Alþýðublaðið - 20.09.1951, Side 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Fimmtudagur 20. sept. 1951
ÚtgefandL- Alþýðuflokkuriiœ.
Ritstjóri: Stefán Pjetursson.
Auglýsingastjóri: Emilía Möller
Ritstjórnarsími: 4901 og 4902.
Auglýsingasími: 4906.
AfgreiSslusími: 4900.
Frelsið til að okra cg
auka dýrtíðlna
ÞAÐ er vel skiljanlegt, að
greinar þær, sem Pétur Pét-
ursson, fyr'rverandi verðgæzlu
stjóri, hefur undanfarið skrif-
að í Alþýðublaðið um dýrtíð-
ina og hina frjálsu verz’un og
um verðhækkanirnar og álagn
inguna, hafi farið töluvert í
hinar fínu taugar Morgunblaðs
ritstjóranna. En þegar þeir
hyggjast svara rökstuddri
gagnrýni hans á hinni frjálsu
verzlun með brígzlyrðum ein-
um, þess efnis, að hann langi
bara til þess að „komast að
sinni fyrri jötu“, eins og það
orðar það, þá missir s’.íkur mál
flutningur algerlega marks.
Pétur Pétursson hefði sjálf-
sagt getað verið verðgæzlu-
stjóri enn, ef hann hefði kært
sig um. En hann vildi það ekki
eftir að ríkisstjórnin hafði af-
numið verðlagseftirlitið á hér
um bil öilum nauðsynjum al-
mennings og gert verðgæzluna
að hégóma einum. Það var al-
veg samkvæmt hans eigin ósk,
að hann var leystur frá starfi
verðgæzlustjóra, þegar svo var
komið; og umrædd brígzlyrði
Morgunblaðsins eru því ekkert
annað en rógur einn.
*
Það er' og Morgunblaðinu
vel kunnugt, að Pétur Péturs-
son barðist manna mest gegn
afnámi verðiagseftirlitsins.
Hann sagði fyrir þær afleiðing
ar slíkrar ráðsmennsku ríkis-
stjómarinnar, sem nú eru
komnar á daginn — aukna á-
lagningu á nauðsynjar almenn
ings og aukna dýrtíð; og þess
vegna stendur það engum nær
en einmitt honum, að benda nú
á, hvernig komið er.
En það er einmitt þetta, sem
Mórgunblaðið þolir ekki. Það
er því nauðugt, að þurfa að
viðurkenna, að sá vöxtur dýr-
tíðarinnar, sem síðan verðlags-
eftirlitið var, illu heilli, afnum
ið, sé að miklu leyti aukinni á-
lagningu innanlands, einkum
heildsalanna, að kenna, eins og
Pétur Pétursson hefur leitt rök
að í greinum sínum; og því
hefur blað íhaldsins og verzlun-
arokursins nú allt á hornum
sér.
„í grein hins fyrrverandi
verðgæzlustjóra er ekki gerð
hin minnsta tilraun,“ segir
Mórgunblaðið, „til að sýna, að
hækkuð álagning heildsala eigi
þatt í aukningu dýrtíðarinnar
....“, og „hinn fyrrverandi
verðgæzlustjóri minnist ekki
einu orði á stórfelldar verð-
hækkanir á mörkuðum erlendis,
sem valda dýrtíð um mikinn
hluta alls heimsins.“
Hvort tveggja er þetta fleip-
ur eitt hjá Morgunblaðinu.
Pétur Pétursson hefur í skrif-
um sínum hvergi borið á móti
því, að verðhækkanir hafi orð-
ið á mörkuðum erlendis; en
hann hefur hins vegar sýnt
fram á það, að þeim verðhækk-
unum verði ekki um kennt,
þegar imgverskt hveiti, sem bú-
ið er að flytja inn, er allt í
einu hækkað eftir afnám verð-
lagseftirlitsins um 30
hvert kílógramm, og farið er
að selja eina ávaxtadós, sem
kostaði ekki nema 10 krónur í
innkaupi, á hvorki meira né
minna en 20 krónur í útsölu!
Og í einhverju hlýtur það þó
að liggja, öðru en verðhækk-
unum erlendis, að dýrtíðin vex
svo miklu örar hér en í nokkru
nálægu landi; og er þá ekki
öðru til að dreifa upp á síð-
kastið en vaxandi verzlunar-
okri síðan íhaldstjórnin vann
sitt síðasta óhappaverk. — að
afnema verðlagseftirlit.ið og
gefa verzlunina a’gerlega
frjálsa.
*
Fram hjá þessum rökum
sneiðir Morgunblaðið alveg í
rógsgrein sinni í gær, eins og
það er raunar vant að sneiða
fram hjá öllum rökum. I stað
þess stagast það á eldgömlum
og úreltum s’agorðum á móti
„höptum“, en með „frjálsri
verzlun“, eins og þar með sé
allur vandi leystur. En það gæt-
ir þess bara ekki, að þó að
hugsunarlaus lofsöngur þess
um frjálsa verz’un kunni að
láta vel í eyrum heildsala og
sumra kaupsýslumanna ann-
arra, sem nota sér slíkt verzl-
unarfyrirkomulag til þess að
okra á almenningi, þá hefur
hann allt annan og óþægilegri
hljóm í eyrurti neytandans, sem
okrið kemur niður á. Almenn-
ingur lætur því ekki blekkja
sig lengur með neinum lofsöng
um frjálsa verzlun, né heldur
með lastyrðum um ,,höptin“.
Hann veit af dýrkeyptri
reynslu, hvað afnám verðlags-
eftirlitsins, sem Morgunblaðið
á hér sérstaklega við, þegar það
ta’ar um „höptin“, hefur haft
í för með sér, — stóraukið
verzlunarokur og ört vaxandi
dýrtíð; og hann kærir sig ekk-
ert um að færa slíkar fómir á
altari hinnar frjálsu verzlunar.
*
Annas mætti Morgunblaðið
vel íhuga það einu sinni, hvern-
ig á því stendur, að allar ná-
grannaþjóðir okkar telja sér
enn nauðsynlegt, að viðhalda
verðlagseftirliti, og sumar
þeirra, eins og til dæmis Banda
aura ríkjamenn, hafa hert stórkost-
lega á því upp á síðkastið, í
þeim yfirlýsta tilgangi, að
koma í veg fyrir dýrtíð og
verðbólgu. Þannig fara ná-
grannaþjóðir okkar að, — enda
er árangurinn hjá þeim eftir
því. Þar hefur a’ls staðar tekizt
að halda dýrtíðinni í þó nokkr-
um skefjum. En hér er verð-
lagseftirlitið afnumið og verzl-
unarokrið gefið algerlega frjálst
með þeim afleiðingum, sem öl’-
um eru kunnar, — að allt er að
fara á bólakaf í dýrtíð!
---------+--------
Matreiðslakennsla
ffuff úr bamaskélum
r
\
vantar ungling til að bera blaðið til áskrifenda i
þessum hverfum:
Skerjafirði
Grímsstaðaholti.
Talið við afgreiðsluna. Sími 4900.
FRÆSLURÁÐ REYKJAVÍK
UR hefur samþykkt, að mat-
reiðslukennsla skuii hér eftir
fara fram eingöngu í skólum
gagnfræðast’gsins, eins og ráð
er fyrir gert í lögum um gagn-
íræðanám.
Verða skólaeldhús bæjarins
því afhent gagnfræðaskólunum
til afnota í samráði við hlutað
eigandi barnaskólastjóra og-
fræðslufulltrúa. Samið verður
við fasta matreiðslukesmara að
flytjast að gagnfræðadeildun-
um.
---------«----:----
Sýningar á Rigoleifc
fíætfa um mánaða-
mófín
MJÖG GÓÐ AÐSOKN hefur
verið að óperunni Rigoletto frá
því sýningar hófust á ný. Hef-
ur nú fengist leyfi fyrir frú
Evu Berg til þess að vera hér
út þennan mánuð og verður ó-
peran flutt þangað til á móti
Lenharði fógeta. Verða því til
tölulega fáar sýningar enn þá
á óperunni.
Strax og sýningjm lýkur á
Rigoletto hefjast sýningar á
„|myndunarveikinni“,
Dýrkeyptir sérfræðingar. — Slæm reynsla.
Áhyggjur íveggja kimningja minna.
ÞAÐ ER DÝRT að byggja.
Jafnvel þó að menn séu sæmi-
lega stæiir fjárhagslega ætla
þeir alveg að kikna undir kostn
aðinum og að likindum hefur
engum síðastliðinn áratug tek-
izt að gera svo háa áætlun um
byggingarkostnað, ?ð kostnað-
urinn hafi ekki farið langí yfir
hana. Algengt er að maður
heyri þá segja, sem standa í
byggingaframkvæmdum: „Hetði
ég vitað hvað þetta mu.ndi
kosta, þá hefði ég ails ekki þor-
að að byrja.“
FLESTIR BYGGJA eingöngu
til þess að fá þak yfir höfuðið,
og það eru mörg dæmi til þess,
að fólk vilji fórna öllu aðeins
til þess að eignast það. Margir
hafa hvorki til hnífs né skeiðar
eftir að hafa flutt inn í eigin
íbúð og í mörg ár veröur að
spara allt meðan verið er að
reyna að lækka skuldirnar,
Þjóðleikhúsið og íslenzku leikritin
ÞJÓÐLEIKHÚSH) hefur nú
tekið til starfa eftir sumar-
leyfin, og athygli þjóðarinn-
ar beinist að þessari mikil-
vægu stofnun, sem á að verða
hof orðsins listar á íslandi í
framtíðinni. Margt hefur vel
tekizt í starfi þjóðleikhússins
síðan það var vígt á sumar-
daginn fyrsta í fyrra. En auð-
vitað má að ýmsu finna. Og
slíkri- stofnun er mjög nauð-
synlegt, að hún sé gagnrýnd
af sanngirni og réttsýni sam-
tímis því sem hún fær verð-
skuldaða viðurkenningu.
AÐ ÞESSU SINNI verður að-
eins vikið að einum þættin-
um í starfi þjóðleikhússins.
Hann er sýningar þess á ís-
lenzkum leikritum, Hér er
tvímælalaust um að ræða að-
alatriðið í starfsemi þess.
Meginskylda þjóðleikhússins
er að efla og styrkja íslenzka
leiklist, og grundvöllur henn-
ar er að sjálfsögðu og verður
íslenzk leikritagerð. Hún er
enn eftirbátur annarra bók-
menntagreina okkar, svo að
þjóðleikhúsið á við ramman
reip að draga. En hitt er líka
augljóst mál, að forráðamenn
þess gefa eklti íslenzku leik-
ritunum þann gaum, sem
vert væri.
f ÞESSU SAMBANDI er löngu
tímabært að víta það, að ekk-
ert af verðlaunaleikritum
þjóðleikhússins hefur enn
verið tekið til sýningar. Þó
hefur þegar verið sýnt ann-
að leikrit eftir höfund þann,
sem hreppti fyrstu verðlaun
í umræddri samkeppni, svo
að tækifærin hafa sannarlega
verið fyTÍr hendi. Eitt af leik:
ritunum, sem ta!ið var hæft
til sýningar af dómnefnd
þjóðleikhússins, var sýnt
annars staðar á síðast liðnum
vetri og auðvitað af þeirri á-
stæðu, að höfundurinn hélt
ekki biðina og óvissuna út.
Og enn þá liggja fimm eða sex
þessara Ieikrita í skrifborðs-
skúffum þjóðleikhússins.
ELDRI LEIKRITIN hafa ekki
sætt nærri eins miklu tóm-
læti af hálfu forráðamanna
þjóðleikhússins og hin nýju-
Samt er ástæða til að gagn-
rýna einnig þann þátt í starf-
semi þjóðleikhússins. Guð-
mundur Kamban er ásamt
Jóhanni Sigurjónssyni víð-
frægasti leikritahöfundur ís-
lendinga. Ekkert af leikritum
hans hefur þó verið. sýnt í
þjóðleikhúsinu, og hafa því
þó staðið að minnsta kosti tvö
þeirra til boða. Og á vígslu-
degi þjóðleikhússins hafði
verið fyrir komið í krystalls-
sal þess brjóstlíkönum af
frægustu leikritahöfundum
okkar á seinni tímum, en
Guðmundur Kamban gleymd-
ist við það tækifæri. Manni
verður á að spyrja, hvað valdi
því, að þjóðæikhúsið skuli
láta slíkt og þvílíkt henda sig
í starfi sínu.
ENN FREMUR ER TÍMA-
BÆRT að vekja athvgli á.
því, að enn hafa ekki öll leik-
rit Jóhanns heitins Sigurjóns-
sonar verið sýnd á íslenzku
leiksviði. Þjóðleikhúsinu ber
skylda til að bæta úr því og
fyrr en seinna. Það getur
heldur ekki látið mörg starfs-
ár liða án þess að taka til
sýningar „Skugga-Svein“
Matthíasar . Jochumssonar,
frægasta og sérkennilegasta
Framh. á 7. síðu.
sem á íbúðinni hvíla. Það er
eðlilegt að fólk reyni af
fremsta megni að komast í eig-
in íbúð, því að betra er að vera
hálfsvangur en að eiga hvergi
höfði sínu að að haila.
MENN, SEM BYÖGJA, ráða
ýmis konar sérfræðinga til þess
að annast nauðsynleg og óhjá-
kvæmileg störf, fyrst húsa-
meistara til þess að gera teikn-
ingar, síðan múrararneistara og
trésmíðameistara. Fólk verður
að treysta því að þessir sérfræð
ingar viti hvað þeir eru aö gera.
En svo virðist þó að þeir séu
ábyrgðarlausir.
Á ÞRIÐJUDAGINN vildi svo
til að ég hitti tvo kunningja
mína, sem báðir voru rhjög á-
hyggjufullir og af sömu á-
stæðu. Báðir höfðu byggt sér
lítil hús fyrir sjálfa sig, annar
fyrir tveimur ár,um og hinr. fyr
ir fjórum árum. Nú þurfti ann-
ar að láta rífa upp öll gólf í
húsi sínu vegna þess að raki
var að eyðileggja gólfiri. Hinn
þurfti að láta rífa þakið af sínu
húsi vegna þess að það lak.
ÞAÐ VAR GERT R VD fyrir
að það .kostaði átta þúsund kr.
að rífa upp gólfin, en hinn
kvaðst. mundi sleþpa með um
sjö þúsund kfónur. Ég spurði
hverjum þetta væri ao kenna,
og þeir fullyrtu báðir að það
væri að kenna húsameisturun-
um og múrarameisturxmum. Ég
spurði hvort ekki vtéri hægt að
koma fram ábyrgð á hendur
þessum mönnum íyrir vinnu-
svik eða gróf mistök, en hvor-
ugur taldi það líklegt.
BÁÐIR VERÐA þessii* menn
því fyrir stórtjóni, ög ekki mátti
á bæta kostnaðinn við húsin,
því að báðir hafa verið að slig-
azt undir byrðunum. Húsa-
meistararnir og múrarameist-
ararnir hafa fengið allt sítt
greitt, þeir hafa tekið við sín-
um vinnulaunum — og svo
bera þeir ekki neioa ábyrgð
Þetta er ófært ástand. Ef ekki
eru til lög, sem ákveða slíkum
mönnum ábyrgð á verltum
þeirra, þá verður að setja slík
lög. Ef það er ekki gert, verður
þetta regla, að verkin verða
hálfunnin og illa unnin og eng-
inn veit því hverju 'hann tekur
við úr höndum sérfræðinganna.
Hannes á liorninu.