Alþýðublaðið - 16.12.1951, Side 5
T¥ö merkisafmæli
Sigurlaug Sýrusdóttir.
r '
P'" . ■ "•
HJONIN Sigur’aug Sýrus-
dóttir og Elimundur Ögmunds
son að Dvergasteini á Sandi
eiga bæði merkisafmæli á
þessu ári, sem nú er að líða.
Sigurlaug verður sjötug í dag,
16. desember, en Elimundur
varð sjötíu og fimm ára 29.
september. Bæði eiga þau ætt-
ir sínar að rekja um, norðan-
vert Snæfellsnes o g Breiða-
fjörð. Ung settu þau bú saman
á Sandi og hafa búið þar síðan,
eða í nærfellt 50 ár, eignazt
ellefu böm, en misstu tvö ung.
AUt gott fólk og mannvænlegt.
Sigurlaug er góð kona og
hjálpsöm, svo að af ber. Hún
hefur aldrei mátt neitt aumt
sjá, svo að hún reyndi ekki að
ba:;ta úr þvi eftir beztu getu,
en geta hennar í þeim efnum
hefur verið mikil, því að ekki
getur handlagnari konu við
hjúkrun en hana af ólærðri
konu að vera. Það munu lækn
arnir mæla, sem í Ólafsvík hafa
verið. Það er sennilegt, að
væri Sigurlaug nú á sínum
marmdómsárum mundi hún
hafa kosið að verða hjúkrun-
arkona fremur en flest annað.
Sigurlaug er vel hagmælt. Hún
hefur gert mörg eftirmæli og
íækifærisvísur og henni er létt
um að yrkja eða hugsa um
hugðarefni sín. En það er þá
helzt á næturnar, þegar aðrir
hvílast og sofa.
Elimundur er drengur góð-
ur. Það vita allir, hvað í þeim
Eiimundur Ögmundsson.
orðum fiest. Ungur fór hann á
sjóinn, sem títt var um drengi
á þeirri tíð. Um tíma var hann
í sigiingum, en lengst af hefur
hann verið á þilskipum og opn
um skipum við Breiðafjörð. Og
það hefur sagt mér mætur mað
ur, sem þekkir hann, að ekki
hafi önnur rúm verið betur
skipuð en hans. Það er gaman
að heyra Elimund segja frá
þeim gömlu, góðu dögum. Þá
var Sandur ein stærsta útróðra
stöð á landinu. Formennirnir
komu með skip sín og skips-
hafnir hvaðanæva að af Breiða
firði út á Sand til að róa þar
á vetrarvertíðinni. í þeim hópi
var margur hraustur drengur.
Og þá voru margar dáðir
drýgðar.
Sumar af þeim hetjusögum
lifa enn í minnum elztu manna,
eitthvað mun hafa verið fæit
í letur, en flestar munu glat-
aðar, og því er verr.
Já, góða Sigurlaug og Eli-
mundur. Lífsbaráttan hefur ver
ið hörð, og leiðin er orðin
nokkuð löng, en þar hafa þó
verið sólskinsblettir og til
þeirra verður ykkur áreiðan-
lega oft hugsað. Það hefði ver-
ið gaman að vera kominn til
ykkar og geta glaðzt með ykk-
ur, en þess er enginn kostur.
Við bið.ium forsjónina að gefa
ykkur bjart og fagurt ævi-
kvöld.
G. K.
Jóji Arnasson:
ER KOMIN I BOKAVERZANIR.
Þessi bók er 2. útgáfa'af hinu fræga gátusafni Jóns Árnasonar. sem
safnaði þjóðsögunum. Bókin er í sama broti og þjóðsögurnar og með öll-
um sama frágangi og gamla útgáfan og ættu allir, sem eiga þióð-
sögurnar að eignast þetta safn líka.
Gáturnar eru ákjósanlegar til skernmtunar fyrir unga og gamla.
Það er tilvalin skemmtun í jólaeyfinu og skammdeginu að leika sér að
gáturrí eins og í ..gamla daga“.
Gáturnar eru skemmtilegasta jóla-
bókin og skapar nýjan þátt í jóla-
QÍeðinni á heimilunum.
Fæst í öllum bókaverzlunum.
áðalfundur
Byggingasamvinnufélags starfsmanna ríkisstofnana, verð
ur haldinn í samkomusal Edduhússins, miðvikudaginn
19. þ. m. kl. 17.
Venjuleg Aðalfundastörf.
Þeir, sem hugsa sér að sækia um fjárfestingarlevfi
fyrir næsta ár, gefi sig fram á fundinum.
Stjórnin.
s
s
V-
s
s
s
s
s
s
s
V
s
,s
■ s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
■s
s
s
s
,s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
Ný barnabók
OSKUBUSKA |
S
með teiknimyndum eftir Walt Disney \
Þeíta er sagan af Öskubusku litlu, sem Walt Disney gerði heimsfræga með S
hinni undurfallegu kvikmynd.
Nú er hún komin út í bók — 53 litprentaðar myndir úr
kvikmyndinni.
Yngstu lesendurnir niunu fagna þessari
hók, ems og kvikmyndinni
Lítið á hana áður en þér veljið aðra gjöf.
Látið jólahjöllu okkar vísa yður veginn.
Ljósafæki, heimilistæki, húsáhöld í mikíu úrvalL
Silfurborðbúnaður frá Petholo h.f. Einnig handunnir vindl-
ingakassar, sem spila lög þegar þeir eru opnaðir.
Fallegar jólatrésseríur með 16 mislitum ljósum.
Varaperur fyrirliggjandi.
Vesturgötu 2. — Sími 80946.
Gjafobókin í ár er HEITAR ÁSTRÍÐUR • Verð kr. 45.
AB 5,