Tíminn - 06.02.1964, Blaðsíða 5
ÍÞRDTT
___________
ÍÞRÚTTíR
iaw:ýx:w:w;:x
RITSTJORI: HALLUR SIMONARSON
KNUD JOHANNESSEN
Verðlaun
og stig
Innsbruck, 5. febr. (NTB)
Verðlaun og stig skiptast
þannig eftir keppnina í dag:
Sovét G 8 s 8 B 5 St. 130,5
Noregur 2 5 3 62
Þýzkal. 2 3 3 58
Finnland 3 2 2 50
Austurr. 2 3 2 49
Frakkl. 3 3 0 43,5
Bandar. 1 1 1 35
Svíþjóð 1 1 1 34
Ítalía 0 1 2 14,5
Kanada 0 1 1 11
Pólland 0 0 0 8,5
N-Kórea 0 1 0 7,5
England 1 0 0 7
Holland 1 0 0 7
Sviss 0 0 0 7
Japan 0 0 0 5
Tékkósl. 0 0 0 4
Rúmenía 0 0 0 2
Norðmenn eru nú langefstir
í karlagreinum með 62 stig,
Sovétríkin eru með 40,5 stig,
Þýzkaland með 35,5 stig, Finn-
land með 29 stig og Svíþjóð
með 27 stig.
í kvennagreinum hafa Sovét-
ríkin mikla yfirburði — eru
með 90 stig, en Frakkland i
öðru sæti með 28,5 stig.
NORÐM
VERÐLAUNAPALLI..
st
Norðurlanda á leikunum í gærdag
NORÐMENN unnu glæsilegan sigur í 5000 m. skautahlaupinu í
Innsbruck f gær og hinir þrír keppendur landsins röðuðu sér í þrjú
fyrstu sætin, og fengu mun betri tíma en aðrir. Aðalkeppnin stóð milli
Knut Johannesen, hins 31 árs Oslobúa, og frægasta skautahlaupara
Noregs síðustu árin, og hins 19 ára Per Ivar Moe, sem varð Noregs-
meistari á dögunum með yfirburðum. Sigurinn féll Knúti í skaut og er
það í annað sinn, sem hann verður Olympíumeistari, en aðeins tvö
sekúndubrot skildu á milli. Knútur hlaut einnig silfurverðlaun á
þessari vegalengd 1960.
Keppnin hófst kl. 8 í gærmorg-
un. Veður var gott, logn og sól-
skin og ísinn var góður, en gaf þó
ekki það rennsli, sem vonazt var
eftir. Það var mikil gleði meðal
Austuríkismanna, þegar H. Strutz
setti strax í 3. riðli nýtt Olympíu
met, en það stóð þó ckki lengi og
i næsta riðli bætti Kositkin — sig-
urvegarinn frá 1960 — það. En síð-
an kom Per Ivar í sjötta riðli og
hann bætti olympíumet Rússans
Sjilkovs frá 1956 um 10,1 sek.
Nú varð nokkurt lilé á góðum
árangri, og enginn komst nálægt
þessum tímum, fyrr en Knútur
hljóp í 14. riðli. Hnnn fór ekki
eins hratt af sitað og Per Ivar og
þegar hlaupið var hálfnað hafði
hann þremur sek. lakari milli-
tíma, en pilturinn. En Knútur
seig jafnt og þétt á, og þegar að
síðasta hring kom var millitím-
inn sá sami. Per Ivar hafði hlaup
ið síðasta hring mjög vel — og
það var greinilegt að aðeins sek-
úndubrot myndu skilja þá annan
hvorn veginn. Og hinn reyndi
Knútur gaf nú allt sem hann átti
og það nægði — sigurinn og nýtt
elympíumet var hans.
Nú var nokkuð öruggt um fyrstu
sætin tvö, en Norðmenn voru þó
enn órólegir og biðu með óþreyju,
að Rússinn Habibulin hlypi. Hann
var í 19. riðli, en þegar um mitt
hlaup var greinilegt, að hann gat
ekki ógnað sigri Norðmannanna.
Og þá var aðeins Fred A. Maier
eftir af þeim „stóru”. Hann fó:r
mjög hratt af stað og hafði fracn-
an af betri tíma en Knútur, en ís-
inn var nú farinn að versna vegna
sólarinnar — og honum tókst ekki
að halda hraðanum til loka. En
bronzverðlaunin tryggði hann sér
örugglega — og hefði jafnvel get-
að ógnað löndum sinum hefði
hann hlaupið fyrr. En fyrir keppn
ina var hann talinn lakastur Norð-
mannanna og því settur í þriðju
,,grúbbu“. — Daninn Kurt Stille
hfjóp með miklum glæsibrag og
náði 12. sæti og setti danskt met
á tíma, sem nægt hefði tii silfur-
verðlauna á tveimur síðustu leik-
um. Svo er framförin tnikil.
Norðmenn hafa oft unnið marga
góða sigra í skautahlaupum, en
þessi sigur þeirra mun þó taka öllu
fram. Eftir hlaupið sagði Knútur,
að hann áliti þennan sigur mun
meiri, en þegar hann vann 10 km.
Aastumkismenu
gull og silfur
Austurríki, gestgjafarnir, hlutu
önnur gullverðlaun sín í gær á
leikunucn, þegar Feistmantl og
Stengl urðu fyrstir í sleðakeppni
tveggja manna. Austurríki hlaut
silfrið, en í þriðja sæti urðu ítalsk
ir sleðamenn.
ISKNATTLEIKS-
KEPPNIN
Innsbruck, 5. febr. (NTB)
Tveir leikir fóru fram í a-
riðli í ísknattleik. f gærkvöldi
léku saman Kanada og Finn-
land og unnu Kanadamenn með
6:2. Þá léku Sovétríkin við Finn
land í dag og unnu með mikl-
um yfirburðum, 10:0.
Staðan í a-riðli er þá þannig:
Kanada 5 5 0 0 29:11 10
Sovétríkin 4 4 0 0 37:6 8
Tékkósló. 3 2 0 1 20:8 4
Svíþjóð 3 2 0 1 15:7 4
USA 4 1 0 3 10:20 2
Finnland 5 1 0 4 6:27 2
Þýzkaland 3 0 0 3 3:23 0
Sviss 3 0 0 3 0:27 0
Jernberg tryggði
Svíum ennþá
Sovézkum
splunJraS
Sovézku valkyrjunum tókst ekki
að hljóta öll verðlaunin í 5 km.
skíðagöngunni í gær, því öllum á
óvænt tókst finnskri stúlku að j
splundra sovézka ,,kvartettinum“
Sigurvegari varð Claudia Bojarsk-1
ik á 17 mínútum. í öðru sæti varð j
Mirja Lehtonen, Finnlandi, á1
17:52,9 mín., en hin fræga, sov-
ézka kona, Koltsjina (kona göngu-
garpsins Koltsjin) varð þriðja. í
fjórða sæti var Mekshilo, Sovét,
fimmta Toini Posti og í sjötta sæt.i
B. Martinsson, Svíþjóð.
Sixten Jernberg — hinn nær
fertugi sænski skíðakappi, ól-
ympskur meistari 1956 og
1960 — tryggði Svíþjóð enn
gullverðlaun á Vetrar-leikun-
um, þegar hann sigraði með
yfirburðum í 50 km. skíða-|
göngunni á leikunum í gær,
nær mínútu á undan landa'
sínum Assar Rönnlund. Og!
5angan var að öðru Jeyti stór-
sigur fyrir Norðurlandabúa, j
því í fvrstu sætunum komu
Svíar, Norðmenn og Finnar og
hinir fjórir keppendur Sví-
þjóðar og Noreps voru meðal
tíu beztu.
Jernberg sýndi enn einu sinni
hver „taktiker" hann er. Hann hóf
gönguna varlega og eftir 10 km.
var hann aðeins í fjórða sæti, en
eftir 35 km. var hann kominn í
annað sætið — á eftir Ólympíu-
meistaranum í greininni 1960,
Hamalainen, sem hafði verið lang-
fyrstur framan af og hélt foryst-
unni um 40 km., en sprakk þá al-
veg, og hafnaði að lokum í 15.
sæti. Síðustu 10 km. gekk hinn
þrautreyndi Svíi mjög vel, og þá
var greinilegt, að hann myndi
standa efstur á verðlaunapallin-í
um eins og Missure eftir 30 km. I
og í Squaw Valley, einnig eftir 30
km. Jernberg hefur einnig hlotið
fjölmörg önnur verðlaun á Ólym-j
píuleikum.
Finninn Mantyranta, sem hafði
sigrað svo glæsilega í 15 km. ogí
30 km .fyrr í Innsbruck — og
var álitinn mjög sigurstranglegur
í gær — náði sér aldrei verulega
á strik. Hann var sjötti eftir 10 km
og var níundi eftir 35 km., sem
einnig varð lokatala hans í marki.
í heild var gangan mikill sigur
fyrir Norðurlöndin, og allt frá
10 kih. var greinilegt, að göngu-
menn annarra þjóða myndu ekki
blanda sér í baráttuna um efstu
sætin. Fyrstu 10 urðu þessir:
1-Jernberg, Svíþjóð 2.43.58,6
2. Rönnlund, Svíþjóð 2.44.58,2
3. Tiainen, Finnland 2.45.30,4
4. Stefansson, Svíþjóð 2.45.36,6
5. Stensheim, Noregi 2.45.47,2
6. Grönningen, Noregj 2.47.03,3
7. Östby, Noreg 2.47.20,6
8. Ellefsater, Noreg 2.47.45,8
9. Mantyranta, Finnl. 2.47.47,1
10. Risberg, Svíþjóð 2.48.03,0
hlaupið í Squaw Valley á nýju
heimsmeti.
En það voru ekki allir ánægðir
eftir hlaupið- Sænski heimsmeist-
arinn, Johnny Nilsson, náði að-
eins sjötta sæti. Við fréttamenn
sagði hann: „Ég áleit, að ég myndi
standa mig mun betur, því allt
virtist 1. flokks hér, og ég skil
ekki að mér fannst ég þegar orð-
inn þreyttur eftir nokkra hringi".
Fyrstu 12 urðu þessir:
1- K. Johannessen, Noregi 7:38,4
2. Per Ivar Moe, Noregi, 7:38,6
3. Fred A. Maier, Noregi, 7:42,0
4. V. Kositkin, Sovétr., 7:45,8
5. H. Strutz, Austurríki, 7:48,3
• 6. J. Nilsson, Svíþjóð, 7:48,4
7. Ivar Nilsson, Svíþjóð, 7:49,0
8. R. Liebrechts, Hollandi, 7:50,9
9. C. Verkerk, Hollandi, 7:51,1
10. M. Habibulin, Sovétr., 7:52,3
11. G. Traub, Þýzkal., 7:53,9
12. Kurt Stille, Danmörku, 7:56,1
SIXTEN JERNBERG
fagnað í Innsbruck.
TÍMINN, fimmtudaglnn 6. febrúar 1964