Alþýðublaðið - 14.12.1950, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 14.12.1950, Blaðsíða 1
Veðurhorfiirí Norðaustan stinningskaldi. Yíða léttskýjað Forustuérein: Óþurrkar og aflaleysi. * * •’SS XXXI. árg. Fimmtudagur 14. des. 1950 278. tbl. Jólagjöf íhaMsflokkanna til alþýðunnar: r B Kommúnistar vildu heldur votta ríkisstjórn- inni slíkt traust, með Framsókn, en sam- þykkja athugun á rekstri útvarpsins! ÞINGMENN Framsóknarf'okksins og komtminista sam- Jtykktu í sameinuðu þingi í gaer að vísa tillögu Alþýðuflokks- ins um aukningu dagskrárfjár ríkisútvarpsins ti! ríkisstjórnar. Ilafði Skúli Guðmundsson flutt tillögu um þennan hátt á af- grciðslu málsins, og Luðvík Jósefsson lýsti yfir fylgi við hana af kálfu kommúnista! Er hér um að ræða furðulega trausts- yfirlýsingu kommúnista til rikisstjórnarinnar, þar eð þéir kjósa heldur að fá henni einræöisvald ti' að framkvæma þetta mál, ef hún þá ekki svæfir það. héldur en að alþingi kveði á um með hvaða hætti athugunin á fjárstjórn útvarpsins með aukningu dagskfárfjárins fyrir augum skuli verða. AUVIRÐILEGT YFIRVARP Lúðvík Jósefsson þóttist vera því samþykkur, að athugun færi fram á fjárstjórn útvarps- ins og bar ét móti því, sð kom- múnistar hefðu þar nokkuð að dylja eða neinn vildarvin að verja. Hins vegar sagði hann, að slík athugun á fjármálum utvafpsins, þótt hún miðsði að því einu að auka dagskrárféð, kæmi því aðeins til mála, að sams konar athugun færi fram á fjárstjórn annarra ríkisstofn- ana, og þess vegna hefði hann flutt breytingartillögu, er- mið- aði í þá áít. Afstaða kommúnisía í at- kvæðagreiðslunni leiddi hins vegar í Ijós, að þétta skraf Luðvíks var aðeins yfirskin. Fyrir þeim vakti ekki, að fram færi athugun á fjár- stjórn allra ríkisstofnana, heldur að koma í veg fyrir athugun á rekstri útvarps- ins. Þess vegna greiddu þingmenn þeirra, allir sem einn, atkvæði mcð því, að tillögu A’þýðuflokksins um aukningu dagskrárfjárins væri vísað til ríkisstjómar- inriár, sem komúnistar hafa allt í einu fengið svo mikið traust á. Gengu þeir lengra í þessu efni en þingmenn Framsóknarflokksins, þar eð einn þeirra, Jörundur Brynj- ólfsson, sá sóma sinn í því að vcra á móti þessari af- greiðs’.u málsins. DAGSKRÁRFÉÐ ER ALLT OF I.ÍTIÐ Sigurður Bjarnason taldi, að dagskrárfé útvarpsins væri allt of lítið, enda þótt breytingar- tillaga menntamálaráðherra við fjárlagafrumvarpið næði fram að ganga, en verði hún sam- þykkt. á að verjg 1 200 000 krónum til útvarpsdagskrár- | inm r á næsta ári. Sigurður ■ benti á, að þetta værj þó of 1 ’ítið fé til dagskrárinnar og sagði, að til hennar þyrfti allt ag 1 800 000 krónur á ári. ef vel ætti að vera. BYGGÐAR Á FULLKOMN- UM MISSKILNINGI Jörúndur Brynjólfsson tók afstöðu gegn bandalagi Her- manns Jónassonar og Einars ' Olgeirssonar í þessu máli og 1 gerði grein fyrir henni í glöggri | ræðu. Sagði hann, að ræður andstæðinga tillögunnar væru fullkomlega á misskilningi bvggðar; aðalatriði tillögunnar 1 væri að auka dagskrárféð, og , hún væri gersamlega óviðkom- i andi sakamá’arannsóiíninni, sem kom til sögunar eftir að í tillagan vár flutt á alþíngi. t Enn fremur sýndi Jörundur fram á, að tillaga Lúðvíks, sem kommúnistar hlupu burt frá við atkvæðagreiðsluna, fjallaði um allt annað mál og tilgangur hennar væri meira að segja ger- | ólíkur tilgangi flutningsmanna (Frh. á 8. síðu.) Dr. Karl Renner. seli Auslurríkis, áltræður í dag DR. KARL RENNER, hinn aldurhnigni forseti Austurrík- is og frægi jafnaðarmaður, er áttræður í dag. Dr. Renner er af fátæku for- eldri kominn, af bændaættum, og fæddur á Mæri í Tékkó- slóvakíu, sem þá tilheyrði Austurríki. Hann brauzt þó til mennta og komst til Vínarborg ar, þar sem hann las hagfræði við háskólann, en komst fljótc í kynni við forustumenn jafn- aðarmanna, þar á meðal Vietor Adler, hinn fræga brautrvðj- anda og foringja austurríska alþýðuflokksins. Og alla tíð síðan hefur Dr. Renner helgað jafnaðarstefnunni starfskrafta sína bæði sem stjórnmálamað- ur og rithöfundur. Framhald á 4. síðu. allk ffsir sig andví JAKOB MALIK boðaði á fundi stjórnmálanefndar bandalags hinna sameinuðu þjóða í gær, að hann myndi grcí'ða atkvæði gegn tillögu 13 Asíu- og Arabaþjóða um vopnahlé í Kóreu. Kvaðst Malik vera tillögunni and- vígur vegna þess, að það væri Bandaríkjamönnum í vil að vopnaviðskiptum í Kóreu yrði hætt. í Sagði Malák, að Rússar gætu ekki fallizt á aðra lausn Kóreumálsins en þá, að allur erlendur hsr yrði fluttur burt úr landinu og Kóreumenn látnir einir um áð jafna ágreiningsmál sín. Tillaga hinna 13 þjóða skorar á Kínverja að flytja lier sinn burt úr Kóreu og fyrirskipar vopnahlé þar þegar í stað. Lagði í gær skyndilega fram tillög- ur um hækkun á söluskatti, vöríi- íolli og ýmsum öðrum gjöldum, samtals 9,5 milljónir króna! EYSTEINN JÓNSSON FJÁRMÁLARÁÐHERRA' •boðaði á al'þingi í gær nýjar stórf’elld-ar ál'dgur á al- menning, samtate að upphæð 9,5 miiljónir króna. Álögurnar eru þessar: 1) Hækkun söluskatts á innfluttum vörum úr 6% upp í 7%* • Á að gefa ríkissjóði 5 millíónir króna. 2) Hækkun vörutolls um 17% á mörgum vörutegundum, Á að : gefa 1,5 milljónir króna. 3) Hækltun gjalds á innlendum toFvörutegundum um 20% (sælgæti, gosdrykkjum o. fl.). Á að gefa 1,3 nsilljónir króna. 4) Hækkun á stimpilgjaldi um 20%. Á að gefa 9GÖ 000 krónur. 5) Hæltkun á ýmsum aukatekjum um 20%. Á að gefa 800 000 krónur. Fjármálaráðherrann sagði,*- að þessar nýju álögur væru nauðsynlegar til að standa und- ir greiðslu launauppbóta til op- inberra starfsmanna á næsta ári, og framlags til Tryggingar- stofnunarinnar, sem ekki hefði verið reiknað með í fjárlaga- frumvarpinu. Hann áætlaði launauppbótina 5 milljónir króna og framlagig til Trygg- ingarstofnunarinnar 1,6 millj. króna. Álögurnar eru þó tæp- um 3 milljónum lcróna hærri, og kom ekki fram, hvað stjórn- in ætlaði að gera við það fé. Fjármálaráðherrann lýsti yfir því, að hann hefði talið réttast að hætta að greiða dýrtíðaruppbót samkværht gengislögunum og láta kaup haldast óbreytt um áramót- in, þótt kaupvísitatan sé orðin 122 stig og verði vafa- laust hærri um áramótin. Hefur hann þarna vafalaust talað fyrir hönd Framsóknar- flokksins, svo að stefna þess flokks í þessu niáli, sem varðar alla launþega svo miklu, er þá ljós orðin. Ríkisstjórnin í heild hefur þó ekki treyst sér til þess að ganga svo gersamlega í ber- högg við hagsmuni almennings, og mun kaup því hækka um áramótin um a. m. k. 5—6%. ÓSKEMMTILEG JÓLAGJÖF Stefán Jóh. Stefánsson and- mælti þessum álögum fyrir hönd Alþýðuflokksins og taldi ríkisstjórnina senda þjóðinni lítig skemmtilega jólagjöf með þessum nýju tollum og gjöld- um. Hami ítrekaði það, sem sýnt var fram á í sambandi við f járlögin, að tekjur væru of lágt áætlaðar í fjárlaga- frumvarpinu. Tekjur af sölu áfengis og tóbaks væru t. d. Nýr formaður fulltrúaráðsins Sæmundur Ólafsson var í gær- kvöldi kosinn formaður hinnar nýju stjórnar fulltrúeráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík eftir að kommúnistar hafa nú hrökklazt þar frá völdum. Sjá frétt á 8. síðu blaðsins í dag. of lágt áætlaðar um hvorki meira né minna en 13 millj- ónir króna, miðað við rcynslu þessa árs. Þess vegna væri.enginn vandi að greiða opinberum stárfs- mönnum þá uppbót, sem þeir eiga heimtingu á, og nauðsyn- leg gjöld til trygginganna, án þess að leggja á nýjar álögur. Það virðist stefna ríkisstjórn- arinnar að áætla tekjurnar lágt til þess að þær fari fram úr á- ætlun og hún hafi það fé til ráðstöfunar.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.