Alþýðublaðið - 14.09.1951, Blaðsíða 1
XXXII. árgangur. Föstudagur 14. sept. 1951 298. tbl.
Við íótstall frelsísgyðj unnar
32 Grikkir, sem komu nýlega með gríska hafskipinu ,,Nea
Hellas“ til New York til þess að setjast að í Bandaríkjunum,
óskuðu að fá að stíga á land við hið fræga líkneski frelsisgyðj-
unnar við hafnarmynni heimsB'orgarinnar. Þeim var leyft það
og var myndin tekin af þeim við fótstall gyðjunnar.
Islenzkar verksmiðjur vel búnar vél
um, en skorturá faglærðu vinnuafli
segir iðnaðarsérfræðingur frá Efna-
hegssamvinnustofnuninni í París,
------------------».— ....
T. H. ROBINSON, iðnaðarsérfræðingur frá Efnahagssam-
vinnustofnuninni í París, sem hér hefur dvalizt um skeið, lét
svo um mælt á fundi í Félagi íslenzkra iðnrekenda 10. þ. m.,
að verksmiðjur hér væru yfirleitt jafnvel eða betur búnar vél-
um en verksmiðjur af sömu stærð í Bandaríkjunum, en skortur
væri hér á faglærðu vinnuafli og iðnaðarverkfræðingum.
Robinson dvaldist hér um
mánaðarskeið og he'msótti 40
verksmiðjur í Reykjavík. Hafn
arfirði og Akureyri, en er nú
farinn til Noregs. Verk hans
hér var í því fólgið að gera til-
lögur um bættar framleiðsluað
ferðir í íslenzkum iðnaði.
Robinson kvaðst hvað eftir
annað hafa verið spurður að
því, hvort íslendingar hefðu
efni á því að verða iðnaðar-
þjóð. Þessari spurningu kvaðst
hann svara með annarri spurn
ingu: „Hafa íslendingar efni á
því að vera ekki iðnaðarþjóð?11
því að hans áliti væri hagnýt-
ing þeirra möguleika, sem nú-
tíma iðnaður hefði að bjóða,
nauðsynlegt skilyrði fyrir
auknum þjóðartekjum og betri
lífskjörum. Það væri einnig
mjög þýðingarmikið í þessu
sambandi, að mikil fólksfjölg-
un ætti sér nú stað hjá okkur,
og því yrðu menn að gera sér
T. H. Robinson.
ljóst að sífelld aukning iðnað-
arins og afköst í iðnaðinum
væri undirstaða þess að allir
hefðu næga atvinnu, en að öðr
um kosti mundi atvinnuleysi,
Framh. á 7. síðu.
Samþykkt þess eínis var gerð á
fundi iforrisons, Schumans og
Achesons í Washington í gær
UTANRÍKISMÁLARÁÐHERHAR Bandaríkj-
anna, Bretlands og Frakklands samþykktu á fundi
sínum í Was'hington í gær, að Vestur-Þýzkalandi skuli
veitt aðild að væntanlegum Evrópuher, og er þar með
trvggt, að Þjóðverjar verði í framtíðinni þátttakendur
að landvörnum Evrópu og leggi til liðskost í her þann,
sem Eiserihower á að stjórna.
Er tekið fram í fréttum um
þessa ákvörðun Morrisons,
Schumans og Achesons, að ein-
hugur hafi ríkt um hana, en
þetta var talið eitt af meginvið-
fangsefnum ráðstefnu þeirra í
Washington. Utanríkismálaráð-
herrarnir halda fimmta fund
sinn í Washington í dag, en
síðan fara þeir til Ottawa, höf-
uðborgar Kanada, á fund At-
lantshafsráðsins,
Talið er, að utanríkismála-
ráðherrarnir hafi rætt um vænt
anlega þátttöku Tyrkja og
Grikkja í Atlantshafsbandalag-
inu, en engin opinber tilkynn-
ing hefur verið gefin út um
þann þátt viðræðnanna. Hins
vegar er fyrirfram vitað, að
stórveldin þrjú munu meðmælt
því, að Tyrkir og Grikkir hljóti
aðild að Atlantshafsbandalag-
inu. Aftur á móti eru sum smá-
ríkin mótfallin því, en Lange,
utanríkismálaráðherra Norð-
manna, sem er kominii vestur
um haf á leið til Ottawa, hefur
lagt til, að stofnað verði sér-
stak Miðjarðarhafsbandalag,
sem Tyrkir og Grikkir verði
aðilar að- Ole Björn Kraft, ut-
anríkismálaráðherra Dana, hef-
ur tekið í sama streng og Lange.
NORÐMENN EINDREGIÐ Á
MÓTI SPÁNI FRANCOS
Lange sagði, að það væri orð-
um aukið, að Norðmenn og
Danir hefðu á hendi sérstaka
forustu um að neita Tyrkjum og'
Grikkjum um aðild að Atlants-
hafsbandalaginu, en þeir teldu
þessi ríki eiga heima í Miðjarð-
arhafsbandalagi allra orsaka
vegna. Hins vegar lýsti Lange
yfir eindreginni andstöðu Norð-
manna gegn því, að Spánn
Francos yrði aðili að varnar-
samtökum lýðræðisríkjanna.
s ■ ■
i OryggisréSsíafsnlr i
! ntiklu ódýrari j
i en slysin |
iNær 13 mil4jónir:
j greiddar vegna \
: slysa við vinnu i
i á 7 árum. ■
T. H. ROBINSON, iðnað-
arsérfræðingurinn, sem hér
hefur dva'izt við athuganir
á íslenzkum iðnrekstri benii
á þa‘ð í ræðu sinni á fundi í
Félagi íslenzkra iðnrekenda
á dögunum, að það væri í-
hugunarvert, að á síðu.stu sjö
árum hefðu nálega 13 millj-
ónir króna verið greiddar
vegn slysa í verksmfðjum og
á vinnustöðum. Þetta þyrfti
að koma í veg fyrir meo
auknum öryggisráðstöfun-
um, sem væru miklu ódýrari
en hið þjóðhagslega tap, sem
af slysum hlýzt, fyrir utan
þá erfiðleika, þjáningar og
sorg, er þau valda hinum
slasa’öa og aðstandcndum
hans.
Viðurkennf í Teheran, að rík-
isgjaldþrof sé yfirvofandi
------«,-----
Stjórn Mossadeghs tekur bráðabirgða-
Ián upp á 20 milljónir sterlingspunda.
Taugaslappur brúð-
gumi varð að
leifa fil læknis
SÁ ATBURÐUR gerðist ný-
lega í bænum Nyköbing á
Falstri í Danmörku, að ungur
maður skar sig hættulega við
rakstur á brúðkaupsdaginn
sinn og varð a'ð leita læknis.
Ungi maðurinn var mjög
taugaslappur þennan dag, og
þegar hann fór að raka sig,
skalf höndin á honum svo mik-
ið, að hann skar sig svöðusári.
Varð hann að leita til læknis
og láta hann gera að sárinu,
áður en hann færi til prests-
ins.
VARAFORSÆTISRAÐHERRA PERSA tilkynnti í Teheran
í gær, að ríkisgjaldþrot væri yfirvofandi í íran og því yrði
eldki afstýrt, nema með róttækum og skjótum ráðstöfunum.
Boðaði hann, að stjórnin í Teheran myndi taka 20 milljóna
sterlingspunda ríkislán til að hægt yrði að sigrast á mestu erf-
iðleikunum næstu sex mánuðina, meðan verið væri að finna
önnur ráð.
Bar varaforsætisráðherrann*
við þetta tækifæri eindregið á
móti því, að keisari landsins
heíði ekki verið með í ráðum
áður en gengið var frá úrslita-
kostunum við Breta. Sagði hann
að afgreiðsla málsins hefði far-
ið fram eins og skylt væri og
gagnrýni stjórnarandstöðunnar
yrði því að teljast út í bláinn.
Þá var frá því skýrt í frétt-
um frá íran, að fyrrverandi
forsætisráðhera landsins og
höfuðandstæðingur Mossadeghs
hefði nú endurskipulagt flokk
sinn og lýst yfir ákveðinni and-
stöðu við þjóðnýtingarstefnu
núverandi stjórnar. Kennir
Framh. á 7. síðu.
Amerísk Dakota-
flugvél lýnd yfir
Miðjarðarhafi
SKIP OG FLUGVÉLAR leit-
uðu allan daginn í gær að ame-
rískri Dakotavél, sem týndist í
fyrrakvöld yfir Miðjarðarhafi.
Þykir einsýnt, að hún hafi far-
izt, en leitin að henni hafði
engan árangur borið í fyradag.
í flugvélinni voru 35 farþeg-
ar auk þriggja manna áhafnar.