Alþýðublaðið - 28.12.1950, Page 4

Alþýðublaðið - 28.12.1950, Page 4
4 ' Útgefandi: AlþýSuflokkurínn. : Ritstjóri: Stefán Pjetursson. Fréttastjóri: Benedikt Gröndal; þing- fréttaritari: Helgi Sæmundssop: auglýs; ingastjóri: Emilía Möiler. Ritstjómar- símar: 4901 og 4902. Auglýsingasími 4S06. Afg*ei3siusími 4900. A'ðsetur: Al- þýðubúsiS. Alþýðuprent-miðjan h.f " Hækkuð úlsvör - lækkaS kaup. ÍHALDSMEIRIHLUTINN í bæjarstjórn Reykjavíkur lofar jafnan gætilegri fjármála- stjórn, þegar kosningaóttinn raskar andlegu jafnvægi hans. En það er minna um efndirn- ar. Þegar völd hans hafa verið framlengd, heldur hann upp- teknum hætti. Við næstu kosn ingar eru svo loforðin endur- tekin ti] þess að svíkja þau á ný, Afgreiðsla fjárhagsáætlipiar P.eykjavíkur fyrir næsta ár c:r glöggur og órækur vitnisburð- ur um þessi vinnubrögð ílialds meirihlutans. Við síðustu bæj- arstjórnarkosningar var því ó- wpart haldið fram at forustu- mönnum ihaldsins, að ’ieirra tilgangur vær] sá að hal-’a tit- svörunum í skefjuni. og þá vildu þeir taka einstaklega mMrið tillit til greiðslugetu bæj arbúa. Og Reykvíkingar létu blekkjast. íhaldið fékk völd sín framlengd. Efndunar eru nú komnar í ljós. Við samn- ingu fjárhagsáætlunarinn- ar markaði íhaldið þá stefnu, að útsvörin skyldu hækkuo u:n 6 milljónir króna. En á síðustu stundu ákvað það svo að bæta 2 milljónum við. Útsvörin á n.æsta ári verða því ailt að 65 rnilljónir króna. Slík eru vlnnu brögð íhaldsmeirihlutans, þeg- ar hann telur sig ekki þurfa að hafa áhyggjur af í hönd farandi kosningum. Þetta er þó ekki aðalatriði málsins, þó að vissuiega skipti útsvarshækkunin sérhvern bæj arbúa miklu Mergurinn máls- ins er sá, hvernig verja skuli þessum fjármunum, sem sóttir eru fyrirhafnarlaust ofen í vasa Reykvíkinga. Á að verja þeim til aukinnar atvinnu í bænum? Eru bæjarbúar með greiðslu hinna hækkuðu út- svara að safna í sjóð, sem auki öryggi þeirra í framtíðinni? Þessum spurningum verður að svara neitandi. Fjárveiting- ar til verklegra framkvæmda í Reykjavík verða á næsta ári rojög hinar sömu og þær voru á útlíðandi ári. En skrifstofu- bákn bæjarins verður aukið. Reykvíkingar eru því síður en svo að safna í saroeiginlegan sjóð, sem tryggi afkomu þeirra og veiti þeim aukið öryggi. Út- svarshækkunín rennur í hotn- lausa hít skrifstofubákns og eyðslusemi. ■f Útsvarshækkunin í Reykja- vík er því ekkert annað en ný kauplækkun. Atvinnurekstur- inn ber ekki aukin útsvör. "V erzlunin mun heldur ekki geta tekið á sig þessa nýju bagga, enda sízt af öllu til þess ætlazt af íhaldsmeirihlutanum. Útsvarsaukningin Iendir því á herðum launþeganna. Það á að sneiða kaup þeirra meira á ræsta ári en nokkru sinni fyrr. íhaldsmeirihlutinn í Reykja- vík er roeð þessum ráðstöfun- um að leggjast á sveif með rík isstjórn afturhaldsflokkanna og ALÞÝÐUBLAÐJÐ Fimmtudagur 28. des. 195ff. meirihluta hennar á alþingi. Þessir aðilar hafa myndað sam fylkingu, er berst fyrir því að minnka kaupgetu almennings og leggja honum aukna -greiðslubagga á herðar jafn- framt því, sem hætta atvinnu- levsis og skorts færist nær. Það er ekki talin ástæða til að fjölga dagsverkum verkamann anna í höfuðstaðnum. Hitt þykir sjálfsagt að taka af þeim ileiri krónur í eyðsluhít íhalds meirihlutans. Það er í raun og veru sama og fækka dagsverk- um þeirra. Þetta er í fáum orð um sagt reginmunurinn á lof- orðum og efndum íhaldsmeiri- hlutans í bæjarstjórn Reykja- víkur. Þannig er allt á sömu bókina lært hjá samfylkingu aftur- haldsins. Hún þóttist ætla að lækna meinsemdir atvinnulífs- ins og dýrtíðarinnar. En at- vinnulífið hefur aldrei verið í öðru eins öngþveiti og nú, og dýrtíðin hefur farið sívaxandi í stað þess að hún yrði stöðvuð, hvað þá minnkuð. Afleiðing þessa er sú, að þeir ríku verða ríkari en þeir fátæku fátæk- ari. Þetta ástand er óskadraum ur íhaldsins. En það er hér ekki eitt að verki. Framsókn- arflokkurinn veitir því allt það lið, er það þarfnast til þess að gera þennan draum sinn að veruleika, og gengur jafnvel rtundum feti lengra en það, og kommúnistar sjá það ráð eitt uð auka vöruskiptaverzlunina . við leppríki Rússa, þó að af- (eiðing hennar sé fyrirsjáan- lega dýrari og lakari vörur og enn stóraukin dýrtíð! Það er því vægast sagt hlægi- íegt, þegar Tíminn og Þjóð- viljinn mæla gegn útsvars- hækkuninni í Reykjavík með þeim augljósu rökum, að hún auki dýrtíðina og skerði hag almennings. Fulltrúa Fram- sóknarflokksins í bæjarstjórn Reykjavíkur leyfist þessi sýnd- armennska af því að hann telst til minnihlutans. En efast nokkur um, að afstaða hans væri önnur, ef íhaldigj þyrfti hans með? Er ekki meðferð í- haldsins á Framsóknarflokkn- um talandi tákn um, hvers væn að vænta, ef Þórður Björnsson hefði oddaaðstöðu í bæjarstjórn Reykjavíkur? Og hverju væri almen'ningur í höfuðstaðnum bættari, þó að kommúnistar réðu úrslitum? Er þag ekki táknrænt fyrir afstöðu þeirra, að Einar Olgeirsson tekur á alþingi það ómak af heildsöl- unum og stórútgerðarmönnun- um að berjast fyrir ,,frjálsri verzlun“, af því að hún myndi veita flokki hans aðstöðu til stórfelldrar gróðasöfnunar? Þessar staðreyndir er almenn ingi í Reykjavík skylt að íhuga. Honum á að geta legið í aug- um uppi, að útsvarshækkunin í höfuðstaðnum er hlekkur i festi þeirrar óheillaþróunar. sem hér hefur átt sér srað und- anfarið og íhaldið og Fram- sóknarflokkurinn bera ábyrgð á, en komúnistar vildu gjarna eiga hlutdeild í, ef flokksfyrir- tæki þeirra fengju aðeins að- stöðu til að græða á okkur ó- hagstæðri vöruskiptaverzlun við leppríki Rússa. Það væri lítilsvirðing við alþýðu Keykjavíkur að efast um, að hún geri sér ekki þessar stað- reyndir ljósar. Næstu kosning- ar munu tákna svar Iiennar, hvort sem þeirra verður langt eða skammt að bíða. Skemmtifundur Alliance Francaise ALLIANCE FRANCAISE hélt annan skemmtifund sinn á þessu starfsári mánudaginn 18. desember. — Að þessu sinni las sendiherra Frakka, hr. Henri Voillery, upp nokkra kafla úr ritum hins kunna franska rithöfundar Georges Courteline. Var gerður hinn bezti rómur að upplestrinum, og sendiherranum þakkað með dynjandi lófataki, enda er hann kunnur sem framúrskarandi upplesari. — Þá var sýnd kvik- mynd, en síðan setzt að borðum og loks dans stíginn til kl. 1 um nóttina. Lognregn á jólum. — Atvik kært, en ekkcrt heyrzt. — Kennari skrifar um börn í strætisvögnum. VEÐRIÐ VAR ÓVENJULEGT skorizt, kannski leitar hann að- á þessum jólum. Lognregn. féll hægt og blítt í kolsvarta polla. Það var eins og á vordegi og maður fann. næstum því gróSur ilm í Iofti. Jólasnjórinn kom ekki fyrr en í gærmorgun, þá varff allt drifhvítt í einni svip- an. Fólki finnst ekki jólalegt nema snjór þeki alla jörff. — Eins og ég gat um á Þorláks- messu var horgin nú skrautlegri en áffur. Þetta sást enn betur á afffangadagskvöld því að mjög víffa í bænum hafði verið sett upp Ijósakerfi á tré í görffum og var gaman að þessu. ÁHORFANDI SKRIFAR: ,,Mér kom í liug að segja frá atviki, sem ég hef hvergi séð á prenti, en er þó vel þess vert. Sagan er svona: Fulltíða maður réðist í haust er leið á 8 ára gamla telpu, í reiðikasti, skellti henni niður í grjóturð, tætti niður um hana fötin og byrjaði að lemja hana um allt bakið, með steinhellu. Móðir telpunn- ar heyrði í henni hljóðin og vildi koma barni sínu til hjálp- ar, en þá sleppti hann barninu og snéri sér að konunni, með hótunum og bægslagangi — sió hana niður, en er hún gat risið á fætur lagði hún á flótta, eins og fætur gátu borið hana, og hann á eftir, þangað til bíll bar þar að og konan gat forðað sér inn til bílstjórans, en árásarmað urinn snéri beimleiðis. ÞETTA MÁL var strax kært fyrir lögreglunni, hún hefur enn ekkert gerf í því og óbótamaður inn gengur alfrjáls um, meðal fólks, eins og ekkert hefði í- Truman í sporum Roosevelts ÞAÐ VAKTI að sjálfsögðú gífurlega athygli, þegar Harry S. Truman Bandaríkja- forseti boðaði það í útvarps- ræðu að kvöldi þ. 15. þ. m., eð hann myndi lýsa yfir hættuástandi í Bandaríkjun- um vegna hinna ískyggilegu viðhorfa, sem skapazt hefðu af yfirgangi Rússlands. En þó mun hvergi nærri öllum hafa verið það fullkomlega ljóst, hvað þessi boðskapur Bandaríkjaforsetans og fram- kvæmd hans strax daginn eftir þýddi. ÞESS VEGNA er rétt að rifja það upp, að fyrirrennari Trumans í forsetastóli Banda ríkjanna, Franklin D. Roose- velt, steíg nákvæmlega sama spor snemma á árum annarr- ar heimsstyrj al darinnar, áð- ur en Bandaríkin voru orðin aðili að henni. Það var 27. meí 1941. Þá Iýsti hann yfir hætíuástandi í Bandaríkjun- um vegna hinnar vaxandi ó- friðarhættu fyrir þau; en þá stóðu herskarar Hitlers við Ermarsund og Bretland eitt hélt uppi vörnum gegn yfir- gangi harðstjórans. ÞAÐ VAR EINNIG í útvarps- ræðu,. sem Roosevelt boðaði þá, að hann myndi lýsa yfir hættuástandi í Bandaríkjun- um; og hann sagði við það tækifæri: „Við rpunum ekki fallast á það, að Hitler leggi heiminn undir sig .... Ég hef í kvöld lýst yfir hættu- ástandi í Bandaríkjunum.“ Þetta var 27. maí 1941; og frá þeirri stundu hófst hervæðing Bandaríkjanna fyrst í fullri alvöru. Sívaxandi hluta framleiðslunnar var varið til vígbúnaðar, og um 400 000 manns var mánaðarlega bætt við herinn. En aðeins hálfu ári síðar gerðu Japanir hina fyrirvaralausu árás sína á Pearl Harbor. Þar með voru Bandaríkin komin. í stríðið. í RAUN OG VERU var það sami boðskapurinn, sem Tru- man flutti þjóð sinni þ. 15. þ. m. og fyrirrennai'i hans flutti henni fyrir meira en. níu og hálfu ári. Truman sagði: „Við getum ekki látið undan yfirganginum. .... Ég mun á morgun lýáa yfir hættuástandi í Bandaríkjun- um.“ Og hann sagði enn fremur: „Það eru valdhafar Rússlands, sem skapað hafa hættuástand í heiminum....... Hin kommúnistíska heims- yfirráðastefna hefur hleypt af stað strði í Kóreu. Kommún- istar hafa nú sýnt, að þeir svífast þess ekki að hætta á nýja heimsstyrjöld til þess að hafa það fram, sem þeir vilja. Þetta er hin raunverulega þýðing þeirra viðburða, sem eru að gerast í Kóreu. Það er þess vegna, sem land okkar er nú í hættu.“ ÞANNIG fórust Truman orð, áður en-hann lýsti yfir hættu- ástandi í Bandaríkjunum um miðjan þennan mánuð. Það vorú sömu örlagaþrungnu orðin og Roosevelt viðhafði, áður en Bandaríkin tóku í alvöru að búa sig undir þátt- töku í annarri heimsstyrjöld- inni. Og eins og þá þýða þau það, að Bandaríkin eru nú, í fullri alvöru, byrjuð að her- væðast og búa sig undir stríð. En hvort til þess kemur, það veltur á Rússlandi. eins tækifæris að reyna kraft- ana á einhverju öðru saklausu barni. En til hVers eru lögin og lögreglan, ef slíkt er látið við- gangast óhegnt“. KENNARI SKRIFAR: Örfá- ar línur um börnin og strætis- vagnana. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að framkoma margra barna í strætisvögnum bæjarins er slæm. Þau eru með óp, áflog og hrindingar. En Hvernig stendur á þessu? Er þetta ávöxturinn af starfi heim ilanna og skólanna? ÞAÐ ER MARGT réttilega fundið að skólunum okkar. Þeir láta nemendum sínum mik’a fræðslu í té, en sú fræðsla er á kostnað siðgæðis og trúar. En það eru skiptar skoðanir um þetta eins og gengur. Hvað sero því líðúr, þá veit ég með* vissu, að kennarar yfirleitt reyna að benda nemendum sínum á, að ósiðleg -framkoma í strætisvögn um, sem og annars staðar er þeim, heimilum þeirra og jafn vel skóla til skammar. En sum börnin láta sér ekki segjast við fortölur kennara og foreldra. Þá er aðeins ein leið eftir. NÝLEGA var ég farþegi í strætisvagni. Aftast í vagnin- um voru allmörg börn á leið- inni heim úr skólanum. Voru sum þeirra með slíkan hávaða og hrindingar að engu tali tók. En þá kom „læknirinn“ allt 1 einu. Vagnstjórinn, ungur og einbeittur maður, kom aftur í vagninn, tók einn versta óláta- belginn, og lét hann hreinlega út. Þetta dugði. Eftir þetta heyrð ist ekki bofs í hinum. Þannig ættu aðrir strætisvagnastjórar að hafa það, hreinlega að útiloka þau börn frá vögnunum, sem ekki haga sér prúðmannlega. ÞEIM ER ÓHÆTT að læra að ganga um eins og siðuðij fólki sæmir. Fyrst þau sinna ekki holl ráðum uppalenda sinna, verður og á að gfípa í taumana á al- varlegri hátt. Þeim á ekki að líðast dónaskapúr og tillitsleysi gagnvart öðrum, bæði hlutum og mönnum. MÉR FANNST hinum unga bílstjóra farnast vel, og mættu aðrir stéttarbræður hans vera einbeittari gagnvart börnum þeim og unglingum, sem haga sér dónalega í bílum *þeirra. Þeir mega vera vissir um, að farþegar yfirleitt eru slíku sam þykkir undir slíkum kringum- stæðum. Þegar ólátabelgirnir hafa svo fengið almenningsálit- ið á móti sér, munu þeir brátt láta segjast.“ hér í bænum SJALDAN mun hafa verið meiri ró og kyrrð í bænum um jól sem að þessu sinni. Lög- reglan hafði mjög lítig að starfa, enda var drykkjuskapur með minnsta móti, og' slökkvi liðið var aldrei kvatt ú.t um hátíðina, og mun það einsdæmi.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.