Alþýðublaðið - 11.04.1951, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 11.04.1951, Blaðsíða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ Miðvikudagur 11. apríl 1951. Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. Ritstjóri: Stefán Pjetursson. Auglýsingastjóri: Emilía Möller Ritstjórnarsími: 4901 og 4902. Auglýsingasími: 4906. Afgreiðslusími: 4900. Alþýöuprentsmiðjan h.f. Eins og álfur ú! úr hé! NÚ ER VÍSIR kominn til liðs við Tímann í umræðunum um kaupgjaldsmálin, þó að Morg- Unblaðið hafi enn vit á að þegja. Þó treystist Vísir ekki til þess að halda því fram, að lífskjör slmennings séú jafn góð eða betri nú en í stjórnar- tíð Stefáns Jóh. Stefánssonar, en Tírainn hefur undanfarið reynt að telja lesendum sínum trú um þá blekkingu Vísir læt ur við það sitja að skýra frá því, að Alþýðuflokkurinn hafi á sínum tíma „stöðvað" vísitöl una, og síðan þvkist hann undr- ast, að forustumenn hans vilji nú afnema vísitölustöðvun nú- verandi ríkisstjórnar. Heildsalablaðið segir það eitt, að Alþýðuflokkurinn „stöðv- aði“ vísitöluna skömmu fyrir áramótin 1947. En hann „stöðv. aði“ fleira. Hann reisti rammar skorður við dýrtíðinni og verð- bólgunni, eins og sjá má á upp- lýsingum Alþýðublaðsins þessa dagana, þar sem sannað er með óhrekjandi tölum, að margar vörur lækkuðu í verði, meðan ríkisstjórn Stefáns Jóh. Stef- ónssonar sat að völdum Jafn- framt kom Alþýðuflokkurinn í veg fyrir atvinnuleysi, þó að þá áraði sízt betur en nú. Og Alþýðuflokkurinn gerði þessar ráðstafanir í samvinnu og sam ráði við Alþýðusamtökin í iandinu. Núverandi ríkisstjórn slepp- ir hins vegar dýrtíðinni lausri, svo að vöruverðið fer upp úr öllu valdi. Hún horfir upp á það aðgerðalaus, að atvinnuleysið haldi hér innreið sína á ný. Henni dettur ekki í hug að hafa samráð við verkalýðs- hreyfinguna um stefnu sína í kaupgjaLdsmálum. Það er því vissulega mikið djúp staðfest milli hennar og ríkisstjómar- Stefáns Jóh. Stefánssonar. Aft- urhaldinu setti ekki að vera það neitt keppsmál, að Vísir kalli fram þennan samanburð. Og þó verður að segja það eins og er, að þessi misheppnaða til- raun heildsalablaðsins er sýnu virðingarverðari en málflutn ingur Tímans. Vísir reynir þó að stofna til málefnalegra rök- ræðna, en blað Framsóknar- flokksins er hins vegar eins og álfur út úr hóli * Tíminn reynir í sauðkindar- legri þrjózku að halda því fram, að „kaupstyrjöld“ Al- þýðuflokksins sé háð í þágu liá- launamannanna. Því til sönn- unar segir hann, að „ef stefna Alþýðuflokksins sigraði, yrðu sömu dýrtíðaruppbætur veittar á öll grunnlaun, en það hefði þær afleiðingar í för með sér, að maður, sem fær 5000—6000 í mánaðarlaun, fær 5—6 krón- úr í dýrtíðaruppbót, meðan verkamaður með 2000—3000 fær aðeins 2—3 krónurj' Þannig er málgagn Framsókn- arflokksins að reyna að finna stað þeirri fullyrðingu sinni, að Alþýðuflokkurinn berjist fyrir hagsmunurn hálaunamannanna, en Iáti sér í léttu rúmi liggja, hvað verkamennirnir beri úr býtum! Þetta er sönnun þess, að Tím. inn botnar ekkert í því, sem um er að ræða. Hann heldur, að baráttan fyrir fullri vísitölu á laun sé „kauphækkunarstyrj öld“. Og hann hefur ekki nug mynd um, að alþýousamtökin krefjast fullrar vísitölu á kaup þeirra þjóðfélagsþegna, er taka laun samkvæmt samningum verkalýðsfélaganna og atvinnu- rekendanna í landinu. Hann virðist ímynda sér, að hálauna mennirnir séu í verkalýðsfélög- unum, sem nú eru að segia upp samningum og hefja baráttu fyrir fullri vísitölu til handa meðlimum sínum! Slíkt og því- líkt er gáfnafar málgsgns for-' sætisráðherrans, þegar það fer að ræða kaupgjaldsmálir! Það er alveg tilgangslaust fyrir Tímann að ætla að reyna að rugla einn eða neinn með þessum blekkingum. Ákvörðun um fulla vísitölu til handa þeim, sem hafa 5000—6000 í laun á mánuði, svo að ekki sé minnzt á hina, sem meira bera úr býtum, verður ekki tekin af verkalýðsfélögunum. Það er mál ríkisstjórnarinnar og stuðn ingsflokka hennar á alþingi. Ef Tíminn hefur í raun og sann- leik áhuga á því að jafna tekj- ur þessara aðila og verkamann anna, þá ætti hann að skora a r>kisstjórnina að hlutast til um sbkt. En vissrlega væri það miki; nýlundí> ef Fratnsóknar flokkurinn færi að beita sér fyrir íekjujoflam og réttlæti í iaunamálum. Ef liminn ætlar að halda á- fram umræðnnum um kaup- gjaldsmálin, þá er það lág- markskrafa, að hann át.i sig á því, hvað um er að ræða. V erkalý ðsf élögin í landinu krefjast fullrar vísitölu á kaup meðlima sinna. Og Tíminn get ur ekki barizt gegn þeirri kröfu á þeim forsendum, að sigur alþýðusamtakanna í þeirri baráttu leiði til þess, að forstjórar ríkisfyrirtækja og bankastjórar fái um leið hærri dýrtíðaruppbót. Þessir aðilar hafa sem sé ekki sagt upp neinum samningum, enda taka þeir ekki laun samkvæmt samningum. Og þe.ir geta ekki fengið hærri dýrtíðaruppbót að frumkvæði verkalýðsfélag- anna í landinu. Þeir verða að njóta fulltingis meirihluta al- þingis til að fá hærri dýrtíð- aruppbót. Og það stendur áreið anlega ekki á verkalýðshreyf- ingunni, ef Framsóknarflokk- urinn vill jafna tekjur þjóðfé- lagsþegnanna eins og Tíminn er að gefa í skyn. Þannig er allt á sömu bókina lært í málflutningi Tímans. Hann er eins og álfur út úr hól og verður að læra allt frá byrj- un, ef hann á að geta rætt kaup gjaldsmálin af nokkru viti. Hann verður að gera svo vel | og snúa við blaðinu, ef fyrir ! honum \ akir að verða rneiri ! og betri en heildsalablaðið Vís- ir. Og einiivern tíma befði ekki þótt til mikils mælzt, þó að málgagn Framsóknarflokksins tæki því eitthvað fram um greint og málflutning. Kosningamar í KRGN Framh. af 1. síðu. og hafa þá áfram á lista komm únista. Felldi kjörstjórnin að taka þá út af lista kommún- ista, og var þá leitað úrskurð- ar borgarfógeta um það mál. Er nú beðið eftir þessum úr- skurði, og munu kommúnistar meðal annars hraða kosning- unni svo mjög, sem raun ber vitni, af því að þeir óttast mjög úrskurð borgarfógeta í þessu máli. Kjörstjórn KRON sat á fundi fram á nótt í gær, og er blaðinu ekkj kunnugt um það, hvað á þeim fundi gerðist. .........o ■ LEIKSÝNINGAR Mennta- skólans á Akureyri 1951 hefj- ast í þessari viku. Hefur Leik- félag M.A. að þessu sinni tekið ■ til meðferðar hinn sprenghlægi lega skopleik „Sundgarpurinn“ eftir Franz Arnold og Ernst Bach. Hann var sýndur á Ak- ureyri fyrir um 13 árum. Leik- stjóri er Jón Norðfjörð. Auglýst eftir flugmönnum. — Reglusemi og andlegt jafnvægi aðalatriði. — Svar frá - „fróðieiksfúsum alþýðumanni“. NÚ ER Flugfélag' islands að auglýsa eftir flugmönnum. Býst ég við, að margir ungir flugmenn sæki um þessar stöð- m’, því að meðal þeirra kvað vera mikið atvinnuleysi, og er þaff illt, eftir svo dýrt nám, sem flugnámiff er. ÉG HEYRÐI EINU SINNI ungan efnilegan flugmann segja eitthvað á þessa leið: „Maður verður víst að neyðast til þess að leita út fyrir land- steinana, því að hér virðist ekki vera not fyrir mann“. Það er illa farið, e£ efnilegir menn, blómi æsku okkar, Vsrða að flytja úr landi vegna þess, að þeir eiga ekki kost á að vinna að áhugastarfi sínu hér heima. í FLUGMANNAHÓPI okkar eru auðvitað menn með mis- mikla hæfileika eins og í öll- um atvinnugreinum. Það ríð- ur á, að Flugfélagið velji einung is hæfustu og reglusömustu um sækjendurnar, því að fá störf eru eins ábyrgðarmikil og flug mannsstarfið, og ber að krefj- ast skilyrðislausrar reglusemi af þeirn, sem það hlýtur. Kunn- ingsskapur eða önnur tengsl mega ekki ráða þar neinu um, því mikið er í húfi. En hér er kunningsskaparins land, og hafa ýmsar stöðuveitingar í þjóðfé- lagi oklrar, borið keim af hon- um. HVAÐ flugmannsstarfinu við- víkur, þá er þetta krafa allrar þjóðarinnar: Að í það veljist ; ð eins þeir menn, sem sýnt hafa j mikla ástundun og hæfni í flug I skólunum, hæfileika í fluginu, góða athyglisgáfu, samvizku- semi. Ef hún er ekki fyrir hendi, duga hæfileikarnir lítið, þótt miklir séu. Þetta eru sjálfsagð- ar kröfur, sem gera á til allra flugmanna. FRÓÐLEIKSFÚS ALÞÝÐU- MAÐUR skrifar: „í „Tímanum" 6. apríl, minnist „Starkaður gamli“ á trúmálabréf, sem birt ist í pistlum Hannesar á horn- inu daginn áður. Ég verð fyrst að leiðrétta dálítla missögn. Ég sagði hvergi: ,að svo hafi farið bezt sem fór“, (að Kristur var krossfestur). Að öðru leyti vís ast til smágreinar minnar í Al- þýðublaðinu 5. þ. m., ef ein- hver vill vita rétt orðalag henr. ar í heild. SNÚUM OKKUR þá að „svör unum“. Það er fljótsagt, að höf- undur svarar engri af spurh- ingum mínum, kýs heldur eð slá út í aðra sálma. Þó ég sé ef til vill ekki „réttlínumaður“: í trúarefnum, get ég vel tekið mér nafn guðs í munn og segi: „Guð hjálpi þeim mönnum, sem taka jafn handahófskent og flausturslega á jafn mikilvæg- um spurningum og fram voru bornar í umræddu bréfi. HÖFUNDUR VITNAR í Helgakver, (sem nú mun nær- fellt allstaðar vera hætt að kenna), síðan í Hallgrím Pét- ursson og segir því næst: „Þetta er því sem sagt gömul kirkju- leg skýring" — Það var ekki gömul skýring sem ég bað um, heldur ný, sem hæfði betur menningar og þekkingarstigi voru. Hver leíkur skrípaleik í Hafnarfirði? ÞJÓÐVILJINN sagði í gær, að „Alþýðuflokksforingjar í Hafn arfirði neituðu að semja um greiðslu fullrar vísitöíu mán- aðarlega“. En eins og sjá mátti á Alþýðublaðinu í gær- morgun eru þetta algerlega staðlausir stafir; því að í fyrra kvöld undirritaði Helgi Hannessson fyrir hönd Hafn- arfjarðarbæjar og Bæjarút- gerðar Hafnarfjarðar ■ samn- inga við Verkakvennafélagið Framtíðina í Hafnarfirði, eins og ráð hafði verið fyrir gert, um fulla mánaðarlega dýrtíð aruppbót á kaup hafnfirzkra verkakvenna. Voru samning- ar þessir undirritaðir með þeim fyrirvara, að geri félag- ið síðar samninga við aðra at vinnurekendur á öðrum grundvelli, skuli þeir einnig gilda fyrir bæinn bg bæ-jarút- gerðina; en hins vegar skuli samningarnir ganga í gildi strax, þegar ekki er lengur unnið hjá öðrum atvinnurek endum í Hafnarfirði fyrir minna kaup eða lakari kjör en samningarnir kveða á um við bæjarfyrirtækin, eða strax og verkfall hefst hjá öðr um atvinnurekendum. ÞESSI FYRIRVARI HAFN- ARFJARÐARBÆJAR um gildistöku samninganna er vit anlega ekki nema sjálfsagður, því að engin sanngirni mælir með því að bæjarfyrirtæki Hafnarfjarðar greiði framveg is annað kaup en það, sem aðrir atvinnurekendur í bæn- um greiða. Hins vegar á samningur bæjarins við verkakvennafélagið að geta orðið því mikil stoð til þess að knýja aðra atvinnurek- endur til greiðslu fullrar dýr- tíðaruppbótar á kaupið, en í því skyni hafði verkakvenna félagið boðað verkfall áður en bærinn ákvað að semja við það um fulla dýrtíðaruppbót. Átti það verkfall upphaflega að hefjast 10. apríl, en hefur nú verið frestað til 19. apríl af áður ófyrirsjáanlegum á- stæðum. EN HVERNIG STENDUR þá á því, að Hafnarfjarðarbær og Bæjarútgerð Hafnarfjarðar hafa ekki einnig undirritað samninga við Verkamannafé- lagið Hlíf, eins og til stóð? Við þeirri spurningu er því að svara, að bærinn .hefur .tjáð ' sig reiðubúinn til þess, með sama fyrirvara og hann und- irritaði í fyrrakvöld samning ana við Verkakvennaféíagið Framtíðina, — að geri félagið síðar samninga við aðra at- vinnurekendur á öðrum grundvelli, skuli þeir einnig gilda fyrir bæinn og fyrirtæki hans, og að samningarnir skuli þá fyrst taka gildi, er ekki er Iengur unnið hjá öðr- um atvinnurekendum fyrir minna kaup eða lakari kjör en samningarnir kveða á um við bæjarfyrirtækin, eða strax og verkfall hefst hjá öðrum atvinnurekendum. En það undarlega gerist á félags- fundi í Hlíf á sunnudaginn, að fellt var, með litlum atkvæða mun, að undirrita samninga við bæinn með þessum fyrir-- vara; en að vísu fór það ekki dult, að það voru íhaldsmenn og kommúnistar, sem felldu það. ÞESSI SAMÞYKKT félagsfund arins í Hlíf á sunnudaginn var bví furðulegri, að nokkrum mínútum áður hafði sami fundur samþykkt, einnig að Framhald á 7. síðu. ■ ÞÁ KOMA SÁLMARNIR sem slegið er út í. Mér er ekki vel ljóst, hvað Jón Sigurðsson og Trampe greifi koma spurning- um mínum við, en höfundur fléttar þetta @llt saman,, svo mig langar að gera því einhver skil. Hann segir þar meðal ann- ars: „Eigum við þá ekki að haela Trampe fyrir það, að gera Jón Sigurðsson að þjóðhetju? Var hann ekki verkfæri í hendi guðs“? Ég spyr nú líklega ein- feldnislega: Hvor þeirra Trampe eða Jón? Ef ég misskil þetta ekki, segi ég aðeins: Við álös- um ekki Trampe, fyrir að vera verkfræri í hendi guðs, „til að gera Jón Sigurðsson að þjóð- hetju“! Aftur á móti er þeim ólasað, sem stóðu að lífláti Krists, en það var eins og kunn- ugt er, aðal upphaf kristinnar trúar. HÖFUNDUR SEGIR að lok- um:.....en þó að ranglætið geti þannig orðið til að þroska menn, þroskar það engan, að gangá í þjónustu' þess“. Þarna er ég höf undi alveg sammála. Nærtæk- asta dæmið um slíkt, er miðalda kirkjuvaldið, sem kirkja vor dregur, því miður enn nokkurn dám af, hvað þröngsýni og kyrr stöðu snertir, þótt valdið til að dæma menn fyrir trúvillu og brenna menn á báli, sé, sem bet ur fer úr sögunni“. OG SVO SKULUM við ekkl ræða þessi mál meira.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.