Alþýðublaðið - 30.12.1950, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 30.12.1950, Blaðsíða 4
4 ALÞÝÐUBLAÖIÐ Laugardagur 30. des. 1950 Útgefandi Alþýðuflokkurinn.. Ritstjóri: Stefán Pjetursson. Fréttastjóri: Benedikt Gröndai. Þingfréttir: Helgi Sæmundsson Augiýsingastjóri: Emilía Möller Ritstjórnarsímar: 4901 og 4902 Auglýsingasími: 4906. Afgreiðslusími 4900. Aðsetur: Alþýðuhúsið. Alþýðuprentsmiðjan h.f. Sjómenn rísa upp gegn réltleysinu RÁÐSTEFNA SJÓMANNA- FÉLAGANNA, sem Alþýðu- sambandið hafði boðað til, sat stuttan tíma að störfum. Verk- efni voru þó mikil. Hin svo- kallaða lækning gengislækkun armanna á vandræðum vélbáta flotans, hefur mistekizt með öllu. Þeíta hefur sjálfur yfir læknirinn Ólafur Thors viður- kennt á alþingi, með því að komast þannig að orði, sjö mánuðum eftir lækninguna, að vandræðin ha.fi aldrei ver- ið meiri en nú. Þessi hlið máls ins snýr bæði að útvegsmönn- um og sjómönnum. og er hin ömurlegasta, þó að útvegsmenn séu þannig settir, að þeir hafi flestir varla málungi matar. Hin hliðin, sem snýr ein- göngu að sjómönnum, er enn ömurlegri. Sjómenn á síldveiði skipunum eru orðnir réttlaus- ustu menn í þjóðféiaginu. Þeir eiga sumir inni gamlar sjó- veðskröfur. Alþingi hefur bann að þeim að innheimta þær og engar ráðstafanir gert til þess að þær fáist greiddar. Margir fengu hluta af sumarlaunum fyrir vinnu sína árið 1949 eftir nærri eins árs bið og enn hafa engar ráðstafanir verið gerðar til þess að greiða tvo þriðju eða meira af launum síldveiði- sjómanna fyrir 1950, en inn- heimtan bönnuð með lögum. * Alþingi skyldi við þetta mál eins og annað er sjávarútveg- inn varðar, óleyst, þegar þing- menn fóru í jólafríið. Stjórn- arliðið í Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum stóð eins og múrveggur gegn öllum tillögum Alþýðuflokksi ns um að veita fé til þess a$ greiða sjóveðski-öfurnar og framlag til að koma vélbátaflotanum á stað upp úr áramótunum. Ekki mátti á milli sjá, hjá hvorum flokknum kæruleysið gegnvart sjávarútveginum og réttlætismálum sjómanna, var meira. Allur fjöldi síldarsjó- manna kemur þó heim félaus eftir sumarið og í atvinnuleysi, að minnsta kosti norðanlands og vestan. Það var því heldur kuldaleg ,,vetrarhjálp“, sem sjómenn fengu frá stjórnar- flokkunum fyrir jólin. * Stjórnarflokkamir eru með aðgerðum sínum og aðgerða- leysi að gera að engu þann rétt síldveiðsjómanna, að fá laun sín greidd í peningum og að launakiöfur hafi forgang fyrir öðrum kröfum. Höfuðverkefni sjómannaráð- stefnu Alþýðusambandsins var að kippa þessu í lag,' og bera samþykktir ráðstefnunnar þe^s vott. Verkamenn hafa oft áð- ur þurft að fylkja liði gegn afturhaldinu í Sjálfstæðis- flokknum og Framsóknar- jf&kknum. En meðan allt sótti; upp á við með atvinnu, kom" margt eins og af sjálfu sér, en ir kaupendur, sem borga Alþýðublaðið árið 1951 fyrir fram, fá í kaupbæti Jólahelgina og Al- þýðuhelgina 1949 og 1950 (það, sem ekki er uppselt). Gerist kaupendur að Alþýðublaðinu. Alþýðublaðið þó á grundvelli gamalla átaka og uppbyggingar. Síðan halla fór undan fæti, eru þessir í- haldsflokkar samtaka um að vega í hinn gamla knérunn, hvenær sem því verður við komið. Sjómannaráðstefnan er sem framhald Alþýðusambands- þings órækur vottur um, að ætlunin er ekki að láta íhalds- öflunum haldast uppi að troða á sjálfsagðagta rétti sjó- manna eða annarra verka- manna. Útvegsmenn vélbáta hafa árangurslaust kallað á aðstoð og skilning Sjálfstæðisflokks- ins, sem fer með sjávarútvegs- málin. Kemur nú til kasta Al- þýðusambandsins og félaga þess að nota mátt samtakanna til þess að sækja rétt sjó- manna í hendur Sjálfstæðis- flokksins og Framsóknarflokks ins. Þegar samtakamættinum verður beitt, þarf ekki að ef- ast um sigurinn. r Arbók Landsbankans 1949 komin út ÁRBÓK LANDSBANKANS 1949 er komin út, og er þar að vanda mjög ítarlegt yfirlit yfir hag þjóðarinnar á því ári, svo og reikningar bankans fyrir það ár. Ritið hefst að þessu sinni á ítarlegri skrá yfir uppsláttar- orð, sem gerir mun auðveldara ag nota skýsluna sem heimild. Árbókin hefst á stuttu heild- aryfriliti yfir hag þjóðarinar á árinu. Þá kemur kafli um landbúnað, um útgerð og sjáv- ariðnað, verklegar fram- kvæmdir og iðnað, verzlun og samgöngur, verzlunina við út- Minnt á hörmuleg tíðindi. — Reynsla gamlaárs- kvöldanna. — Dýr gleðilæti. — Allslaus byggð- arlög. — Lykilinn að skilningnum. — Gleðilegt nýtt ár. ÞRJÁR SYSTUR létu lífið í öðru hefur gert fólk að hálfgarð eldsvoffa í Kaupmannahöfn á ( afffangadagskvöld og margir meiddust. Drukkinn maður var valdur að brunanum. — Þannig hljóðaði ein útvarpsfréttin eftir jólahátíðina. — Misnotkun á- fengis segir ætíð til sín, þó aff margir vilji gleyma því og muni betur málsháttinn „Iióf- Iega drukkið vín gleður manns- ins hjarta“. UNDANFARIÐ hefur verið haldið upþi hörðum áróðri gegn áfengisnautn. Það hefur verið kvartað urtdan þessum á- róðri. Ekki get ég tekið u'ndir þær aðfinnslur, því að ég heí ekki orðið var við. að fram haíi komið í honum annað en nak- inn sannleikurinn, hvernig svo ssm afstaða manna er til banns eða bindindis. GAMLAÁRSKVÖLD hefur löngum verið eitt mesta drykkjuskaparkvöld ársins. Og þá hafa mörg og hörmuleg slys orðið, auk þess sem það með lönd, fjárhag hins opinbera, verðlag, atvinnukjör og fleira, greiðsluviðskipti við útlönd, verðbréfamarkaðinn, vaxta- kjör, útlán og innlán, og að lokum koma reikningar bank- ans. Allt á sömu bókina lœrt um vitfirringum á götum Revkjavíkur. Vel væri ef nú brygði út af venjunni og menn gættu hófs að þessu sinni, ekki aðeins í meðferð áfengis, held- ur og í framkomu sinni á al- mannafæri. DANSLEIKIR verða haldnir í flestum samkomuhúsum ann- að kvöld. Það er ef til vill ekki að ástæðulausn að ýmsir vilji gjarna kveðja gamalt ár og fagna nýju í stórum hóp við glas og glaum, fara því a£ heimilum sínum í félagskapinn. En vafa- samt er það þegar börn eru á heimilunum og getur haft slæm áhrif í framtíðinni fyrir heim- ilin. En hver verður þar að ráða við sjálfan sig. En dýr þykja mér gleðilætin. Heyrt hef ég um, að verð aðgöngumiðu að einni samkomunni sé 500 krón- ur fyrir parið! STAÐREYNDIR SÝNA, að fátækt og bjai’garleysi þjáir nú byggðarlög á þessu landi. Vel væri verð nokkurra aðgöngu- miða komið í matvæli til að senda allslausum heimilum í Flatey til dæmis. En hvað þýð- ir að tala um það? Það er ekki hægt að fórna glensi eins gaml- árskvölds í slíka viðkvæmni, •enda virðist mér að hver sá þyk ist nú stærsta hetjan, sem mest getur fordæmt viðkvæmni í op- inberum umræðum og bók- menntum. Sjálfum hefur mér oft fundizt að viðkvæmnin væri bezti lykillinn að skilningnum og skynseminni. TÍMINN hefur á hendi forustu afturhaldsins í baráttu þess gegn symfóníuhljómsveit- inhi. Hefur hgnn nú einu sinni enn ráðizt á Alþýðu- blaðið í einkadálki Ilalldórs frá Kirkjubóli vegna stuðn- ings þess við hljómsveitina, og kennir þar margra skrýt- inna grasa eins og vænta mátti í þeim jurtagarði. Starkaður gamli, en það er dulnefni Halldórs, birtir í Baðstofuhjali Framsóknar- blaðsins í gær bréf, sem dálks ritstjórinn segist hafa fengið sent úr dreifbýlinu, og segir þar, að bréfritarinn skilji ekkert í þessum áhuga Al- þýðublaðsins fyrir hljómsveit armálum, því að það eigi ein vörðungu að hugsa um fá- tæklingana í landinu! ÞESSI SKOÐUN er vægast sagt móðgun við alþýðustétt- ir landsins, en sem kunnugt er telja fslendingar sér það til mikillár sæmdar, að al- þýðan hér á landi sé mennt- aðasta alþýða í heimi. Tíminn lítur hins vegar svo á, að hún eigi að hugsa um það eitt að hafa í sig og á, og honum finnst óskiljanlegt, að ís- lenzkt alþýðufólk geti haít yndi af góðri tónlist. Þetta sýnir mætavel menningarstig blaðsins. En sem beíur fer er- ' það staðreynd, að alþýða manna við sjó og í sveit kann alveg eins vel að meta fagrar listir og oddborgararnir í Reykjavík, en Tíminn virð- ist álíta, að symfóníuhljóm- sveitin eigi aðeins að vera fyrir .þá. BRÉFRITARINN segir, að hlustendur úti á landi geri engan greinarmun á því, hvort það sé hljómsveit í Reykjavík, sem leikur í út- varp, eða hvort leikin sé hljómplata eftir fyrsta flokks erlenda hljómsveit. En þetta er ósköp fljótfærnisleg álykt- un. Bréfritari Tímans myndi áreiðanlega skilja, hversu þessi tillaga hans er varhuga- verð, ef færa ætti hana út á önnur svið þjóðlífsins. Eig- um við t. d. að hætta að styrkja rithöfunda okkar og leggja steina í listabraut þeirra af því að hægt er að þýða fræg erlend skáldrit á íslenzku? Og eigum við ís- lendingar að hætta að kaupa og borða íslenzkt smjör af því að svo hagar til, að hægt er að fá jafngott eða betra og miklum mun ódýrara smjör frá Danmörku? Þannig mætti nægja Tímanum fyrst um sinn. EN ÞÓ TEKUR ÚT YFIR, þegar bréfritari Tímans reynir að halda því fram, að það sé sönnun um hvílubrögð Alþýðuflokksins við íhaldið, að hann barðist fjmir því, að alþingi og Reykjavíkurbær styrkti symfóníuhljómsveit- ina. En var það ekki óvart Framsóknarflokkurinn, sem tamdi sér hvílubrögð við í- haldið í sambandi við af- greiðslu þessa máls á alþingi? íhaldið klofnaði í tvennt í af- stöðunni til symfóníuhljóm- sveitarinnar, og allir örgustu afturhaldsse^gir þess voru á móti henni. En Framsóknar- flokkurinn var allur andvíg- ur hljómsveitinni, nema Rannveig Þorsteinsdóttir. Tíminn æti að birta nokkur bréf um það, fyrir hvern hún hafi verið að vinna með fylgi sínu við hljómsveitina! EIN RÖKSEMDIN í umræddu Tímábréfi er sú, að symfóníu- hljómsveitin eigi ekki rétt á sér af því að unga kynslóðin vilji ekki þessa tegund tón- listar; hún vilji jazzinn! En er ekki einmitt þetta sönnun þess, að ástæða sé til-að vinna ötullega að því að bæta tón- listarsmekk þjóðarinnar? Á til dæmis að hætta að gefa út góðair bækur af því, að reyf- ararnir seljast betur? Þannig er allt á sömu bókina lært í þessum málflutningi Tímans. Þar fær ekkert staðizt, nema sú ömurlega staðreynd, að málgagn menntuðustu bænda- stéttar í heimi hefur á hendi forustu afturhaldsins í fjand- skap þess viQ fagrai’ listir. En mikið má Halldór frá Kirkjubóli verða langlífur, ef ÁRIÐ, SEM ER AÐ kveðja, hefur reynzt okkur erfitt og við áramótin skelfur allur heimur- inn af kvíða. Orðtækið „Bezt er að búast við hinu illa, því að það góða skaðar ekki,“ er tví- eggjað. Kvíðinn getur gert menn að fálmandi vesalingum. Bjartsýni í hófi er þó bezt. En fyrirhyggjan er þó ætíð affara- sælust. — Þökk fyrir gamla ár- ið. Gleðilegt nýtt ár. Hannes á horninu. „Lífið kallar", ný Ijóðabók eftir Krisf- ján frá Djúpalæk ÚT ER KOMIN ný ljóðabók eftir Kristján Einarsson frá Djupalæk, og er það fjórða bók höfundarins. Nefnist Iiún „Líf- ið kallar“ og flytur 45 kvæði. Fyrri Ijóðabækur Kristjáns Einarssonar frá Djúpalæk eru: .,Frá nyrztu ströndum“, „Villt- ur vegar“ og „ í þagnarskóg“. „Lífið kallar“ er gefið út af bókaútgáfunni Sindur á Akur eyri, og er bókin prentuuð í prentsmiðju Björns Jónssonar. Áramótafaðnaðaur blaðamanna. hann á að geta forheimskað íslenzka bændur í líkingu við Framsóknarbroddana hér í Reykjavík!

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.