Alþýðublaðið - 26.11.1950, Síða 8
f
Börn og unglingar.
Komið og seljið
Alþýðublaðið.
Aliir vilja kaupa
Alþýðublaðlð.
Sunnudagur 28. nóvember 1950
1
Gerizt áskrifendurj
að Alþýðublaðinu. .,
Alþýðublaðið inn áj
bvert heimili. Hring-
ið í síma 4900 og 4906J
Álykfun Alþýðusambandsþings um sjávarúfvegsmál:
Þingið iagði mifeia áherzlu á vöru-
vöndun framleiðslu sjávarafurða
Auk þess veiða nokkur skio fyrir ísfisk-
markaðina á Englandi og ÞýzkaSandi.
ÞAÐ ER ATHYGLISVERT, sð togararrár leggja nú afla
sinn á lnad á a. m. k. el’efu stöðum víðs vegar um landið, og
rnun þetta að sjálfsögðu bæta nokkuð úr atvinnuvandræðum
á þeim stöðum, sem hnossið hreppa. Eru þetta þeir togarar,
sem karfaveiðar stunda, en þær hafa sem betur fer glæðzt
aftur, en um skeið leit út eins og þessi veiði mæri að minnka.
Togararnir le^gja nú karfa á
land á eftirtöldum stöðum.
í Eeykjavík hafa þessir land-
að: Geir, Ingólfur Arnarson,
Hallveig Fróðadóttir, og Helga-
fell.
í Hafnarfirði hafa þeir land-
að Júlí og Bjarni riddari.
í Kedavík hafa landað Kefl-
víkingur og Garðar Þorsteins-
son.
Á Akranesi hafa landað
Bjarni Ólafsson, Karlsefni og
Neptúnus.
Á Patreksfirði hefur Marz
lagt upp á fimmta hundrað
lestir, en mikið var af þorsk í
aflanum.
Á Flateyri hefur Akurey
landað.
Á ísafirði Hefur ísborg land-
að.
Á Djúpuvík hefur Jón for-
seti landað.
Á Siglufirði hefur Elliði
’.andað.
Á Hjalteyri hafa þessi skip
landað: Hvalfell, Goðanes, Eg-
ill Skallagrímsson, Egill rauði
og um skeið ísólfur.
í Krossanesi hafa Akureyr-
artogararnir landað: Kaldbak-
ur, Svalbakur og Jörundur.
Þar verða nú gerðar gagngerð-
ar breytingar á verksmiðj-
unni.
Þá hafa nokkrir togarar veitt
fyrir ísfiskmarkað, Röðull og
Skúli Magnússon fyrir þýzka
markaðinn, en Jón Þorláksson,
forseti og Maí fyrir brezka
markaðinn. (Heimild ,,Víðir“
o. fl.).
Leirbrennslan Funi heldur sýningu
á listmunum í Flóru þessa viku
—------^-------
Hefur gerí íiíraunir til framleiðslu á
kaffi- og matarsettum hér á landi.
-------4-------
LEIRBRENNSLAN FUNI opnar í dag sýningu á leirmun-
um í blómaverzluninni Flóru, og verða þar ekki aðeins til sýnis
skrautvörur, heldur og kaffistell, enda hefur fyrirtækið mik-
inn áhuga á framleiðslu á kaffi- og matarstellum og ýmis kon-
ar matarílátum. Sýningin í Flóru mun standa í viku og verður
Dpin frá 9—6 daglegai
Funi hefur starfað í fjögur
ár og, er frk. Ragna Sigurðar-
dóttir framkvæmdastjóri, en
umsjón með framleiðslunni
hefur Ragnar Kjartansson leir
kerasmiður, en hann nam þá
iðn fyrst hjá Guðmundi Ein-
arssyni frá Miðdal, en fór síð-
an til framhaldsnáms í Sví-
þjóð.
í leirmunum Funa eru ein-
göngu íslenzk efni, að undan-
skildum litarefnum, og er leir-
inn tekinn í Búðardal og við
Laugavatn. Vinna tíu manns
við leirkerasmíðina í Fossvogi,
en aðalútsa’a munanna er í
Flóru.
. Ragnar Kjartansson segir
bað sannfæringu sína, að leir-
munir allir til heimilisnotkun-
ar verði í framtíðinni gerðir
hér á landi, enda eru efni hér
nægileg og skortir aðeins vél-
ar. í Funa hafa verið gerðar
tliraunir með ýmis konar kaffi
og matarsett, og mundi sá
mikli kostur fylgja innlendri
framleiðslu á þessu sviði, að
hægt væri að fá einstaka muni
í samstæður, þegar brotið er,
í stað þess að illmögulegt er að
endurnýja hluti í innfluttum
leirvörum.
í verksmiðjunni í Fossvogi
er leirinn unninn, munir gerð-
ir úr honum og skreyttir og
síðan brenndir.
Skorar á bæjarúlgerðlr að ganga úr FÍB
og sfofna sín eigin hagsmunasamtök
---;-----4---------
SJÁVARÚTVEGSMÁL voru að sjálfsögðu eitt umfangs-
mesta viðfangsefni Alþýðusambandsþingsins, og voru þetta
meginatriði í ályktun þingsins um það cfni:
1. Fjögurra mílna landhelgi og síðar yfirráð yfir landgrunn-
inu öllu,.
2. Fullkómin vöruvöndun brýnd fyrir sjómnnum og öðrum,
er landa fiski og verka hann.
3. Bæjarfclögunum verði gert kleift að eignast og reka nýju
togarana tíu. Bæjarútgerðir gangi úr F.f.B. og stofni sjálfar
samtök.
4. Tryggðar séu útgerðarnauðsynjar og álagning á þeim ekki
höfð óhófieg.
5. Gagngera breytingu þarf á rekstri bátaútvegsins; ríkið á-
byrgist nægilega hátt verð fyrir afur’ðirnar.
Þá gerði þingið samþykktir
um hafnarmál, afurðasöluna,
fiskveiðar við Grænland og
réttindi bryta, matsveina og
framreiðslumanna á skipum.
LANDHELGIN
Alþýðusambandsþing taldi
stækkun landhelginnar eitt
mesta hagsmunamál íslenzkrar
útgerðar og þjóðarheildarinnar
og vill að stefnt sé að yfirráð-
um yfir öllu landgrunninu.
Þingið taldi ríka nauðsyn
á fullkomnum flota varð-
skipa og flugvéla til land-
helgisgæzlu vegna síaukinn-
ar ágengni erlendra veiði-
skipa. Verði þetta starf sam-
einað björgunarstarfi, báta-
eftirliti og hafrannsóknum,
eftir því sem unnt er.
VÖRUVÖNDUN
Þingið lagði mikla áherz’.u
á fullkomna vöruvöndun, og
var hún sérstaklega brýnd fyr-
ír skipstjórnarmönnum og sjó-
mönnum, verkstjórum við
löndun og öllum, sem vinna við
meðferð fiskjarins. Þingið
I taldi nauðsyn að nota sem full-
komnastar vinnsluaðferðir, svo
að afurðirnar verði samkeppn-
isfærar á heimsmarkaðinum.
BÆJARÚTGERÐ
Þingið skoraði á ríkisstjórn-
ina að tryggja, að nýju togar-
arnir verði sendir til landsins
jafnskjótt og þeir eru tilbúnir.
Taldi þingið hagkvæmast, að
• bæjarfélögum verði gefinn kost
ur á að eignast skipin og reka
þau, en fáist ekki nægir kaup-
endur að þeim úr hópi bæjar-
félaga og emstaklinga, skuli
ríkið reka skipin og verði afl-
inn lagður á land þar, sem at-
vinnuþörfin er rnest á hverjum
tíma.
Þá benti þingið á, að hags-
munir bæjaútgerðar og ein-
staklingsútgerðar fari ekki i
saman, þar sem bæjarút-
gerð hljóti að leggja mcgin-
áherzlu á að skipin verði á-
vallt gerð út, án tillits til
taps eða gróða á hverjum
tíma, til að tryggja atvinnu
bæjarbúa. Þess vegna skor-
aði þingið á bæjarútger'ðir
að ganga úr F.I.B. og stofna
eigin hagsmunasamtök.
Þingið lagði áherzlu á, að
nægilega mikið fengist af út-
gerðarnauðsynjum í lándinu
Dg að álagning á þeim sé ekki
úr hófi fram, eins og verið hef-
ur. Þá telur það, að útgerðar-
menn eigi að stofna sameigin-
(ega innkau.pastofnun. Þingið
(agði áherzlu á, að kleift yrði
að halda áfram tilraunum með
nýjar veiðiaðferðir.
VÉLBÁTARNIR
Þingið taldi fyirirsjáanlega
stöðvun bátaflotans, ef gagnger
breyting ekki verður á rekstri
hans, en slík stöðvun mundi
hafa hinar geigvænlegustu af-
leiðingar fyrir alþýðu manna.
Taldi þingið, að tryggja bæri
afurðaverð og rannsaka allar
hugsanlegar leiðir til að tryggja
fjárhag bátanna, þar sem geng-
islækkunin hefur brugðizt.
Þá lagði þingið áherzlu á
rífleg fjárframlög til hafnar-
gerða, og verði því fé ekki
dreift á margar hafnir, heldur
reynt að ljúka hverri höfn á
sem skemmstum tíma.
Þingið taldi að halda beri á-
fram fiskveiðum við Grænland
og leggur áherzlu á, að Islend-
Lngum verði tryggður afnota-
réttur af minnst tvejm höfnum
á Grænlandi.
Kvenfélag Hallgrímskirkju
heldur fund að Engihlíð 9
þriðjudaginn 28. nóv. kl. 8.30
síðd. Frú María Björnson frá
Kanada flytur ræðu og frú Guð
finna Jónsdóttir og fröken
Helga Magnúsdóttir syngja.
Félag líi að effa
kynn! Morðmanna
og íslendinga
Andersen-Rysst
heiðursfélagi þess.
STOFNAÐ var hér í Reykja
vík í fyrradag félagið ísland—«
Noregur, en tilgangur þess eE
að efla kynni IsJendinga og
Norðmanna, og hefur sams
konar félag starfað í Noregl
um margra ára skeið. Stofn«
endur félagsins voru 85 tals«
ins.
Thorgeir Andersen-Rysst,
sendiherra Norðmanna á ís-
landi, var kjörinn heiðursfé-
lagi á stofnfundi félagsins í
fyrrakvöld, en stjórn íslands—«
Noregs skipa: Árni .G. Eylands
stjórnarráðsfulltrúi, og er
hann formaður félagsins, en
meðstjórnendur hans þeir Ól-
afur Lárusson prófessor, Ólaf-
ur Hansson menntaskólakenn-
ari, Þorkell Jóhannesson pró-
fessor og Valtýr Stefánsson
ritstjóri. j
Barnaspífali við ’
Laufásveg ’l
BORGARSTJÓRT hefur und
anfarið átt viðræður við full-
trúa kvenfélagsins Hringurinn
um barnaspítala, og mun vera
í ráði að kaupa hús Haraldai’'
Árnasonar kaupmanns við
Laufsáveg fyrir barnaspítala.
Hefur bæjarráð heimilað borg
arstjóra að halda áfram samn-
ingum um stofnun og starf-
rækslu barnaspítala hér í bæ,
Jón Axel Pétursson kvaðst
ekki reiðubúinn að greiða at-
kvæði um barnaspítala í íbúð-
arhúsnæði þessu, ekki sízt e£
bráðabirgðafyrirkomulag þetta
yrði til þess að tefja fyrir
yggingu fullkomins barna-
spítala í bænum.
I Tryggva Sveinbjörnsson í næst
síðasta sinn í kvöld. Er því
hver síðastur að sjá, hann.
Myndin hér að ofan er af Vai
Gíslasyni, sem fer með hlut-
verk' Jóns biskpus.