Alþýðublaðið - 25.05.1951, Síða 7
Föstudagur 25. maí 1951.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
7
Félaig.slíf.
Farfuglar
'ríJÓLREIÐAMENN. Hringferð
uin Reykjavík á reiðhjóli.
Lagt af stað frá Lækjartorgi
kl. 10 á sunnudag og hjólað
um Örfirisey, Gróttu, Álfta-
nes, Vatnsenda, Klepp og
Lækjartorg. Skotlandsfarar
mæti í skrifstofunni í kvöld,
VR Vonarstræti 4, kl. 8—10.
FERÐAFÉLAG
ráðgerir
ÍSLANDS
að .fara
gönguför á Esju og
líka gönguför á
Skálafell næstkom.
sunnudag. Lagt af
stað kl. 9 árdegis frá Austur-
velli. Ekið upp undir Esju
og. gengið upp Bleikdal austur
eftir fjallinu eða gengið upp
Gunnlaugsskarð og þá austur
á Hátind (909 m.), þá haldið
vestur eftir fjallinu og niður
að Mógilsá. — Hin ferðin er
gönguför á Skálafell. Gengið
á fellið austanvert (Skíða-
skála KR), þá vestur í Svína-
skárð og sunnan við Stardals-
hnúk að Tröllafossi. Nú er
haldið með Leirvogsá að
Varmadal. Farmiðar seldir til
hádegis á Íaugardag og við
bílana.
fer til Vestmannaeyja í kvölc
úr eik með stoppaðri setu
kr. 180.00.
Enn fremur alls konar hús-
gögn í fjölbreyttu úrvali.
Húsgagnaverzlun
Guðmunclar Guðmundssonaa
Laugarveg 166.
Skrafað og skrifað
Frarnh. af 4. síðu
um langt skeið hafði lifað á
betli úti fyrir einni af aðal
verzlunum borgarinnar. Við rétt
arhöldin kom í Ijós, að maður
inn fyrirleit ekkert eins og að
vinna, en betlið, það var iðja
við hans hæfi! — Það var held
ur ekki óarðbært. Hann hafði
að jafnaöi aflað á þennan hátt
um 200 mörk á dag; hann bjó
í fimm herbergja íbúð og ók í
eigin bifreið til ,vinnustaðar
ins“. — ík. —
Þýzkalandsfaramir
(Frh. af 1. síðu.)
sem íslenzka knattspyrnuliðið
bíður í Þýzkalandsförinni. Það
var fyrst sigrað í Dússeldorf
með 10; 0.
Útbrefðsð
Aijiýðublaðitiu!
3—5 skrifsfofuhirberfi
óskast leigð nú þegar eða síðar í sumar, helzt í eða
nálægt Miðbænum;
Undirritaður gefur nánari upplýsingar.
GUNNAR E. BENEDIKTSSON,
lögfræðingur, Bankastræti 7,
Símar 4033 og 4966.
Augiýsendur Alþýðublaðsins, er æfla að koma
augiýsingum í sunnudagsblaðið, eru vinsamlega
beðnir að skila augíýsingahandrifum fyrír kl.
7 e. h. á fösfudag.
r
Arsþing Nordisk Hofel-
og Resfauranfforbundeí
haldið hér í júlí.
DAGANA 2. til 5. júlí n. k.
eru væntanlegir hingað til
lands 14 ful’.trúar frá Norð-
urlöndum til að sækja ársþing
Nordisk Hotel- og Restaurant-
forbund, sem haldið verður hér
í Reykjavík dagana 6. til 12.
júlí. AUs verða 22 í hópnum,
bar af 8 eiginkonur fulltrú-
an’na.
Samband veitinga- og gisti-
húsaeigenda annast mcttökur
gestanna, en fulltrúar frá þeim
samtökum hafa sótt ársþing
undanfarinna þriggja áfa, sem
hcldin hafa verið í Kaup-
mannahöfn, Osló og Helsing-
fors.
Gestirnir eru þessir:
Frá Danmörku: Hr. A.
Vi’lads-Olsen og frú_ Hotel
Kong Frederik, Kaupmanna-
höfn, Hr. Ernst Weinold og frú,
Grand Hotel, Kaupmannahöfn,
hr. W. Kesby og frú, Hotel
Richmond, Kaupmannahöfn,
hr. cand. jur. Allan Hansen og
frú.
Frá Finnlandi: Hr. Jorma
Soiro og frú, Hotel Torni, Hels
ingfors, hr. eand. jur. Onni
Salo_ og einn fulltrúi til við-
bótar, sem ekkj er vitað um
nafn ,á.
Frá Noregi: Hr. Odd.Becker
og frú, Restaurant Frascati,
Oslo, hr. Patterson og cand.
jur. Tron Tönneberg hæstarétt
arlögmaður, Osló.
Frá Svíþ.jóð: Hr. Wilhelm
Meier, Grand Hote1., Stokk-
hólmi, hr. Olaf Rudbeck og
frú og hr. cand. jur. Sigurd
Rietz.
Fulltrúarnir koma flestir
með Gullfossi 5. júlí og fara
með Dr. Alexandrine 13. júlí.
M.unu þeir flestir búa á Hótel
Borg meðan þeir dvelja hér.
Ferðasaga Rúss-
iandsfaranna
Framh. af 4. síðu.
sem ekki eru fyrirfram barns
lega hrifnir af rússneska fyr-
irkomulaginu. Sumir þeirra
eru þó drjúgum kunnugri öll
um aðstæðum þar eystra en
íslenzka „menningarnefnd-
in“. Kristinn Andrésson og
föruneyti hans mun ekki hafa
lagt á sig að reikna út muninn
á afkomu manna í Rússlandi
og á Vesturlöndum. Þeir fé-
lagar munu ekki haía heim-
sótt fangabúðirnar eða dýfliss
urnar. Þeir munu ekki einu
sinni hafa spurt um afdrif
listamannanna, sem horfið
hafa þegjandi og hljóðalaust
ef á þá hefur fallið sk l.ióti
grunur, að trú þeirra á ein-
ræðisherrann væri ekki aiger
og skilyrðislaus. Þettá stafar
af því, að val sendilnannanna
var pólitískt einhæft, þó að
„menningarnefndinni11 finnist
það ekki. Þetta fólk trúði fyr
irfram því, sem í það var log
ið. Ferðasaga þess hefúr ekki
fremur sannsögulegt gildi en
staðhæfingar nazistanna. sem
heimsóttu Þýzkaland Hir.lers,
meðan hann var og' hét, og
sáu alls staðar ljós en hvergi
skugga í ríki gasklefanna og
fangabúðanna. Þess vegna
er ferðasaga „menningavnefnd
arinnar" ekki til annars en
hlæja að henni.
r
Arsíundur Ameríska-
norræna fræða-
félagsins________
FERTUGASTI oa: fyrsti árs-
fundur Ameríska-norræna
fræðafélagsins (The Society
for the Advancement of
Scandinavian Study) var hald
inn í Ghicago föstudaginn og
laugardaginn, 4. og 5. maí og
var fundarsíaðurinn North
P.ark Colle?e ]»ar í borg, einn
nf helztu skólum Svía vestan
hafs.
Dr. Riehard Beck prófessor,
forseti félagsins 1950—1951,
hafði fundarstjórn með hönd-
um; einnig flutti hann á fund-
in.um erindi um Tómas Guð-
mundsson og skáldskap hans,
og ræðji um sameiginlega hug
sjónararfleifð norræna manna
í kvöldveL.lu þeirri, sem skól-
inn efndi til í sambandi við
ársfundinn.
Áður en fundarstörf hófust,
fyrir hádegið á föstudagmn,
hélt dr. Beck einnig tvo fyrir-
lestra um íslenzkar nútíðarbók-
menntir fyrir stúdenta North
Park College í samanburðarbók
menntun, og hlýddu meir en
100 nemendur á. Átti prófessor
E. Gustav Johnson, forseti
enskudeildar skólans, hlut að
flutningi þessarar fyrirlestra,
en bann er maður mjög vin-
veittur íslandi; kom til íslands
1935 og kemu.r aft.ur í heim-
sókn þangað síðari hluta ágúst-
mánaðar í sumar.
Prófessorar frá háskólanum
í Mið-Vesturríkjunum og víð-
ar úr Bandaríkjunum fluttu
einnig erindi um norrs^n fræði
á ársfundinum. í stjórn félags-
ins eiga sæti háskólakennarar í
Reykjavík.
Framhald af 8. síðu.
Ekki hefur enn verið gengið
fullkomlega úr skugga um,
hversu skemmdir á vélum
fiskimjölsverksmiðjunnar eru
miklar, en álitið er að þær séu
minni en áhorfðist. Þá mun
öll vinnsla í verksmiðjunni
stöðvast um ófyrirsjáanlegan
tíma, og hefur það mjög al-
varlegar afleiðingar, fyrir
frystihúsin og skipin, sem. ekki
;|bta komið neinum úrgangi
eða fiski til vinnslu.
I gær kom togarinn Isborg
af veiðum með um 200 lestir,
aðallega karfa, og gat hann að-
oins losað 100 smálestir hjá
hraðfrystihúsunum, en hinn
hlutann af aflanum verður
hann að sigla burtu með. Fimm
togbátar ganga nú frá ísafirði,
og nokkrir smærri vélbátar, og
hefur atvinna freiyur glæðst
upp á síðkastið. Hins vegar
veldur fiskimjölsverksmiðju-
bruninn mikilli truflun á at-
vinnulífinu; m. a. tapa 22
menn, sem störfuðu við verk-
smiðjuna, atvinnu í bili, en
þar var unnið í vöktum.
7148 félagar í
umdæmisstúku
Suðurlands
VORÞING Umdæmisstúku
Suðurlands var háð í félags-
heimili templara á Akranesi
dagana 19. og 20. maí s.l. Þingið
hófst með guðsþjónustu í Akra-
neskirkju, þar sem síra Leó
Júlíusson prédikaði. Þingið
sóttu um 100 fulltrúar. í um-
dæmi Umdæmisstúku Suður-
lands, sem nær yfir allt Suður-
og Suðvesturland, eru starf-
andi 6 þingstúkur, 28 undir-
stúkur, 3P barnastúkur með
samtals 7148 félögum.
Umdæmistemplar var end-
urkosinn Sverrir Jónsson. Aðr-
ir í framkvæmdanefnd fyrir
næsta ár voru kosin: Þorsteinn
J. Sigurðsson, Páll Jónsson,
Guðrún Sigurðardóttir, Páll
Kolbeins, Sigurður Guðmunds.
son, Kristjana Benediktsdóttir
og Guðgeir Jónsson, öll úr
Reykjavík. Guðjón Magnúsr.on,
Sigríður Sæland og Kristinn
Magnússon úr Hafnarfirði.
Þingið samþykkti margar álykt
anir í áfengis- og reglumálum
m. a. þessar;
1. Vorþing Umdæmisstúku
Suðurlands skorar á Stórstúku
íslands . og alla bindindissinn-
aða menn í landinu að beita sér
fyrir því, að kveðnar verði nið-
ur aUar kröfur um gerð á sterk-
ari öltegundum en nú eru til
sölu í landinu.
2. Þingið flytur menntamála
ráðherra þakkir fyrir tilskipun
um bindindissemi í skólum
landsins og slcorar á fræðslu-
málastjóra og menntamálaráðu
neytið að sjá til þess að aukin
verði bindindisfræðsla í skól-
um og þar að lútandi reglugerð
verði vel framfylgt.
3. Þingið þakkar áfengis-
varnanefnd Reykjavíkur fyrir
árvakurt og markvisst starf að
undanförnu.
4. Þingið lýsir megnri óá-
nægju yfir því, að ríkisstjórnin
skuli enn ekki hafa framkvæmt
viðeigandi aðgerðir til þess, að
lögin um héraðabönn geti kom-
ið til framkvæmda.
Að þinginu loknu bauð stúk-
an Akurblómið á Akranesi full
trúum til kaffisamsætis. Róm-
uðu fulltrúar mjög hinar ágætu
viðtökur á Akranesi.
Auglýsið f
AlþýðublaðinuS
Tilraunir með fergj-
un á votheyi
Á BÚNAÐARÞINGI var í
vetur meðal annars samþykkt
tillaga um að gerð væri athug-
un á því, livernig hagkvæmast
er að fergja vothey.
í tilefni af því hefur land-
búnaðarráðherra mælt svo fyr-
ir, að á sumri komandi verði á
vegum tilraunaráðs búfjár-
ræktar gerðar tilraunir varð-
andi verkun og fergingu vot-
heys. Tilraunirnar verði gerðar
á Hvanneyri og Hesti í Borgar-
firði og á Hólum í Hjaltadal við
forsjá skólastjóranna á bænda-
skólunum.
Á Hvanneyri verður reynd
ferging með votheysfergju
þeirri, sem kennd er við Árna
Gunnlaugsson járnsmið og
jafnframt ferging með steypt-
um steinum eins og tíðkazt hef-
ur undanfarið við votheysgerð
þar á staðnum.
Á Hesti verður reynd vot-
heysfergja sú,‘ sem þar hefur
verið notuð undanfarið að for-
sögn Marteins Björnssonar
verkfræðings. Tilraunirnar á
Hvanneyri og Hesti verða sam-
ræmdar sem ein tilraun í tveim
ur þáttum.
Á Hólum verður reynd önn-
ur hvor hin nefnda fergja og
til samanburðar fergt með
grjóti.
Tilraunir þessar vei'ða á öll-
um stöðunum þremur jafn-
framt kostnaðar- og vinnutil-
raunir þannig að fram komi í
vinnueiningum og ver'ði allur
kostnaður við framkvæmd vot-
heysgerðarinnar, með mismun-
andi fergingu og öllu, er að því
lýtur að koma töðunni af teig í
tóft og verka hana undir fargi.
Búnaðardeild atvinnudeildar
háskólans mun aðstoða við til-
raunir þessar. Að tilraununum
loknum mun Tilraunaráð bú-
fjárræktar birta skýrslu um til-
raunirnar.