Alþýðublaðið - 29.11.1951, Side 8
Afmselisisis minnzt með hófi að HöteS
Borg annaÖ kvöld.
ÞANN 1. DESEMBER n. k. eru liðin 80. ar frá stofnun
Stúdenfafélags Reykjavíkur, og verður afmælisins minnzt ann-
að kvöld með hófi að Hótel Borg. Eins og að venju gengst
stúdentaráðið fyrir fjölbreyttum hátíðahöldum stúdenfa 1.
desémber. A laugardagskvöld, 1. desember, flytur ríkisútvarp
iS samfellda dagskrá frá hátíðaliöldum Stúdcntafélagsins að
Hótel Borg.
Að því er núverandi forrr.að-
iir Stúdentafélags Reykjavík-
iur, Páll Ásgeir Trvggvason.
Idgfræðingur, tjáði AB, eru.nú
•yfir 700 virkir meðl' mir í stu-
dentafélaginu. og gátu faem
íengið aðgöngumiða að hátíða-
Iiöldunum en vildu. Aðgöngu-
rniðarn'r voru a’lir seMir á
einni klukkustund á mánudag,-
fnn var.
Hátíðahöldin hefjast meö þvi
að Páll Ásgeir Tryggva°on
ílytur ávarp. Þá tálar Gunnar
Thoroddsen fcorgarstjófi, Stú-
dentakórinn syngur, Ágúst
Bjarnason og Jakob Hafstein
syngia úr Glúntunum. Þá flvt-
pr . Tómas Guðmundsson skáld
frumort afmælisljóð og Gestur
Pá’son syngur gamanvísur.
Eínnig verða sungnar gaman-
vísur eftir Ragnar Jóhannesson
skólastjóra á Akranesi.
Hátíðahöld stúdenta 1. des-
ernber hefjast með guðsþjón-
ustu í kapellu háskólans kl. 11
f. h.: séra Bjarni Jónsson
vígslúbisktip predikar. Kl. 1,30
Verður hópganga .stúdenta frá
iráskólanum til a’þingshússins.
Lúðrasveit Reykjavíkur leikur
a Austurvelli. Þá mun dr. juris
Einar Arnórsson flytja ræðu af
svölum alþingishúsins.
Kl, 3,30 e. h. hefst samkoma
í hátíðasal hárikólans. Þar flytja
ræður Höskuldur Ólafson, stud.
jur., formaður stúdentaráðs, dr.
phi!. Einar Ól. Sveinsson pró-
i fessor og Árni Björnsson, stud.
jjur. Strokkvartett leikur og
! stúdentakórinn syngur.
I Um kvöldið verður hóf að
Hótel Borg með fjölbreyttum
' skemmtiatriðum.
heidur skemmi-
un á laugardag
FUJ í HAFNARFIRÐI
lieldur kvöldskemmtun á
Jaugardagskvöldið kemur.
Verða þar fjölbreyft
skenmitiatriði, m. a. gaman-
vísur og keppni í jitter bug.
Vei'ðlaun verða veitt.
A'ðgangurinn kostar 15 kr.
Gestir ur Reykjavík koma i
heimsókn á skemtunina.
----------*-----------
Vilja Ífalíu ísam-
einuðuþjóðirnar
UNDIRNEFND stjórnmála-
nefndar allsherjarþingsins sam
þykkti á fundi sínum í gær gegn
atkvæðum fulltrúa Rússlands
og leppríkja þess að mæla með
því, að Ítalía verði fullgildur að
ili innan vébanda sameinuðu
þjóðanna.
Fimm dieselvagnar verða komnir
í notkun fyrir næstu áramót
--------------------
Þeir reynast fimvn sinnum sparneytnari
en gömlu strætisvagnarnir.
»--------
VONIR STANDA til að fimm diselvagnar verði,komnir í
notkunn hjá Strætisvögnum Reykjavíkur fyrir áramót. Eins
og kunnugt er hefur einn diselvagn verið x förunx frá því um
mlðjan september, og reynist hann fimm sinnum sparneytnari
en bcnzínvagnarnir.
Um þessar mundir er verið að i
byggja yfir 4 nýja clieselvagna,
og verða tveir tilbúnir um mán
aðamótin, og vonir standa til
að hinir tveir verði tilbúnir fyr
ir áramót, þannig að alls verði
fimm komnir í notkun fyrir ný
ár. Loks er sjötti die.selvagninn j
væntanlegur til landsins fyrir
áramót.
Alls eru það átta dieselvagn-
ar, sem pantaðir liafa verið.
Verða tveir af vögnunum fram
byggðir, eða af sömu gerð og
nýi Hafnarfjarðarvagninn, sem
Landleiðir ffengu í haust.
LEIDARNÚMERIN
Ein’s. og áður hefur verið
skýrt frá er ráðgert að s.etja
ieiðarnúmer á alla. strætisvagn-
ana og koma upp spjaldi við
Lækjartorg, þar sem lesá má
leiðatöfluna, en allar leiðirnar
bera ákveðið númer, og verður
rsamsvarandi númer á strætis-
vögnunum.
Fyrir nokkrum dögum var
til reynslu sett leiðarnúmer á
strætisvagnana, sem aka leið-
ina Háteigsveg.ur—Hlíðahverfi,
og bera þeir töluaa 9. Síðar
mun verða bætt við unz allar
leiðirnar hafa verið númeraðar.
----------V-----------
Ðr. Siprður Nordal
afhenli Dana kon-
j ungi embæitisskii-
j ríki sín í gær
DR. SIGURÐUR NORDAL
: afhenti í dag konungi Dan-
merkur trúnaðarbréf sitt sem
; sendihen'a íslands í Kaup-
i mannahöfn.
ALÞÝBUBLAiIl
Stjörnuhrap
FRETTIN um fangelsun Ru-
dolfs Slanskys, hins valda-
mikla aðalritara tékkneska
kommúnijtaflokksins um
margra ára skeið, og þær sak
ir, sem nú eru bornar á hann
a-f flokksfélögum hans —
hann er sakaður um „g’æpi
gagnvart ríkinu“ — vekja að
vonum mikla athygli hér eins
og annars staðar. Því að þetta
er með stærri stjörnuhröpum
á himni kommúnismans. Það
er álíka og annar hvor þeirra
Einars eða Brynjóifs væri tek
irin fastur af kommúnista-
stjórn hér og sakaður um
glæpi gagnvart ríkinu, eða
hvað það nú er, sem á bak við
slík orð felst.
EN AÐ VÍSU er það ekkert
nýtt, að völd og upphefð
kommúnista, er árum saman
hafa verið hafnir til skýjanna
sem hálfguðir eða að minnsta
kosti prísaðir sem óskeikulir
menn, fái skjótan og miður
skemmtilegan enda. Öllum
eru í fersku minni örlög Lasz
los Rajks á Ungverjalandi og
Traichos Kostovs í Búlgaríu
fyrir tveimur eða þremur ár-
um. Þeir höfðu líka verið
hafnir til æðstu valda í lönd-
um sínum, verið látnir fara
að geðþótta með líf og vel-
ferð milljóna manna; og þá
kostaði þ’að fangelsi og fram-
tíð að efast um ágæti þeirra.
En allt í einu voru þeir orðn-
ir að örgustu glæpamönnum
:— höfðu þá annað hvort ekki
reynzt nógu auðsveipir við
Rússa eða voru í vegi fyrir
keppinautum í eigin flokki;
og þá var nú ekki að sökum
að spyrja. Þeir voru báðir
hengdir, Og sömu örlög vofa
nú yfir Vladislav Gomulka á
Póllandi og Rudolf Slansky í
Tékkóslóvakíu.
Veltan öll 145 milljónir, reksfurs-
kostnaður2,6 eða aðeins 1,8 prósení
VELTA TRYGGINGARSTOFNUNAR RÍKISINS
var á árinu 1950 með ríkisfrarnlagi til sjúkxasaml'aga
og sérstckum lífeyrissjóðum hvorki meiri né minni en
145 milijónir króna, en 'allur rekststurskostnaður
stofnunarinnar varð það ár aðeins 2,6 milljónir eða
1,8% af allri veltunni samkvsemt uppiýsingum Stein-
gríms Steinþórssonar forsætis- og félagsmálaráðherra
á aiþingi í gær.
Forsætisráðherra birti. þessar
happdræftismia
AiþýSufiokksins
ALLS hafa nú 14 stelt alla
happdræíJ tisrru'áa AlþýSuflokks
ins, sem þeim hafa verið sendir.
Sá fjórtándi var Oddur A. Sig-
urjónsson, skólastjóri í Nes-
kaupstað ó NorSfir'ði. Hefnr
hann beðið um jafnmarga miða
til vi'ðbótar.
Frumvarp sijóm-
arinnar um húsa-
leigu komii fram
ALLSHERJARNEFND neðri
deildar hefur lagt fram fyrir
ríkisstjómina frumvarp til laga
um húsaleigu. Er það mikill
bálkur í 12 köflum, 78 greinar
alls.
Allsherjarnefnd í heild og
einstakir nefndarmenn hafa
óbundnar hendur um afstöðu
til -frumvarpsins og einstakra
greina þess.
upplýsingar sem svar við fyrir-
spurnum frá Skúla G.uðmunds-
syni um kostnað og iðgjalda-
innheimtu stryggingarstofnun-
arinnar. Las han upp mjög ýt-
arlegar skýrslur frá trygging-
arstofnuninni varðandi þetta.
Árið 1950 námu kaupgreiðsl-
ur stofnunarinnar, aðalskrif-
stofunnar, alls 982 421 krónu.
Þar af voru Iaun 25 fastra
starfsmanna 785 121 kr., en
lausráðið starfsfólk fékk alls
197 300 kr., svo sem stjórnar-
rnenn og endiirskoðendur,
starfsmenn, sem vinna ekki
fullan starfsfíma, starfsmer.n,
sem leysa af í sumarleyfum,
ræstingakonur, lyftuvörður og
sendisveinar.
Annar kostnaður skrifstof-
unnar hefur orðið 493 283 kr.,
og er þar með talin afskrift
áhalda, greiðslur fyrir vottorð
og styrkur til slysavarna.
Héraðsdómurum vorú alls
greidd í umboðslaun á árinu
164 113 kr. og í innheimtulaun
94 354 kr. Þá er gert ráð fvrir
420 þús. kr. greiðslu til ríkis-
sjóðs vegna umboðsstarfanna
og hreppstjóraþóknunar.
Greiðsla stofnunarinnar til
sjúkrasamiaga vegna umboðs-
stai’fa á árinu nam alls 435 570
krónum.
Álögð iðgjöld námu á árinu
rúmum 30 millj. ki-., úrgengin
og endurgreidd nema 84 þús.
Framhald á 7. síðu.
Stjórnarkjörið i Sjómannafélaginu:
<*■
Visið Rússadindlunum á bug og kjósið
Sista trúriaðarmannaráðsins, A>Iistann!|
EN ÞAÐ NÆGIR EKKI að
hengja þá. Það þarf fyrst að
gera þá ærulausa og nota þá,
sem sökudólga fyrir allt sem
aflaga fer. Þess vegna eru
þeir píndir til að játa á sig
allar vammir og skammir og
þá jafnaðarlega óslitinn svika
og glæpaferil um áratuga
skeið! Þannig var Bukharin,
í málaferlunum austur í
Moskvu fyrir stríð, látinn
játa á sig, að hann hefði ætl-
að að myrða Lenin árið eftir
rússnesku byltinguna, og Ja-
goda, að hann hefði ætlað að
gefa Maxim Gorki inn eitur!
Fróðiegt væri að vita, hvað
fólkið í þessum löndum hugs-
ar, þegar því er skyndilega
ætlað, að trúa slíkum glæp-
um upp á menn, sem því um
lengri 'eða skemmri tíma hef
ur verið kennt að dýrka seni
hálfguði!
Veðurútlitið í dag;
Su'ðvestan stinningskaUIi
og skúrir.
STJÓRNARKJÖRIÐ í Sjó-
mannafélagi Reykjavikur er nú
búið að standa í fjóra daga, og
höfðu í gærkveldi 226 greitt at-
kvæði. Kosningin fer fram á
skrifstofu félagsins í Alþýðuhús
inu kl. 3—6 alla daga.
. Blað kommúnista kemur nú
varla svo út, að það sé ekki
með einhvern róg um þá menn,
sem eru á lista trúnaðarmanna
ráðs félagsins, A-listanum. Skrif
ar Þjóðviljinn um þá eins og
einhverja svikara við sjómenn,
sem ekki sé trúandi fyrir mál-
um þeirra í nýrri togaradeilu;
en jafnframt hvetur hann til
að kjósa B-listann, lista komm
únista, sem allir vita að raun
verulega sviku sjómennina í tog
araverkfallinu í fyrra!
Það er þýðingarlaust fyrir
Þjóðviljann að ætla að telja sjó
mönnum trú um, að menn eins
og Garðar Jónsson, Sigfús
Bjarnason, Jón Sigurðsson, Egg
ert Ólafsson (gamall bátasjó-
maður), Hilmar Jónsson (báts
maður á Akurey), Þorgils
Bjarnason (háseti á Skjald-
breið), Sigurgeir- Halldórsson
(bátsmaður á Bjarna Ólafssyni),
Ólafur Sigurðsson (háseti : Ing
ólfi Arnarsyni) og Garðar Jóns
son (háseti á GullfossH), séu
ekki þeirra menn; það munu
sjómenn ekki láta segja sér a£
landkröppunum við Þjóðviljann
sé af neinum öðrum. Þeir munu
eins og ávallt áður vera á verði
um félag sitt og kjóst A-listann,
hvernig svo sem hið rússneska
áróðursblað rær og rægir!