Alþýðublaðið - 28.07.1951, Page 8
Gerizt áskrifervdur
að AjbvðublaÖinu.
Aiþýðubíaðið inn á
hvert heimili. Hring-
ið í símá 4900 og 4906
Aij>ýðub!aðið
Laugardagur 28. júlí 1951.
Börn og unglingar
Komið og seljið 1
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Allir vilja kaupa
Alþýðublaðið
Frá köntk norrœnu kvennanna
H' i i
Mynd þessi var tekin á fimmtudagsmorguninn, þegar norrænu
konurnar stigu á land af Brand V. Á myndinni sjást fyrirliðar
fararinnar, talið frá vinstri: Elisabeth Hammering frá Tromsö,
frú Stella Kornerup, farárstjóri leiðangúrsins, að baki henni
stendu eina græn’enzka konan, sem er með í íörini, Carl Bro-
berg, þá Signe Wennberg, fararstjóri sænsku kvennanna, Ege-
berg-Hoimsen, fararstióri norsku kvennanna, Mary Ek, farar-
stjóri finr.sku kvennana. Thorged Mohr, fararstjóri færevsku
kvermanna, og Margit Waldén Palrnær frá Svíþjóð. Œjósm.
Guðni Þórðarson.)
n Ssl tcn
HARRIMAN. rendTulltrúi*'
Trumans forseta Bandaríkj- .
anra. áramt Shepheard sendi- :
herra Bretlands í íran. flugu !
frá Teheran í gærkveldi til j
Englands, 1 í 1 viðræðna við |
brezku stiórnina um hinar nýju S
tillögur íranr- órnar til ’ausn- j
ar á olíudeilunm.
menn
landsins
ir iil
A MIÐVIKUDAG komu
I gær á+ti Harríman tal við
forsæt'sráðherrann dr Mo«a- ' hinSað 34 finnskir ferðamenn,
dek. og gekk einmg á fund ír- dvö dust Þeir 1 bænum í
anskei'ara. jfyrradag, en í gær foru þeir
^ .... , , „ , , iá Þingvöll, að Laugarvatni og
Frett:r fra Teheran i gær . . 6„ lv ,
, ° mn a Hveravelli. Enn frernur
nerma, að ru horfi vænlesar ; v , ., * n-
™ verour farið að Gullfossi og
með samkomulag millj deTu- r- ; , •*. , . - ,
J Geysi. A þriðmdaginn verður
aðila í jvlíumálinu en gert hafi : haldið norður \ i£nd.
engi. Eú.zc er við, a3 Harr:- . Þetta er skiptiferð með líku
man og Shepheard ræði við sniði og þegar sænsku ferða-
brezku ..tjórr.ina í dag. • mennirnir frá Birkagárden í
5 ára drengur varð
fyrir bíl á Kleppsvegi
ÞAÐ SLYS VARÐ nokkru
fyrir kl. 8 í gærkveldi, að f;mm
ára gamal' drengu~ Svavar Ás-
geir Sigurðsson, Kleppsvegi 90,
varð fyrir bifreið og slasaðist.
Rannsóknarlögreg’an skýrði
sutjt) frá, að Svavar hefði orðið
fyr;r bifreiðinni R 5907 á gatna
mótum Kleppsvegar og Hjalla-
vegar. Að svo «töddu gat lög-
regian ekici lát ð í té frekari
upplýsingar um tildrcg að slys-
inu.
Svavar var samstundis f’utt-
ur í Landsspítalann. Við lækn-
isskoðun kom í Ijós að vmstri
fóturinn hafði brotnað. Líður
S<yavari litla eftir vonum.
Piiiur fellur af vöru-
bíl og slasasf
í GÆRDAG varð slys á
Miklubrautinni er piltur féll
af vörubifreið. Pilturinn slas
aðist töluvert og var fluttur í
sjúkrahús. Var bílinn, sem var
frá landssímanum að flytja
menn til vinnu, og var piltur
inn meðal þeirra er voru á pall
inum.
4 þjófar dæmdir
í 4-8 mánaða
fangelsi
SAKADÓMARI hefur ný-
lega kveðið upp dóma yfir fjór
um mönnum, sem játað hafa á
sig mörg innbrot og þjófnað.
Tveir manna hafa áður gerst
brotlegir og hlutu þeir 8 mán-
aða fangelsi og sviptir kosn-
ingarétti og kjörgengi. Sá
þriðji var dæmdur í 6 mánaða
fangelsi skilorðsbundið og sá
fjórði í 4 mánaðafangelsi skil-
orðsbundið.
ÍBR vann lands-
mot kvenna í
handknaflleik
IBR sigraði með 7 gegn 5
mörkum eftir tvíframlengda,
mjög harða og ruddalega
keppni, er gekk svo langt, að
áhorfendum virtist stundum
sem um áflog væri að ræða, en
ekki íþróttakeppni. Dómari
var Frímann Gunnlaugsson.
Hér voru mætt tvö hand-
knattleikslið úr Reykjavík, en
vegna ágreinings syðra um
liðsskipun og þátttöku Reykja
víkurfélaga dró Valur lið sitt
til baka úr landsmótskeppn-
inni. í kvöld keppa bæði sunn
anliðin við ísafjarðarfélógin
Svíþjóð komu hingað í fyrra.
Fóru 36 íslendingar í þeirra
stað áleiðis til Finnlands á mið-
vikudagskvöldið og dveljast þar
jafn lengi og finnski ferða-
mannahópurinn dvelst hér.
Meðalafli síldarskipanna er nú 1060
mál, þriðjungur veiðitímans liðinn
Uggur i síldveiðimönnum vegna norskra
síldveiðiskipa í Faxaflóa.
NOKKUR SKIP KOMU MEÐ SÍLD til hafna norðam
Iands í gær, en aflinn var líti'l, enda var slæmt veiðiveður
fyrir norðan. Síðast liðna viku hafa sífelldar veiðitafir orðiði
vcgna brælu á miðunum. — Um 30 norsk síldveiðiskip eru núi
komin á síldarnii'ðin á Jökú’djúpi. Reknetaveiðin hefur vcrið*
treg fyrir norðan í sumar, svo búizt er við að fleiri norsk skip
komi á Faxaflóamið; en alls munu vera um 200 norsk skip á
síldveiðum við ísland. Er þetta í fyrsta sinn sem Norðmenis
stunda reknetaveiði í Faxaflóa. Þykir íslenzkum sjómönnunv
og ö'ðrum þeim, er við síldveiðar fást, vont að fá sæg erlendrat
skipa á hin takmörkuðú síldarmið í Faxaflóa og búast við a®
þessi síldarf’oti spilli veiðihorfum landsmanna.
Tvö undanfarin dægur hefur'
síldveiðin í Jökuldjúpi gengið
sæmilega og hafa sumir hátar
aflað vel, en aflinn hefur verið
misjafn. Telja sjómenn a'l-
mikla síld við Jökul, en vegna
veðurs hefur ekkert veiðst á
þessu svæði í svo til tvær vik-
ur fyrr en s. 1. tvo daga. Fvrir
norðan barzt svo til engin síld á
land í þessari viku vegna
slæmra veiðiskilyrða. Nokkur
skip fengu smáslatta á austur-
svæðinu og nemur síldarmagn
ið aðeins nokkur þúsund mál-
um.
Kærufreslur á sköff-
um og úfvorum
til 9. ágúst
MEÐALAFLI UM 1000 MAL.
Þegar síldveiðin í ár er bor
in saman við veiði síldarsurnra,
er það hverfandi lítið sem
veiðst hefur á þessari vertíð, og
er meðalafli nú um 1000 mál
og tunnur. Samkvæmt upplýs
ingum frá Pavíð Ólafssyni
fiskimálastjóra var meðalafli
á nót síðustu 11 ár 4521 mál
og tunnur. Nú er liðinn þriðji
hluti síldarvertíðarinnar fvrir
norðurlandi og hefur þá ekki
borist á land nema fjórðihluU
meðalafla eins og hann var síð
ustu 11 ár. Fer hér á eftir sam
anburður á síldarafla þessara
síldarvertíða.
Árið 1940 var veitt í 164
nætur, meðalafli á nót var
9156 mál. Þetta var í upphafi
styrjaldarinnar og fór skipum
þeim' er stunduðu síldveiðar
fækkandi svo að árið 1941 voru
ekki nema 105 nætur, en þá
var meðalafli 6704 mál. 1942
var svipaður nótafjöldi og með
alafli þá 10 569 mál. Árið 1944
var eitt hið mesta síldarár er
komið hefur og var það meí
hvað snerti meðalveiði, en þá
komu 12 029 mál á nót. Árið
eftir fjölgar skipunum en veið
in minnkar og fengust þá ekki
nema 2502 mál á nót. 1947
f jölgar skipunum enn og eru nú
254 nætur á vertíðinni. Árið
eftir fækkar skipunum aftur í
198, en í fyrra var veitt í 235
nætur. Eins og lesendur mu.na
brast áíldveiðin algerlega og
varð það eitt hið versta áfal!
sem fiskiflotinn hefur orðið
fyrir, sem sjá má af því, að þar
var meðal veiði á nót aðeins
980 mál.
Framh. á 7. síðu.
YFIRSKATTANEFND héf-
ur auglýst kærufrest til þess
að kæra til yfirskattanefndar
út af úrskurðum skattstjóra og
niðurjöfnunaxnefndar, og er
fresturinn útrunninn 9. ágúst.
19 stiga hiti
í gærdag
í GÆR var 19 st.iga hiti á.
Hæli í hreppum og var það
mesti hiti á landinu. í Reykja-
vík var 16.5 stiga hiti og á
Þingvöllum 17 stig. Álíka hiti
var víða hér sunnanlands ug
vestan, en norðan lands var
ekki jafnhlýtt, t .d. var ekki
nema 10 stiga hiti á Akureyri.
10 þúsund króna
gjöf fil Krabba-
melnsfélagsins
KRABBAMEINSFÉLAGI
ÍSLANDS barst í gær 10 þús
und króna gjöf frá systkinun-
um í Æðey, og er gjöfin til
minningar um foreldra þeirra,
Guðmund Rósinkarson og Guð
trúnu Jónsdóttur, en í gær
voru 100 ár liðin frá fæðingu
Guðmundar.
Séra Óskar Þortáks
son selfur inn
í embæffið
KLUKKAN 11 fyrir hádegi
á morgun setur séra Jón Auð-
uns dómprófastur séra Óskar
J. Þorláksson dómkirkjuprest
inn í embættið. Að lokum préd
ikar séra Óskar.