l.lutu persónulegt
atkvæði og skriðu inn í stjórnina á einu atkvæði. Einn fulltrúi
til af lista kommúnista vann á hlutkesti, þanig að kommúnistar
fengu 4 af 5 í stjórn félagsins. Fimmta konan, sem fór í stjórn,
rar af lista lýðræðissinna; komst hún það einnig á hlutkcsti.
Stjórn Sóknar skipa því fjór
ir kommúnistar og einn lýðræð
issinni, en kommúnistar hafa
geymslu. Réði það niðurlögum
eldsins þegar, og ekki urðu nein
ar skemmdir.
verið einráðir í stjórn þessa fé
lags frá stofnun þess. 1934.
Stjórnir.a skipa nú: Vilborg
Ólafsdóttir, formaður, Vilborg
Björnsdóttir, varaformaður
(komst inn á hlutkesti), Laufey
Guðmundsdóttir ritari, Soffía
gefa þær allar út í ritsafni
þessu, heldur allstórt sýnishorn.
Hefur verið reynt að haga val-
inu á þann veg, að teknar voru
sem flestar ritsmíðar, er ætla
má, að almennir lesendur nú á
dögum kærðu sig um að lesa.
Jafnframt hefur þó verið á hitt
litið, að sýnishorn þetta gæfi
sem bezta hugmynd um höfund-
inn, skoðanir hans og áhuga-
mál. Hafa verið teknar allar
ritgerðir Gröndals um bók-
menntir og listir, allar deilu-
greinar hans á íslenzkri tungu
og nokkrar á dönsku, einnig
flestar greinar hans um stjórn-
mál og allmargt alþýðlegra
fræðigreina.
Benedikt Gröndal hefur áreið
anlega verið í tölu hugkvæmn-
ustu og fjölhæfustu rithöfunda
okkar, og þeirra eiginleika gæt
ir í ríkum mæli í bíaðagreinum
hans og ritgerðum. En tví-
mælalaust ærinn fengur að
þessu úrvali þeirra, og ritsafni
Gröndals í heild er mikill bók-
menntalegur viðburður.
Jónsdóttir, gjaldkeri — allir af
A-lista, lista kommúnista; og
Sigrún Stefánsdóttir af B- lista,
lista lýðræðissinna.
Milli 10 og 20 bif- j
reiðlr í árekstr- I
um um heigina \
——— i
MILLI tíu og tuttugu bif.
reiðir lentu í árdekstrum nú una
þessu úrvali þeirra, og ritsafni
arlögreglan skýrði 'blaðinp frá
í gær. Má það teljast mikið,
þegar þess er gætt, að allir þess
ir árekstrar urðu, áður en fór
að snióa í fyrrinótt, og færð
var tiftölulega góð. Talsverðar
skemmdir urðu á sumum bif-
reiðanna, en slys á mönnuns
engin.
Kjæðaverksmiðjan
Úllíma lOára.
KLÆÐAVERKSMIÐJAN
ULTIMA er 10 ára um þessar
mundir. Er fyrirtækið var
stofnað var það eins og hver
önnur hraðsaumastofa, en 1947
var rekstrinum breytt og upp
frá því hefur Ultima verið um-
fangsmikil k’æðaverksmiðja,
og vinna þar nú um 35 manns.
Árið 1947 gerði verksmiðjan
samninga við ríkisstjórnina um
framleiðslu kerlmannafatnaðar
fyrir mun lægra verð en þá
hafði tíðkazt, að því tilskildu
að fá ákveðið efnismagn. Hafa
þannig verið framleidd hundruð
karlmannafatnaðir og sauma-
launin aðeins verið 250 krónur
á föt. Og nú eru fötin seld í
Ultima frá 750—900 krónur.
Framkvæmdastjóri fyritæk-
isins er Kristján Friðriksson.
Heilög Jéhanna
frumsýnd
!
„HEILÖG JOHANNA“, leik-
rit Benard Shaw í þýðingu
Ána Guðnásonar magisters, var
frumsýnd í þjóðleikhúsinu síð-
ast liðið sunnudagskvöld fyrir
fullu húsi áhorfenda.
Frú Anna Borg Reumerf
leikur aðalhlutverkið, heilaga
Jóhönnu, og var henni ákaft
fagnað. Að leikslokum var
henni og öðrum leikendum
innilega þakkað, og barst frúnni
fjöldi blómvanda. Þá gekk Vil-
hjálmur Þ. Gíslason fram á
sviðið og þakkaði frúnni Íeik-
inn með ræðu, og að lokum
mælti frúin nokkur orð til leik-
hússgesta; flutti þjóðleik’núsinu
árnaðaróskir og þakkaði við-
tökurnar.
áðalfundur Verka-
lýðsfélags Akraness
AÐALFUNDUR Verkalýðs-
félags Akraness var haldinn á
sunnudaginn var. Hálfdán
Sveinsson var kjörinn formað-
ur í 17 sinn, en með honum
eru í stjórninni Arnmundur
Gíslason ritari, Guðmundur Kr.
Ólafsson gjaldkeri, Sveinbjörn
Oddsson varaformaður, Herdís
Ólafsdóttir vararitari og Krist-
ján Guðmundsson varagjald-
keri.