Alþýðublaðið - 28.12.1950, Síða 8

Alþýðublaðið - 28.12.1950, Síða 8
Börn og ungiingar. Komið og seljið Alþýðubíaðið. í Aliir vilja katipa ASbýSub!a5i«. Gerlzt Sskrifendufi að Alþýðublaðinu. Aiþýðublaðið inn « bvert heimili. Hring^ ið í síma 4900 og 4908J Mýndin sýnir viðbótarbygginguna við olíubryggju Shell í Skei’jafirði og hvernig ciíhieiðslan liggur niður í sjóinn. Síðan liggur leiðslan á sjávarbotni út til olíuskipsins, sem sést úti á firðinum og ber í bryggjuna. Við bryggjuna er iitli báturinn, sem verið hefur í förum mil’i bryggjunnar og olíuskipanna öll árin frá því að olíuskip byrjuðu að koma til Shell, eða í 23 ár, og má geta þess, að aldrei hefur nokkurt slys skeð í sambandi vig löndun olíunnar. Neðansjávarleiðsla lögð frá Shell- bryggjunni M) rn. úf í Skerjafjörð ----------------------- Eykur afköst og bægindi við losun oiíu- skipa, sem koma til stöðvarinnar. -------♦------- NEÐANSJÁVAROLÍULEIÐSLA hefur veriö lögð frá Shell-brj ggjunni í SkerjafirSi 260 metra út í fjöi'ðinn, og er Seiðsla þessi sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi og auðveldar snjög losun olíuskipanna. Fyrir jólin var 9000 sinálcsta olíu- skip losað við Shellstöðina, og tók losun þess ekki nema rúman scf'arhring. Er nú hsegt a5 dæla um 300 tonnum á klukkustund gegnum neðansjávarleiðsluna, en áður var einungis hægt að 'osa rúmar 100 smálestir á klukkustund. Á laugardaginn var bauð forstjóri Shell blaðamönnum um borð í olíuskipið ,,Sepia“, sem þá var verið að enda við að Losa með þessari r.ýju aðferð, en það er þriðja skipið, sem los ar í gegnum neðansjávardæl- una. Það var í haust sem Shell íét leggja þessa. leiðslu, og er hún um 260 metra löng og 8 tommu víð. Kom leiðslan fuil- búin til landsins en var sett saman hér. Var það Landssmiðj an sem annaðist það ver, og var leiðslan soðin saman á þurru landi.’en síðan var henni fleytt á tunnum í heilu lagi á þann stað, sem henni skyldi sökkt. Á ytri enda leiðslunnar eru fimm 8 tommu víðar gúmmí- slöngur tengdar saman og eru þær teknar um borð í skipin, þegar þau losa. Þegar dælingu er lokið er lokað fyri'- enda gúmmíslöngunnar og henni síð an sökkt, en vír er fest við enda hennar og síðan er vírinn fest ur í bauju, þannig að auðvelt er jafnan að ná slöngunrj upp úr sjónum. Til þess að íyrirbýggja, að leiðslan verði fyrir hnjaski, var byggð viðbót við olíubryggju Sheli, sem þó er laus við sjáiía aðalbryggjuna, en þar kemur leiðslan upp úr sjónum, og þar er búið svo um, að hægt er að dreifa olíunni til hinna ýmsu geyma olíustöðvarinnar í landi. Aðferð sú. sem notuð var við að losa olíuskipin áður en þessi neðansjávarleiðsla kom til sög unnar, var í því fólgin, að lögð var flotleiðsla frá olíubrýggj- unni'út í skip, eins og enn tíðk ast hjá öðrum olíustöðvmn. Var gömlu flotleiðslunni haldið uppi með tunnum og þurfti að draga hana í land í hvert sinn, sern lokið var við losun skipa. _ MENZIES, forsætisráðherra Ástralíu, var gestur Nehrus í Nýju Delhi á jólunum. ðttnað kvöld FÉLAG ungra jafnaðar- manna í Revkjavík heldur jólafagnað í Ingólfscafé ann að kvöld og liefst hann kl. 20,30. Til skemmtunar verður: Á varp formanns FUJ, Krist- ins Gunnarssonar; útvarp FUJ, gamanþáttur, sem nokkrir félagar annast; Loft ur Guðmundsson Ies upp og Haukur Mortens syngur. Auk þess verður að sjálf- sögðu dans. Félagar eru minntir á að fjölmenna. Einkum er þess vænzt að ungir jafnaðar- menn utan af landi, sem staddir eru hér, sæki fagn- aðinn. Vefrarhjálpinni bárusi rúmar 96 þús. krónur VETRARIIJÁLPINNI bárust samtals kr. 96 403,82 í pening- um, en auk þess töluvert af íatnaði. Af þessu söfnuðu skátarnir tæpum 50 þúsundum, en hitt barst á skrifstofuna. Vetrarhjálpin úthluiaði á- vísunum á matvæli og mjólk fyrir samtals 125 þúsund krón- ur, er skiptist milli 557 fjöl- skyldna og einstaklinga i bæn- um, en auk þess var nokkru út- hlutað af fatnaði, aðaliega til f j ölskylduheimila. Söfnun Vetrarhjálparinnar hefur aldrei verið meiri en nú, og néma peningagjafirnar um 20 þúsund krónum meira en í fyrra. í gær voru enrf'að berast um- sóknir til Vetrarhjálparinnar, og mun skrifstofan verða opin fram að áramótum og gjöfum veitt viðtaka milli kl. 10—12 f. h. og 2—5 e. h. Sími skrif- stofunnar er 80785. Forstöðumenn Vetrarhjálp- arinna^ hafa beðið blaðið að færa bæjarbúum kærar þakkir fyrir örlæti þeirra. Salrná! ráðsteínunnar mun verða kaupírygging hlutarsjómanna -----------------:--*-------- SJÓMANNARÁÐSTEFNA Alþýðusambands íslands kem- ur saman hér í bænum í dag. Hafa fulltrúar 35 verkalýðs- fé'aga, sem hafa sjómenn innan sinna vébanda, verið kallaðii' til ráðstefnu þessarar til að ræða kauptr.vggingu hlutarsjó- mcvuna, lilutai-tryggingarsjóð, samræmiiigu á samningstíma félaganna og fleira, sem máli skiptir fyrir sjómenn. Hefur stjórn Alþýðusambandsins ka’lað saman þessa ráðstcfnu nú» þar sem meiri óvissa ríkir um kaup og kjör hlutarsjómanna cn nokkru sinni áður og þeim hefur reynzt erfiðara að fá kaup- tryggingu sína greidda en nokkru sinni fyrr. Til þessarar sjómannaráð- fleiri mál, er sjómannastétt- stefnu voru kallaðir formenn þeirra félaga, sem um mál sjó- manna fjalla, eða aðrir stjórn- avmeðlimir fékganna í þeirra stað. Þá munu fulltrúar frá Far manna- og fiskimannasam- bandi íslands sitja ráðstefn- una með málfrelsi og tillögu- rétti, en starfað hefur nefnd skipuð þrem fulltrúum frá Al- þýðusambandinu og þrem frá FFSÍ til að fjalla um málefni sjómanna. Alþýðublaðið sneri sér í gær til Jóns Sigurðssonar, fram- kvæmdastjóra Alþýðusam- bandsins, og spurði hann, hvað helzt liggi fyrir ráðstefniinni. Jón svaraði því til, áð lögum hefði verið breytt á þann hátt, að hlutasjómenn ættu stórem eifiðara með að ganga eftír kaupi sínu en áður. Muni þeir flestir hafa fengið smágrei.Öslu í byrjun vertíðar, en síðan ekk- ert þar til í vertíðarlok, þegar bezt gegnir, en mjög oft ckki fyrr en árum síðar og stund- um aldrei. Þó var tilgangur hlutatryggingarinnar meðal annars sá, að heimili sjómanna væru ekki bjargarlaus, meðan þeir eru í skiprúmi, og ættx því að greiða trygginguna til heimilanna með jöfnu millibili a’.la vertíðma. Hlutatryggingin, sjóveðsrétt- urinn og hlutatryggingasjóður bátaútvegsins verðá því, að þv: er Jón skýrði frá, aðalmál sjó- mannaráðstefnunnar. Auk þess verður rætt um samræmingu á samningstíma fyrir sjómenn og Nann ték ú riddara aranum A AÐFANGADAG viidi það , slys til á Halamiðum, að háseti á togaranum Bjarna riddara úr Hafnárfirði féll fyrir borð og drukknaði. Maðurinn hét Gúð mundur Danielsson og átíi heima í Hafnarfirði. Hann var 23 ára og ókvæntur. Tveim bjarghringjum var þegar kastað út, en maðurinn náði ekki til þeirra. Þá stökk einn af skipverjunum fyrir borð í taug og tókst að ná til Guð- mundar, og voru báðir mennirn ir teknir um borð, en Guð- mundur var þá meðvitundar- laus. Voru strax hafnar lífgun artilraunir, og jafnframt sím- að til héraðslæknisins á Þing- eyri og hann beðinn að koma til móts við togarann, er strax hélt á leið þangað, en er lækn- irinn kom um borð var Guð- mundur látinn. ina varða. > Fundurinn hefst kl. 10 fyrir hádegi í dag í samkomusal Fdduhússins. íveir 15 ára drengir siálu strætisvagn- inum á Lækjartorgi ÞAÐ VORU TVEIR 15 áia drengir, sem- stálu strætisvagn- inum á Lækjartorgi á annaii . í jóluum. Rannsólcnarlögregl- an hafði upp á piltunum í gsev, og kváðust þeir upphaflega hafai ætlað að fá sér ökuferð upp að Álafossi, en sneru því svo upp í það að aka alla leið upp á Kjalarnes, en þar stöðvaðist strætisvagninn skammt fyrir o£ an Mógilsá, og komu þeir hon- um ekki aftur í gang, svo a3 þeir gengu niður að Álafossi, en þaðan komu þeir með áætl- unarbifreið í bæinn. Það var um klukkan 6 í fyrra kvöld, sem strætisvagninum vai* stolið. Var þetta vagninn R 975. Hann var mannlaus, erj' þó látinn vera í gangi, þar eð hann mátti heita rafmagnslaus. Menn urðu strax varir við þegar vagninum var stolið og sást að honum var ekið inn Hverfisgötu. Lögreglunni var strav gert aðvart, og hóf hún leit. í útvarpinu um kvöldið var auglýst eftir honum. Litlu síðar barst lögreglunni frétt um að sézt hefði til hans uppi í Mos- fellssveit. Hann var óskemrfid- ur, þegar hann fannst, en komst ekki í gang vegna rafmagns- leysis. Höfðu piltarnir því yfir gefið hann, og lauk þar mcð hinni ævintýralegu ökuferð. Annars var það ætlun þeirra að snúa þarna við og aka strætis- vagninum aftur til bæjarins. ALLMIKIÐ var um bif- reiðaárekstra í bænum um há tíðina, en lítil sem engin slys munu hafa orðið á fólki, að því er lögreglan hefur skýrt blaðinu frá. Samtals munu milli 20 og 30 bifreiðar hafa lent í árekstrum, og skemmd- uát sumir þeirra mikið.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.